Alþýðublaðið - 08.12.1993, Blaðsíða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Miðvikudagur 8. desember 1993
FLOKKSSTfiRFIt)
J afnaðarmannafélag
Eyj afj arðar
FUNDUR
UMFRAM-
BOÐSMÁL
Jafnaðarmannafélag Eyjafjarðar
boðar til fundar miðvikudaginn
8. desember klukkan 20.30 að
Gránufélagsgötu 4, II. hæð.
DAGSKRÁ:
1. Ákvörðun tekin um framkvæmd
framboðsmála vegna komandi
sveitarstjórnarkosninga 1994.
2. Önnur mál.
- Stjórnin.
ÍSAL, NÁMSTEFNA & SKILABOÐ
Stórgjöf fró ÍSAL
íslenska Álfélagið hefur
fært Háskóla íslands lit-
rófsgreini fyrir skammta
að gjöf. Verðmæti gjafar-
innar skiptir milljónum
króna og verður
skammtamælirinn notað-
ur við kennslu og rann-
sóknir við eðlifræðiskor
Háskólans. Myndin var
tekin þegar Einar H. Guð-
mundsson formaður eðlis-
fræðiskorar tók við gjöf-
inni úr hendi Rannveigar
Rist deildarstjóra fram-
leiðsludeildar álversins.
Alþýðublaðsmynd / Nennl
FJÖLMENN NÁMSTEFNA UM
NEYÐARVARNIR VEGNA NAUÐGUNAR
Um helgina var haldin á Hótel Sögu fjölmenn nám-
stefna um „neyðarvamir vegna nauðgunar, fyrstu hjálp og
meðferð; hlutverk og ábyrgð þeirra sem sinna neyðarþjón-
ustu og síðari stigum málsins". Námstefnustjóri var Guð-
rún Agnarsdóttir, umsjónarlæknir neyðarmóttöku vegna
nauðgunar á slysadeild Borgarspítalans. Aðalfyrirlesari
var danski læknirinn Lisbeth Bang sem unnið hefur í Nor-
egi við þessi málefni um nokkurt skeið. Lisbeth var einn
aðalskipuleggjari neyðarmóttöku vegna nauðgunar á
Læknavaktinni í Osló sem opnuð var árið 1986 og er yfir-
læknir hennar nú. A námstefnunni var fjallað ítarlega um
fyrstu hjálp og meðferð þeirra sem leita aðstoðar eftir
nauðgun eða tilraun til nauðgunar. Skýrt var frá starfshátt-
um á neyðarmóttöku vegna nauðgunar á slysadeild Borg-
arspítalans. Ennfremur var fjallað um kærur og málsleið-
ina í dómskerfinu; Hlutverk og ábyrgð rannsóknarlög-
reglu, saksóknara og dómara; Hlutverk og ábyrgð fjöl-
miðla. Á meðfylgjandi mynd má sjá hluta af fjölmenninu
á Hótel Sögu. Alþýðublaðsmynd/Nenni
Stubningur þinn
gæti foroab
mörgum
frá síysi!
Heildarverðmæti vinninga 16.854.000, m.a. flaggskipið frá Hynndai
og 4 aðrar bifreiðar, vélsleðar,
vöruúttektir o.m.fl.
Ágœti bifreiðareigandi!
Endurskinsborði er einfalt
öryggistæki - hjálpið okkur að láta
ljós barnanna skína
Jjm wt Wf
678 678
kmnur
vnwigar
Við höfum sent þér happdrœttismiða þar sem fram kemur
bílnúmer þitt og hvert bílnúmer hefur sitt ákveðna
lukkunúmer. íboði eru 678 vinningar. Þátttaka ogstuðningur
þinn getur leitt tilfœkkunar slysa á bömum í umferðinni.
Það er vinningurinn sem við sœkjumst öll eftir.
Landsátak
um velferö bama
í umferöinni
ÍSLENSKRA SKÁTA
BANDALAG
LÁTUM LJÓS OKKAR SKÍNA