Alþýðublaðið - 19.10.1993, Síða 8
HANKOOK
sumarhjólbardarnir
vinsælu
á lága verðinu
Leitiö upplýsinga
og geriö
verðsamanburð
Barðinn hf.
Skútuvogi 2 # simi 68 30 80
HANKOOK
sumarhjólbaröarnir
vinsælu
á lága veröinu
Leitiö upplýsinga
og gerið
verösamanburö
Barðinn hf.
Skúturogi 2 • sími 68 30 80
Ódýrari matvörur
Fólk hugar mikið að spamaði um þess-
ar mundir. Ein leiðin til verulegs spam-
aðar er svokallað Heimiliskort á vegum
Heimilisklúbbsins. Með kortinu er hægt
að gera ódýrari innkaup í formi afsláttar.
Núna er boðið upp á 50% afslátt af
brauðum og kökum, auk ótrúlega hag-
stæðra verða á nautakjöti, kjúklingum og
fleiru. Afsláttargjafar á kortunum em nú
orðnir 150, en korthafar á um 20 þúsund.
Heimilisklúbburinn er í Bolholti 6, sím-
inn er 682706.
Verkalýðsfélögin hafa keypt Heimilis-
kortin fyrir félaga sína, enda mikil kjara-
bót. Hér tekur Krístján Gunnarsson, for-
maður Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur, við kortinu af Hákoni Há-
konarsyni, framkvæmdastjóra Heimilis-
klúbbsins.
Góð verkefni - góð sala
Borgarleikhúsið virðist ætla að bjóða upp á margt áhugavert á ijölunum í vetur.
Það hefur þýtt gífurlega aukningu á sölu aðgangskorta Leikfélags Reykjavíkur, eða
um rúmlega 45% miðað við í fyrra. Greinilega líst almenningi vel á verkefnavalið í
ár. í fyrra skákaði Þjóðleikhúsið keppinautum eftirminnilega og þar loguðu rauðar
luktir yfir aðaldyrum veturinn langan, merki um að uppselt er í húsið. Hjá LR er
Spanskflugan gífurlega vinsæl, alltaf uppselt; Elín Helena eftir Arna Ibsen nýtur
vinsælda eins og Alþýðublaðið spáði, - uppselt er einar 15 sýningar fram í tímann!
Þá er Ronja Rœningjadóttir gífurlega vinsælt verk. Ahugi á leikhúsi þessa dagana
er mikill, - til dæmis koma 3-4 þúsund manns í Borgarleikhúsið í viku hverri.
Tvær frá Gana vilja pennavini og ást
Afríkustúlkur vilja greinilega eignast íslenska eiginmenn eftir bréfum til blaðs-
ins að dæma. Tvær stúlkur frá Cape Coast sendu okkur bréf og óska eftir pennavin-
um:
Betty Abaidoo, 25 úra, P.O.Box 49, Cape Coast, Ghana, WestAfrica. Hún hef-
ur áhuga á sundi, tónlist, póstkortum, myndum, ferðalögum - og hjónabandi. Pro-
spin Ayeley, 26 úra, P.O. Box 49, Cape Coast, Gliana, West Africa. Hún hefur
gaman af að elda, elskar myndir, póstkort, ferðalög, ást og hjónaband.
Góð loðnuveiði
Síðustu dagana hefur loðnuveiði gengið með miklum ágætum. Frá fimmtudegi
fram á daginn í gær komu á land 16.418 tonn og vitað um rúm þúsund tonn á leið-
inni til lands. Smám saman saxast á heildarkvóta loðnunnar sem er rúm 700 þúsund
tonn. Búið er að veiða rúm 423 þúsund tonn.
Hrefnan lagði sig á milljón
Það virðist vera á við happdrættisvinning að fá hrefnu í netin. Samkvæmt Víkur-
fréttum í Keflavík var kjötið sem skipveijar á Farsœli GK-162 fengu í netin í Hcels-
vík undir Krísuvíkurbjargi virði einnar milljónar króna, eða eins og tíu tonn af
þorski. Fréttin er þó ekki staðfest. Kjötið af dýrinu var selt í fiskbúð í Kópavogi og
seldist nánast á stundinni.
Bein markaðssókn
Stjórnunarfélag íslands gengst fyrir tveim námstefnum um beina markaðssókn,
eða Direct Marketing eins og það heitir á ensku. Þær fara fram dagana 19. október,
í dag og 21. október. Hefur félagið fengið til liðs við sig John Frazer-Robinson til
að stjóma námstefnunum. Nánari upplýsingar hjá Stjómunarfélaginu.
