Alþýðublaðið - 17.12.1993, Side 4

Alþýðublaðið - 17.12.1993, Side 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ AKUREYRI & ASI Föstudagur 17. desember 1953 Óskum Húsvíkingum og Þingeyingum innilega gleðilegra jóla og farsœldar á komandi ári. SJÚKRAHÚSIÐ OG HEILS UGÆSLAN HÚSÆVÍK Óskum viðskiptavinum okkar glebilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin. WA HITA- OG VATNSVEITA AKUREYRAR Flugleiðir Óslsum öllimu viáislsipíaviniuim ol tar [leífil egra joia &L og farsæltlar á komandi ári Þökknim. viísklptin FLUGLEIDIR - Innanlands - Eigendur Hyundai og Lada bifreiba ath, öll viðgerða og varahluta- þjónusta er hjó okkur BIFPEIÐAVERKSTÆÐIÐ ÞORSHAMAR HF. TRYGGVABRAUT 600 AKUREYRI S. 22700 Fax. 27635 K.T. 420369-0349 Vsk.nr. 7652 Flugstöðin d Ækureyrarflugvelli stœkkuð VAXANDI MILLILANDA- FLUG FRÁ AKUREYRI Hafln er bygging á viðbót við flugstöðina á Akureyr- arflugvelli. Þar mun rísa 360 fermetra bygging á einni hæð, nýr komusalur farþega, skrifstofur fyrir flugfélög sem starfa á flug- vellinum, og ýmis aðstaða önnur. Til dæmis verður að- staða til fríhafnarsölu bætt, en Akureyrí er í auknum mæli að verða millilanda- flugvöllur. „Við munum auk nýbygg- ingarinnar lagfæra eldri bygg- inguna og gera þar breytingar. Það var virkilega kominn tími til þess“, sagði Jóhann Jóns- son hjá Flugmálastjóm í gær. Hann sagði að verkið í heild mundi kosta 75 milljónir króna samkvæmt áætlun. Jó- hann sagði að flugstöðin á Akureyri gerði vart meira í dag en að anna komu og brott- för einnar Fokkerflugvélar, 50 komufarþegum og jafn- mörgum brottfararfarþegum. Viðbyggingin á að klárast vorið 1995. Bergþór Erlingsson, um- dæmisstjóri Flugleiða á Akur- eyri sagði að þessari stækkun flugstöðvarinnar væri vel fagnað, enda löngu tímabært verk. Oft á tíðum gætti mik- illa þrengsla í flugstöðinni, ekki síst þegar millilandaflug er í afgreiðslu. Bergþór sagði að síðastliðið sumar hefðu farið um stöðina milli 4 og 5 þúsund milli- landafarþegar í 25 þotuflug- um. Hér hefði mest verið um að ræða farþega á vegum Saga Reisen í Sviss, eða rúm- ur helmingur, en einnig hefðu haft viðkomu vélar frá Trans- avia og Air Liberty, - og að sjálfsögðu Flugleiðaþotur. IVliðstjóm ÆSI MOTMÆLIR HÆKKUN Á HÁMARKSÚTSVARI Miðstjórn Alþýðusam- bands Islands mótmælir harðlega áformum ríkis- stjórnarinnar að hækka há- marksútsvar sveitarfélaga um 1,7% á sama tíma og ríkisstjómin gefur einungis eftir 1,5% af tekjuskatti sín- um. Jafnframt lýsir mið- stjómin yfir furðu sinni á hugmyndum ríkisstjórnar- innar að skylda sveitarfélög til þess að hafa útsvar að lágmarki 8,4%. Þessi ályktun kemur í kjöl- far þess að meirihluti félags- málanefndar Alþingis hefur lagt til að útsvar sveitarfélaga verði ekki lægra en 8,4% á næsta ári og ekki hærra en 9,2% af skattskyldum tekjum. Útsvar er nú að hámarki 7,5% en ekkert lágmark. Hækkun útsvarsprósentunnar á að bæta sveitarfélögunum það tap sem þau verða fyrir vegna þess að aðstöðugjald var fellt niður. Miðstjóm Alþýðusam- bandsins segir að þessar ákvarðanir muni augljóslega leiða til aukinnar skattbyrðar almennings þvert á þau fyrir- heit sem ríkisstjómin gaf um síðustu áramót þegar aðstöðu- gjaldið var afnumið. Stuðningur við sjómenn Á fundi miðstjómar ASÍ var ennfremur samþykkt ályktun þar sem lýst er yfir fullum stuðningi við réttmæt- ar kröfur sjómanna vegna kjaradeilu þeirra. Sjómenn séu þvingaðir til kvótakaupa og forystumenn útgerðar- manna neiti að kannast við það löglausa og siðlausa ástand sem þar ríkir. Ef ekki verði hmndið þeirri nauðung sem hluti útgerðarmanna beit- ir sjómenn og komið í veg fyr- ir þær lagabreytingar sem nú liggi fyrir megi ætla að næst verði fiskvinnslufólk þvingað til að taka þátt í kvótabrask- inu. Samtökin muni aldrei una því að kjör launafólks verði rýrð með þvingunaraðgerð- um. Miðstjómin skorar á stjóm- völd og útgerðarmenn að leysa jressi mál við sjómenn með fullnægjandi hætti hið fyrsta svo koma megi í veg fyrir að fiskiskipaflotinn stöðvist um áramót. Launalækkun mótmælt Þá samþykkti miðstjómin ennfremur ályktun þar sem mótmælt er harðlega tilkynn- ingu Stálsmiðjunnar um 12,5% launalækkun sem komi til framkvæmda 1. febrúar og hótunum um upp- sögn ffá sama tíma ef staifs- menn samþykki ekki verulega kjaraskerðingu. Öllum tiltæk- um ráðum verði beitt til að koma í veg fyrir að slflc launa- lækkun nái fram að ganga og er forsetum ASI falið að hafa náið samstarf við verkalýsðfé- lög um aðgerðir. Óskum öllum viðskiptamönnum okkar svo og öðrum Eyftrðingum gleðikgrajóla og árs og Jriðar á komandi ári Þökkum ánœgjuleg viðskipti á því sem er að líða ÍSLANDSBANKI Skipagötu 14 og v/Hrísalund

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.