Alþýðublaðið - 17.11.1993, Page 7
Miðvikudagur 17. nóvember 1993
AUSTURLAND, FLUG & SKILABOÐ
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
STJÓRNMÁLAÁLYKTUN
kjðrdæmisróðs Alþýiuflokksins ó Austurlandi
Austumskar og
amerískar
„Alþýðuilokkurinn á Austur-
landi fagnar þeim árangri sem rík-
isstjómin hefur stuðlað að með
aðgerðum sínum til lækkunar
vaxta og þjóðarsáttar um kjara-
samninga. Hér hafa verið stigin
afar mikilvæg skref til þess að
efla með þjóðinni bjartsýni um að
senn verði komist út úr þeim
efnahagslegu þrengingum er
staðið hafa yfir síðastliðin tvö ár.
Ríkissjóður hefúr verið rekinn
með halla samfellt í 10 ár, einnig
á mestu góðærisárum í sögu þjóð-
arinnar.
Aðhald og
spamaður
Mikilvægt er að ríkisstjómin
haldi fast við stefnu sfna um að-
hald og spamað í rikisfjármálum
svo komist verði hjá erlendri
skuldasöfnun finekar en orðið er,
því ekkert ógnar efnahagslegu
sjálfstæði þjóðarinnar meir en
skuldsetning hennar erlendis. Þó
verður að gæta þess rækilega, að
ráðdeildarstefna ríkisstjómarinn-
ar bitni ekki á kjömm þeirra
lægstu launuðu og þeirra sem
minna mega sín. Aldrei verður
meiri þörf á að auka jöfnuð í þjóð-
félagi en á samdráttar- og þreng-
ingaskeiði. Þá verður ríkisstjómin
með ákvörðunum sínum að gæta
þess að ekki verði gengið á hlut
landsbyggðar gagnvart höfuð-
borgarsvæðinu.
I»rek og
áraeðm
Alþýðuflokkurinn á Austur-
landi treystir þingflokki Alþýðu-
flokksins til þess að standa vörð
um hugsjónir jafnaðarstefnunnar í
stjómarsamstarfinu. Allar efna-
hagslegar aðstæður hafa verið
mjög erfiðar í þjóðfélaginu síðast-
Iiðin tvö ár en þá reynir mjög á
þrek og áræðni við stjómvölinn,
ekki síður en á þrek á þolinmæði
þjóðar, sem vanist hafði stöðug-
um hagvexti og framförum á öll-
um sviðum. Einvörðungu með
ráðdeild og spamaði, uppstokkun
á ríkiskerfinu og endurskoðun á
rekstri og Ijárfcstingum á vegum
hins opinbera verður hægt að
snúa vöm í sókn. Þannig verður
velferðarþjónustan tryggð ís-
lenskri þjóð til heilla og gmnd-
völlur lagður að traustu atvinnu-
lífi.
Flutiiingur
stofnana
Alþýðuflokkurinn á Austur-
landi hvetur ríkisstjómina til þess
að hrinda í framkvæmd áætlun
nefndar um flutning ríkisstofnana
frá Reykjavík út á land.
Sýslumanns-
embættin
Alþýðuflokkurinn á Austur-
landi varar við framkomnum hug-
myndum um að fækka sýslu-
mannsembættum á landsbyggð-
inni, en styður ffam komna til-
lögu á Alþingi ffá Gunnlaugi
Stefánssyni og fleiri um flutning
verkefna ffá stjómsýslustofnun-
um ríkisins í Reykjavík til sýslu-
mannsembættanna á landsbyggð-
inni. Slíkar aðgerðir myndu spara
fjármuni, bæta þjónustu ríkisins
við fólkið á landinu og efla búsetu
á tandsbyggðinni.
Mismunað
eftir búsetu
Alþýðuflokkurinn á Austur-
landi krefst þess að áfram verði
unnið og nú stigið nýtt skref með
auknum niðurgreiðslum á húshit-
un á köldum svæðum lands-
byggðarinnar og þannig stefnt að
jöfnuði óháð búsetu gagnvart
slikum mannréttindum. Þá verður
ríkisstjómin að grípa til allra
mögulegra ráða til þess að upp-
ræta mikinn verðmun á lífsnauð-
synjum á milli þéttbýlis- og stijál-
býlisverslunar. Einnig er bent á
óréttmæti virðisaukaskatts á
flutningsþjónustu sem leggst af
fullum þunga á landsbyggðarfólk
en lítt eða ekki á rbúa á suð- vest-
urhominu. Óþolandi er að lífs-
kjömm fólks sé mismunað effir
búsetu.
