Alþýðublaðið - 16.12.1993, Qupperneq 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Loönan birtist á ný
Loðnan er farin að láta á sér kræla að nýju og
veitír lífi og fjöri í tilveruna í mörgum sjávarþorp-
um eystra. Samkvæmt upplýsingum Félags i’s-
lenskra fiskmjölsframleiðenda í gær var tekið á
móti 8113 tonnum 13. og 14. desember. Ekki hafði
þá verið tilkynnt um frekari famia á leið til lítnds.
Heildarloðnukvótinn á vertíðinni 1993/94 er nú
975 þúsund tonn, þar af hafa 447 þúsund tonn bor-
ist á land og af nógu að taka í næstu mánuðum, eða
528 þúsund tonn.
Jóialeikrit Hallveigar
Hallveig Thorlacius frumsýnir nýtt brúðuleikrit,
Þrettánda jólasveininn í Gerðubergi á sunnudag-
inn kl. 15. Leikstjóri er Guðrún Asmundsdóttir,
en Hallveig gerði brttðumar og leikmyndina, auk
þess sem hún leikur öll hlutverkin. Jóhanna Stei'-
ánsdóttir saumaði tjöld. í Þrettánda jólasveininum
kynnast krakkamir Grýiu, Jólakettinum og jóla-
sveininum Stúfi við nokkuð aðrar aðstæður en þau
eiga að venjast. Leikritíð er ætlað til flutnings í leik-
skólum og yngstu bekkjum bamaskóla. Þessi sýn-
ing verður eina opna sýningin fyrir þessi jól.
HALLVEIG THORLACIUS og jólasvtinninn Stófur
tcndra jólakertin.
Verjið skipasntíðaiðnaðmn
Bcejarstjórn Neskaupstaðar skorar á stjómvöld
að gera strax ráðstafanir til að koma í veg fyrir hrun
skipasmíðaiðnaðarins. „Ljóst er að ef þessari at-
vinnugrein tekst ekki að snúa vöm í sókn þá munu
fjölmargir missa atvinnu sína og verkefni sem auð-
velt er að vinna hér innanlands munu flytjast til út-
landa“, segir í tillögu bæjarstjómarinnar.
Jafnrétti sjúklinga
„Flestir áfengissjúklingar em haldnir öðmm geð-
sjúkdómum og/eða líkamlegum sjúkdómum, þegar
þeir leita meðferðar á sjúkrahúsum, og verður
„áfengismeðferðin" þá ekki aðskilin frá annarri
læknismeðferð. Ekki er ástæða til að láta þá greiða
fyrir meðferð ffekar en að láta reykingamenn
greiða fyrir meðferð vegna hjarta- og lungnasjúk-
dóma“, segir í áskomn Geðlceknafélags íslands til
alþingismanna að standa vörð um jafnrétti sjúk-
linga til meðferðar án tillit til aldurs, kynferðis eða
sjúkdóms. Eins og fram hefúr komið er gert ráð fyr-
ir greiðsluhlutdeild sjúklinga vegna áfengismeð-
ferðar á sjúkrahúsum. Geðlæknafélagið segir að
þama sé farið út á varhugaverða braut, sent geti leitt
til þess að sjúklingar leiti ekki meðferðar fyrr en
þeir verða komnir með alvarlega fylgikvilla.
Unga fólkið á leikínn á
Jólatónleikum Slnfóníu-
hljómsveitarinnar
Tólf ára einsöngvari, Jóhann Ari Lárusson og
rúmlega þntugur stjómandi, Gunnsteinn Ólafs-
son, koma fram með Sinfóníuhljómsveit íslands á
jólatónleikunum á laugardaginn klukkan 14.30 í
Háskólabíói. Átján ára flautuleikari, Stefán Ragn-
ar Höskuldsson, leikur einleik, ung stúlka, Gunn-
hildur Daðadóttir, les jólaguðspjallið. Kynnirog
sögumaður er Sverrir Guðjónsson. Stór bamakór
frá fimm skólum í Reykjavík syngur. Stjómandinn,
Gunnsteinn Ólafsson, stjómar nú hljómsveitinni í
fyrsta siim á opinberum sinfómutónleikum. Áður
hefur hann stjómað á A ustfjarðaferö og á skólatón-
leikum. Gunnsteinn hefur áður stjómað Skólakór
Menntaskólans í Kópavogi og áhugamannahljóm-
sveit í Freiburg.
