Alþýðublaðið - 26.01.1994, Page 3

Alþýðublaðið - 26.01.1994, Page 3
Miðvikudagur 26. janúar 1994 FRETTIR ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 Fataframleiðsla á Islandi: MAX hf. hefur ekki undan að framleiða, ekki hvað síst kuldagallana, skynsamlegar tískuflíkur - Aðgerðir ríkis- stjórnarinnar hafa hjálpað iðnaðinum til að fá betri starfsgrundvöll Biðlisti eftir að fá flíkurnar „Við erum enn að framleiða jólavör- una, og ávísanir á kuldagallana okkar eru álíka eftirsóttir og aðgöngumiðar að úrslitaleik á Wem- bley“, sagði Sig- mundur Andrésson, forstjóri Max hf. í samtali við Alþýðu- blaðið í gær. Sig- mundur sagði að ekkert lát væri á kuldagallatískunni, sky nsamlegustu tískubylgju síðari ára, sem læknar og skóíamenn hafa lof- sungið. Elmar Jens- en hjá 66 gráðum norður tók í sama streng og sagði að vinsældir þessara kuldaflíka væri meiri nú en nokkru sinni og úrvalið væri sífellt að aukast. Hjá báðum framleiðend- unum er biðlisti eftir að fá kuldagalla. Hafa ekki undan að framleiða Sigmundur sagði að nú hefði það gerst að unga fólkið hefði kosið sér mjúka pakka í jóla- gjöf í stað harðra, allir vildu eignast kuldagall- ana. Stærstu framleiðend- umir á kuldagöllunum em 66 gráður norður og Max. Hvomgur hefur undan að ffamleiða þessa vöm, sem er frá- leitt þeirra eina fram- leiðsluvara. A sama tíma og talað er um bág- an hag vefjarvömiðnað- ar á Islandi, em báðar þessar verksmiðjur að gera það gott, og hafa ærið að starfa. Hjá Max hf. hefur verið unnin eftirvinna vegna mikillar eftir- spumar eftir göllunum. Það fyrirtæki hóf nýlega að framleiða sérstaka búninga fyrir slökkvi- liðsmenn í Reykjavík og er með talsvert breiða framleiðsluh'nu. Sagði Sigmundur að sú fram- leiðsla gengi mjög vel. Góðar aðgerðir ríkisstjórnar Elmar Jensen, for- stjóri Sjóklæðagerðar- innar hf. - 66 gráður norður, sagði í samtali við Alþýðublaðið að af- koma fyrirtækisins á síðasta ári hefði verið •óvenju góð. Hann sagði að það væri ekki spum- ing að ýmsar aðgerðir ríkisstjómarinnar kæmu fyrirtækjum í þessari grein afar vel, ekki síst sú staðreynd að verð- bólgan er nánast engin; einnig skattalækkanir og annað sem kemur fyrir- tækjunum til góða og skapar þeim eðlilegan staifsgmndvöll í mikilli samkeppni við erlenda fataframleiðendur. „Þessar aðgerðir þýða í raun að störfúm í þessari grein Ijölgar og umsvif- in þamieð“, sagði El- mar. „Það er enginn dauðasvipur á þessum iðnaði, síður en svo“, sagði Elmar. „Við höf- um ekki undan að fram- leiða fyrir innanlands- markaðinn, og útflutn- ingur á ýmissi vöm okk- ar fer vaxandi, við flytj- um út sjófatnað til Bret- lands, Hollands, Fær- eyja og fleiri landa“. El- mar sagði ennfremur að fyrirspumir um kulda- gallana hefðu borist er- lendis frá og eitthvað selt til annarra landa. Hinsvegar væri innan- landsmarkaðurinn svo góður að ekki væri hugsáð um útflutning um sinn, hvað sem síðar kynni að verða. Sigmundur Andrés- son í Max hf. sagði hins- vegar að of snemmt væri að segja til um út- flutning, trúlega væri iðnaðurinn okkar ekki samkeppnishæfur enn sem komið væri, ekki síst vegna dýrrar fragtar til og frá landinu. Viðurkenning fyrir umferðaröryggi Báðar verksmiðjumar sem framleiða kulda- gallana vinsælu, fengu á dögunum viðurkenn- ingu Umferðarráðs fyrir að vinna að auknu um- ferðaröryggi. Fram- leiðsluvaran er með afar sterkum og áberandi endurskinsborðum, sem auka mjög á öryggi í umferðinni. Hjá Max hf. starfa nú milli 60 og 70 manns, en hjá Sjóklæðagerðinni hf. um 130 manns, í þrem verksmiðjum, í Reykjavík, Akranesi og á Selfossi. Fossvogsdalur Skipulagsnefnd Kópavogs blæs golfvöllinn af Á fundi skipulags- nefndar Kópavogs fyrir stuttu var sam- þykkt samhljóða bókun þess efnis að fallið verði frá gerð níu holu golfvallar í Fossvogsdal. Þess í stað verði sá hluti dalsins áfram úti- vistarsvæði opið öll- um almenningi. Bókun skipulags- nefndar er svohljóð- andi: Tillaga að skipulagi golfvallar í austur- hluta Fossvogsdals var auglýst opinber- lega síðastliðið sum- ar. Allmikil andstaða kom í ljós við að taka svæðið undir svo sér- hæfða landnotkun. Því leggur skipulags- nefnd til við bæjar- stjóm að fallið verði frá auglýstu skipulagi og hugmyndum um gerð 9-holu golfvallar í Fossvogsdal. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt að fela Bæjarskipu- lagi Kópavogs að vinna nýja tillögu að skipulagi austurhluta dalsins sem miðast að því að sá hluti dalsins verði áfram útivistar- svæði opið öllum al- menningi. Tillagan verði kynnt bæjaryfirvöld- um um mánaðamótin febrúar/mars næst komandi. Breytingar ákveðnar í utanríkisþjónustunni Utanríkisráðuneyt- ið hefur sent frá sér eftirfarandi upplýs- ingar um breytingar sem hafa verið ákveðnar í utanríkis- þjónustunni: Ingvi S. Ingvars- son, sendiherra í Kaupmannahöfn, flytur heim til starfa í utanríkisráðuneytinu 1. mars næst kom- andi. Olafur Egilsson, sendiherra í Moskvu, tekur við embætti sendiherra í Kaup- mannahöfn 1. mars. Gunnar Gunnars- son, sem verið hefur fastafulltrúi hjá CSCE í Vín, tekur við embætti sendiherra í Moskvu 1. mars. Sverrir Haukur Gunnlaugsson, fastafulltrúi hjá Atl- antshafsbandalaginu, tekur við embætti sendiherra í París 1. apríl. Þorsteinn Ingólfs- son, ráðuneytisstjóri, tekur við embætti fastafulltrúa hjá Atl- antshafsbandalaginu 1. maí. Róbert Trausti Árnason, skrifstofu- stjóri varnarmála- skrifstofu, tekur við embætti ráðuneytis- stjóra utanríkisráðu- neytisins 1. maí. Benedikt Ásgeirs- son, sendifulltrúi, tek- ur við embætti skrif- stofustjóra vamar- málaskrifstofu utan- ríkisráðuneytisins 15. júní. Guðríöur Þorbjarnardóttir - skáldsaga Norska bókaútgáfan Gyldendal hefur sent blaðinu útgáfuáætlun sína fyrir na’sta vor, 4K sfðna bók. Það er mikið gefið út hjá þessu stóra forlagi, og fs- lenskar bækur eru með í för. Fremsta síð- an í kynningunni er með mynd af Snorra Sturlusyni, því höfuðverk Gyldendals í vor er útgáfa á Heimskringlu Snorra. Þá er von á skáldsögu eftir Kirsten Saever, hennar fyrstu bók. sem heitir Gudrids saga. Fjallar bókin um Guðríði, sem fædd er á íslandi á 10. öld. Faðir hennar sólundar eignum sínum og íjölskyldan flytur til ffændfólks á Grœnlandi. Síðar reynir Guðríður og eiginmaður hennar fyrir sér á Vínlandi, en eru fiæmd á brott af indíánum. Hér er komin saga Guðríð- ar Þorbjarnardóttur. íslensku konunn- ar, sem ól fyrsta evrópska bamið á norð- ur-amerískri grund. Snorra Þorfinns- son. Maður hennar samkvæmt Gmn- lendingasögu