Alþýðublaðið - 26.01.1994, Blaðsíða 1
MMIIUMÍDID
.Wsjm
TVÖFALDUR1. vinningur
Miðvlkudagur 26. janúar 1994
14.TÖLUBLAÐ - 75. ÁRGANGUR
Verð í lausasölu kr. 140 m/vsk
Sameiginlega framboðið í Reykjavík
Málefnasamningur nær tilbúinn
Framboðsfrestur hjá jafnaðarmönnum rann út á hádegi í gær -10 manns gefa kost á sér í
kosningu alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík á fulltrúum flokksins í 4. og 9. sæti listans
'* ■>:
Bolli Runólfur. Bryndís.
Fulltrúar minnihluta-
flokkanna hafa unnið öt-
ullega að gerð málefna-
samnings fyrir sameigin-
legt framboð flokkanna.
Pétur Jónsson formaður
fulltrúaráðs Alþýðu-
flokksfélaganna sagði í
samtali við blaðið að
samningurinn væri nær
tilbúinn.
„Það er verið að ræða
áhersluatriði á einstaka þætti
Gunnar.
Gunnar Ingi.
Gylfi Þór.
Hlín.
Pétur.
Rúnar.
Skjöldur.
Þorlákur.
málefnasamningsins en hann
er nánast tilbúinn og verður
kynntur áður en langt um líð-
ur,“ sagði Pétur. Hann vildi
ekki ræða einstök atriði
samningsins en sagði að mjög
gott samkomulag ríkti með
fulltrúum flokkanna og eng-
um vandkvæðum bundið að
ganga endanlega frá málefna-
samningi.
Prófkjörsslagur sjálfstæð-
ismanna stendur nú sem hæst
og er hart barist. Nýjustu tíð-
indi úr þeim herbúðunt eru að
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
hefur lýst því yfir að hann
sækist eftir einu af efstu sæt-
unum. Þar undanskilur hann
ekki fyrsta sætið sem flokks-
forystan vill að sé frátekið
fyrir Markús Öm Antonsson.
Að sögn heimildarmanna inn-
an raða Sjálfstæðisflokksins
meinaði forysta flokksins
Katrínu Fjeldsted að bjóða sig
fram gegn Markúsi Emi í
fyrsta sætið og því ákvað
Katrín að taka ekki þátt í próf-
kjörinu.
10 bióða sig fram
hjá jafnaðarmönnum
Minnihutaflokkamir hafa
komið sér saman um röðun á
sameiginlegan lista og er nú
unnið að því að velja fólk í
sæti.
Kosning fulltrúa Alþýðu-
flokksins í 4. og 9. sæti fer
fram laugardaginn 5. febrúar
og sunnudaginn 6. febrúar.
Rétt til þátttöku í kosningu
hafa allir flokksbundnir Al-
þýðuflokksmenn í Reykjavík
Öskað
til starfa
Óvenjuleg auglýsing um
atvinnu í boði birtist í DV í
gær. Þar er óskað eftir
óáreiðanlegu söiufólki sem
liafi engan áhuga á vinnu
og vilji helst sofa fram eftir
degi, sitja á rassinum og fá
fullt af peningum fyrir.
Fólk er beðið að hringja í
ákveðið símanúmer - ef
það nennir! Meðmæli eru
talin óæskileg.
Blaðamanni Alþýðu-
blaðsins hló hugur í brjósti
þegar hann las þessa auglýs-
ingu og sá draumastarfið í
hillingum. Drattaðist með
erflðismunum til að lyfta tóli
og hringdi svo lítið bar á í
símanúmerið sem gefið er
upp í auglýsingunni.
Fyrir svömm varð Gísli
Böðvarsson hjá Hagfiski en
það fyrirtæki stendur að baki
auglýsingarinnar. Gísli sagði
Hagfisk selja fisk í heintahús
og hefði mjög stóran hóp
fastra viðskiptavina. Það
þyrfti að hringja reglubund-
ið í þetta fólk og kanna hvort
það væri búið að snæða síð-
ustu sendingu og vildi
meira. Ennfremur þyrftu að
afla nýrra viðskiptavina. Hér
væri um að ræða rnjög ein-
Kannski maður œtti að hœtta þessu blaðamennskukjaftœði og sœkja um
vinnu lijá Hagfiski.:.?! Alþýðublaðsmynd/EinarÓlason
falda sfmsölu sem færi að
hluta fram á kvöldin.
Um ástæður þess að orða
auglýsinguna svona sagði
Gísli að auglýsing ætti að
vekja athygli og það hefði
svo sannarlega tekist því
símar fyrirtækisins stoppuðu
ekki. Fólk hringdi unnvörp-
um og sæktist eftir vinnu.
Blaðamaður var ekki hissa á
því og herti sig upp í að
nenna að spyija um launin.
