Alþýðublaðið - 12.01.1994, Page 5
Miðvikudagur 12. janúar 1994
VEXTIR, STYRKUR & SKILABOÐ
ALÞYÐUBLAÐIÐ 5
Ólafur K. Ólafs, hagfrœðingur,
í Vísbendingu
VEXTIR
LÆKKA
þrátt fyrir
verðtryggingu
„Útlit er fyrir að sam-
stillt átak aðila á fjár-
magnsmarkaði um að
lækka vexti geti skilað
lægri vöxtum til fram-
búðar. Nauðsynleg for-
senda þess er að láns-
fjárþörf hins opinbera
minnki. Ekki gengur til
lengdar að sækja á er-
lenda fjármagnsmark-
aði ef ekki fást ásættan-
legir vextir innanlands“,
segir Ólafur K. Ólafs,
hagfræðingur hjá Seðla-
bankanum, í grein sem
hann kallar „Vextir
lækka þrátt fyrir verð-
tryggingu“ og birtist í
nýjasta hefti Vísbend-
ingar, blaðs Talnakönn-
unar hf. I grein sinni
rekur Ólafur K. Ólafs
athyglisverðan árangur
sem náðst hefur við
lækkun vaxta verð-
tryggðra skuidbindinga
á innlendum fjármagns-
markaði undir lok ársins
1993.
Ólafur segir að stórir að-
ilar á markaðnum, lífeyris-
sjóðir til dæmis, kunni að
leita á erlenda markaði
þegar frelsi til fjármagns-
flutninga landa á milli er
brostið á, en það gerðist nú
um áramótin.
„Það gæti verið leikur í
þeini viðleitni að dreifa
áhættunni og í einhveijum
tilvikum að ávaxta fé sitt
betur. Hins vegar er ólík-
legt að ávinningur þeirra
verði að jafnaði meiri í
skuldabréfakaupum er-
lendis en innanlands, því
þrátt fyrir að vextir ríkis-
tryggðra pappíra hafi
lækkað hér á landi, eru
þeir eftir sem áður með
þeim hæstu sem tíðkast
innan landa OECD“, segir
Ólafur.
Ólafur rekur gang mála
á peningamarkaði allt frá
29. október, þegar stjóm-
ÓLAFUR K. ÓLAFS - samstilll
átak getur skilað lœgri vöxtum til
frambúðar, - ef lánsfjárþörf rík-
isins minnkar.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
völd tilkynntu um aðgerð-
ir í vaxtamálum. Þann dag
hafi múr verið rofinn.
Menn hafi til þess tíma illa
getað sætt sig við að vext-
ir spariskírteina fæm undir
7%. í kjölfar yfirlýsingar-
innar hafi vextir ríkisverð-
bréfa lækkað verulega.
Þannig hafi söluávöxtun
nýjustu flokka spariskír-
teina á Verðbréfaþingi
lækkað frá 25. október um
2,25%, úr 6,95% í 4,7%.
Sama er að segja um spari-
skírteini en raunvextir
þeirra á svokölluðum eft-
irmarkaði em þeir lægstu
frá upphafi Verðbréfa-
þings.
Ólafur bendir á að bank-
ar fylgdu eftir vaxtalækk-
un verðtryggðra ríkis-
skuldabréfa í nóvember
með því að lækka vexti
verðtryggðra bankalána
að meðaltali um 1,9 pró-
sentustig, í 7,5%. Þetta séu
lægstu vextir bankalána
allt frá því í október 1989.
Um nafnvexti óverð-
tryggðra útlána banka og
sparisjóða er það að segja
að þeir breyttust hinsvegar
talsvert á árinu 1993.
Miklar sveiflur vom í
raunvöxtum óverð-
tryggðra útlána það ár.
Fékk 250 þúsund króna styrk
úr Minningarsjóði Gunnars Thoroddsen
Úthlutað hefur verið í
áttunda sinn úr Minning-
arsjóði Gunnars Thorodd-
sen. Að þessu sinni hlaut
Nína Margrét Grímsdóttir
píanóleikari styrkinn fyrir
framlag tii íslenskru tón-
ILstarmála. Styrkurinn var
að þessu sinni 250 þúsund
krónur.
Minningarsjóðurinn var
stofnaður af hjónunum
Bentu og Valgarð Briem 29.
desember 1985 þegar liðin
voru 75 ár frá fæðingu
Gunnars. Sjóðurinn er í
vörslu borgarstjórans í
Reykjavík sem ákveður út-
hlutun úr honum að höfðu
samráði við frú Völu Thor-
Við styrkveitinguna t Höfða. Frá vinstri; Ágúst Guðmundsson, Jón-
ína Gísladóttir, GrímurH. Brandsson, Sigríður Ágústsdóttir, Mark-
ús Öm Antonsson, Vala Thoroddsen og Steinunn Ármannsdóttir.
Sigríður móðir Nínu Margrétar tók við styrknum fyrir hönd dóttur
sinnar sem cr erlendis.
oddsen, ekkju Gunnars. Til-
gangur sjóðsins er að veita
styrki til einstaklinga eða
hópa, stofnana eða félaga,
eða veita verðlaun eða lán f
sambandi við rannsóknir, til-
raunir eða skylda starfsemi á
sviði mannúðarmála, heil-
brigðismála eða menningar-
mála, sem Gunnar Thorodd-
sen lét sérstakiega til sín taka
sem borgarstjóri.
Nína Margrét Grímsdótúr
píanóleikari iauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð og einleikara-
prófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík ári síðar þar sem
hún stundaði nám hjá Hall-
dórí Haraldssyni. Hún hefur
stundað nám og lokið próf-
um frá tónlistarskóium í
London og New York og
hlaut á þessu ári styrk frá
Helena Rubinstein Found-
ation til doktorsnáms í pí-
anóieik við City University
of New York. Nína Margrét
vinnur meðal annars að
rannsóloium á þróun píanó-
ieiks á íslandi. Hún hefur oft
komið fram opinberlega á
tónleikum að undanfömu
bæði hér heima og erlendis
og ávallt hiotið góða dóma
og ósjaldan frábæra fyrir leik
sinn.
Fiú Vala Thoroddsen af-
henti styrkinn við athöfn
setn ffarn tör f Höfða 29.
desember síðast liðinn.
Fœrandi
hendi
áfund
út í heim
„ÞeGAR ÉG fer til fundar við vini mína
og viðskiptavini erlendis þarf engan að undra
þótt ég færi þeim lax í einhverri mynd
þar sem viðskipti mín tengjast laxi og útflutningi.
Það gengur þó ekki endalaust.
Ekki má gleymast að ísland
hefur upp á margt annað að bjóða
eins og til dæmis vatnið, skyrið og ostana
að ógleymdum fallegu íslensku ullarvoðunum,
tískufatnaðinum og myndabókunum,
eftir alia bestu ljósmyndara okkar.
Yfirleitt finnst mér þægilegast, tímans vegna,
að kaupa þessar gjafir í íslenskum markaði.“
|
$rvi\
Orri Vigfússþ'n/forst jóri.
GOÐ HUGMYND!
Vir:
\v
,cí>Hp
Raunávöxtun óverðtryggðra lána hefur verið hœrri en verðtryggðra
frá árinu 1990.
ISLENSKUR ETll MARKAÐUR
Leifsstöð ■ Keflavíkurflugvelli ■ Sími (92) 50 4 50 ■ Fax (92) 50 4 60