Stjórnun
fiskveiða
Alþýðuflokkurinn á Austur-
landi telur afar brýnt að ríkis-
stjómin nái samkomulagi um
endurskoðun fiskveiðastjómunar
sem allra fyrst. Þar verður að
tryggja áffam ffjálsar veiðar
krókaleyfisbáta með takmörkun-
um í dagafjölda. Fjölmörg minni
sjávarþorp byggja afkomu sína á
veiðum smábáta, en hætt er við að
búsetu þar verði stefnt í voða ef
grundvelli verður kippt undan
veiðum smábáta. Þá er sérstak-
lega ástæða til að huga að minni
bátum með lítinn kvóta sem hafa
farið verst út úr kvótaskerðingu
undanfarinna ára. Ef ekki verður
gripið til sérstakra aðgerða í þágu
þeirrar útgerðar er ljóst að hún
muni víða leggjast af með gjald-
þroti og alvariegum afleiðingum
fyrir fjölmörg byggðarlög.
Úr fjötrum
kvótakerfls
Vissulega er það erfitt verkefni
að endurskoða fiskveiðastjómun-
ina í ljósi þeirra aðstæðna sem við
blasa í sjávarútvegi um þessar
mundir. Aflasamdráttur á flestum
hefðbundnum botnfisktegundum,
verðlækkun á erlendum mörkuð-
um og okurvextir mörg undanfar-
in ár, allt þetta veitir takmarkað
svigrúm til þess að gjörbylta
stjóm fiskveiða eins og sannar-
lega er þörf á. Mikilvægt er að
ljúka endurskoðun er losi fisk-
veiðar úr fjötmm kvótakerfis og
margs konar ánauðar er því fylgir.
Átuk í
samgöngum
Alþýðuflokkurinn á Austur-
landi fagnar því átaki sem ríkis-
stjómin hefur staðið að í sam-
göngumálum. Þar er sannarlega
vel að verki staðið, en samgöngu-
bætur hljóta að vera homsteinn í
byggðastefnu er treystir lífskjör
og búsetu á landsbyggðinni.
Brýnt er að sem fyrst verði tekin
ákvörðun um legu framtíðarvegar
á milli Austur- og Norðurlands og
framkvæmdum við veginn hrað-
að sem kostur er.
Aögertiir
Guðm. Arna
Alþýðuflokkurinn á Austur-
landi stendur einhuga að baki
heilbrigðisráðherra í aðgerðum
hans er miða að því að veija vel-
ferðarkerfið. Útgjöld til heilbrigð-
is- og tryggingamála nálgast að
vera helmingur allra ríkisútgjalda.
Ljóst er að ef útgjöldin héldu
áfram að vaxa með sjálfvirkri
þenslu án þess að þjónustan ykist
að marki, þá væri velferðarkerf-
inu stefnt í hrein óefni. Mikið
starf hefúr verið unnið, er miðar
að því að treysta velferðarkerfið
við mjög erfiðar og þröngar að-
stæður, en engin opinber þjónusta
snertir jafn marga og heilbrigðis-
og tryggingakerfið. Sérstaklega
er ástæða til að lýsa yfir stuðningi
við aðgerðir heilbrigðisráðherra í
sambandi við rekstur leikskóla
sjúkrahúsa. Það er óviðunandi að
skattpeningum almennings sé
beitt af ríkissjóði til að niður-
greiða dagvist bama í nokkmm
sveitarfélögum en öðmm ekki.
Slíkan aðstöðumun verður að
taka fyrir og að lögum um verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga sé
framfylgt.
Veiðarnar í
, ^Smugunni^ ‘
Alþýðuflokkurinn á Austur-
landi fagnar þeirri kærkomnu bú-
bót er veiðamar í „Smugunni"
hafa skilað þjóðinni og færir sjó-
mönnum sérstakar þakkir fyrir
dugnað og árvekni við veiðamar.
