Alþýðublaðið - 16.12.1993, Síða 1
Fjölmargir læknar í fullu starfi
margfalda laun sín með aukaverkum
Guðmundur Árni Stefánsson heilbrigðisráðherra œtlar að skipa starfshóp til að gera tillögur
um skýrar og afdráttarlausar reglur um störflœkna á sjúkrastofnunum - Markmiðið er að
einfalda kerfið og gera það skilvirkara þannig að þjónustan batni og kostnaður lœkki
Úttekt Ríkisendurskoðunar á greiðslum til lœkna
GUÐMUNDUR ÁRNI á blaðamannafundi í gærdag ásamt Guðjóni Magnússyni lækni og ráðu-
ney tisstjóra Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
„I'að kemur frarn í
skýrslu Ríkisendurskoð-
unar að í mörgum tilfell-
um eru læknar í 100%
starfi á stofnun en engu að
síður eru laun fyrir það
aðeins hluti heildarlauna
viðkomandi. Dæmi eru
um að læknar taki laun
frá 11 aðilum. Það kemur
nokkuð á óvart að læknar
skuli vera í vinnu á svo
mörgum stöðum og brýnt
að taka á þessum málum.
Ég mun strax skipa starfs-
hóp til að fara nánar í nið-
urstöður skýrslunnar og
gera tillögur um skýrar og
afdráttarlausar reglur urn
störf lækna á sjúkrastofn-
unum og grípa til aðgerða
í kjölfarið. Það er til hags-
bóta fyrir alla að gera
þetta kerfi einfaldara og
skilvirkara þannig að
þjónustan batni og kostn-
aður Iækki,“ sagði Guð-
mundur Arni Stefánsson
heilbrigðisráðherra á
fundi með fréttamönnum í
gær.
Á fundinum var lögð fram
skýrsla Ríkisendurskoðunar
um greiðslur opinberra aðila og
fleiri til lækna á árinu 1992.
~Skýrslan var unnin að beiðni
Guðmundar Árna Stefánsson
heilbrigðisráðherra. Hann sagði
að ástæður beiðninnar væru
meðal annars fullyrðingar
gegnum tíðina þess efnis að
læknar væru í fullu starfi á
spítölum og heilsugæslustöðv-
um en væru á sama tíma í störf-
um annars staðar. Þetta hefði
hann viljað fá kortlagt. Dæmi í
skýrslunni sýna að einstakir
læknar þiggja.laun á mörgum
stöðum. Laun á aðalvinnustöð-
um sem hlutfall af heildarlaun-
um er mjög mismunandi eða
allt frá 20%. Dæmi er um lækni
í 100% starfi á sjúkrahúsi sem
fær þar 3,2 milljónir í laun en
hafi í heildarlaun 10,5 milljón-
ir.
Úttekt Ríkisendurskoðunar
náði til allra lækna sem þiggja
greiðslur frá ríkissjóði eða frá
stofnunum sem fengu fjárfram-
lög úr honum 1992. Könnunin
nær því til allra lækna sem
starfa á sjúkrastofnunum,
heilsugæslustöðvum, sjálfstætt
starfandi lækna (fyrirtækja í
læknaþjónustu) og embættis-
lækna.
Óeðlilega
há laun
Upplýsingar í skýrslunni ná
til 854 starfandi lækna sem
þáðu samtals 4,3 milljarða
króna í heildargreiðslur í fyrra.
Eftir að búið er að taka tillit til
endurgreidds kostnaðar standa
eftir 3,6 milljarðar króna sem
þýða 4,2 milljónir í meðallaun
eða 350 þúsund krónur á mán-
uði að meðaltali. Hins vegar eru
margir læknar langt fyrir ofan
þetta meðaltal í launum. I
skýrslu Ríkisendurskoðunar
segir orðrétt á einum stað:
„Þá telur stofnunin að í
mörgum tilvikum þar sem
læknar gegna aðalstarfi inn á
sjúkrastofnun séu laun þeirra
utan stofnunar óeðlilega há.
Þetta vekur upp spumingar um
ábyrgð og eftirlit stjómenda
viðkomandi sjúkrastofnana."
í skýrslunni segir einnig að
þegar á heildina sé litið sé
launa-og gjaldskrárkerfi lækna
flókið og margbrotið og því
hafi heilbrigðisyfirvöld skort
nauðsynlega heildaryfirsýn lil
að sittna stjómunar- og eftirlits-
skyidu sinni með þessum út-
gjaldaþætti.
Aðalstarf -
gefur minnst
Af dæmum um heildarlaun
lækna í skýrslunni má sjá að í
mörgum tilvikum em laun
lækna fyrir 100% starf á stofn-
un aðeins lítill hluti heildar-
launa. Læknar sem em í fullu
starfi á sjúkarhúsuin hafa leyfi
til að starfa allt að níu klukku-
stundir utan sjúkrahúsa á viku
án leyfis. Þegar Iitið er á auka-
tekjur ýmissa lækna sem em í
fullu starfi á sjúkrahúsum mætti
ætla að þeir væru að störfum
nánast allan sólarhringinn.
