Alþýðublaðið - 11.02.1994, Page 1
Urgur innan Alþýðubandalagsins:
Samband ungra jafnaðarmanna:
Olafur Ragnar
sviptur umboði
- til stjórnarmyndunar? söguleg fordæmi í Alþýðubandalaginu fyrir
því að annar en formaður fari með umboð við stjórnarmyndun.
Ólafur Ragnar tók sjálfur þátt í mótun fordæmisins árið 1980.
Staða hans er talin vægast sagt veik eftir yfírlýsingu Davíðs
Innan Alþýðubanda-
lagsins eru skýr, söguleg
fordæmi fyrir því að for-
maður Ilokksins fari
ekki með umboð þing-
ílokksins í stjórnar-
myndunarviðræðum. I
kjölfar ummæla Davíðs
Oddssonar, þar sem
hann lokaði á myndun
ríkisstjórnar með þátt-
töku Olafs Ragnars, en
útilokaði hinsvegar ekki
Alþýðubandalagið, er sá
möguleiki galopinn að í
kjölfar kosninga feli
þingflokkurinn öðrum
en Olafi Ragnari umboð
sitt í viðræðum um
myndun nýrrar ríkis-
stjórnar. Þetta er í mót-
sögn við yfirlýsingu Ol-
afs Ragnars í Morgun-
Ólafur Ragnar Grímsson.
blaðinu í gær, en þar
staðhæfir hann að for-
ysta flokksins - hann
sjálfur - fari sjálfkrafa
með slíkt umboð.
Að minnsta kosti síðan
árið 1980 hefur þing-
flokkur Alþýðubanda-
lagsins ævinlega ákveðið
með sérstakri samþykkt
hver fari með umboð í
viðræðum milli flokkaum
myndun ríkisstjómar. Ar-
ið 1980 var mynduð ríkis-
stjóm undir forsæti Gunn-
ars Thoroddsen sem Al-
þýðubandalagið tók þátt í.
Þá var Lúðvík Jósepsson
formaður Alþýðubanda-
lagsins, en hafði hinsveg-
ar látið af þingsetu, og var
kominn að lokum stjóm-
málaferils síns. Hann
óskaði þá sjálfur eftir því
að annar en hann færi með
umboð þingflokksins í
viðræðum úm myndun
ríkisstjómar.
í upphafi var þá stungið
upp á því að þáverandi
formaður þingflokks Al-
þýðubandalagsins, Ragn-
ar Amalds, fengi umboðið
í hendur, eins og eðlilegt
hefði mátt teljast við þær
aðstæður. Gegn því var
hinsvegar lagst af nokkr-
um þingmönnum, og að
lokum var samþykkt að
fela Svavari Gestssyni
umboð þingflokksins. Sá
sem studdi það dyggileg-
ast, og tók þarmeð þátt í
að móta fordæmið, var
einmitt Ólafur Ragnar
Grímsson.
Yfirlýsing forsætisráð-
herra, sem bætti því við að
Ólafur væri hvort eð er
bara „bráðabirgðaformað-
ur“, virðist hafa veikt
stöðu Ólafs Ragnars vem-
lega innan Alþýðubanda-
lagsins. Þar benda menn á,
að skammt sé til kosninga,
og ljóst að staða Alþýðu-
bandalagsins til þátttöku í
stjóm yrði verulega
þrengd, ef Ólafur Ragnar
hefði umboð þingflokks-
ins til viðræðna við aðra
flokka um rnyndun stjóm-
ar. Ljóst væri að það úti-
lokaði sjálfkrafa samstarf
við sjálfstæðismenn í
kjölfar yfirlýsingar- Dav-
íðs Oddssonar. Ekki sé
ásættanlegt að persóna
umdeilds formanns sé
með þessum hætti þrösk-
uldur á leið flokksins til
valda. Því komi vel til
greina að fara að því for-
dæmi, sem Ólafur Ragnar
tók sjálfur þátt í að móta
1980, og leyfa honum
ekki að taka þátt í viðræð-
um uin stjómarmyndun.
Ingólfur Arnarson - skjöldurinn sem Jylgt hefur styttuimi
virðist týndur. Hann sést ncðst ú myndinni, en á liann er
lctrað: „Myndastyttu />essa gaf Iðnaðarmaitnafélagið í
Reykjavík íslensku þjóðinni árið 1924".
Alþýðublaðsmynd/Einar Ólason
Ingóltur senn sjötugur:
Skjöldur gefendanna
er hinsvegar týndur
Eftir tæpan hálfan
mánuð eru liðin 70 ár
frá því að styttan af
Ingólii okkar Arnar-
syni var reist á Arnar-
hóli. Það var 24. fcbrú-
ar að stytta Einars
Jónssonar, hins ást-
sæla inyndhöggvara,
var afhjúpuð á hóln-
um, - hana færði Iðn-
aðarmannafélagið í
Rcykjavík Iands-
mönuum að gjöf.
Nú er Ingólfur á sín-
um stalli að nýju eftir
ótrúlega langa fjarvera,
allt ffá í fyrrasumar og
framundir síðustu jól.
Var hans sárt saknað,
meðal annars af erlend-
um ferðamönnum með
kort í höndum, sem leit-
uðu að landnántsmann-
inum, en fundu ekki,
enda engin tilkynning
sett upp til að skýra
brotthvarf hans. Þótti
mörgum það slælega að
verki staðið hjá ferða-
málafólki borgarinnar.
