Alþýðublaðið - 16.12.1993, Side 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
LEIÐARI & RÖKSTÓLAR
Fimmtudagur 16. desember 1993
fipyniiBiiniii
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóður Sigurðsson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140
Starfsmenn SVR
RÖKSTÓLfiR
Fréttaskýring um
STEINGRÍM
í vlðtengingarhætti
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík taldi það hag borgarbúa
fyrir bestu að breyta Strætisvögnum Reykjavíkur í hlutafé-
lag rétt fyrir kosningar. Rökin fyrir þessari breytingu var
erfitt að festa hendur á, en rekstrarformið skiptir í sjálfu sér
ekki máli, ef þjónustan við neytendur er óbreytt. Og því
lofaði borgarstjóri.
Hugmyndafræðingurinn á bak við breytinguna hjá SVR
var drengurinn Sveinn Andri Sveinsson, sem hefur fengið
að vera í borgarstjóm fyrir íhaldið, og er nú að byggja sig
upp fyrir prófkjör, og sér nú í hillingum enn meiri frama.
Sá er þó galli á gjöf Njarðar, að æ fleíri, jafnvel í röðum
Sjálfstæðisflokksins, em famir að líta á breytinguna sem
fmmhlaup Sveins Andra.
En borgarstjóri lofaði fleim en óbreyttri þjónustu við neyt-
endur. Hann lofaði starfsmönnum, sem eðlilega uggðu um
sinn hag, sömu réttindum og sömu kjömm og þeir höfðu
áður. í umræðum í borgarstjóm var hamrað á því, að starfs-
menn þyrftu ekki að kvíða neinum gmndvallarbreyting-
um; fyrirtækið yrði eftir sem áður í eigu borgarinnar og þar
yrðu allar meiriháttar ákvarðanir teknar.
Nú em efndimar að koma í ljós. Starfsmönnum er meinað
af borginni að vera áfram í stéttarfélagi sínu, Starfsmanna-
félagi Reykjavíkurborgar, þar sem það vill sjálft vera
áfram. Sömuleiðis hefur komið fram hjá borgarstjóra, að
ýmis áunnin réttindi, til dæmis varðandi starfsaldurshækk-
anir, skuli ekki fylgja samningum við borgarstarfsmenn.
Hvaða mark á þá að taka á yfirlýsingum hans um að starfs-
menn haldi óbreyttum kjömm? Getur verið að borgarstjóri
hafi beitt blekkingum gagnvart starfsfólkinu?
Kjami málsins er sá, að starfsfólki var lofað að halda rétt-
indum sínum. Nú leikur vafi á að það loforð verði haldið.
Hversvegna? Gaf ekki borgarstjóri loforð?
✓
Arangur
Járnblendifélagsins
Það er ánægjulegt þegar íslenskum fyrirtækjum tekst að
snúa erfiðri vöm upp í árangursríka sókn. í fyrra átti Jám-
blendifélagið við mikla erfiðleika að stríða vegna hríð-
lækkandi verðs á jámblendi, ekki síst sökum óvænts fram-
boðs frá Kína. Það þurfti talsverðan kjark hjá þáverandi
iðnaðarráðherra að sækja til ríkisins um stuðning til að
fleyta fyrirtækinu yfir óvissan tíma, þar sem veðjað var á
að skipulagsbreytingar innan fyrirtækisins og verðhækk-
anir sköpuðu því framtíð.
En þetta tókst. Dæmið gekk upp, og vel það. Eftir tap, sem
í fyrra nam milljónum króna, er útlit fyrir hagnað upp á 70
til 100 milljónir. Breytingin nemur því allt að 700 milljón-
um króna, sem stappar nærri kraftaverki á einu ári.
