Alþýðublaðið - 22.10.1993, Page 2

Alþýðublaðið - 22.10.1993, Page 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ LEIÐARI, RÖKSTÓLAR & ALÞINGI Föstudagur 22. október 1993 MÞYBUBLMÐ HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566 Útgefandi: Alprent hf. Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason Ritstjóri: Sigurður Tómas Bjðrgvinsson Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason Setning og umbrot: Hermóður Sigurðsson Prentun: Oddi hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566 Fax: 629244 RÖKSTÓUiR LAN DSFU N DARVARPIÐ ER SÍÐASTA HÁLMSTRÁIÐ Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð f lausasölu kr. 140 Landið eitt kjördæmi Það er sérstakt fagnaðarefni að um þessar mundir er hafin málefnaleg umræða um breytingar á kjördæmaskipan landsmanna. Umræðan er að vísu vonum seinna á ferðinni; því um árabil hefur grafið um sig gremja meðal fjölmargra landsmanna yfir óþolandi misvægi atkvæða eftir búsetu. A því er hins vegar ekki hægt að ráða varanlega bót, nema gera eitt kjördæmi úr landinu öllu. Þannig - og aðeins þannig - yrði tryggt að vægi atkvæða yrði ævinlega jafnt, án tillits til búsetu. ✓ I dag er við lýði kosningakerfí, sem tryggir að stjómmála- flokkar fá þingstyrk í hlutfalli við heildarmagn atkvæða um landið allt. Kerfíð er hins vegar óhemju flókið, og eng- inn skilur það nema örfáir sérfræðingar sem við hveijar kosningar em kallaðir stjómvöldum til fulltingis. Það eitt út af fyrir sig ætti að nægja til að dæma kerfið úr leik. Hróplegasti gallinn er þó það misvægi atkvæða eftir kjör- dæmum, sem í núverandi kerfi er fólgið. Tökum dæmi: A bak við sérhvem þingmann Vestfírðinga standa í dag ekki nema 1.096 atkvæði. Þingmaður af höfuðborgarsvæðinu þarf hins vegar hvorki meira né minna en 4.078 atkvæði. Búseta leiðir þannig af sér, að Reykvíkingurinn hefur næst- um fjómm sinnum minni áhrif við þingkosningar en Vest- firðingurinn. íbúar Reykjaness em í svipaðri stöðu og ná- Sjálfstæðisflokkurinn heldur landsfund sinn í Reykjavík um helgina. Það er í sjálfu sér ekki frétt. Ollu heldur áminning um viðtekna hefð. Fréttin er hins vegar sú að Sjálfstæðisflokk- urinn hyggst sjónvarpa frá gleðskapnum. Það er hin fijálsa og óháða alþingisstöð SYN sem mun sjónvarpa ræðunum beint úr Laugardals- höll. Eins og menn vita er það hið frjálsa og óháða íjölmiðlafyrirtæki Islenska útvarpsfé- lagið sem á SÝN en sama fyrirtæki rekur Stöð 2 og Bylgjuna. í marglita auglýsingu sem birtist í kokteil- blaðinu Pressunni, tilkynnir Sjálfstæðisflokk- urinn að sjónvarpað verði „reglulegum frétta- tímum þar sem fréttamenn Landsfundarins skýra frá því helsta sem gerist á fundinum." Það verður spennandi að sjá og heyra frétta- menn Landsfundarins. Hvetjir skyldu það nú vera? Skyldi þó ekki vera Hannes Hólmsteinn, Asdís Halla Bragadóttir eða Birgir Armanns- son? Umsjónarmenn með sjónvarpsrás Lands- fundarins eru þau Jóhanna María Eyjólfsdóttir og Gísli Marteinn Baldursson, sérlegur upp- alningur Hannesar Hólmsteins og hefur meira að segja náð ræðutækni og látbragði læriföð- urins eins og sjónvarpsáhorfendur RUV taka stundum tekið eftir þegar umræðuþættir frá fijálshyggjuhominu hafa verið sendir út. Nú vaknar auðvitað sú stóra spuming, hvers vegna í ósköpunum hyggjast sjálfstæðismenn sjónvarpa þessum langa fundi? Svarið var gef- ið af helsta hvatamanni Landsfundarvarpsins, Friðriki Friðrikssyni, kosningastjóra Davíðs Oddssonar, aðaleiganda Almenna bókafélags- ins og gleðiblaðsins Pressunnar. Friðrik sagði sem svo í viðtali við Morgunblaðið, að nauð- synlegt væri að allir sjálfstæðismenn sem kæmust ekki á Landsfundinn gætu fylgst með því sem fram færi á skjánum. „Fylgið hefur hrunið af Sjálfstœðisflokknum í öll- um skoðanakönnunum síðustu árin. Það