Alþýðublaðið - 15.10.1993, Side 1
Framtíð íslands í Evrópu fréttaefni Reuters - Jón Baldvin
Hannibalsson, utanríkisráðherra, hafnar sýn um Island sem
skattaparadís - Jónas Kristjánsson} ritstjóri DV,
líkir EB við mafíuna og telur að Islandi vœri
betur borgið innan hennar en utan
ÍSLENDINGAR STANDA FRAMMI
FYRIR KALDRITILVERU í
FRAMTÍÐ UTAN EVRÓPU
Eftirfarandi er frétt sem Reuter fréttastofan sendi frá sér nýlega:
„Islendingar eru að velta fyrir sér hvort þeir eigi að verða skattaparadís í
Monte Carlo stíl til að forðast fátækt og einangrun í miðju norður Atlants-
hafi. Hin fámenna eyja sem byggir allt sitt á því sem upp úr sjó kemur íhug-
ar nú vandlega framtíðina. Samtökin sem ísiand hefur lengi verið aðili að -
EFTA, NATO og Norðurlandaráðið - virðast líkleg til að færast nær Evr-
ópubandalaginu, en ísland hefur útilokað það að svo komnu.“
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
„Island stendur frammi fyrir napri
og einmanalegri tilveru ef öll önnur
Evrópuríki ákveða að ganga í EB,“
segir Gunnar Helgi Kristinsson, að-
stoðarprófessor í stjómmálafræði.
„Eini valkosturinn fyrir ísland fyrir ul-
an EB aðild þegar til lengri tíma er lit-
ið,“ segir Gunnar,
„væri að verða stikkfrí
ffá samsteypunum og
bjóða skattafvilnanir
sem ekki eru fáanlegar
í stæni ríkjum - eins
og Mónakó, Liechten-
stein og Ermarsunds-
eyjar gera.“
Þessi stragetfa var
skoðuð af ríkisstjórn-
inni en utanríkisráð-
herrann ''Jóii Baldvin
Hannibalsson sagði að
hann væri persónulega
andvígur henni, ekki
síst vegna x þeirrar
hættu sem íslenskri
menningu og fullveldi
stafaði af henni.
„Eg get ekki séð Is-
land sem miðstöð pen-
ingaþ'vottar og paradís
skattsvikara," sagði
Jón Baldvin í samtali
við Reuters.
EB aðild er ekki á
dagskrá eins einasta
stjómmálaflokks eða
samtaka á íslandi þótt
skoðanakannanir gefi
til kynna að um 20
prósent atkvæðabæira
manna myndi vilja at-
huga aðild en 45 pró-
sent standa gegn aðild
eða em óákveðnir.
„Það er fyrirsjáan-
legt að Island gæti
gerst aðili einn dag-
inn, en það em ekki
raunsæjar horfur á því
á þessari öld,“ sagði
Jón Baldvin. „ísland
er mjög lítið land sem
hefur rétt nýlega öðl-
ast fullt sjálfstæði og
sagan á sér sterkar
rætur hér. Andstaða er
mikil við því að láta
nokkuð eftir af full-
veldinu," sagði hann.
Sjávarafurðir, sem
svara fyrir 80 prósent
vömútflutnings, hafa
gert Islandi kleift að
vera eitt hagsælasta
JÓN BALDVIN
HANNIBALS-
SON,
utanríkisráöherra
- hafnar skatta-
paradjsarleiðinni
fyrir ísland. Vill
bíða og sjá hvað
Norðmcnn fá út úr
aðildarsamning-
um við EB.
JÓNAS
KRISTJÁNSSON,
ritstjúri DV - scgir
í viötali við frétta-
mann Reuters að
Islendingum væri
hctur borgið innan
EB en utan enda
væru íslcnskir
stjórnmálamenn
snillingar í inn-
byrðisdeilum.
land veraldarinnar þrátt sex ára sam-
dráttarskeiði undanfarið sem enn er
ekki séð fyrir endann á. Lykillinn að
hagsældinni var einhliða útfærsla ís-
lendinga á fiskveiðilandhelgi sinni í
200 mílur setn leiddi til „þorskastríðs-
ins“ við Bretland snemma á áttunda
áratuginum.
„EB aðild ntyndi hala hið óhugsan-
lega í fór með sér, það er að segja ís-
lendingar myndu gefa eftir 200 mflna
landhelgina og yfirráð yfir náttúmauð-
lindum sínum. Við gætum ekki búist
við að EB veitti okkur nauðsynlegar
undanþágur frá sameiginlegri flsk-
veiðistefnu sinni," sagði Jón Baldvin.
ísland hefur fylgst náið með aðild-
arviðræðum norrænnu nágranna sinna
Noregs, Svíþjóðar og Finnlands að
EB. „Nái Norðmenn fram ásættanleg-
um samningum varðandi sjávarút-
vegsmál, sem mér finnst ólíklegt, má
vera að við skoðum málið upp á nýtt,“
sagði utanríkisráðherrann. „Þegar til
skemmri tíma er litið, er þörfum okkar
hvað verslun varðar fullnægt með
samningnum unt EES milli EFTA og
EB þar sem Island skipti á fiskveiði-
réttindum fyrir tolla EB á fiskaíurðir."