Gísli sagði bestu sölumenn
komast upp í fjögur lil fimm
þúsund krónu laun á kvöldi
fyrir nokkurra klukkustunda
vinnu.
Ætlunin er að ráða núna
sjö til átta sölumenn, en
samtals störfuðu um 20
manns hjá fyrirtækinu.
HANKOOK
vm\Bnnaa\
á lága verðinu
Frábær vetrardekk - Einstakt verð
Verðsýnishorn
145R12
155R12
135R13
145R13
155R13
165R13
175/70R13
185/70R13
175R14
KR.3540
KR.3770
KR. 3540
KR.3660
KR.3980
KR.4100
KR.4440
KR.4880
KR.4980
stgr. Verðsýnishorn stgr.
KR. 3186 185R14 KR. 5680 KR. 5112
KR. 3393 175/70R14 KR.5100 KR. 4590
KR. 3186 1 85/70R14 KR. 5440 KR. 4896
KR. 3294 195/70R14 KR. 6280 KR. 5652
KR. 3582 205/75R14 KR. 7580 KR. 6822
KR. 3690 175/65R14 KR. 5550 KR. 4995
KR. 3990 185/60R14 KR. 5980 KR. 5382
KR. 4392 165R15 KR.4770 KR. 4293
KR. 4482 1 85/65R15 KR. 6420 KR. 5778
Barðinn hf.
Skútuvogi 2 - sími 683080
Sendum gegn póstkröfu.
samkvæmt félagatali ffá 15.
janúar síðast liðinn.
Framboðsfrestur vegna
kosningarinnar rann út í gær
og hafa 10 manns gefið kost á
sér í sæti Alþýðuflokksins:
Bolli Runólfur Valgarðsson,
Bryndís Kristjánsdóttir,
Gunnar Gissurarson, Gunnar
Ingi Gunnarsson, Gylfi Þór
Gíslason, Hlín Daníelsdóttir,
Pétur Jónsson, Rúnar Geir-
mundsson, Skjöldur Þor-
grímsson og Þorlákur Helga-
Kuldagallatískan á íslandi -
nýjasti skólabúningurinn
Hólmavíkurkrakkar
allir í kuldagöllum
„Það er engin spurn-
ing að þessi ágæta tíska
hefur góð áhrif á heilsu-
far krakkanna“, sagði
Skarphéðinn Jónsson,
skólastjóra Grunnskóla
Hólniavíkur. í skólanum
eru 113 börn og þar af
ganga hundrað í kulda-
göllum frá Nlax hf.
„Þetta er nánast skóla-
búningurinn okkar“,
sagði Kkarphéðinn.
Hann sagði að ekki veitti
af hlýjuin fatnaði á
Ströndum. Í Brú í
Hrútalirði hefði frostið
farið niðurf 15 gráður í
fyrradag.
Tildrög þess að svo
margír klæðast svo af-
spyrnu hlýlega á Hólma-
vík, em þau að foreldrafé-
lag skólans tók sig til á síð-
asta hausti og fékk tilboð í
framleiðslu á göllunum.
Ekki nóg með það. Flík-
umar eru dýrar, og því
votu fyrirtæki á staðnum
fengin til að styðja við inn-
kaupin og fengu auglýs-
ingar á gallana. Það em
Hólmadrangur, Kaupfélag
SteingrímsQarðar og
Sparisjóðurinn sem lögðu
fé í auglýsingamar. Ut-
koman af útboði og aug-
lýsingasöfnun var svo góð
að flíkumar fengust á nán-
ast hálfu búðarverði.
Skarphéðinn Jónsson
sagði að ekki mætti
gleyma því að kuldagall-
amir nýttusl ekki aðeins
vel í fimbulvetrinum á
Ströndum sem hin besta
skjólflík, - gallamir væm
tneð afar góðunt endur-
skinsborðum og væm því
hin besta vöm fyrir bömin
í umferðinni.
I skólum í Reykjavík og
víðar um land er ljóst að
bömin vilja tolla í þessari
ágætu tísku og em kulda-
gallar efstir á óskalista
þeirra. Vandamálið er
hinsvegar að framlciðend-
ur hafa ekki undan að
sauma.
Sjá umfjöllun
á blaðsíðu 3:
„Biðlistl eftir að
fá flíkurnar“
Prófkjör í Kópavogi
Alþýðuflokkurinn í
Kópavogi hefur ákveðið að
efna til prófkjörs vegna
bæjarstjórnarkosninganna
í vor. Prófkjörið verður
haldið dagana 26. og 27.
febrúar næstkomandi.
Kosningin verður bindandi
í 6 efstu sæti listans, ef þátt-
taka verður að minnsta kosti
20% af kjörfylgi flokksins í
síðustu kosningum.
Framboðsfrestur er til 31.
janúar, en kjörstjóm getur
bætt við allt að þrem fram-
bjóðendum í prófkjörið.
Maður fer nú létt með að
stæla þennan Ingólf Arnarson!
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason