Alþýðublaðið - 21.10.1993, Page 8

Alþýðublaðið - 21.10.1993, Page 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ s I tilefni af 70 ára afmœli AFMÆLISBÓK JÓNASAR - og skemmtun í Borgarleikhúsinu á mánudag Skáldið góða á Kópareykjum í Reykholtsdal, Jónas Arnason, varð 70 ára á síðasta vori. I tilefni af því merkisafmæli gaf Hörpuútgáfan út afmælisbók um Jónas og kom hún út í gær. Bókin heitir Á landinu bláa - hvað annað? Það var Ólafur Haukur Símonarson sem bjó bókina undir prentun og ritar hann formála um Jónas og gildi verka hans. Hann segir frá því að á siglingu á litlum vélbáti um Breiðafjörð hafi áhöfnin tekið að syngja, og hvað mest var sönggleðin og tilfinningin fyrir kvæðinu um sumarið á landinu bláa. „Allir virtust kunna textann og njóta þess að fara með þessar grátbroslegu söngvísur. Þá rann það upp fyrir mér að tími þjóð- skáldanna var ekki liðinn þótt eftir lifði aðeins fjórðungur tutt- ugustu aldar“, segir Ólafur Haukur í lok formála síns. í bókinni Á landinu bláa er úrval af verkum Jónasar Áma- sonar og það má lofa því að það er góð lesning. Sennilega hafa leikrit hans slegið eftirminnilegast í gegn. Og það ekki bara hér á landi, heldur einnig á erlendum leiksviðum. Þau eru hinsveg- ar ekki í þessari bók. Á ntánudagskvöld verður haldin skemmtun í Borgarleikhús- inu klukkan 20.30. Sveitungi Jónasar, enginn annar en Flosi Ólafsson, verður kynnir. Margir mætustu leikarar okkar, flytja leikþætti, sögur úr bókinm og kvæði Jónasar. Auk þess verður mikið sungið af textum skáldsins, meðal annars verður þar mætt Rfótríó svo eitthvað sé nefnt. Færri en vildu komust að í vor þegar haldin var skemmtun í Borgarleikhúsinu í tilefni sjötugsafmælis Jónasar, en sú skemmtun hét „Á landinu bláa“, eins og bókin nú. Sala að- göngumiða er haftn í leikhúsinu. JÓNAS ÁRNASON, - úrval úr bókum hans kom út í gær. Á mánudagskvöld mæta margir bestu leikara og skemmti- krafta okkar og rifja upp sitthvað úr verkum hans. Mynd- in var tekin í gífurlegri sveiflu á afmælishátíðinni síðastlið- ið vor. Alþýöublaðsmynd / Einar Ólason „ Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvœðinu VILJA TVÖFÖLDUN REYKJANESBRAUTAR Nýverið var haldinn aðalfundur sveitafélaga á höf- uðborgarsvæðinu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fundurinn ályktaði meðal annars að brýnt væri að tvöfalda Reykjanesbrautina frá Breiðholtsbraut suður fyrir Vífilsstaðaveg sem fyrsta áfanga. Skorað var á sam- göngumálaráðherra að beita sér fyrir því að þessari framkvæmd yrði flýtt svo kostur væri því með því yrðu umferðamál á Reykjanessvæðinu stórbætt. Fundurinn beindi ennfremur tilmælum sínum til aðildar- sveitafélaganna að kann stofnun byggðasamlags eða stjómar- nefndar um akstur fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu og unnið verði í nánu samstarfí við svæðaskrifstofur um málefni fatl- aðra. Fundurinn segir að markmið með slíku samstarfi verði að bæta þjónustu við fatlaða á höfuðborgarsvæðinu sem og að minnka heildarkostnað sveitarfélaganna við þessa þjónustu. MPTÐIÍBLMÐ Fimmtudagur 21. október 1993 Þú getur vallð um lægs taví irðið 6 s I' eða besta búnaðinn WaVVA '' VICT. R WABT 486SX/25 MHz 486DSX/33 MHZ BraVO LC-2 486SX/25MHZ innifalið í verði: innifalið í verði: innifalið í verði: ] • 4MB innra minni ' ] • 4MB innra minni 1 • 4MB innra minni • 130MB harður diskur ’ • 107MB harður diskur • 120MB harður diskur < 15ms • Cirrus skjákort, 1MB • Local Bus Cirrus skjákort,1MB • Local Bus Cirrus skjákort, 1MB (einnig Locai Bus) • 14" 1024X768 Nl, 72Hz, • AST14" 1024X768 Nl, 72Hz, • 14" 1024x768 Nl, 72Hz, lággeislaskjár, flöktlaus lággeislaskjár, flöktlaus lággeislaskjár, flöktlaus • 3.5" disklingadrif • 3.5" disklingadrif • 3.5“ disklingadrif • Hljóðlát vifta • Hljóðlát vifta, 238 pinna PCA sökkull • Hljóðlát vifta • 1 árs ábyrgð • 3ja ára ábyrgð • 1 árs ábyrgð Kynningarverð r. stgr. Microsoft word 2.0 og Excel 4.0 á tilboðsverði með hverri tölvu kr.39.900,- og meiri ábyrgð ef þú vilt "f ImtMmtmt 'ImÍMtÍémÍ -mtmtmt 1 laöaií hm£U\Í Komdu í verslun okkar eða hringdu í sölumenn og fáðu nánari upplýsingar EJS EINAR J. SKULASON HF Grensásvegi 10, 108 Reykjavík Sími 63 3000 Creiðsluskilmálar Glitnls, CM)

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.