Alþýðublaðið - 21.10.1993, Blaðsíða 1
GULLNÁMAN - 400 happdrœttisvélar Happdrœttis Háskólans flœða
um land allt eftir samkomulag við Rauða krossinn og samstarfsaðila
hans í spilakassarekstri
Á EKKIAÐ LEIÐA
/ ••
- segja talsmenn Háskólahappdrœttisins og segja
að trygg gœsla verði við spilamennskuna
Forsvarsmenn Happdrættis Há-
skóla íslands vilja ekki meina að
spilakassar eða happdrættisvélar
sem svo eru kallaðar og senn verða
settar upp á 20-22 stöðum á Islandi.
alls 400 vélar, muni leiða til spila-
tíknar, hér sé aðeins um að ræða
skemmtilega tómstund, nýja tegund
af happdrætti á tölvuöld, sem eigi
ekki að leiða af sér hörmungar í
einkalífí fólks. Eftirlit verði með
kössunum og séð til þess að óeðlileg
fíkn ráði ekki för hjá þátttakend-
um.
Gullnáman heitir þetta nýja happ-
drætti, símtengt landshappdrætti, sem
aðeins verður hægt að taka þátt í á vín-
veitinga- og skemmtistöðum sem og á
hótelum á sérstökum spilastofum. Eitt
þeirra hótela mun vera Hótel Saga,
sem mun ætla sér stóran sess og taka
Mímisbar allan undir happdrættisvélar
samkvæmt því sem Alþýðublaðið hef-
ur fregnað.
Blaðamenn fengu að kynnast köss-
um þessum í gær, eftir að fulltrúar
Happdrættisins annarsvegar og RKÍ,
SAA, SVFI og Landsbjargar hinsveg-
ar, höfðu gert með sér samkomulag að
undirlagi dómsmálaráðherra, Þor-
steins Pálssonar. Fundahöld voru löng
og hart barist að sögn. Fram kom á
þeim fundi að tala spilakassa RKÍ og
samstarfsaðilanna var afar mikið á
PÓLITÍSK TILVISTARKREPPA
ÓLAFS RAGNARS GRÍMSSONAR
„Olafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins,
hefur átt í pólitískri tilvistarkreppu. Hann er í vaxandi mæli
umdeildur innan eigin flokks, og bæði fyrrverandi fomtaður
flokksins, Svavar Gestsson, núverandi varaformaður hans,
Steingrímur J. Sigfússon, auk óbreyttra þingmanna úr
flokknum, hafa á liðnu sumri talið sig knúna til að efast um
hæfileika hans til að leiða Alþýðubandalagið. Gagnrýnin á
Olaf er skiljanleg. I mörgum helstu átakamálum þjóðmál-
anna hefur formaðurinn sérskoðanir, sem eru aðrar en flokks-
ins. Þar nægir að nefna afstöðuna til Nató og hersins, viðhorf-
in til EES, stjómunar fiskveiða, auk annarra.
Nú hefur formaður Alþýðubandalagsins fundið ráð við
þessu. Lausn hans felst í því að leggjast í mikla siðbótarher-
ferð. Hann hefur af því tilefni sveipað sig kufli vandlætarans,
og fer mikinn í ræðum í þinginu, þar sent hneykslan hins heil-
aga drýpur af hverju orði. Hann hefur jafnvel lagst svo lágt,
að ýja á eldhúsdegi að sögusögnum um ónafngreinda ráð-
herra.
En hvemig er ferill hins nýja siðbótarpreláta, - þolir hann
sama kvarða og hinn nýi Lúter Alþýðubandalagsins vill
leggja á aðra stjómmálaflokka?“
- Sjá leiðarann á blaðsíðu 2.
Landsfundur Sjálfstœðisflokksins settur í dag
SJÚKLINGAR KOSJI
REKSTUR SJUKRAHUSA
- segir í einni afályktunum landsfundarins
Sjúkrastofnanir á að fjárniagna með
greiðslum sem fylgja hverjum sjúklingi í
samræmi við sjúkdómsgreiningu, að-
gerð, hjúkrunarálag og svo framvegis,
segir í drögum að ályktun um heilbrigð-
ismál, sem 31. landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins mun taka til meðferðar á
næstu dögum. Landsfundurinn hefst í
Laugardalshöll í eftirmiðdaginn í dag og
lýkur á sunnudag.
í ályktunum sem fyrir fundinuin liggja
er lfka lagt til að völd heilbrigðisráðuneyt-
is verði skert til muna, dregið veríii úr
„miðstýringu og rekstri á vegum heilbrigð-
isráðuneytis“, eins og segir í ályktun fund-
arins.
Hinsvegar virðast tannlæknar og lyfsalar
eiga að fá að sigla lygnan sjó um alla frant-
tíð, ef marka má ályktanir þær sem Al-
þýðublaðið hefur fengið til skoðunar.
Á mörgu er tekið í ályktunum lands-
fundar að venju, en á ýmsum stærri sviðunt
virðist fátt eitt fréttnæmt, til dæmis í land-
búnaðar- og sjávarútvegsmálum.
Talað er um „offrantboð félagslegra
íbúða" og að flokkurinn vilji gera hús-
bréfadeild Byggingarsjóðs ríkisins- að
einkafyrirtæki og freista þess að fjármagna
fyrstu íbúðakaup allt að 90-100%!
