Alþýðublaðið - 01.03.1994, Blaðsíða 5
t
Þriðjudagur 1. mars 1994_____________________* "
■Tón Baldvin Hannibalsson:
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5
Orðsending til Shimon Peres
vegna blóðbaðsins í Hebron
SÍÐASTLIÐINN sunnu-
dag sendi Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra
Shimon Peres, utanríkisráð-
herra Israels, svohljóðandi
orðsendingu:
„Ég vil leyfa mér að lýsa
megnri andúð og hryggð yfir
því miskunnarlausa blóðbaði
sem átti sér stað fyrir tilstilli
ísraelsks öfgamanns í bænahúsi
í Hebron síðastliðinn föstudag.
Um heim allan hefur fólki hryllt
við þessu óskiljanlega ódæðis-
verki.
Ég fmn mig ennfremur knú-
inn til að taka undir þær áhyggj-
ur, sem margir hafa látið í ljós,
vegna hugsanlegra áhrifa þessa
hörmulega atburðar á friðarvið-
ræðumar í Mið-Austurlöndum.
Grípa verður til allra tiltækra
ráðstafana til að koma í veg fyr-
ir frekari stigmögnun átaka og
tryggja að sarriningaviðræðum
fsraels og Frelsissamtaka Pal-
estínumanna um sjálfsstjórn
Palestínumanna á hemumdu
JÓN BALDVIN: „Ég vil leyfa mér
að lýsa megnrí andúð og hryggð.”
svæðunum verði fram haldið.
í þessu samhengi, vil ég lýsa
stuðningi við þau fyrstu skref
sem felast í aðgerðum þeim
sem ríkisstjóm ísraels hefur
boðað að verði gripið til í því
skyni að afvopna og koma
böndunt á herskáa ísraelska
landnema á hemumdu svæðun-
um. Ég vona að ríkisstjóm yðar
geri allt sem í hennar valdi
stendur, á næstu dögum og vik-
um, til að koma í veg fyrir að
illvirki af því tagi sem átti sér
stað síðastliðinn föstudag end-
urtaki sig.“
Ný sýning á húsi Hæstaréttar
HÚS HÆSTARÉTTAR einsog fyrirhugað er að byggja það. Á þessari
skemmtilegu mynd aflíkani af húsinu má sjá að útum gluggann blasir við
svœðið þar sem áœtlað er að húsið rísi.
Sýning á teikningum, lík-
ani, ljósmyndum og ýmsu
öðru, sem tengist fyrirhug-
aðri nýbyggingu Hæstaréttar
Islands á Lindargötu 2, hefur
verið opnuð á jarðhæð Hverf-
isgötu 4-6. Á sýningunni gef-
ur að líta skýringarmyndir og
upplýsingar um aðdraganda
þess að ákveðið var að byggja
nýtt hús fyrir Hæstarétt, til-
lögur og hugmyndir sem bár-
ust í hönnunarsamkeppnina,
greinargerðir um aðra bygg-
ingarstaði sem til greina
komu og ýmislegt fleira. Þá er
ítarlega gerð grein fyrir því
ferli sem leiddi til þess að
byggingarleyfi hefur nú verið
gefið út og útboð jarðvinnu
farið fram.
Það er byggingamefnd
Hæstaréttarhúss sem gengst
fyrir sýningunni á vegum
dómsmálaráðuneytisins og í
samvinnu við arkitekta hússins,
Studio Granda. Mikil umræða
hefur skapast um húsið og stað-
arval þess og virðist sú umræða
að nokkru leyti byggð á ókunn-
ugleika. Er vonast til að sem
flestir noti þetta tækifæri til að
meta með eigin augum áhrif
hússins á nágrenni sitt og kynn-
ast verkinu og
undirbúningi
þess af eigin
raun, segir í
ífétt byggingar-
nefndar.
Fáar íslensk-
ar nýbyggingar,
eða byggingar-
staðir, hafa
fengið jafn ítar-
lega umfjöllun
og fyrirhuguð
nýbygging
Hæstaréttar Is-
lands. Allir til
þess bærir aðil-
ar hafa fjallað
rækilega um
málið og sam-
þykkt fram-
gang þess á öll-
um stigum. Á
sýningunni eru
Ijósmyndir,
uppdrættir og
upplýsingar
sem sýna
glöggiega að
hið nýja hús Hæstaréttar fellur
vel inn í það umhverfi sem því
er ætlað, segir byggingamefnd
hússins. Nýja húsið undirstrikar
formfegurð'og notagildi þeinn
bygginga sero fyrir em á svæð-
inu án þess að bera þær nokkm
sinni ofuriiði.
Sýningin verður opin virka
daga klukkan 14 til 20 og um
helgar klukkan 12 til 18. Virka
daga klukkan 17 verða flutt er-
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
indi um nýbygginguna. Að-
gangur er ókeypis en sýning-
unni lýkur sunnudaginn 13.
mars.
HvítirEnglar
Fundur Hvítra Engla verður haldinn í Litlu Brekku við
Bankastræti fímmtudaginn 3. mars klukkan 19 til 21.
Mætum hressar!
- Nefndin.