Jónas Kristjánsson, ritstjóri dag-
blaðsins DV sagði: „EB er eins og ma-
fían, stríðandi við alla utanaðkomandi.
Og eins og Sikileyingamir gera, þá
eigum við að ganga til liðs við maff-
una til að koma í veg fyrir að hún geri
okkur óleik. I staðinn gætum við vald-
ið þeim vanda innan frá. Stjómmála-
menn okkar yrðu mjög hæfir til
þessa.“
RAPSODIA - íslensh hönnun
á stól fyrir veitingahús
FJÖLDAFRAMLEIÐSLA
í ÞÝSKALANDI
íslenskur veitingahúsastóll, - RAPSODIA - fer í
fjöldaframleiðslu í Þýskalandi um næstu áramót.
Sigurjón Pálsson, innanhússarkitekt og sölustjóri í
innréttingadeild IKEA er höfundur þessa stóls.
„Eg sýndi stólinn á
húsgagnasýningunni í
Bella Center í Kaup-
mannahöfn og þar
kom til mín forstjóri
fyrir Bmne Möbelfa-
brik GMBH. Forstjór-
inn, Wolfgang Bmne,
var mjög áfjáður í að
fá samning strax á
staðnum, en ég vildi
bíða fram yfir sýn-
ingu. Það reyndust
margir hafa áhuga, en
Bmne var ákveðinn
og þegar ég heimsótti
aðalverksmiðju hans í
þorpi sem heitir Kön-
igswinter-Oberpleis, rétt við Köln, gerðum við samning-
inn“, sagði Sigurjón Pálsson í samtali við Alþýðublaðið
í gær. I þessari verksmiðju vinna hátt á 4. hundrað starfs-
menn.
Stóllinn er hugsaður fyrir veitingahús sérstaklega, en
getur eigi að síður hentað vel á heimilum og annarsstað-
ar. Ekki aðeins gott útlit vakti athygli, heldur einnig að
stafla má stólunum í stæður þannig að lítið fer fyrir
þeim, sem og snjöll lausn og lítt áberandi við að læsa
stóla saman án þess að lýta hönnunina.
Fyrirtækið Brune Möbelfabrik er nteð verksmiðjur á
þrent stöðum í Þýskalandi, þar af eina í Austur-Þýska-
landi, sem hefur verið byggð upp að nýju og er afar nú-
tímaleg. Þá rekur fyrirtækið verksmiðju í Suður-Amer-
íku.
Verksmiðjan er þegar byrjuð á markaðsátaki sínu og
mun dreifa bæklingum um Rapsodia-stólinn til arki-
tekta, veitingahúsa og annan-a vænlegra kaupenda.
„Eg tel mig vera með góðan samning í höndununt.
Samið var um greiðslu fyrir hvem seldan stól, ég kaus
það frekar en að fá eina heildargreiðslu. Nú vonar mað-
ur bara það besta um framhaldið", sagði Sigurjón Páls-
son í gær.
Afmœlisþing SÍR
í Háskólabíói á morgun
FRÓDLEIKUR OG
SKEMMTUN FYRIR ALLA
„Þetta verður óhefðbundin hátíð og dagskráin
sniðin með áhuga almennings í huga,“ sagði Þor-
steinn Hilmarsson hjá Landsvirkjun í samtali við
blaðið. Það verður mikið um að vera í Háskólabíói á
morgun þar sem 50 ára afmælisþing Sambands ís-
lenskra rafveitna fer fram. Fjölbreytt erindi verða
flutt í öllum sölum hússins auk sýninga inn húss og
utan. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir á af-
mælisþingið.
Afmælisþingið hefst klukkan 10.30 í sal 2. Þar munu
kórar starfsmanna Landsvirkjunar og Rafmagnsveitna
ríkisins syngja. Aðalsteinn Guðjohnsen fomiaður SÍR
setur þingið og Sighvatur Björgvinsson iðnaðarráðherra
flytur ávarp. Síðan munu Sveinbjöm Bjömsson rektor
og Jóhannes Nordal flytja erindi. Einnig ntun Roger
Farrance framkvæmdastjóri breska rafveitusambands-
ins ræða um framtíð raforku í Evrópu.
Eftir hádegi verða flutt tjölmörg stutt erindi af lands-
þekktum mönnum sem em í fremstu röð á sínu sviði.
Tilgangur þingsins er að gefa almenningi kost á að sjá
og heyra hugmyndir manna um stöðu íslands og mögu-
leika í náinni framtíð. Á þinginu verða tekin fyrir mál-
efni sem snerta framtíð lands og þjóðar.
- Sjá nánar umfjöllun
um SIR á blaðsíðum 4og 5
RAPSODIA - hugverk Sigur-
jóns Pálssonar, innanhússarki-
tekts, - stóllinn er úr stálgrind,
sctan bóistruð, bak úr mahóní
eða beyki, einnig möguleiki á lit-
uðu baki. Hliðarlæsingin vakti
mikla athygli á Bella Center.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason