Alþýðublaðið - 26.01.1994, Page 7
Miðvikudagur 26. janúar 1994
TIÐINDI
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
Frá hugmynd td hagnaðar
Aðgerðarþing
um nýsköpun
fer fram á
föstudaginn
Útflutningsráð íslands
og Rannsóknaráð ríkisins
boða til aðgerðarþings um
nvsköpun á föstudaginn.
Yfirskrift þingsins er „Ný-
sköpun - frá hugmynd til
hagnaðar“. Tilgangurinn
er að stuðla að eflingu ný-
sköpunar í landinu með
því að benda á leiðir til að
bæta skilyrði, auka árang-
ur og draga úr áhættu
sainfara tilraunuin til ný-
sköpunar.
Aðstandendur þingsins
segja að aldrei hafi verið
mikilvægara en nú að renna
fleiri stoðum undir gjaldeyr-
isskapandi starfsemi og ann-
að atvinnulíf í landinu. Því sé
brýnt að öðlast skýra yfirsýn
yfir forsendur og raunhæfar
framkvæmdaleiðir á þessu
sviði.
Aðgerðarþingið er opið
öllum sem áhuga hafa á þró-
un atvinnumála á Islandi, en
sérstaklega er reiknað með
þátttöku fulltrúa atvinnulífs,
og stofnana sem vinna að ný-
sköpun og veita aðstoð á því
sviði. Jafnframt er vænst
þátttöku fyrirtækja og stofn-
ana sem hlut geta átt að fjár-
mögnun nýsköpunar og fjár-
festinga í nýmælum, sem og
fulltrúa stjómvalda.
Að loknu aðgerðarþingi
verður boðið til sérstaks lok-
aðs fundar með þeim aðilum
sem taka ákvörðun um ný-
sköpun. Þar verður unnið úr
þeim hugmyndum sem fram
koma á þinginu og aðgerðir
samræmdar.
Aðgerðarþingið verður
haldið á Hótel Holiday lnn
og að lokinni skráningu þátt-
takenda uppúr klukkan 13
mun Sighvatur Björgvins-
son iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra flytja ávarp og setja
þingið. Flutt verða erindi og
veitt heiðursviðurkenning
fyrir nýsköpun.
Samkeppni krakka um gerð nýrra
yiðvörunarmerkinga á tóbaksvörur
- Börn á aldrinum 6 til 12 ára úr sjötíu skólum sendu 4 þúsund tillögur
1. verðlaun og aðalverðlaun - Ragnhildur Kristjánsdóttir, 7. bekk
Selásskóla í Reykjavík. Svipmynd frá sýningu tillagna um nýjar
viðvörunarmerkingar á tóbaksvörur íRáðhúsinu. Sýningin stend-
ur til nœsta jöstudags. Yfir fjögur þásund tillögur bárustfrá um
sjötíu skólum.
Heilbrigðisráðuneytið
hefur í samvinnu við
menntamálaráðuneytið,
Landlæknisembættið,
Tóbaksvarnanefnd og
fleiri málsmetandi aðila
efnt til samkeppni í
grunnskólum landsins,
þar sem nemendum á
aldrinum 6 til 12 ára
gafst kostur á að gera til-
lögur um gerð nýrra við-
vörunarmerkinga á tób-
aksvörur. Samkeppnin
fór fram dagana 15.
september til 15. nóvem-
ber síðastliðinn.
Þess er skemmst að
minnast, hve áhrifarík for-
vörn var unnin af íslenskri
æsku þegar átak var gert til
að draga úr tóbaksnotkun
landsmanna fyrir nokkr-
um árum. Það sýndi sig
þá, að bömin mynduðu
þann þrýstihóp, sem dugði
til að margir létu af tób-
aksnotkun. Þetta unga fólk
býr að þeirri fræðslu sjálft
um alla framtíð. Góðan ár-
angur má þakka skólum
sem stóðu einhuga að baki
nemenda sinna meðan á
átakinu stóð ásamt já-
kvæðri umfjöllun íjöl-
miðla.
