Alþýðublaðið - 21.12.1993, Blaðsíða 1
Kísiliðjan segir öllum starfsmönnum upp störfum
„Að vissu leyti barútta
upp á líf og dauða"
— segir Friðrik Sigurðsson framkvœmdastjóri en œtlunin er
að fœkka um 13 stöðugildi íkjölfar taprekstrar íþrjú ár
„Síðustu þrjú árin
hefur orðið tap á
reglulegri starfsemi
Kísiliðjunnar sem
nemur 20 milljónum
króna á ári. Málið er
einfaldlega það að
okkar helstu sam-
keppnisaðilar eru
með lægri fram-
leiðslukostnað og
geta því boðið kaup-
endum lægra verð.
Það var fundur með
starfsmönnum í dag
þar sem þeim var til-
kynnt að ákveðið
væri að segja þeim
öllum upp og ætlun-
in væri að fækka um
13 stöðugildi við
endurráðningu.
Menn setti hljóða en
þetta er að vissu leyti
spurning upp á líf og
dauða fyrir félagið,“
sagði Friðrik Sig-
urðsson fram-
kvæmdastjóri Kísil-
iðjunnar í samtali
við Alþýðublaðið í
gær.
Stjóm Kísiliðjunnar
við Mývatn hefur
ákveðið að segja upp
öllum starfsmönnum fé-
lagsins sem eru 55 tals-
ins frá og með næstu
áramótum. Uppsagna-
frestur flestra starfs-
manna er þrír mánuðir.
Áformað er að fækka
um allt að 13 stöðugildi
og er ætlunin að ganga
frá endurráðningu
þeirra starfsmanna sem
boðin verður endur-
ráðning í ársbyijun
1994. Þetta er liður í að-
gerðum sem miða að
15% lækkun á heildar-
rekstrargjöldum Kísil-
iðjunnar en mikill sölu-
og framleiðslusamdrátt-
ur hefur verið hjá félag-
inu undanfarin þrjú ár.
„Kísilgúrinn er not-
aður sem síuefni við
bjór- og víngerð. Aðal-
markaður okkar á þessu
ári hefur verið í Austur-
ríki en Þýskaland hefur
verið stærsti kaupand-
inn til þessa. Þegar
kreppir ao í þessum
löndum draga menn úr
neyslunni og það bitnar
á okkur. Auk þess að
fækka starfsmönnum er
stefrit að því að ræða við
flutningsaðila og orku-
sala um kostnaðarlækk-
un. Við kaupum jarð-
gufu af Landsvirkjun og
rafmagn af RARIK. Það
hefur verið rætt lauslega
við þessa aðila og ég
vonast eftir því að þeir
hjálpi okkur yfir erfið-
asta hjallann," sagði
Friðrik Sigurðsson.
I haust ákvað stjóm
Kísiliðjunnar að láta
fara fram úttekt og end-
urskoðun á rekstri og
starfsmannahaldi fé-
lagsins. Framleiðsla
hefur dregist saman um
25% á þessu ári saman-
borið við meðaltal ár-
anna 1987 til 1991.
Fyrsta hluta endur-
skoðunar á rekstri og
starfsmannahaldi fé-
lagsins er lokið og er
stefnt að allt að 15%
lækkun á heildarrekstr-
argjöldum félagsins.
Auk fækkunar starfs-
manna er stefnt að því
að fækka vöktum,
breyta vinnufyrirkomu-
lagi og fækka dagvinnu-
mönnum. Annar kostn-
aður verður lækkaður.
Framleiðslu er lokið í
ár og er hún 17.740 tonn
sem er tæplega 10%
samdráttur frá síðasta
ári. Áformað er að hefja
ffamleiðslu að nýju í
janúar 1994 og er gert
ráð fyrir að ffamleiða
um 19 þúsund tonn á
því ári. Sala ársins 1993
er heldur betri en á fyrra
ári en alls stefnir í að
salan verði 19.650 tonn
sem er rúmlega 5%
aukning frá í fyrra.
Veruleg birgðaminnkun
hefur orðið á árinu. Sal-
an í ár er um 16% minni
en meðaltal áranna
1987-1991 en söluáætl-
un næsta árs er 19 þús-
und tonn.
Alþýðublaðinu í dag
fylgir aukabiaðið NEISTI -
málgagn Alþýðuflokksins
á Siglufirði!