Fræðslukvöld um þjáninguna
Séra Sigfinnur Þorleifsson, sjúkrahúsprestur við Borgarspítalann mun ræða um
efnið Gúta þjúningarinnar á fyrstafrœðslukvöldi Reykjavíkurprófastsdœmis, sem
verður í kvöld kl. 20.30 í Laugarneskirkju. Séra Sigfinnur hefur víðtæka reynslu úr
starfi sínu í að ræða við fólk í mikilli sorg og angist. Allir velkomnir á fundinn.
Matvæladagur hjá matglaðri þjóð
íslendingar hafa á síðari ámm lagst í bílífi mikið í mat og drykk, enda matur oft
og einatt umræðuefni þar sem fólk kemur saman. Nú er blásið til Matvœladags,
sem haldinn verður á laugardaginn kemur. Matvœla- og nœringarfrœðingafélag
Islands stendur fyrir deginum áHótel Loftleiðum, ráðstefnu og vörusýningu. Dag-
urinn verður helgaður gæðum íslenskrar matvælaframleiðslu.
Amnesty International
ÁKALL UM HJÁLP!
BRASILÍA
Sjö „götubörn“ og ungur maður, sem
með þeim bjó, voru skotin til bana - að
því er sagt af lögreglunni - í miðborg Rio
de Janeiro, hinn 23. júlí síðastliðinn. Að
minnsta kosti 328 börn og unglingar
féilu í valinn í fylkinu Rio de Janeiro á
fyrstu sex mánuðum ársins.
I dagrenningu hófu byssumenn skothríð
á hóp 50 bama og unglinga sem sváfu und-
ir bemm himni nálægt Candelaria- kirkju.
Fimm þeirra vom drepin á staðnum, örðum
tveimur var banað á lóð Nýlistasafnsins.
Áttunda fómarlambið lést af sámm sfnum
fjórum dögum síðar.
I kjölfar háværra mótmæla frá innlend-
um og erlendum aðilum gegn Candelaria-
blóðbaðinu, einsog það er nefnt, hafa fjórir
menn - þeirra á meðal þrír lögregluþjónar -
verið ákærðir fyrir glæpinn, leitað er að öðr-
um sem gmnaðir em.
Þeir sem létu lífið vom: Paulo Roberto
Oliveira (11 ára), Anderson Thome Per-
eira (13 ára), Marcelo Candido de Jesus
og Valderino Miguel de Almeida (báðir
14 ára), Gambozinho og Nogento (báðir
17 ára), Paulo José da Silva (18 ára) og
Marcos Antonio Alvez da Silva (22 ára).
Aftökur án dóms og laga á fullorðnu
fólki jafnt sem bömum eiga sér stað í þétt-
býli Brasilíu og em framkvæmdar af
„dauðasveitum", sem oft em borgaralega
búnir lögregluþjónar. Þessar sveitir em fjár-
magnaðar af kaupsýslumönnum sem hafa
hug á að „hreinsa" nágrenni sitt af félags-
lega óæskilegu fólki, ræningjum og smá-
þjófum sem og götubörnum sem sjálf
kunna að hafa leiðst út á glæpabraut.
Dómsmúlarúðuneytið hefur tilkynnt að
lögreglan sé að rannsaka framferði „dauða-
sveita" í Rio de Janeiro og öðmm fylkjum.
Hingað til hafa yfirvöld í Brasilíu ekki lok-
ið þvílíkum rannsóknum né sótt sökudólga
til saka.
Sendið kurteisislegar áskoranir og látið í
ljós óánægju með ráðstafanir sem gerðar
hafa verið til að rannsaka Candelaria-
morðin, og hvetjið til þess að allt verði gert
til að vemda bömin sem bera vitni í málinu.
Ennfremur að öll slík mál verði rækilega
rannsökuð og sökudólgar sóttir til saka.
Utanáskriftin er:
President Itmar Franco
Palácio do Planalto
Brasilia D.F.
Brazil
EGYPTALAND
Sa’d al-Din al-Shazli, 71 árs gamall
fyrrverandi sendiherra og yfirmaður eg-
ypska hersins, var handtekinn 14. mars
1992 á flugveilinum í Kaíró eftir 14 ára
sjálfvalda útlegð í Lýbíu og Alsír.
Okunnugt var um dvaiarstað hans í all-
margar vikur eftir handtökuna.
Að sér fjarverandi hafði Sa’d al-Din al—
Shazli verið dætndur árið 1983 í þriggja ára
fangelsi fyrir að gera uppskátt um hernaðar-
leyndarmál varðandi stríð Araba og ísraelu
1973 í bók sem gefin var út 1981.
I ágúst 1992 úrskurðaði Hœstiréttur ör-
yggismúla, að dómurinn frá 1983 skyldi
vera skilorðsbundinn. En fáum dögum eftir
þann úrskurð staðfesti Æðsti herréttur að
dómurinn skyidi standa óbreyttur. Æðsti
stjórnlagadómstóll hefur haft þess tvo
ósamhljóða dóma til rannsóknar en ekki
enn getað lagt fram úrskurð sinn. Meðan
þessu fer fram er Sa’d al-Din al-Shazli
haldið í algjörri einangmn á spítala herfang-
elsis fyrir utan Kaíró.
