Alþýðublaðið - 17.12.1993, Síða 1

Alþýðublaðið - 17.12.1993, Síða 1
Verð í lausasölu kr. 140 m/vsk Siðfrœðistofnun háskólans segir að spilakassarekstur Háskólans kunni að falla undir Furðulegur misskilningur á Dalvík VELSÆMISBROT Siðfrœðistofnun telur rekstraraðilum spilakassanna siðferðilega skylt að kanna ítarlega hvort spilavélarnar hafi skaðleg áhrifá notendur Rekstur skjávéla- happdrættis, eða spilakassa eins og þeir eru nefndir í daglegu tali, á vegum Háskóia Islands kann að falla undir velsæmisbrot. Hins- vegar er rekstur þessi ekki siðferðisbrot. Þetta er álit doktor Kristjáns Kristjáns- sonar, heimspekings og formanns Rann- sóknastofnunar Há- skólans á Akureyri, sem Siðfræðistofnun háskólans fékk til að gera álitsgerð um málið. Siðfræðistofn- un, skipuð prófessor- unum Birni Björns- syni, Ólafi Oddi Jónssyni og Páli Skúlasyni, er sam- mála þcssari niður- stöðu. Sveinbjöm Björns- son, háskólarektor, hafði óskað eftir því við Siðfræðistofnun að hún léti kanna hvort siðferðileg álitamál tengdust rekstri happ- drættis og happdrætt- isvéla og þá hvers eðl- is þau væru. Segir Siðfræðistofn- un í bréfi sínu til rekt- ors að rétt sé að gera greinarmun á siðferð- isbrotum og velsæmis- brotum. Hún telur jafnframt að öflun tekna fyrir Háskóla Is- lands með umræddum rekstri særi velferðis- kennd margra velunn- ara Háskóla Islands. „Þá telur stjóm Sið- fræðistofnunar að Há- skóla íslands og Rauða krossi íslands sé sið- ferðilega skylt að kanna ítailega hvort happdrættisvélar og spilakassar (eða svo- nefndir „söfnunarkass- ar“) hafi skaðleg áhrif á notendur þeirra. Engar slíkar kannanir hafa verið gerðar hér- lendis, en brýnt hlýtur að teljast að úr því verði bætt“, segir í bréfinu til rektors. I ftarlegri greinar- gerð doktor Kristjáns segir í lokin: „Máltæk- ið segir að sólin saurg- ist ekki af því að skína á mykjuhauginn. Það má til sanns vegar færa, sé einungis átl við siðferðilega saurg- un. I fyrirsögn þessarar álitsgerðar er spurt hvort skjávélahapp- drætti HHI sé „hval- reki eða refshali". Nið- urstaðan hefur orðið sú að HHÍ bindi að minnsta kosti ekki ráð sitt við neinn refshala siðleysisins með ákvörðun sinni um rekstur hinnar nýju tegundar happdrættis. Kannski verður sá rekstur Háskólanum efnahagslegur hval- reki: „Gullnáma". Orðspor getur hins vegar saurgast með öðmm hætti en sið- ferðilegum; refshalar geta verið með ýmsu móti“. Doktor Kristján vitnar í kollega sinn og fyrrnm sambæing frá Aukureyri, Pál Skúla- son, sem sagði að há- skólastarf ætti að vera „hugsjón allra hugs- andi manna á íslandi". Það skyldu stjóm- málamenn landsins hafa hugfast. Varpar doktor Kristján ábyrgð á stjómmálamenn okkar og segir: „Það er rökstudd skoðun höf- undar að íslensk stjómvöld hafi að nauðsynjalitlu knúið Háskóla Islands til slíkra aðgerða“. Háskólaráð ræddi í gærdag álitsgerð dokt- ors Kristjáns og bendir á að doktorinn komist að þeiri i niðurstöðu að ekki sé eðlismunur á happdrættisvélum Há- skólans og happdrætt- um almennt. Segir ráð- ið að Gullnáman falli undir skilgreiningu á happdrætti fremur en fjárhættuspili. Lionsmenn felldu 5 metra jólatré Lionsmenn á Dalvík gerðu heldur betur í brókina sína á dögunum, þegar þeir réðust að 5 metra háu jólatré á lóð gistihússins SæluvLstar og felldu tréð. DAGUR segir frá þessu í fyrradag. Þar segir að tréð hafi verið flutt að kirkjunni á Dalvík þar sem tréð á að vera fólki til ánægju yfir jólahátíðina. Allt var þetta mál hinn mesti misskilningur. Júlíus Snomason veitingamaður og eigandi trésins segir að í haust hafi verið spurst fyrir um möguleika á að færa tréð á nýjan stað. Lionsmenn höfðu annað í huga og réðust að trénu með öxi að vopni og felldu það. Því bíður trésins góða ckki annað en að fara á öskuhaugana eftir áramótin. Júlíus segir að hann hyggist leggja fram kæm hjá lög- reglunni vegna þcssa máls. Hér hafi verið fallegt tré sem sjónarsviptir sé að. „Lionsmenn töldu sig hafa fengið tréð að gjöf í skipt- um á öðm tré, en frá hveijum veil ég ekki. Garðyrkju- stjórinn virðist hala álitið að fyrir lægi að tjarlæga tréð og skýrði frá því að tilgangslaust væri að færa svona stórt barrtré og því hafi ekki verið reynt að fjarlægja það með iiðrum hætti cn höggva það“, segir Júlíus Snorra- son. r i i i i [ Alþýðumaðurinn - málgagn ! Jafnaðarmannafélags i J Eyjafjarðar - er aukablað [ Alþýðublaðsins í dag. Af því tilefni er blaðinu dreift á [ hvert heimili á Akureyn. i L____________________________ "1 I I lí I I 1 I I I I I I I I I I I I _ J . Smásögur - Endurminningar Fyrir fjölskylduna / Spennusögur - Astarsögur A LANDINU BLAA Smásögur og þættir. Afmælisbók Jónasar Árnasonar. Skemmtileg bók, LIFSGLEÐI Viðtöl og frásagnir sjö þekktra samferðamanna. Athyglisverð bók. MATREIÐSLUBOK MARGRÉTAR Fljótlegt, ódýrt, Ijúffengt og auðvelt. GETTU ENN Ný spurningabók eftir Ragnheiði Erlu Bjarnadóttur. LEICUMORÐINGINN eftir Jack Higgins. Á HELJARBRÚN eftir Duncan Kyle. GULLHJARTAÐ eftir Erling Poulsen.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.