Nefna má dæmi úr skýrsl-
unni um lækni sem er í 100%
starfi hjá sjúkrahúsi og em laun
hans þar liðlega 2,8 milljónir
sem er 38,4% af heildarlaunum
hans. Af launurn hans er auka-
vinna 1,2 milljónir. Hann fær
síðan greiðslur frá 10 öðmm
aðilum og heildarlaun samtals
7,4 milljónir á síðasta ári.
Annar læknir sem er einnig í
100% starfi á sjúkrahúsi fær þar
sjö milljónir í árslaun og þar af
eru 4,8 milljónir fyrir auka-
vinnu. Þessi læknir fær 88%
tekna sinna frá aðalvinnustað
en afganginn frá fimm aðilum
eða samtals átta milljónir í laun.
Á hinn bóginn má svo aftur
nefna lækni á heilsugæslustöð í
100% starfi þar sem hefur í árs-
laun 7,5 milljónir. Af jxtirri
upphæð gefur aðalstarfið að-
eins 18,1 % af heildinni.
í skýrslu Ríkisendurskoðun-
ar kemur fram að þar sé ekki öll
sagan sögð um laun lækna því
úttektin nái ekki yfir greiðslur
til lækna frá einkaaðilum og
megi ætla að þær greiðslur séu
umtalsverðar.
Ný hlutafélagalög sjá dagsins Ijós á vorþingi -
Stofnun hlutafélaga verður ekki eins auðveld
og verið hefur - „Þessi lög eiga að verða til
þess að hér starfi alvöru hlutafélög,“ sagði
iðnaðar- og viðskiptaráðherra ígœr.
GIRT FYRIR
MISNOTKUN
Stofnun hlutafélaga með sáralitlu hlutafé hefur veríð
iðkuð lengi á íslandi. Margir hafa síðan runnið af hólmi og
haft fé af fyrírtækjum og einstaklingum án þcss að bætur
komi nokkru sinni fyrir. Þetta hefur verið gert í skjóli gall-
aðra hlutafélagalaga. Rekstur hlutafélaga hefur verið hul-
inn dulúð og afkoma þeirra ekki talin koma almenningi
við, þetta breytist. Frumvarp v iðskiptaráðherra verður
lagt fyrir Alþingi eftir áramótin. Það mun girða fvrir mis-
notkun á hlutafélagsforminu og breyta fjölmörgu til batn-
aðar. „Þessi lög eiga að verða til þess að hér starfi alvöru
hlutafélög“, sagði Sighvatur lljiirgvinsson í gær.
Meðal nýmæla í ftumvarpi Sighvats Björgvinssonar rná
nefnaað lágmarkshlutafé fhlutafélagi verður4 milljónirkróna,
en 500 þúsund í svokölluðu eignarhlutafélagi. Þá er lagt til að
frestur til að greiða hlutafé verði styttur dr þrcm árurn í eitt og
á það við bæði þegat félag er stofnað og eins þegar hlutafé er
aukið.
Með nýjum lögum verður sú breyting að borgarar EES-ríkja
geta orðið stofnendur hlutafélaga hér á landi. enda þótt þcir búi
í öðrum löndum. Áður þurfti meirihluti stjórnar að búa hér á
landi í það minnsta eitt ár fyrir stofnun.
Reglur eru hertar á þann hátt að stofnfé þarf að greiða með
reiðufé, - sé greitt á annan hátt þarf greiðslan að Itafa ótvírætt
fjárhagslegt gildi, ekki til dæntis í skyldu til að vinna verk eða
veila þjónustu.
í nýju lögunum er lagt bann við hömlum á meðferð hluta t
félögum þar sem hluthafareru lOOcða fieiri ístað200fnúgild-
andi lögum, Þá cr kveðið á um aö hluthafi sem er eigandi 9/10
hlutabréfa skuli sæta innlausn hlutar hinna hluthafanna.
Þá er sú breyting gerð að stjóm hlutafélags skal skipuð þrem
mönnum í þati minnsta og skal íáöa framkvæmdastjóra. Hann
má sitja í srjóm en ekki tnynda meirihluta. Þá cr stjórn hlutafé-
lags nú skylduð til að boða hluthafafund innait 6 mánaða frá
því að félag hefur tapað helmingi hlutatjár síns. Þar skal greina
irá fjárhagslegri stöðu og leggja fram tilliigu um ráðstafanir ef
þurfa þykir.
Þá er það nýlunda að hlutafélög verða öll skylduð til að
senda ársreikninga til Hlutafélagaskrár og skal skráin veita al-
ntennan aðgang að reikningunum. Upplýsingar í hlutafclaga-
skrá skulu vera aðgengilegri almenningi en verið hefur.
Loks er að geta þcss að ítarleg ákvæði eru sett um samruna
fyrirtækja, en þau sem nú gilda dugtt skammL Þar munu lög-
giltir matsmenn gera skýrslu um áætlun sanmmafyrirtækjanna
og gæta þess að samruninn rýri í engu möguleika lánardrottn-
anna.
Svokölluð eignarhlutafélög em með ntinna lágmarkshlutafé
en almenn hlutafélög. Lögin um þessa tegund fyrirtækja verða
nauðalík hlulafélagalögunum. Þó þarfekki nemaeinn hluthafa
til að eiga slíkt fyrirtæki, cn þeir geta þó verið mun fleiri.