Alþýðublaðið - 26.11.1993, Page 1
Meirihluti kjósenda reiðubúinn aðfella meirihluta íhaldsins í sameiginlegu
mótframboði samkvœmt nýrri skoðanakönnun — Engu að síður er...
Sameiginlegt framboð blósið af
— en vilji tií að ræða samstarf
Fulltrúar flokkanna segja fullreynt að ekki náist samkomulag um að sameinast gegn
meirihlutanum — Hugmyndir um sameiginlegan málefnagrundvöll fyrir kosninga-
baráttuna — Nýr vettvangur og ungt félagshyggjufólk vill sameiginlegan lista
„Þessi mjög svo sjarmerandi hug-
mynd sem byrjaði með Nýjum ve(t-
vangi og síðan vilja Alþýðuilokksins til
samciginlegs framboðs til borgar-
stjórnarkosninganna hefur verið slegin
í hel af smákóngum hinna flokkanna.
Flokkarnir vísuðu málaleitan okkar
formlega á bug nema Alþýðubandalag-
ið sem gaf loðin svör og ég álít að þessi
leið sé fullreynd. Það er ákvcðið að
bjóða fram A-Iista jafnaðarmanna cn
það er ekki þar með sagt að aðrar
stjórnmálahreyfingar komi ekki að því
framboði," sagði Pétur Jónsson for-
maður fulltrúaráðs Alþýðuflokksfélag-
anna í Reykjavík í samtali við Alþýðu-
blaðið.
Þeir fulltrúar Alþýðuflokks, Alþýðu-
bandalags, Framsóknarflokks og
Kvennalista sem Alþýðublaðið ræddi við
í gær voru sammála um að ekki yrði um
að ræða sameiginlegt framboð fyrir borg-
arstjómarkosningamar. Sú niðurstaða
skoðanakönnunar DV að sameiginlegt
framboð myndi fella meirihluta sjálfstæð-
ismanna breytti engu þar um. Hins vegar
virðist vera vilji til að sameinast um mál-
efnagrundvöll fyrir kosningamar og að
flokkamir nái saman um stjóm borgarinn-
ar fengju þeir meirihluta þrátt fyrir sér-
framboðin. Fulltrúi Nýs vettvangs krefst
hins vegar sameiginlegs framboðs og
sömu skoðunar er fulltrúi ungra jafnaðar-
manna í Reykjavfk og hópsins sem aug-
lýst hefur undir slagorðinu „Ungt fólk
krefst árangurs!".
Framsóknarflokkur
„Ég tel ekki ástæðu til að Framsóknar-
flokkurinn breyti afstöðu sinni þrátt fyrir
úrslit þessarar skoðanakönnunar. Ég dreg
mjög í efa að fólk í stjómmálaflokkunum
sé tilbúið til að kjósa sameiginlegan lista
þar sem er fólk úr öðrum flokkum. Hins
vegar er allt þetta mál mikið umhugsunar-
efni,“ sagði Alfreð Þorsteinsson Fram-
sóknarflokki. Hann sagði þetta bestu nið-
urstöðu sem Framsókn hefði fengið svo
löngu fyrir kosningar í skoðanakönnun.
„Umræðan um framboðsmálin mun
vitaskuld halda áfram og ég held að línur
skýrist upp úr áramótum," sagði Alfreð.
Alþýðubandalag
„Mér sýnist niðurstaða skoðanakönn-
unarinnar vera á þann veg að það séu góð-
ir möguleikar á að fella íhaldið þótt flokk-
amir bjóði fram sér. Það er enda mjög
nauðsynlegt að fella meirihlutann því þar
em daglega að koma upp ný spillingar-
mál. Ég sé ekki að þessi könnun breyti
neinu um sérframboð flokkanna. Það hef-
ur komið fram að ekki þyki vænlegt að
bjóða fram með Alþýðuflokknum og ég
tek undir það,“ sagði Guðrún Agústs-
dóttir Alþýðubandalagi.
Guðrún sagði að þótt minnihlutaflokk-
amir byðu fram sameiginlegan lista væri
það engin trygging fyrir því að ekki
kæmu fram fleiri listar á móti meirihlut-
anum, bæði til vinstri og hægri við Al-
þýðubandalagið. Hún sagði ennfremur að
útkoma Alþýðubandalagsins í könnun-
inni væri mjög athyglisverð ekki síst í.
ljósi þess að það væri nánast án málgagns
og ætti erfitt með að koma sjónarmiðum
sínum á framfæri í fréttum fjölmiðla. En
ef allt vinstra fólk næði góðri og trúverð-
ugri samvinnu gegn íhaldinu og héldi vel
á spöðunum væri góður möguleiki á að
fella meirihlutann.
,,Ég er alveg sannfærð um að það yrði
ekki vandamál fyrir þessa flokka að búa
til góðan málefnasamning að loknum
kosningum. Við verðum mun betur undir
það búin að taka við stjóm borgarinnar en
eftir kosningasigurinn 1978. Þetta góða
fylgi núna áður en farið er að raða á list-
ana segir sína sögu," sagði Guðrún Ag-
ústsdóttir.
Kvennalisti
„Það virðist ekki vera flötur á sameig-
inlegu framboði og þar liggja vandamálin
annars staðar en hjá Kvennalistanum. Al-
þýðubandalagið vill ekki fara í framboð
með Alþýðuflokki og þessir flokkar
þyrftu að byija á að gera eitthvað í eigin
herbúðum þar sem ýmsir hópar hafa mis-
jafnar skoðanir á þessum framboðsmál-
um.“ sagði Guðrún Ogmundsdóttir
Kvennalista.