Þessi glæsilegi árangur hefur náðst fyrir samstillt átak
stjómenda og starfsmanna, sem réðust sameiginlega í
skipulagsbreytingar til að ná fram hagræðingu. Til viðbót-
ar hefúr verð á framleiðslunni tekið að hækka. En þessi ár-
angur skrifast fyrst og fremst á starfsmenn og stjómendur
fyrirtækisins, sem bersýnilega kunna sitt fag, og kikna ekki
í hnjánum þegar á móti blæs.
FRÉTTASKÝRING RÖKSTÓLA í
VIÐTENGINGARHÆTTI:
„Það mun vera altalað að framsókn-
armaðurgangi nú undir framsókn-
armanns hönd að finna vinnu fyrir
Steingrím svo prins Halldór geti tek-
ið við Framsóknaríkinu. Það mun
hafa reynst mjög etfitt að finna
vinnu við hœfi Steingríms. Talið er
ómögulegt að nokkurt uppistand-
andi kaupfélag vanti afgreiðslu-
mann eða lagerhjálp. Hásetastörfin
hjá Samskip eru einnig úr sögunni.
Þá er víst að ekki vanti blaðamann á
Tímann eftir jólin. Og alls ekki er
áreiðanlegt að Bifreiðaskoðun ís-
lands þurfi á skoðunarmönnum
Framsóknar að halda eftir að hún
varð einkavœdd. Og Rökstólar hafa
fengið það óformlega staðfest hjá
trésmiðjum á landsbyggðinni að
Steingrímur sé ekki nógu fingra-
langur í smíðastörf.. .Það lítur því
þannig út að ekkert sé á lausu nema
Seðlabankastjórastaða eða forsœtis-
embœttið. “
Morgunblaðið hefur
lafið mikla árás á Stein-
|rím Hermannsson for-
nann Framsóknar-
flokksins. Það gerði
Vlogginn með því að
árta fjórar síður í sunnu-
Jagsblaði sínu um Fram-
ióknarflokkinn í kreppu.
úreinin var einstök að
rví Ieyti til að hún hét
Téttaskýring en var
engsta slúður sem skrif-
tð hefur verið í íslenskt
jlað og þar að auki öll í
riðtengingarhætti. En
;ins og menn vita og al-
rjóðlegar auglýsinga-
samkeppnir hafa viður-
œnnt, er kjami málsins í
Vlogganum. Þess vegna
tóf Mogginn síðari at-
ögu sína gegn Stein-
'rími og skrifaði velvilj-
tðan leiðara í garð for-
nanns Framsóknar.
Menn meta nú hvort
töggið hafi verið þyngra
;em Mogginn greiddi
steingrími.
Sieingrímur er
Viktoría og Halldór
er Eðvard
Rökstólar hafa hrifist
njög af fréttaskýringar-
ækni Morgunblaðsins
)g hafa þegar tekið hana
’ notkun: Heyrst hefur að
Steingrímur kjagi hins
/egar áífam um þingsal-
na og brosi breitt að öllu
ÍTéttaslúðri um Fram-
;óknarflokkinn. Hann
;egist ekkert vera á för-
im, að því að áreiðan-
egar tungur herma sem
’löggt þekkja til mála.
Dg Halldór verður bara
tð bíða áfram sem kon-
jngsson sem einn dag
nun kannski fá að erfa
Tkið. Halldór er farinn
ið minna æ meira á Eð-
^ard prins sem beið ævi-
angt eftir að verða
cóngur meðan að Vikt-
)ría drottning varð æ
;ldri og hrumari í kon-
jngsstólnum. Þetta mun
v’era altalað.
Olyginn sagði Rök-
;tólum að Steingrímur
iotni ekkert í þessum
átum. Staðan hefur
ildrei verið betri að hans
nati. Að vísu eru at-
rinnuvegirnir í rústum
;ftir sjóða- og hags-
nunagæslutímabil
Framsóknar, bændastétt-
n nær útdauða eftir
iauðafaðmlög Fram-
ióknar, Tíminn gjald-
rrota, SÍS farið veg allr-
tr veraldar, Mikligarður
gjaldþrota og fiskeldis-
fyrirtækin og loðdýra-
ræktin brunarústir einar.