má því búast við að margir sitji heima og komi ekki á fundinn. Eins og fjöl- miðlamógúllinn Friðrik bendir réttilega á, þarf flokkurinn að koma til fólksins þegar fólkið neit- ar að koma til flokksins. “ Þetta em auðvitað orð að sönnu. Fylgið hef- ur hmnið af Sjálfstæðisflokknum í öllum skoðanakönnunum síðustu árin. Það má því búast við að margir sitji heima og komi ekki á fundinn. Eins og fjölmiðlamógúllinn Friðrik bendir réttilega á, þarf flokkurinn að koma til fólksins þegar fólkið neitar að koma til flokks- ins. Hingað til hefur það verið yfirlýst stefna Sjálfstæðisflokksins að fólkið ætti að koma til hans. Flokkurinn sem allir vita að er regnhlífa- samtök þrýstihópa, hefur oft kallað sig „flokka allra stétta." Lausafylgið í dag hefur hins veg- ar rýrt flokkinn þessari nafnbót og miklu rétt- ara að kalla kjósendur „stétt allra flokka.“ Og þessa dagana virðist lausafylgið ekki liggja inni í Sjálfstæðisflokknum. Stéttin hefur yfírgefið flokkinn. Sjálfstæðisflokkurinn hefur fyrir löngu upp- götvað að fólkið hefur snúið baki í hann. Þess vegna ákváðu áróðursmeistarar flokksins fyrir nokkru að nauðsynlegt væri að ná undirtökum á öllum fjölmiðlum landsins. Fyrsta skrefíð var að ná Islenska útvarpsfélaginu og þar með Stöð 2 og Bylgjunni. Næst var að ná Ríkisút- varpinu en sá sigur vannst aðeins til hálfs þeg- ar séra Heimir reis upp í öllu sínu veldi. Að vísu náði flokkurinn í Ríkissjónvarpið tíma- bundið en hyggst ná stofnuninni til varanlegr- ar eignar með lagabreytingu að sögn kunn- ugra. Mogginn var þegar í eigu flokksins og DV að mestu nema hvað Jónas Kristjánsson ritstjóri er óútreiknanlegur. En þetta dugar bara ekki til. Því skal reynt til þrautar. Landsfundarvarp Sjálfstæðisflokksins er síðasta hálmstráið. Þetta er velhugsað bragð. Að vísu er þama einn hængur á: Áhorfend- ur geta slökkt á tækjum sínum. grannar þeirra í höfuðborginni. Misvægið er gjaman varið með því, að landsbyggðin standi höllum fæti; hún eigi jafnan undir högg að sækja gagnvart Reykjavíkurvaldinu, og því sé ekki óeðlilegt að sá aðstöðumunur verði að einhverju jafnaður með auknu vægi þeirra í hópi kjörinna fulltrúa þjóðarinnar. En þessi rök em fráleit, og á þau er ekki hægt að fallast. Þess utan myndi fulltrúum einstakra héraða ekki fækka, heldur fjölga við það að landið yrði eitt kjördæmi, því allir þing- menn væru þá í raun réttri fulltrúar þeirra, en ekki einung- is þeir, sem kosnir em úr kjördæmi. Þær mannréttindahugmyndir, sem lýðræðisleg stjórnskip- an byggir á, gmndvallast á jafnrétti. Milli borgaranna verð- ur að ríkja jafnrétti án tillits til kyns, aldurs, litarháttar og búsetu. Kosningarétturinn er homsteinn þeirra mannrétt- inda, sem við höfum talið kjölfestuna í lýðræði nútímans. Er hægt að greina á milli beinnar skerðingar kosningarétt- ar og misvægi atkvæða? Svarið er nei! Hvomtveggja er ójöfnuður, og gengur því í berhögg við gmndvöllinn, sem lýðræðissamfélagið byggir á. Misvægi atkvæða eftir búsetu þýðir í raun ekki annað en brot á mannréttindum. Að landsmenn hafi þolað það svo lengi sem raun ber vitni, endurspeglar hversu ófullkomin lýðræðisvitund okkar er, - þrátt fyrir allt. Nú virðist hins vegar að sé að rofa til. Þungavigtarmenn úr öllum flokkum hafa tekið undir hugmyndina um að landið verði gert að einu kjördæmi. Gengnir leiðtogar úr Alþýðu- flokknum, menn á borð við Jón Baldvinsson og Héðin Valdimarsson, börðust snemma á öldinni fyrir því að land- ið yrði gert að einu kjördæmi. Sagan hefur sýnt, að þeir höfðu rétt fyrir sér, og það er nútímans að leiðrétta skekkj- una sem hefur einkennt stjómmál aldarinnar. - HVAÐ SEGIRÐU, HVERJAR VORU LOTTO-TOLURNAR? HVAÐ MEÐ GETRAUNIRNAR, HVERNIG FÓR HJÁ QPR? ________________________Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.