Þá er ástæða til að þakka forystu-
mönnum Alþýðuflokksins friim-
kvæði og festu er réði úrslitum
um að veiðamar gátu hafist og
haldið áffam. Mikilvægt er að allt
verði gert til þess að tryggja ís-
lensk veiðiréttindi á svæðinu við
Svalbaiða. Sömuleiðis er ástæða
til að þakka þær ráðstafanir er AI-
þýðuflokkurinn hafði forystu um
í ríkisstjóm sem afléttu Iöndunar-
banni erlendra fiskiskipa í ís-
lenskum höfnum. Sú ráðstöfun
hefur þegar skila dýrmætri björg í
bú og treyst atvinnulífið víða um
land, ekki síst á Austurlandi.
INNANLANDSFLUG er ekkert grín þegar vetrarlægðirnar
leggjast yilr landiö. Því fengu þeir að flnna hjá Flugleiðum í í
fyrradag. Þegar Ijósmyndari Alþýðublaðsins tók þessa mynd af
Inga Sigurðssyni, aðstoðarvaktstjóra á Reykjavíkurflugvelli upp
úr hádegi í fyrradag, var útlitið dðkkL Atlmga, athuga, at-
huga...
Faiþegar biðu um allan bæ eftir kallinu, eitthvað um 700 manns.
Um sexleytið þennan dag hafði Flugleiðamönnum tekist að koma
allflestum farþcgum á áfangastað. Þijár vélar famar til Akureyrar.
tvær á Egilsstaði, Húsavík að fara. Enn var ófært á ísafjörð, Horna-
tjörð og Eyjar. Þrjár Fokkervélar voru á þönum, sú fjórða náðist ekki
út úr flugskýli vegna hliðarvinds á skýlið.
„Þelta lcit ekki glæsilega út í morgun, en fór betur en á horfðist",
sagði Ingi Sigurðsson. Öðmm veðurhvelli var spáð í gær en minna
varð úr honum en á horfðist... þessir veðurspámenn.
skíðabrekkur
íyrir fjallhressa
Islendinga!
Sífellt fleirum verður ljós nauðsyn þess að blása nýju lífi í kropp-
inn og endurreisa sálina með tilbreytingu og hollri útiveru. Þetta
á ekki síst við þegar skammdegið þjarmar að og þorrinn bítur.
Eftirspumin í skíðaferðir Samvinnuferða - Landsýnar eykst ár
frá ári og er vissara að hafa tímann fyrir sér og gera nauðsynlegar
ráðstafanir áður en skammdegið skellur á af fullum þunga!
:
FLACHAU er einn af Austumsku dölunum þremur. Þar er mjög
gott skíðasvæði, margar lyftur af mörgum gerðum og fjölbreyttar
göngubrautir.
HINTERGLEMM er eitt besta og vinsælasta skíðasvæðið f
Austurríki. Þar voru Vetrarólympíuieikamir 1990 haldnir.
SAALFELPEN og MARIA ALM em falleg, samliggjandi
skíðaþorp í Salzburgerlandi.
Linda Steinþórsdóttir skíðakennari er okkar kona í Austurríki.
54800 kr. á mamL
Dæmi um staðgreiðslu-
verð til Austurríkis:
Innifalið: Flug, gisting í tvíbýli f viku, morgunverður, akstur til og frá
flugvelli erlendis og flugvallarskattur. Verð miðast við gengi 11. nóv.’93.
Einstaklingsferðir, íslensk fararstjóm.
Báðir þessir amerísku staðir fá bestu einkunn
sem skfðasvæði á heimsmælikvarða.
FLUGLEIÐIR
verði fyrir
Samviiwulerúir-laiidsýii
Reykjavik: Auslurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Simbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 • Hótel Söflu
við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Simbréf 91 - 62 24 60 Hafnarfjörtur Reykjavikurvegur 72 • S. 91 - 5 11 55
Keflavik: Hafnargótu 35 • S. 92 -13 400 • Simbréf 92 -13 490 Akranes: Breiðargótu 1 • S. 93 -1 33 86 • Símbréf 93 -1 11 95
Akwefri: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27200 • Simbréf 96 -1 10 35 VeslmaaMeyjar Vestmannabraut 38 • S. 98 -1 12 71 • Simbréf 98 -1 27 92
HVlTA HÚSIÐ / SÍA