Hinn venjulegi fram-
sóknarmaður mun þó, að
því að talið er og allir
munu vera sammála um,
telja þetta minni háttar
skakkaföll miðað við
annars glæstan for-
mannsferil Steingríms.
Hvorki Steingrímur né
Rökstólar botna neitt í
einhveijum óánægju-
röddum í framsóknar-
mönnum Morgunblaðs-
ins. Að því að við heyr-
um og teljum satt og rétt.
Að muna eða
muna ekki
Hinu er ekki að neita,
að Steingrímur verður að
horfa til framtíðar. Það
er ekki hægt að vera for-
maður Framsóknar-
flokksins til eilífðar.
Steingrímur hefur
lengi verið orðaður við
forsetaembættið. „Eg get
alveg hugsað mér að
verða forseti, ég verð
bara að segja það,“ mun
Steingrímur hafa sagt í
ónefndum réttum í
haust.
Annar viðmælandi
Rökstóla fullyrðir að
Steingrímur muni ekki
lengur hvað hann vilji
verða ef hann hætti að
vera formaður Fram-
sóknar. „Steingrímur
sagði við mig um daginn
að hann mundi ekki
hvaða staða væri heppi-
leg ef hann hætti að vera
formaður," hvíslaði
þessi viðmælandi við
Rökstóla á karlaklósetti
Alþingis.
Einkamól
Steingríms
Rökstólar hafa víða
heyrt og ekki síst innan
þingflokks Framsóknar,
að Steingrímur muni
sennilega muna eftir
stöðu Seðlabankastjóra
þegar fram í sækir.
Steingrímur mun hafa
sagt nýlega við konu
fyrrum kaupfélagsstjóra
úr ónefndri sýslu að
hann hafi látið hugann
reika til Seðlanbankans.
,JEg tel ekki óhugsandi
að ég setjist í stól Seðla-
bankastjóra lyrst Jón er
farinn úr landi. Já, já,
það er verður bara að
segjast eins og er,“ á
Steingrímur að hafa sagt
við konuna. Konan á
samkvæmt heimildum
Rökstóla að hafa sagt við
Steingrím: „Vill þjóðin
þig sem Seðlabanka-
stjóra?" Þetta er ósvífin
spuming og harla
óvenjuleg fyrir eigin-
konu kaupfélagsstjóra
þegar formaður Fram-
sóknarflokksins er ann-
ars vegar en það mun
fylgja sögunni og út-
skýrir málið, að kaupfé-
lagsstjórinn er nú at-
vinnulaus eftir að kaup-
félagið varð gjaldþrota.
Hvað um það, Stein-
grímur mun hafa svarað
þessari spumingu svo: „-
Hvaða hafa mín atvinnu-
mál með þjóðina að
gera?“
Formaður í
vinnuleit
Það mun vera altalað
að framsóknarmaður
gangi nú undir fram-
sóknarmanns hönd að
finna vinnu fyrir Stein-
grím svo prins Halldór
geti tekið við Framsókn-
arríkinu. Það mun hafa
reynst mjög erfitt að
finna vinnu við hæfi
Steingríms. Talið er
ómögulegt að nokkurt
uppistandandi kaupfélag
vanti afgreiðslumann
eða lagerhjálp. Háseta-
störfin hjá Samskip em
einnig úr sögunni. Þá er
víst að ekki vanti blaða-
mann á Tímann eftir jól-
in. Og alls ekki er áreið-
anlegt að Bifreiðaskoð-
un Islands þurfi á skoð-
unarmönnum Fram-
sóknar að halda eftir að
hún varð einkavædd. Og
Rökstólar hafa fengið
það óformlega staðfest
hjá trésmiðjum á lands-
byggðinni að Steingrím-
ur sé ekki nógu fingra-
langur í smíðastörf.
Það lítur því þannig út
að ekkert sé á lausu
nema Seðlabankastjóra-
staða eða forsætisemb-
ættið.