Amnesty Intemational hefur vemlega
áhyggjur af sanngimi úrskurðarins frá
1983. Starfshættir réttarins vom ekki í sam-
ræmi við viðteknar alþjóðlegar reglur um
hlutlausa dómsmeðferð einsog þær em
skráðar í Alþjóðasamningnum um borg-
araleg og stjórnmúlaleg réttindi, sem Eg-
yptaland staðfesú árið 1982. Sa’d al-Din
al-Shazli var dæmdur að sér fjarverandi og
var að sögn synjað um rétt úl að áfrýja máli
sínu. Auk þess vom réttarhöldin haldin fyr-
ir luktum dyrum og lögmanni sakbomings
meinað að koma í réttarsalinn. Egypsk
stjómvöld skrifuðu Amnesty Intemational í
lok júlí 1992 og fullyrtu að réttarhöldin
1983 hefðu verið óhlutdræg og sanngjöm
og að sakbomingurinn hefði áfrýjað mál-
inu, en áfrýjun hans verið synjað.
Sendið áskoranir og hvetjið til þess að
mál Sa’d al-Din al-Shazli verði þegarí stað
tekið upp að nýju í samhljóðan við alþjóð-
legar reglur um óhlutdræga dómsmeðferð
eða hann verði að öðmm kosti látinn laus án
tafar.
Utanáskriftin er:
His Exellency Muhammed Hosni
Mubarak
President of the Arab Republic
ofEgypt
’Abedine Palace
Cairo
Egypt
MÝANMAR
U Shwe Ohn, sjötugur lögfræðingur og
leiðtogi stjórnmálaflokks sem herfor-
ingjaklíkan hefur bannað, var handtek-
inn í desember 1992 fyrir að láta í ljós
efasemdir um hlutverk hersins í stjórn-
málum og æskja þess að völdin í landinu
væru fengin í hendur kjörnum fulltrúum
þjóðarinnar.
Hann var að sögn dæmdur í eins árs fang-
elsi í febrúar síðastliðnum, en Amnesty Int-
emational hafa ekki borist neinar nánari
fregnir af réttahöldunum yfir honum né
sökum sem á hann vom bomar.
Gagnrýni hans á afskipti hersins af
stjómmálum landsins kom fram í ritgerð
sem hann sendi þjóðþingi sem kvatt var
saman fyrr á þessu ári af Endurreisnarráði
laga og reglu, skipuðu herforingjum sem
með völdin fara.
Þjóðþingið svonefnda var kvatt saman úl
að semja drög að nýrri stjómarskrá. Endur-
reisnarráðið hafði þegar lagt fram sín eigin
fyrirmæli um inntak stjómarskrárinnar sem
tryggja skyldi að herinn færi með veiga-
mikið hlutverk í stjómmálum landsins í
framtíðinni. Eftir að EndurreisnaiTáðið
herti tök sín á stjóm Mýanmars árið 1988,
nam það stjómarskrána úr gildi og hefur
síðan stjómað með herlögum. Enda þótt
það leyfði almennar kosningar árið 1990,
þá neitaði það að kalla saman kjörið þjóð-
þing landsins.
U Shwe Ohn er formaður Lýðrœðis-
bandalags þjóðlegra kynþátta í Shan-fylki
og bannað var sem löglegur stjómmála-
flokkur af Endurreisnarráðinu í febrúar
1992. Hann er samviskufangi sem fangels-
aður var fyrir það eitt að láta með ffiðsam-
legum hætti í ljós pólitískar skoðanir sem
em andvígar hverskyns ofbeldi.
Sendið kurteisislega orðaðar áskoranir
og farið fram á að U Shwe Ohn verði tafar-
laust og án allra skilyrða látinn laus.
Utanáskriftin er:
Senior General Than Shwee,
Chairman,
State and Order Restoration Council
Ministry of Defence
Signal Pagoda Road
Yangon (Rangoon)
Union of Myanmar (Burma)
Vinningstölur
laugardaginn:
16. okt. 1993
VINNINGAR
5 af 5
m
+4af5
m
4 af 5
m
3 af 5
FJÓLDI
VINNINGA
107
3.309
UPPHÆÐ
Á HVERN VINNING
2.233.513
55.377
6.249
471
Aðaltölur:
T)(*
12 22 31
BÓNUSTALA:
(26Í
Heildarupphæð þessa viku:
kr. 4.848.334
UPPLÝSINGAB, SÍMSVARI91-68 15 11
LUKKULlNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451