Alþýðublaðið - 17.11.1993, Qupperneq 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
Miðvikudagur 17. nóvember 1993
MIÐBORG, RÁÐHERRA & BÓKAFLÓÐ
Framkvœmdir í miðborginni
BYGGING VEFSTOFUHÚSS
OG LÝDVELDISGARÐUR
MEÐAL FRAMKVÆMDA
sem unnið verður að í miðborg
Reykjavíkur á allra næstu árum
er bygging vefstofuhúss í anda
innréttinga Skúla Magnússonar
að Aðalstræti 2, bygging strætis-
vagnamiðstöðvar, bflageymslu og
þjónustustöðvar við Tryggva-
götu og gerð göngusvæðis milli
Austurstrætis og Skólabrúar.
Lýðveldisgarður verður við
Hverfisgötu og þar verður tekinn
upp tvístefnuakstur.
Þetta kom fram í ávarpi Vil-
hjálms Þ. Vilhjálmssonar formanns
Þróunarfélags Reykjavíkur þegar
félagið veitti viðurkenningu fyrir
framlag til eflingar miðborgarinnar.
Viðurkenninguna hlaut Café Pan's
Austurstræti 14 en eigandi er Ketill
Axelsson sem hefur stundað versl-
unarrekstur í miðborginni í 36 ár.
Vilhjálmur sagði ennfremur að
fyrirhuguð væri yfirbygging yfir
port Hafnarhússins og opnun versl-
unar- og þjónustumiðstöðvar á 1.
og 2. hæð hússins. Þá verður effi
hluti Laugavegs endurgerður með
bættri aðstöðu fyrir gangandi veg-
farendur. Lokið verður ffarn-
kvæmdum við Kvosaráætlun með
því að hita upp allt gatna- og gang-
stígakerfí Kvosarinnar. Viðræður
fara fram við fjármálaráðuneytið
um markaðshús á 1. hæð Tollstöðv-
arinnar.
Á þessu ári var hafist handa við
framkvæmd tillögu Þróunarfélags-
ins um merkingu sögulegra húsa í
miðborginni. Borgarráð hefur einn-
ig samþykkt samhljóða tillögu um
að heíja samstarf við þá sem eiga
hús á hinni upphaflegu kaupstaðar-
lóð Reykjavíkur um að merkja þau
sérstaklega með áberandi og sam-
ræmdum hætti. Verða húsin merkt
þannig að þau beri húsnúmer með
sömu stafagerð og grunnlit, en af
annarri gerð en notuð eru annars
staðar í Reykjavík. Þannig má sjá
með glöggum hætti hina uppruna-
legu kaupstaðarlóð eins og hún var
útmæld 12. febrúar 1787, skömmu
eftir að Reykjavík fékk kaupstaðar-
réttindi.
Café París, Austurstræti 14, fékk viðurkenningu Þróunarfélags Reykjavíkur
fyrir rekstur veitingastaðar í Austurstræti og tengsl staðaríns við nýtt göngu-
svæði við Vallarstræti.
Alþýðublaðsmynd / Elnar Ólason
TANNI06 TÚPA Á RÁÐHERRAFUNDI
- Lionsmenn í Frey hejja annað ár tannverndarátaks
sem ná mun til íþað minnsta 20 þúsunda skólabarna
„ÉG ÞAKKA YKKUR þetta
góða framlag“, sagði Guðmundur
Árni Stefánsson, heilbrígðisráð-
herra, þegar tveir félagar úr Lions-
klúbbnum Frey í Reykjavík, þeir
Finnbogi Albertsson og Egill Ing-
ólfsson, fóru á hans fund á dögun-
um ásamt persónunum Tanna og
Túpu. Þau vinimir kynntu við það
tækifæri umfangsmikið tannvernd-
arátak, sem klúbburínn stendur að
og ætlað er að standa í 5 ár í það
minnsta og nær til allra 6 ára barna
í grunnskólum Iandsins, alls í það
minnsta 20 þúsund skólanema á
fyrsta ári grunnskóla.
Guðmundur Ámi Stefánsson sagði
að þessi stuðningur Lionsmanna
mundi vega þungt og stuðlaði að því
að lækka tilkostnað ríkisins vegna
tannviðgerða. Átak þeirra Freys-
manna hófst í fyrra. Á öðru ári hefur
góður árangur átaksins þegar komið í
ljós.