Dagsbrún gegn
gjaldþrotasvindli
„Fagna því að Sighvatur
ætlar að hindra
svona framferði"
— segir Guðmundur J. Guðmundsson
formaður Dagsbrúnar en félagið vill
einnig að ríkisvaldið stöðvi svarta
atvinnustarfsemi
„Það er svo sannarlega kominn tími til að taka í taum-
ana varðandi þessi síendurteknu gjaldþrot sömu aðila.
Maður sem varð gjaldþrota í gær er búinn að stofna nýtt
fyrirtæki í dag og stendur ekki skil á einu eða neinu. Skatt-
ar eru ekki teknir af starfsfólki eða þá að þeir eru teknir af
en ekki skilað. Þetta gengur ekki lengur. Við höfum til
dæmis kært fyrirtækið Ósal sem er búið að gera gjaldþrota
fimm sinnum en einn aðalviöskiptavinur þess er Lands-
síminn. Það er eins og ekkert sé hægt að gera í svona tilfell-
um en ég fagna því að Sighvatur Björgvinsson viðskipta-
ráðherra ætlar að koma á nýrri löggjöf til að hindra svona
framferði,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson formaður
Dagsbrúnar í samtali við Alþýðublaðið.
Á stjómarfundi í Dagsbrún sem haldinn var á föstudaginn
var eftirfarandi ályktun samþykkt:
„I gjaldþrotalirinu undanfarinna ára hefur Iaunafólk og aðrir
viðskiptaaðilar fyrirtækja sem lent hafa í gjaldþrotum tapað
umtalsverðum ljármunum. Itrekað hefur verið um það fiallað
og samþykktir gerðar um það af Dagsbrún að stemma verði
stigu við því að aðilar sem verða gjaldþrota geti risið upp og
stofnað ný fyrirtæki til að endurtaka sama leikinn aftur og aft-
ur þar sem verkafólk og ríkissjóður og aðrir viðskiptamenn
verða enn og aftur fyrir umtalsverðu tjóni. Því fagnar stjóm
Dagsbrúnar því að viðskiptaráðherra boðar nýja löggjöf til að
hindra slíka verknaði.
Stjómin treystir því að þessi lög verði sem fyrst úlbúin. Jafn-
framt vill félagið lýsa yfir undrun sinni að ríkisvaldið virðist
engar ráðstafanir gera gegn svokallaðri svartri atvinnustarf-
semi. Slík starfsemi greiðir enga skatta til ríkis og bæjarfélaga
eða til lífeyrissjóða. Við þessa aðila verða atvinnurekendur
sem standa skil á sköttum og skyldum í einu og öllu að keppa.
Þessi svarta atvinnustarfsemi virðist fara vaxandi og vill Dags-
brún skora á ríkisvaldið að standa við fyrirheit sín og gera þær
ráðstafanir sem þarf til að stöðva þessa starfsemi.“
LÆRABANI, verð aðeins kr. 990. Margvís-
legar æfingar fyrir læri, fætur, brjóst, hand-
leggi, bak og maga.
MINISTEPPER, tvær gerðir, verð kr. 2.900 og kr.
5.990. Litli þrekstiginn gerir sama gagn og stór en
er miklu minni og nettari.
ÆFINGABEKKIR og LÖÐ. Bekkur með fótaæfing-
um (mynd), kr. 9.700, lítill bekkur, kr. 6.300, 50
kg lóðasett (mynd), kr. 7.370. Bekkur + lóðasett,
10% afsláttur stgr. Handlóð, 2x1,5 kg, kr. 950,2x2,5
kg, kr. 1.290 og 2x3,5 kg, kr. 1.650.
Það nýjasta í þjálfun. Þrek og þol, teygjur,
fætur, handleggir og magi. Þrjár mismun-
andi hæðarstillingar, stöðugur á gólfi. Verð
aðeins kr. 4.700.
Greiðslukort og
greiðslusarrmingar
Símar: 35320
688860
Ármúla 40
ÞREKHJÓL, verð aðeins kr. 12.900, stgr.
12.225. Þrekhjól með púlsmæli kr. 15.900,
stgr. 15.105. Bæði hjólin eru með tölvu-
mæli sem mælir tíma, hraða og vegalengd,
stillanlegu sæti og stýri og þægilegri þyngd-
arstillingu.