„Skilaboð kjósenda eru ótvíræð þau að
flokkamir myndi sameiginlega stefnu
gegn meirihlutanum. Fyrir kosningar
verður sameiginlegur málefnagmndvöll-
ur að vera til staðar og sameiginlegt borg-
arstjóraefni. Annars fer þetta út í veður og
vind,“ sagði Guðrún.
Nýr vettvangur
„Allt tal um að minnihlutaflokkunum
takist að fella meirihlutann með sérfram-
boðum em óraunhæfir draumar. í Ijómm
kosningum af 11 frá 1950 hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn fengið minna fýlgi en
50% í kosningum en hélt samt meirihluta
í þrjú skipti. Þetta er sá vemleiki sem
blasir við. Það er hart ef kjósendur sýna
meiri skynsemi í þessum málum en full-
trúar flokkanna," sagði Kristín Á. Ólafs-
dóttir Nýjum vettvangi.
Kristín sagði það hafa komið skýrt
fram hjá kjósendum í tvígang að þeir
vildu sameiginlegt framboð. Hún sagðist
ekki trúa því fy rr en hún tæki á þvf að full-
trúar minnihlutaflokkanna hefðu ekki
áhuga á að ná völdum í borginní.
„Mér finnst það með ólíkindum ef full-
trúar flokkanna vilja heldur halda áfram
að sitja í minnihluta, láta færa álit sitt til
bókar og láta fella flestar tillögur sem þeir
bera fram. Eini kosturinn til að fella
meirihlutann er sameiginlegt framboð og
ég vona að fólk taki skoðanir kjósenda al-
varlega," sagði Kristín.
Ungt félagshyggjufólk
Alþýðublaðið hafði samband við Ing-
var Sverrisson sem er einn af forsvars-
mönnum hóps ungs félagshyggjufólks
sem starfað hefur að undanfömu undir
slagorðinu: Ungt fólk krefst árangurs!
„Þessi skoðanakönnun DV rennir enn
traustari stoðum undir þá skoðun okkar
að bjóði félagshyggjuöflin sameiginlega
fram þá muni borgin verða endurheimtuð
úr greipum hins spillta Sjálfstæðisflokks,
að öðrum kosti ekki. Annars samþykkti
Félag ungra jafnaðarmanna í Reykjavík.
samkvæmt tillögu minni, ályktun þar sem
bent er á hinar nýju forsendur í málefnum
sameiginlegs framboðs félagshyggjuafl-
anna í Reykjavík - forsendumar em þess-
ar tvær skoðanakannanir. Þessi ályktun
ungra jafnaðarmanna segir í raun hug
minn allan," sagði Ingvar.
I ályktun FUJ í Reykjavík segir: „Ný-
leg skoðanakönnun sýnir ótvírætt að eini
raunhæfi möguleikinn til að fella núver-
andi borgarstjómarmeirihluta Sjálfstæð-
ismanna er sameiginlegt ffamboð félags-
hyggjuaflanna til borgarstjómar Reykja-
víkur næsta vor. FUJ f Reykjavík hvetur
stjóm fulltrúaráðs jafnaðarmannafélag-
anna í Reykjavík til )>ess að freista þess á
nýjan leik að ná samstöðu með öðrum fé-
Iagshyggjuöflum um framboð. Félag
ungra jafnaðannanna í Reykjavík er
þreytt á áhrifaleysi jafnaðarmanna um
stjóm höfuðborgarinnar."
Meirihlutinn tapar ef...
Niðurstaða skoðanakönnunar DV sem
blaðið birti í gær var á þann veg að sam-
eiginlegur listi gegn lista sjálfstæðis-
manna fengi 54,5% atkvæða og átta borg-
arfulltrúa en sjálfstæðismenn fengju
45,5% atkvæða og sjö fulltrúa. Með sér-
framboði flokkanna fengi meirihlutinn
48,5% atkvæða og átta borgarfulltrúa,
tapaði tveimur frá sfðustu kosningunt.
Kvennalistinn fengi 18,3% og þrjá full-
trúa, Alþýðubandalagið 16,2% og tvo
fulltrúa, Framsóknarflokkurinn 11,3% og
einn fulltrúa og Alþýðuflokkur 5,7% og
sömuleiðis einn fulltrúa.
Þessi niðurstaða er á sömu lund og í
könnun Félagsvísindastofnun Háskólans
fyrir skömmu þar sem kom fram að sam-
eiginlegur listi næði meirihluta íborginni.
Félagfrjálslyndrajafnaðarmanna
HVER NÝTUR
AUÐLINDA SJÁVAR?
- Fundur Félags frjálslyndra jafnaðar-
manna á Kornhlöðuloftinu við Banka-
strœti í Reykjavík þriðjudagskvöldið
30. nóvember klukkan 20.30.
Efling sjávarútvegs alla þessa öld breytti fslensku þjóðfélagi
úreinhæfu landbúnaðarskipulagi fyrri tíma í nútímalegt satnfé-
lag með einhvcijum bestu lífskjörum sem þekkjast.
Til að ræða þessi mál efnir FFJ til fundar um sjávarútvegs-
mál. Frummælendur verða fjórir. Fyrstur er ÞRÖSTUR OL-
AFSSON og síðan tala þeir ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
umhverfisráðherra, BRYNJÓLFUR BJARNASON fram-
kvæmdastjóri og GUNNAR SVAVARSSON iðnrekandi.
Fundarstjóri verður ÁGÚST EINARSSON. Allt áhugafólk um
íslensk stjómmál er velkontið og kaffigjald er 500 krónur.