Verkefnið er unnið ásamt Félagi
tannfræðinga, sem hafa unnið
fræðsluefnið og fara í skólana þar sem
leiðbeint er um rétta tannhirðu bam-
anna. Til Iiðs við tannfræðingana og
Freysmenn hafa gengið þau Tanni og
Túpa, sómafólk sem hefur tannhirðu
að Ieiðarljósi og minna bömin á mik-
ilvægi þess að hirða tennur sínar vel
og veijast þeim Karíusi og Baktusi.
Á fundi sínum með ráðherra var
dregið úr seðlum sem bömin höfðu
útfyllt í sambandi við fræðsluefni á
síðasta ári. Vinningamir em forláta
vasatölvur sem eftirfarandi krakkar
hlutu:
Anton Janus, Álfholti 56C, Hafnar-
firði; Reynir Öm Reynisson, Flögu,
Þórshöfn; Auður Eyþórsdótúr, Ás-
garði, Kirkjubæjarklaustri; Valey
Sara Ámadótúr, Bálkastöðum 1,
Staðariireppi; Hilmar Ágúst Bjöms-
son, Áshamri 3D, Vestmannaeyjum;
Ellen Sif Kjartansdótúr, Hjallastræti
30B, Bolungarvík, Sigurður Henn-
ingsson, Höfða, Grímsey; Brynja
Helgadóttir, Hjallalundi 18, Akureyri;
Tómas Öm Snorrason, Miðskógum 7,
Bessastaðahreppi; og Klara Jónas-
dóttir, Bólstaðarhlíð 60, Reykjavík.
Guðmundur Ámi tekur við sómaparinu Tanna og Túpu, fulltrúum Lionsmanna
í Frey og tannfræðinga, sem vinna að því að bæta tannhcilsu bama á íslandi.
Atak Irjálsra félagasamtaka cr þcgar faríð að skila árangrí á öðm ári þcss.
JÓLABÓKAFLÓÐ fiLPÝÐUBLfiÐSINS - HÖRPCIÚTBÁFAN G AKRANESI
— Viðtals- og endurminningabók JÞóris S. Guðbergssonar
ÚT ER KOMIN ný endurminninga- og
viðtalsbók, LIFSGLEÐI, en á síðasta ári
sendi Hörpuútgáfan frá sér bók með sama
nafni og hlaut hún afar góðar viðtökur. I
þessari nýju „Lífsgleðibók“ segja sjö þekktir
samferðamenn frá viðburðaríku lífi,
skemmtilegum og ógleymanlegum persón-
um, sem þeir hafa kynnst á lífslciðinni, gildi
trúar og lífsstfls.
Þeir sem segja frá em; Áslaug S. Jensdóttir:
„Bjarmi á veginum", Einar J. Gíslason: „Veg-
ir Guðs“, Pétur Sigurðsson: „Á sjó“, Sigfús Halldórsson: „Við eigum
samleið", Kristinn Hallsson: „Söngur, tónlist og trú“, Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir: „Aðhlynning aldraðra er göfúgt verk“ og Sigríður
Rósa Kristinsdóttir: „Leikmannsþankar um lífsgátuna“.
Hér em á ferðinni forvitnilegar frásagnir og endurminningar fólks,
sem liggur sitt af mörkum til samfélagsins. Þetta er skemmtileg bók fyr-
ir foreldra, frændur og vini.
Þórir S. Guðbergsson skráði viðtölin og bjó til prentunar.
Prentvinnsla, bókband og káupuhönnun er unnið í Prentsmiðjunni
Odda. Ljósmyndir: Ljósmyndastofan Nærmynd í Reykjavík og Ljós-
myndastofa Páls á Akureyri. Bókin er 184 blaðsíður og kostar 2.900
krónur.
— Alatreiðslubók Alargrétar Þorvaldsdóttur
MATREIÐSLUBÓK MARGRÉTAR
nefnist ný matreiðslubók sem gefin er út nú
fyrir jólin. Höfundur þessarar bókar er
Margrét Þorvaldsdóttir sem hefur dvalið víða
eriendis og kynnst þar matarvenjum ýmissa
þjóða. Um árabil sá hún um matargerðar-
þætti í Morgunblaðinu sem nutu mikilla vin-
sælda.
Uppskrifúmar í bókinni em aðlagaðar ís-
lenskum aðstæðum og innlendu hráefni.
Fljótlegt, ódýrt, ljúffengt og auðvelt em
aðalsmerki bókarinnar.
Þessi matreiðslubók er prýdd fjölda litmynda og er sjálfstætt framhald
af bókinni „Réttur dagsins" sem kom út árið 1985 og er löngu uppseid.
I bókinni em uppskrifúr að fiskréttum, kjúklingaréttum, kjötréttum og
smáréttum. Auk þess er í bókinni kafli um sósur og meðlæú.