var Þorfinnur Karlsefni. Ronja að hætta Allra síðasta tækifæri til að sjá Ronju rœningjadóttur í Borgarleikltúsinu verður á sunnudaginn kemur. Þetta ljúfa verk Astrid Lindgren hefur verið á fjölunum rétt á annað ár og notið gífurlegra vinsælda. Um 25.000 manns, mest krakkar að sjálf- sögðu, hafa lifað sig inn f þetta niagnaða verk. Sýningar eru orðnar 59 talsins. Af eigingirni og hroka Þætúnum barst efúrfarandi vísa, sem mun hafa verið gerð í kjölfar skinkudómsins í Hæstaiétti: Margur fœr í einkaarf eigingirni og hroka. Það er list sem lœra þarf að láta í minni pokann. Til Lapplands á skíði Finnland er úrvals ferðamannaland, - og ódýrt miðað við önnur Norðurlönd. Áhugi ís- lendinga á ferðalögum unt Finnland er vakinn, ekki aðeins á sumrin, heldur líka á vetuma, en þá er landið sérdeilis fagurt á að líta. Finnar bjóða upp á vikuferðir ffá Kauptnannahöfn til skíðastaða norðan heimskautsbaugsins f Lapplandi fyrir 34 þús- und krónur, alit innifal- ið. Án efa munu margir sent vilja breyta til renna sér í finnskum skíðabrekkunt í vetur. Enginn ágreiningur um spilakassa Frétúr í RUV um síðustu helgi um happdrættisvéIarihippdrœttis Háskóla íslands og söfnunarkassa Rauða kross íslands og samstarfsaðila eru ekki á rökum reistar að sögn þeirra Ragnars Ingimarssonar forstjóra Háskólahappdrættisins, og Guðjóns Magnússonar fonnanns RKÍ. Þeir segja engan ágreining vera milli aðilanna um túlkun samkomulagsins frá 19. október um söfnunarkassa þessa og happdrætúsvélar. „Samningsaðilar geta ekki cinhliða breytt samkomulaginu og stendur slíkt enda ekki til“, segja þeir. Fréttastofa útvarps sagði að til stæði að fjölga happdrættisvélum um helming á næstu mánuðum. Flórídafélagið kynnir sig Þeir eru margir sem láta sig dreyma um sólina á Flórída þegar snjór og hjam þekja jörð á íslandi. Á laugardaginn gengst Flórídafélagið fýrir kynningum á starfsemi sinni á Hótel Sögu klukkan 14 til 18, en síðan verður Flórfda kynnt á Akureyri á sunnudag áHótel Hörpu klukkan 14 til 18, Höfn íHornafirði I. febrúar, ísafirði 3. febrúarog í Vestmannaeyjum 4. febrúar. „Skundum á Sögu og treystum vor heit...“ Verið er að snurfusa skemmúdagskrána Þjóðhátíð á Sögu, sem frumsýnd verður í Súlnasal Hótel Sögu 12. febrúar. Björn G. Björnsson leikstýrir, en margir bestu grínistar landsins koma fram, þar á meðal Edda Björgvinsdóttir, Haraldur Sig- urðsson (Halli), Þórhallur Sigurðsson (Laddi) og Sigurður Sigurjónsson. Fólk utan af landi fær gistingu á Hótel Sögu og þjóðhátíðina að auki, skemmúdagskrá, kvöldverð og dansleik, - fyrir 7.300 krónur á manninn. Án efa munu margir „skunda á Sögu og treysta sín heit..“ út þennan vetur. Inga Gunnarsdóttir á Hótel Sögu sagði í gær að ekki skorti á áhugann, pöntunum rigndi inn, ekki síst frá starfsmannahópum, sem nýta sér gott tilboð. Milljónunum fækkaði Þrettán réttir í gelraunum síðustu helgar gefa 8,4 milljónir, ekki þær 11,2 sem vonast var úl. Ein röð til viðbótar jxiim þrem sem fyrir vom með 13 réttum kom fram í Norr- land í Svíþjóð á mánudagsmorguninn. Þarmeð hrapaði vinningurinn. Ein röðin var einmitt hjá „atvinnutippumm" t' austurhverfum Reykjavíkur sem sjá nú af 2,8 millj- ónum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.