Alþýðublaðið - 22.10.1993, Side 5

Alþýðublaðið - 22.10.1993, Side 5
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 Fðstudagur 22. október 1993 SAUÐÁRKRÓKUR Kaupfélag Skagfirðinga er stöndugt fyrirtœki REKIÐ MEÐ GÓÐUM HAGNAÐI Á HVERJU ARI Framleiðsla að hefjast á gasskynjurum og ferskt gras selt til Norðurlanda - Rœtt við Þórólf Gíslason kaupfélagsstjóra „í hcildina starfa 400 til 450 manns hjá Kaupfélagi Skag- firðinga og fyrirtækjum þess. Þetta er stærsti atvinnuveit- andi kjördæmisins og raunar næst stærsta fyrirtæki landsins sem starfrækt er utan Suðvest- ur hornsins. Reksturinn hefur verið gerður upp með hagnaði undanfarin ár og í fyrra var tekjuafgangur um 40 milljónir króna. Útlitið það sem af er þessu ári bendir til að afkoman verði svipuð og á sama tímabili í fyrra. Kaupfélagið stendur vel og er með um milljarð í eig- ið fé og eiginfjárhlutfallið er um 50%,“ sagði Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki í samtali við Al- þýðublaðið. Kaupfélagið er með fjölbreytt- an rekstur á sinni könnu og það hefur vakið athygli hve rekstur þess hefur gengið vel á sama tíma og mikið er talað um sam- drátt og kreppu. Kaupfélagið rek- ur mjólkursamlag, sláturhús, kjö- tvinnslu og fóðurblöndunarstöð og fóðurverksmiðju í Vallhólma. Þá er KS einn af eigendum Fisk- iðjunnar sem rekur umfangs- mikla útgerð og fiskvinnslu. Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri við höfuðstöðvar Kaupfélags Skag- firðinga. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason Ennfremur er KS með verslunar- rekstur á Sauðárkróki og útibú í Varmahlíð, Ketilási og á Hofsós. Þá má nefna rafmagnsverkstæði, bílaverkstæði og flutningastarf- semi. Framleiðsla á gasskynjurum „Við höfum í samvinnu við Það er ægifagurt að litast um lands- lagið kringum Sauðárkrók og punkturinn yfir i-ið er þessi fagra yngismær. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason Háskóla íslands unnið að þróun og hönnun á gasskynjurum sem verða framleiddir hér. Nú er komið að markaðssetningu og við gerum okkur vonir um góðar viðtökur. Þessir skynjarar gefa viðvaranir ef um er að ræða leka á ammóníaki eða freoni í frysti- kerfum. Þetta á að sinna þörfum bæði frystihúsa og ekki síður vinnsluskipanna sem frysta úti á sjó,“ sagði Þórólfur. Varðandi Fiskiðjuna á Sauðár- króki sagði Þórólfur að á síðasta ári hefðu verið unnin 9.500 tonn af bolfiski og gerðir væru út þnr togarar. Þeir hafa bæði landað heima og farið í söluferðir til út- landa með karfa. Það hefði verið vöxtur í þessari starfsemi en fyrir nokkrum árum var vinnslan urn þrjú þúsund tonn á ári. Útflutningur á fersku grasi „Við höfum gert tilraun með að framleiða ferskgras í gras- kögglaverksmiðjunni á Vall- hólma. Við erum þegar byijaðir að flytja út ferskt gras og þá aðal- lega til Norðurlanda. Norðmenn kaupa árlega talsvert mikið af heyi og innflutningskvóti fyrirís- land er 500 tonn. Við gerum okk- ur vonir um að ná góðri markaðs- stöðu þar. Alla vega er það til- raunarinnar virði að framleiða ferskt gras til útflutnings en við gerum þetta samkvæmt bresku einkaleyfi á framleiðslunni. Þetta er tilraun sem við erum að