Alþýðublaðið - 15.12.1993, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
SKILABOÐ
Miðvikudagur 15. desember 1993
í»-^.
Hafsteinn á Eldingunni
-Einn á báti umhverfis hnöttinn
Hafsteinn Jóhannsson kafari og siglingakappi er maður sem lifir lífinu
eins og hann vill og Iætur engan segja sér fyrir verkum, stendur fastur á
sínu og óttast hvorki ofsa úthafsins né átök við yfirvöld. Hann var
fyrirferðarmikill villingur í bernsku en lærði síðar köfun og gat sér síðar
frægðarorð sem helsti bjargvættur fiskiskipa á íslandsmiðum og var
ætíð skjótur á vettvang á Eldingunni.
Hafsteinn hefur siglt víða um úfin höf á nýrri Eldingu og vann fyrir
nokkru það fáheyrða afrek að sigla einn umhverfis hnöttinn á
heimasmíðaðri skútu án þess að hafa nokkurs staðar viðkomu á
leiðinni. í nærri fimm mánuði sá hann hvergi til lands og hafði
ekki samskipti við nokkra lifandi veru, nema sævardýr og fugla
himinsins.
Hafsteinn á Eldingunni er fjörmikil og ógleymanleg lýsing af sterkum
og sérstæðum einstaklingi sem mætir hverri mannraun af djörfung og
siglir ótrauður sinn sjó - einn á báti umhverfis hnöttinn.
ÍÐUNN