- Sjá nánar
umfjöllun
á btaðsíðu 3
Ragnar Ingimarsson, forstjóri Happdrættis Háskóla íslands (t.h.), ásamt Sveinbirni
Björnssyni, háskólarektor, við spilavélarnar sem scnn verða settar upp um land allt.
reiki, sem og hagnaður af þeim.
Rauðakross-kassarnir ntunu skipta
hundruðum, nýir og gamlir, og tekjur
af þeim áætlaðar um 400 milljónir
króna á þessu ári
I ljósi þessa samkomulags mun
dómsmálaráðuneytið staðfesta reglu-
gerð uin pappírslaust peningahapp-
drætti Háskóla Islands. Einnig beitir
ráðuneytið sér fyrir því að lagaleg
staða reksturs söfnunarkassa Rauða
krossins, SÁÁ, Slysavarnafélagsins
og Landsbjargar verði tryggð.
Samkomulag aðilanna felur í sér að
miðað við tilteknar forsendur verði
hreinum tekjum aðila skipt þannigað í
hlut aðilanna fjögurra komi funtn
hlutar á móti tveimur í hlut Happ-
drættis Háskólans. Fjölda kassa verða
sett efri mörk þannig að Rauði kross-
Ein tegundin af spilavélunum margum-
töluðu scm gctur gefið heppnum manni
hundruða þúsunda króna vinning. Höf-
uðpaurar vélanna segja þetta aðcins
skcmmtilegt tómstundagaman.
inn og samstarfsaðilar reki mest 500
kassa, þar af 50 á vínveitingastöðum
og að Happdrætti Háskólans reki mest
400 kassa, þar af 65 á almennum spila-
stofum sem yrðu á þrem stöðum og
þar af tveim í Reykjavík.
Meðfragtara til Evrópu
418 HAFA SIGLT
Á ÞESSU ÁRI
Á fyrstu níu mánuðum þessa árs hafa 418 farþegar
ferðast með skipum Eimskips til og frá Evrópu, en frá
því að þessir flutningar hófust á árinu 1989 hafa tæp-
lega 2.700 farþegar ferðast með skipunum. Eimskip
býður upp á farþegaflutninga á Evrópuleiðum með
systurskipunum Brúarfossi og Laxfossi, stærstu skip-
uni íslenska kaupskipaflotans og eru 6 farþegaklefar í
hvoru skipi. Árlegur farþegafjöldi hefur verið svipað-
ur á undanförnum þremur árum og sama gildir um
fjölda farþegadaga um borð.
Árið 1991 nýttu 507 sér þjónustu Eimskips og þá voru
farþegadagarnir 2.236. Árið 1992 voru farþegar 484 en
farþegadagar 2.222.
Siglingaleið skipanna liggur frá Reykjavík til Imming-
ham í Bretlandi, þaðan fara skipin til þriggja hafa á meg-
inlandi Evrópu, Hamborgar, Ántwerpen og Rotterdam.
Hægt er að sigla tíl einhverra af þessum viðkomuhöfnum
og koma um borð aftur á heimleið í hvaða höfn senr er eft-
ir lengri eða skemmri dvöl í landi. Á leið sinni aftur heim
til Islands koma skipin aftur við í Bretlandi og eru komin
til Reykjavíkur þremur dögum seinna.
Flestir farþeganna eru frá Þýskalandi og Bretlandi, en
einnig hefur nokkuð borið á því að landinn kjósi þennan
ferðamáta.
Um verð á jtessum ferðum má taka sem dæmi að það
kostar 30.230 kr. fyrir einn í klefa að sigla frá Reykjavík til
Hantborgar. Deili maður klefa með öðaini kostar ferðin
20.159 og verðið lækkar enn meira deili maður klefa með
þremur. Vilji menn taka bílinn með sér kostar það 18.190
að auki sé hann lengri en 5 metrar.
VERÐANDI ályktar
INGIBJÖRGU SÓLRÚNU
SEM BORGARSTJÓRA
„Stjórn Verðandi telur afar brýnt að félagshyggju-
fólk í Reykjavík komi sér saman um borgarstjóraefni
áður en til kosninga kemur. Borgarstjóracfnið verð-
ur að njóta vinsælda og virðingar nieðal Reykvík-
inga. Það er því engin furða að nafn Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur hefur oft vcrið nefnt í þessu sam-
bandi,“ segir í ályktun sem stjórnarfundur Verðandi
- samtök ungs alþýðubandalagsfólks og óflokks-
bundins félagshyggjufólks sendi frá sér í fyrradag.
Niðurlag ályktunarinnar er á þessa leið: „Stjóm Verð-
andi fer fram á það við forystumenn félagshyggjuaflanna
í Reykjavík að þeir taki af skarið og leiti eftir þvf við
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að hún taki þetta viða-
mikla verkefni að sér.“
OPNA UNGA
FÓLKSINS
I Alþýðublaðinu í dag er sérstök OPNA UNGA
FOLKSINS. Þessi nýbreytni í blaðinu er í umsjá
Sambands ungra jafnaðarmanna með ritstjóra
þess, Ingvar Sverrisson, í fararbroddi. Áætlað er
að opnan muni vera í biaðinu hálfsmánaðarlega
og verða þar tekin fyrir málefni ungs fólks í skól-
um, atvinnulífinuog stjórnmálum. Vakin skal at-
hygli á því að blaðinu verður af þessu tilefni
dreift í alla framhaldsskóla á höfuðborgarsvæð-
inu og í Háskóla íslands.
- Sjá Opnu ungafólksins
á bíaðsíðum 4 og 5.