Margrét leggur á það áherslu í sínum uppskriftum að matreiðslan sé
öllum auðveld.
Allt sem til þarf er í venjulegu eldhúsi.
Prentvinnsla og bókband er unnið í Prentsmiðjunni Odda. Ljósmynd-
ir: Magnús Hjörleifsson ljósmyndari. Bókin er 125 blaðsíður og kostar
2.990 krónur.
— Spurningabók Ragnheiðar Erlu Bjarnadóttur
e*ut
Út er komin ný SPURNINGABÓK eftir
Ragnheiði Erlu Bjamadóttur. Bók þessi er
samin með sama sniði og fyrri bók Ragnheið-
ar Erlu, „Gettu nú“, sem kom út fyrir síðustu
jól og naut mikilla vinsælda.
I bókinni em um 700 spumingar scttar fram
með sama hætú og í spumingakeppni ffam-
haldsskólanna.
Efni bókarinnar er ætlað lesendum á öllum
aldri og spumingamar ýmist léttar eða þungar
um hina óhkustu efnisflokka.
Á bókarkápu segir meðal annars: „ENN MÁTTU GETA ... ef þig
þyrsúr í spumingar og þú ert viðþolslaus. Ef þig langar að spyrja for-
eldra þína spjömnum úr.
Spumingamar em um 700, sem fyrr, og nú em vísbendingaspuming-
amar í þremur þyngdarflokkum. Allt frá einfóldum spumingum úr
Grimmsævintýmm til óráðinna gáta and-efnisins ... Nú er lag - GETTU
ENN“.
Káputeikningu gerði Brian Pilkington. Prentvinnsla og bókband er
unnið í Prentvinnslu Áma Valdimarssonar. Bókin er 144 blaðsíður og
kostar 1690 krónur.
— Vísnasafn Sveinbjörns Beinteinssonar
f4öötcC f900
§ vmiOíiuit?ur
v,- irc (imi nf UHM*
ÍmbmMjFS
GEFIN HEFUR VERIÐ út bókin LAUSA-
VÍSUR FRÁ 1400 TTL 1900.
Safnað í bókin hefur Sveinbjörn Beinteins-
son og eru í henni yfir 900 lausavísur frá
þessu 500 ára tímabili. Vfcan hefur löngum
verið tryggur förunautur í bhðu og stríðu og
mikill gleðigjafí.
í þessari sýnisbók ættu flestir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi.
Höfundar vísna í bókinni em sem gefur að skilja fjölmargir.
Meðal þeirra em: Páll Ólafsson, Sigurður Breiðfjörð, Bólu-Hjálm-
ar, Krfctján Fjallaskáld, Látra-Björg, Skáld-Rósa, Æri-Tobbi,
Leirulækjar-Fúsi, Steinunn í Höfn, Eyjóifur Ljóstoliur og Sölvi
Helgason.
Þetta er kærkomin bók fyrir hina mörgu íslensku hagyrðinga.
Bjami Jónsson listmálari myndskreytú kápu og útilblað. Prentvinnsla
og bókband er unnið í Prentsmiðjunni Odda. Bókin er 187 blaðsíður.
(Ný útgáfa 1993.)
— Ljóð 88 höfunda í ritstjórn Sigurðar Skúlasonar
(ttá&ctn cttttuuvt
UÓÐASAFNIÐ fallega, TIL MÓÐUR
MINNAR, kcmur nú út í nýjum búningi. I
bókinni er að finna fegurstu kvæði sem fc-
lensk skáld hafa ort til mæðra sinna og um
þær. TIL MÓÐUR MINNAR kom fyrst út í
umsjón Sigurðar Skúlasonar og Ragnars Jó-
hannessonar árið 1945 og seldist upp á ör-
skömmum tíma. 1951 var hún endurútgefin
og er þetta því þriðja útgáfa. I hana hefur
verið bætt nokkrum Ijóðum sem ort hafa ver-
ið síðan 1945 og er hún því efnismeiri en fyrr.
„Hví skyldi ég yrkja um önnur fljóð,
en ekkert um þig, ó móðir góð? -
Upp, þú minn hjartans óður!
Því hvað er ástar og hróðrar dís,
og hvað er engill úr Paradís
hjá góðri og göfugri móður?
Matthías Jochumsson.
Bjarni Jónsson listniálarí myndskreytti kápu og titilblað. Prent-
vinnsla og bókband er unnið í Prentsmiðjunni Odda. Bókin er 231 blað-
síða. (Ný útgáfa 1993.)