gera og munum flytja grasið út í haust og vetur,“ sagði Þórólfur Gísla- son kaupfélagsstjóri að iokum. Sparnaðaraðgerðir bitna á starfi lögreglunnar „REYNUM AÐ MÆTA ÞESSU MED AUKINNI SAMVINNU" - segir Björn Mikaelsson yfirlögregluþjónn sem hefur áhyggjur af ofhröðum akstri og auknu ofbeldi á dansleikjum „Naumar fjárveitingar verða til þess að við getum ekki haldið uppi nauðsynlegu eftir- liti. Okkar svæði eru aliur Skagafjörðurinn en sökum fjárskorts hefur löggæslan orð- ið meira bundin við Sauðár- króksbæ. Þetta er slæm þróun og varhugaverð ekki síst í ljósi þess að hraðakstur á þjóðveg- um er alltof algengur með þeirri hættu á stórslysi sem fylgir ofsaakstri. Við höfum tekið ökumann á 196 km hraða og marga á 150-160 km hraða. Það segir nokkuð um stöðuna að á þessu ári eru vinnustundir lögreglunnar 300 færri en í fyrra en málum sem hafa kom- ið upp hefur fjölgað um 200.“ Þetta sagði Bjöm Mikaelsson yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki meðal annars í viðtali við AI- þýðublaðið. Hann sagði að gripið hefði verið til þess ráðs að taka upp samstarf við lögregluna á Blönduósi og Siglufirði um eftir- lit á vegum. Þetta hefði í för með sér nokkum sparnað og væri til- raun til að halda uppi vegaeftirliti sem væri besta slysavömin. Næsta sumar væri ætlunin að út- víkka þetta samstarf þannig að það næði til lögregluumdæma á öllu Norðurlandi. Það væri aug- ljóslega ekki nóg að halda uppi eftirliti dag og dag heldur þyrfti það að vera stöðugt og virkt. Aukið ofbeldi á böllum „Auk venjulegra lögreglu- starfa þurfum við að hafa eftirlit Björn Mikaclsson yfirlögrcglu- þjónn: Reynum að mæta fjárskorti með aukinni samvinnu við önnur lögregluumdæmi cn mikið skortir á fullnægjandi cftirlit á vegum úti. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason með dansleikjahaldi. Því rniður hefur ofbeldi færst í aukana á dansleikjum/ Það er til dæmis mjög algengt að það þurfi að flytja einn eða fleiri á sjúkrahús af dansleikjum í Miðgarði vegna meiðsla sem hlotist hafa í átök- um. Þá er farið að bera á því að innbrotagengi úr Reykjavík leggi leið sína út á land til að afla sér verðmæta til fíkniefnakaupa. Margir staðir em alveg óvarðir gagnvart slíkum heimsóknum. Hér er til dæmis aðeins vakt til klukkan 2 á nóttu nema um helg- ar. Við höfum tekið gengi að sunnan hér þar sem einn var með lítið kúbein, slaghamar og striga- skó í skjalatösku. Það þarf ekki mikið hugmyndaflug tii að geta sér til um til hverra nota þetta var ætlað,“ sagð.i Bjöm. Ný lögreglubifreið Bílafloti lögreglunnar á Sauð- árkróki er kominn nokkuð til ára sinna og viðhald dýrt. Bjöm sagðist hafa getað grenjað út heimild fyrir nýjum bfl sem kæmi í gagnið á næstu dögum. „Við eigum heimild fyrir hálfu stöðugildi lögreglumanns. Ég vildi fá hálft stöðugildi í viðbótar svo hægt væri að ráða einn mann í fullt starf en það hafðist ekki í gegn. Nú eryfirleitt reynt að hafa þrjá menn á dagvakt en hins vega er ekki kaUáður út aukamaður ef maður er frá vegna veikinda eða er í vetrarfríi. A kvöldvakt em jafnan tveir menn. Það er rnjög erfitt að halda uppi viðunandi löggæslu og eftir- liti þegar starfseminni