Undirbúningsnefnd
samkeppninnar nú fór
fram á að skólar og fjöl-
miðlar létu ekki sitt eftir
liggja fremur en áður, og
hvettu æsku landsins til
þátttöku. Þetta gekk eftir.
26. apríl síðastliðið vor
sendi undirbúningsnefnd
samkeppninnar bréf í alla
gmnnskóla landsins, þar
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
sem ffamkvæmdaáætlun
hennar var kynnt og farið
fram á að kennarar gerðu
ráð fyrir henni í starfsáætl-
un komandi vetrar. í haust,
25. ágúst, var sent út ann-
að bréf til kennara, þar
sem kynntur var tilgangur
samkeppninnar, og reglur
þær sem farið skyldi eftir.
Samtímis var sent bréf til
fréttastjóra allra helstu
fjölmiðla landsins og þeim
kynnt samkeppnin og til-
gangur hennar. Enn eitt
annað bréf var sent til
skólanna 20. október og
þeir hvattir til að láta ekki
sitt eftir liggja í þessari
samkeppni.
Skömmu síðar tóku úr-
lausnir að berast nefndinni
og í stuttu máli sagt fór
þátttaka og gæði þeirra úr-
lausna sem bámst langt
fram úr vonum nefndar-
manna. Nálægt sjötíu
skólar sendu alls um 4
þúsund myndir og annað
eins af slagorðum um nýj-
ar tillögur að viðvömnar-
merkingum á tóbaksvörar.
Því er ekki að leyna að
gæði texta og mynda í
samkeppni sem þessari
verða oft misjöfn, en það
vakti þó athygli nefndar-
manna hversu stór hluti
texta og mynda í sam-
keppninni skyldi vera með
slíkum ágætum að eifltt
yrði að velja þá fremstu
meðal jafningja.
Sýning á verkum nem-
endanna stendur nú yfir í
Ráðhúsi Reykjavíkur og
verður hún til föstudagsins
28. janúar næstkomandi.
Nefnd um tillögur að
nýjum viðvörunarmerk-
ingum á tóbaksvömr vill
koma á framfæri þakklæti
til alls þess fjölda æsku-
fólks sem þátt tók í sam-
keppninni og vonar nefnd-
in að þátttakan reynist
fræðandi um þann vágest
sem tóbakið er. Nefndin
vill einnig þakka kennur-
um, skólastjórum, íjöl-
miðlafólki og öðmm þeim
sem gerðu þessa keppni
mögulega. Þá vill nefndin
þakka sérstaklega fyrir-
tækjunum sem gáfu verð-
laun, sem veitt verða fyrir
bestu úrlausnir verkefnis-
ins.Þau fyrirtæki sem gáfu
verðlaun em: Apple-um-
boðið, Flugleiðir hf. og
Vaka-Helgafell.
Nefnd um viðvörunar-
merkingar á tóbaksvörur
skipuðu: Hrafn Pálsson
heilbrigðisráðuneyti (for-
maður), Þórir Sigurðsson
menntamálaráðuneyti,
Kristín Guðmundsdóttir
Landlæknisembættinu,
Lilja Eyþórsdóttir Tóbaks-
vamanefnd, Bryndís
Björgvinsdóttir Félagi
myndmenntakennara,
Astþór Jóhannesson Sam-
bandi íslenskra auglýs-
ingastofa. Ritari nefndar-
innar var Steindór Karv-
elsson.
Námsstefna Orators
Fjallað
verður um
fanga og
refsivist
Orator, félag laganema,
gengst fyrir náinsstefnu næst
komandi föstudag um refsi-
vist og fanga. Þar verður
meðal annars fjallað um aga-
viðurlög, málsmeðferð fyrir
náðunarnefnd, áhrif refsinga
og alþjóðlegar skuldbinding-
ar Islands á þessu sviði.
Námsstefnan verður haldin í
Nesbúð á Nesjavöllum og er
áætlað að hún hefjist klukkan
15.30.
Fyrirlesarar á námsstefnunni
vera fimm og eftir fyrirlestra
verða almennar umræður og
fyrirspurnir.