Fimmtudagur 16. desember 1993
Börnin á dagheimilinu Múlaborg við Ármúla í Reykjavík voru í sannköll-
uðu jóiaskapi í gærdag. Þau héldu mikinn jóladansleik og þangáð komu tveir
jólasveinar í heimsókn með góðar gjafir og gamanmál. Einn nágranna dag-
heimilisins, fyrirtækið Glitnir hf„ hafði sýnt þá miklu rausn að senda öllum
krökkunum jólapakka, hver pakki vendilega merktur viðtakanda. I Múla-
borg eru nærri 80 fötluð og ófötluð börn á aldrinum 1 til 6 ára. Jólasveinarn-
ir tveir vöktu mikla lukku krakkanna á Múlaborg, og eitthvað var sú litla á
myndinni hér að ofan að glettast við sveinka.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
Alþýðuflokkur
TVEIR FULLTRÚAR í BANKARÁÐ LANDSBANKA
Anna Margrét Guðmundsdóttir, Keflavík, og Hallsteinn Friðþjófsson, Seyðis-
firði, verða fulltrúar Aiþýðuflokksins í bankaráði Landsbanka Islands næstu
fjögur árin. Varamenn flokksins í bankaráði verða Brynjar Sigtryggsson, Húsa-
vík og Kristín Bjömsdóttir, Patrcksfirði. Þctta var ákveðið á þingflokksfundi AI-
þýðuflokksins í gærkvöldi.
Þar var ennfremur ákveðið að aðalfulltrúi flokksins í bankaráði Búnaðarbankans
verður sem fyrr Haukur Helgason, Hafnarfirði, en til vara Stefán Gunnarsson, Hofsósi.
Alþýðuflokkurinn fær þá tvo fulltrúa í stað eins í bankaráði Landsbankans. Hinsveg-
ar munu sjálfstæðismenn fá formennsku í bankaráðum beggja ríkisbankanna, Lands-
banka og Búnaðarbanka, samkvæmt upplýsingum sem Alþýðublaðið fékk rétt áður en
blaðið fór í prentun í gærkvöldi. Fonnannsefnin eru Kjartan Gunnarsson í Landsbanka
og Pálmi Jónsson f Búnaðarbanka.
GATT-SAMNINGURINN
UNDIRRITAÐUR í APRÍL1994
Úrúgvæ-viðræðum GATT, um aukið frelsi í heimsviðskiptum, lauk í gær.
Samningur verður undirritaður í apríl 1994 og gert er ráð fyrir að hann taki gildi
á árinu 1995. Hann ryður þar með burt ýmsum viðskiptahindrunum , setur nýj-
ar viðskiptareglur og leiðir til lækkunar tolla. Reiknað er með að samningurinn
leiði til aukinna þjóðartekna í heiminum, sem nema að minnsta kosti 270 millj-
örðum dollara á ári.
Tollar á sjávarafurðum munu lækka um 30% hjá mikilvægustu viðskiptaþjóðum,
sem er mun meira en talið var að næðist fram. Auk þessar voru verulegar tollalækkan-
ir samþykktar á ýmsum öðrum útflutningsvörum Islendinga, svo sem tækjabúnaði fyr-
ir sjávarútveg. A næstunni skýrist betur hvað þessar lækkanir þýða nákvæmlega fyrir
ísland jsegar reiknuð hafa verið út áhrif breytinganna.
JLLÞYBVBUBIS
LITLU JÓLIN í MÚLABORG
Qóð bók frá Fróóa
TIL ERU FRÆ
- eftir Jónas Jónasson
Sennilega hefur enginn íslenskur söngvari sungið sig jafn rækilega inn í hjörtu og þjóðarsál
íslendinga og Haukur Morthens. Hann kunni líka þá list að hræra strengi í brjóstum
áheyrenda sinna og fá þá til að hrífast, brosa og jafnvel fella tár.
TIL ERU FRÆ er saga þessa ástsæla söngvara. Þegar hinn kunni útvarpsmaður og rithöfundur,
Jónas Jónasson, fór að skrá söguna var Haukur orðinn helsjúkur og hann lést áður en verkinu
var lokið. En Ragnheiður Magnúsdóttir, eiginkona Hauks, og fjölmargir vinir hans hlupu þá í
skarðið qg fylltu upp í myndina.
Haukur Morthens var dulur maður og fáir þekktu manninn á bak við röddina.
I bókinni er viðburðarík og jafnvel ævintýraleg saga hans sögð.
Haukur Morthens er dáinn. ^
Lögin hans munu hins vegar lifa. __/£-.__.__ '____
fl FROÐI
» i
Svo lengi sem TIL ERU FRÆ.
Verð kr. 2.980
BOKA & BLAÐAIJTGAFA