Athygli hefur vakið
að á nýja stallinum er
ekki lengur látúns-
skjöldur sá, sem fylgdi
styttunni. Svo virðist
sem hann hafi lýnst f
öllu raskinu sem varð
við flutninga hans síð-
asta súmar, fyrst í Laug-
ardal og síðan í viðgerð-
ina í Hafnarfirði.
Alþýðublaðið kann-
aði það hjá embætti
garðyrkjustjóra sem og
á Kjarvalsstöðum í gær
hvort vitað væri um
skjöldinn. A hvoruguni
slaðnum höfðu menn
heyrt um þennan skjöld
né heldur um hvarf
hans. Sumir halda að
hann hati farið á ösku-
hauga ásanit múrbrotum
úr gamla stallinum, - en
félagar í Iðnaðarmanna-
félaginu í Reykjavík
segjast halda í vonina
um að hann finnist og
verðí settur á sinn stað á
nýja stallinum, helst fyr-
ir afmælisdaginn.
GATT-ríkin fylgjast vel með íslenskum
innflutningstálmunum:
KANADA ÓSKAÐI
SKÝRINGA VEGNA
KJÚKLINGABRINGNA
„Hvers vegna var inn-
flutningur frosinna kjúk-
lingabringna ekki leyfður
í síðustu viku?“ Spurn-
ingu í þessa veruna þurftu
fulltrúar Islands að svara
við fyrstu úttekt GATT á
viðskiptastefnu Islands,
sem lauk í Genf í Sviss í
gær. Svar: „Innflutningur
á bringunum var ekki
bannaður, en nauðsynlcg
gögn um hcilbrigði skorti
og varan er því óaf-
greidd“. Greinilegt að er-
lendar þjóðir fylgjast vel
með því sem er að gerast í
innflutningsmáium ís-
lands og saniþykktuin Al-
þingis í þeim efnum.
Fjölmargir fulltrúar að-
ildarríkja GATT mættu á
viðskiptastefnuna, sem
fram fer samkvæmt sam-
komulagi ríkjanna. Margir
fulltrúa erlendra ríkja bentu
á góð lífskjör á Islandi, en
einhæft atvinnulíf. Varð-
andi viðskiptastefnu lands-
ins beindist athyglin að
landbúnaðarmálum, tollum
og vörugjöldum. Fram kom
að innflutningur á landbún-
aðarvöru hefði hingað til
verið takmarkaður með
bönnum, en með niðurstöð-
unni úr Urúgvæ- lotunni
yrði breyting þar á.
Fulltrúi Bandaríkjanna á
viðskiptastefnunni í gær
vísaði til hárra tollabindinga
í landbúnaðartilboði fslands
og spurði hvemig íslend-
ingar hygðust gera innflutn-
ing mögulegan með tilliti til
þeirra. Einnig óskaði hann
skýringa á því hvernig
ákvæði frumvarps um
breytingu á búvörulögum,
sem lagt var fram á Alþingi
fyrr í þessum mánuði, sam-
ræmdust þeim skuldbind-
ingum sem ísland hefði ný-
lega gengist undir innan
GATT.
íslenska sendinefndin
fullvissaði fundai'menn um
að Island myndi standa við
þær skuldbindingar, sem
landið hefði tekið á sig með
nýgerðum GATT-samn-
ingi. Undirbúningur í þá
veruna væri hafinn. Fyrir-
huguð breyting á búvöru-
lögum væri til þess eins að
eyða óvissu um þær reglur
sem í gildi væra. fram að
gildistöku GATT-samn-
ingsins.
Erlendur bjór kom til
umræðu á viðskiptastefn-
unni í gær. Spurt var um
sérstakt gjald á erlendan
bjór. íslensku fulltrúarnir
fullvissuðu erlenda gesti um
að fyrirhugað væri að það
gjald félli út í áföngum.
Málefnaráðstefna á
morgun í Keflavík
Á morgun, laugardag, heldur
Samband ungra jafnaðarmanna
málefnaráðstcfnu í Alþýðuhús-
inu við Hafnargötu í Keflavík.
Ráðstefnan hefst klukkan 10 í
fyrramálið og áætlað er að henni
ljúki klukkan 18.
Málefnaundirbúningur hefur
staðið yfir frá því í október 1993 og
tugir funda verið haldnir. Undir-
búningurinn hefur farið fram í tíu
málstofum um: velferðarmál, at-
vinnumál, menningar- og mennta-
mál, landbúnaðarmál, sjávarút-
vegsmál, jafnréttismál, umhverfis-
mál, utanríkismál, ríkisfjármál og
stjómkerfismál.
Að sögn talsmanna SUJ er búist
við íjölmennri og lifandi ráðstefnu
þar sem tekist verður á um grund-
vallaratriði jafnaðarstefnunnar.
Ráðstefnan er opin öllum ungum
jafnaðarmönnum.
AUGLÝSINGAR UM INNRA
STARF ALÞÝÐUFLOKKSINS ER
AÐ FINNA Á BLAÐSÍÐUM 6 OG 7.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÓSKAR
LESENDUM SÍNUM
GÓÐRAR HELGAR!
MgSB Einar
mm M Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28 % 622901 og 622900 |
SPARAÐU
kr. 35.000 á ári!
Ef þú bakar eitt brauð á dag í sjálfvirku
EL-GENNEL brauðvélinni, sparar þú allt að
35.000 krónum á ári og átt að auki alltaf
nýbakað, ilmandi og hollt brauð!
íslenskar leiðbeiningar og uppskriftir fylgja.
Fengum nýja sendingu á sama lága verðinu:
Kr. 23.655 stgr.
Næsta sending hækkar í
Kr. 26.500.
Takmarkað magn.