Doktor Mikael M. Karls-
son, dósent við heimspekideild
Háskóla Islands fjallar í erindi
sínu um tilgang og áhrif refs-
inga. Sigurður Gísli Gíslason,
deildarstjóri hjá Fangelsismála-
stofnun ríkisins fjallar um rétt-
indi refsifanga og agaviðurlög
samkvæmt ákvæðum laga um
fangelsi og fangavist. Magnús
Skúlason geðlæknir talar um
mikilvægi aðgangS fanga að
heilbrigðisþjónustu. Olafur
Olafsson landlæknir ræðir um
málsmeðferð náðunamefndar á
beiðnum uin náðun og reynslu-
lausn. Ragnar Aðalsteinsson
hæstaréttarlögmaður flytur er-
indi um alþjóðlegar skuldbind-
ingar Islands á þessu sviði.
Fundarstjóri verður Einar Páll
Tamimi laganemi
Námsstefnan er öllum opin
og er áhugasömum bent á að til-
kynna þátttöku og fá nánari
upplýsingar hjá Orator í
síma 2 13 25.
RAÐAUGLÝSINGAR
Rannsóknamaður
í jarðfræði
Hafrannsóknastofnun auglýsir eftir rannsóknamanni í jarð-
fræði sem fyrst. Starfið felst í gagnasöfnun á sjó og landi og
úrvinnslu gagna. Leitað er að starfsmanni sem er vanur að
vinna við tölvur og/eða hefur einhverja stærðfræðimennt-
un. Um er að ræða tímabundna ráðningu í 6 mánuði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kjartan Thors
í síma 2 02 40.
Umsóknarfrestur er til 4. febrúar.
Hafrannsóknastofnun,
Skúlagötu 4,
101 Reykjavík.
Sími 2 02 40.
|L
ST. JÓSEFSSPlTALI
LANDAKOTI
Hjúkrunarfræðingar
Við viljum ráða í okkar hóp áhugasama hjúkrunarfræðinga
til starfa á nokkrar deildir Landakotsspítala.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu hjúkrunarfor-
stjóra í símum 60 43 00 og 60 43 11.
Aðalfundur
Alþýðubrauðgerðarinnar hf.
Aðalfundur Alþýðubrauðgerðarinnar hf. verður haldinn
fimmtudaginn 10. febrúar næstkomandi í Alþýðuhúsinu,
Hverfisgötu 8-10, klukkan 17.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra,
Reykjanesi.
Viltu ná árangri?
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi óskar eftir
að ráða tímabundið til starfa forstöðumann við meðferðar-
sambýli fyrir fatlaða í Kópavogi. Jafnframt er óskað eftir
deildarþroskaþjálfum til starfa að hinum ýmsu viðfangsefn-
um Svæðisskrifstofu.
Um er að ræða afleysingar í 6-8 mánuði og þarf viðkom-
andi að geta hafið störf sem fyrst.
Óskað er eftir þroskaþjálfa eða öðrum fagmenntuðum
starfsmanni með uppeldisfræðilega menntun og reynslu af
stjórnunarstörfum. Forstöðumenn og deildarþroskaþjálfar
taka þátt í framsæknu starfi í málefnum fatlaðra á vegum
Svæðisskrifstofu með öflugum, faglegum stuðningi í formi
handleiðslu, námskeiða og víðtæks faglegs samstarfs með
öðrum stjórnendum hjá Svæðisskrifstofu.
Umsóknarfrestur er til 28. janúar nk.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 6418 22 og umsókna-
reyðublöð liggja frammi á Svæðisskrifstofu Reykjaness,
Digranesvegi 5, Kópavogi.
PÓSTUR OG SÍMl
Útboð
Póstur og sími óskar eftir tilboðum í jarðsímastrengi. Um er
að ræða 5 til 500 línu plasteinangraða koparstrengi. Heild-
arlengd strengjanna er 350 km.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Fjarskiptasviðs,
Landssímahúsinu við Austurvöll.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir fimmtudaginn
24. febrúar 1994 kl. 11.00.