eru settar svo strangar skorður. Hins vegar verður ekki frekari niðurskurður á næsta ári. En ég er þess fullviss að hert vegaeftirlit með tilheyr- andi sektum þeirra sem aka eins og óðir ntenn gætu skilað drjúg- um tekjum og mundi því marg- borgað sig. Þar fyrir utan þýðir hert eftirlit færri slys sem er auð- vitað stærsta málið,“ sagði Bjöm Mikaelsson yfirlögregluþjónn. Þetta er eitt af því scm lögregluþjónar landsins þurfa að glíma við í haust- hretunum. Allt fór þó betur en á horfðist. Alþýðublaðsmynd /Einar Ólason Pétur í Hegra kemur víða við SELUR JAFNT MÁLNINGU SEM GISTINGU - og rekur auk þess efnalaug og þvottahús „Það er fjölbrcytni í verslun hér á Króknum og svo hefur alltaf verið. Það er í raun og veru merkilegt hvað hér hefur alltaf þrifist blómleg verslunarstarfsemi á ekki stærri stað. En bærinn er í vexti og hérað- ið fjölmennt,“ sagði Pétur Vaidi- ntarsson kaupmaður með meiru þegar við litum inn hjá honum. Pétur rekur verslunina Hegra sem selur málningu, verkfæri og raf- magnsvömr og sitthvað tleira. Hann hefur þó fleiri jám í etdinum þar sem erefnalaug ogþvottahús aukþess sem hann á hlut í Aningu sem rekur sum- argistingu í heimavist Fjölbrautaskól- ans. „Það er nokkuð góður gangur í versluninni þrátt fyrir að lítið væri hægt að mála utan húss í sumar vegna votviðris. Menn em duglegir að byggja og bærinn hefur tekið miklum stakkaskiptum á síðustu ámm. Hvað viðkemur ferðaþjónustunni þá var mun færra um innlenda ferðamenn en áður vegna tíðarfarsins. En það sem bjargaði okkur í Áningu var að far- þegar erlendra skemmtiferðaskipa komu hér margir í kvöldmat og gist- ingu í sumar,“ sagði Pétur Valdimars- son. Að vonunt þykir Pétri við hæfi að hal'a uppstoppaðan Hegra í verslun sinni, en hann fckk fuglinn að gjöf. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason Nýtt heiti á Innkaupastofnun ríkisins Nafni Innkaupastofnunar ríkisins hefur verið breytt í RIKISKAUP, til samræmis við nýja tíma og að nokkru breytt þjónustusvið. Innkaupastofnun hefur annast innkaup fyrir ríkisstofnanir, en einnig margs konar útboð vegna vörukaupa, verkframkvæmda og þjónustu. Jafnframt hefur verið lögð aukin áhersla á viðskiptalega aðstoð og leiðbeiningar um vörukaup. Þá hefur sala á eignum ríkisins, svo sem notuðum bílum, fasteignum, tækjum og búnaði, farið fram á vegum Innkaupastofnunarinnar á undanfömum árum. Hér hefur því skapast eins konar kaupvangur á vegum ríkisins og því er við hæfi að breyta nafni stol'nunarinnar í hentugra og þjálla orð. *©* RÍKISKAUP Ú t b o ð s k i I a á r a n g r i BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 91 -26844, BRÉFAS. 91 - 626739 Vinn ngstölur miðvikudaginn: 20-okt-1993 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING Ei 6 af 6 1 (0 á ísl.) 39.237.000 a 5 af 6 +bónus 2 205.843 a 5 at 6 3 107.822 E1 4 af 6 260 1.979 m 3 af 6 +bónus 959 232 Aðaltölur 26 H 32 (46 BONUSTÖLUR ©®@ Heildarupphæð þessa viku: á Isl.: 40.709.180 Í.472.180 UPPLÝSINGAH, SÍMSVARI 91- 68 15 11 LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 a«RT MEO FYBIRVARA UM PRBNTVILLUR

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.