FLOKKSSTJÓRNARFUNDUR
*
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur Islands - boðar til
flokksstjórnarfundar laugardaginn 5. mars 1994. Fundurinn verður
haldinn á Hótel Holiday Inn í Reykjavík og hefst klukkan 10.15.
Dagskrá auglýst síðar.
Að venju er fundurinn opinn öllum flokksmönnum, en ef til
atkvæðagreiðslu kemur hafa einungis kjörnir fulltrúar
í flokksstjórn atkvæðisrétt.
- Formaður.
STUTTFRETTIR
Fyndræn kosningabarátta RÖSKVU...
RÖSKVA vakli athygli á sér íár sem endraneer meö frumiegum áróðursbrijgðum í kosmttg-
um stúdenta við Háskóla íslands. Eitt herbragðið var útgáfa póstkorta ísanta dúr og það sem
hér er meðfylgjandi. Efkortið prentast vel má sjá að á þvt stendur „í ár kjósa allir Röskvu
ncma Sveinn og A ndrí. þvíþeir eru i klandrí".
tr
Farvís-Afangar velur Einar Bollason
ferðafrömuð ársins 1993
Tímaritið FARVÍS-ÁFANGAR hefur valið Einar BoIIason, framkvæmdastjóra /s-
hesta (íslenskra hestaferða hf, ferðafrömuð ársins 1993. Einar er landskunnur
hestamaður sem liefur mtt brautina lyrir hestaleigu og skipulagðar hestaferðir sem
valkost í ferðaþjónustunni. í áratug hefur hann ásamt sumstarfsfólki unnið að upp-
byggingu fyrirtækisins. Fyrsta ferðalagið var farið með þrjá hestaferðamenn árið
1983. en fjöldinn komst í tjögur þúsund á sfðasta ári. Þetta er í fjórða skipti sem tíma-
rittð FARVÍS-ÁFANGAR stendur að vali þessu. Tímaritið er eina sinnar tegundar á
landinu en útgáfa ritsins hófst árið 1988. Ritstjóri erÞórunn Gestsdóttir.
Hagkaup og Bónus vinsælustu fyrirtækin
Hagkaup er vinsælasta fyrirtæki landsins í þriðja sinn í könnun Frjálsrar verslunar.
Hagkaup fékk 117 atkvæði, en 844 voru spurðir í könnuninni. Bónus, sem er að hálfu
eign Hagkaups, fékk einu atkvæði minna, 116 atkvæði, og hreppti annað sætið, kom
úr því fjórða. Sól hf sent var f efsta sæti í fyrra. datt niður í það fjórða.
Kvenfjandsamlegt Verslunarráð?
Engin kona mun sitja í aðalstjóm Vcrslunatráðs íslands á næsta ári, en hinsvegar 19
karlar frá öllum helstu mektaríýrirtækjum landsins. Einar Sveinsson, forstjóri Sjó-
vár-Almennra trygginga hf, var endurkjörinn fonnaður Verslunarráðsins en næst-
ílest atkvæði hlutu Kristinn Björnsson, Skeljungi hf, Hörður Sigurgestsson, Eim-
skip, Sigurður Gísli Pálmason, Hagkaupi hf, og Einar Benediktsson, Olís hf. í
varastjóm sitja tvær konur, þær Jenný Stefanfa Jensdóttir,iP/astos hf, og Margrét
Theódórsdóttir, Tjarnarskóla.
Kristín Blöndal Hjá þeim
Málverkasýning Kristínar Blöndal stendur Jtessa dagana í galleríinu Hjá þeim að
Skólavörðustíg 6B. Kristín sýnir sjö verk unnin í ýmis efni. Opið alla virka daga frá
klukkan 12 til 18 og laugardaga frá 10 til 14. Kristín er á sama tíma með sýningu á
veitingahúsinu Á nœstu grösum & Laugavegi 20.
Hressó gefur út bók
Senn verður lífseigasta og oft á tíðum vinsælasta kaffihús borgárinnar sextugt,
Hressó eða Hressingarskálinn, eins og hann reyndar heitir. I tilefni afmælisins gef-
ur kaffihúsið út veglega afmælisbók undir ritstjóm skáldsins Ara Gísla Bragasonar.
Höfundar á öllum aldri em hvattir til að senda Ijóð, smásögur eða prósa í prófarka-
lesnu formi til ABC, afmœlisrit, hox 1147,121 Reykjavtk. Bókin kemur út í tengsl-
um við þriggja daga bókmenntahátíð sem haldin verður í tilelrii afmælisins dagana
27.-29. apnl næstkomandi.
Pennavinur í íran
Ardeshir Shasvari, ungur háskólanenii í Iran, biður blaðið að útvega sér pennuvin.
Hann segist hafa áhuga á hinum ýmsu málum. Nú er bara að skrifa. Utanáskriftin er:
Mr. Ardeshir Shasvari, Nr. 243 - Block nine, Zibashahr 14879, Teheran, lran.
Ingveldur á Iðavöllum
Síðastliðið föstudagskvöld fmmsýndi Leikdeild Unginennafclags Biskupstuitgna
fimm ára gamlan skopleik með söngvum, Ingveldi á Iðavallum. Þetta er aldamóta-
rómantík í fisléttum dúr og Jéttfríkuö lýsing á Iífinu f sveitinm árið 1906, þegar sæ-
sími e/ að koma til landsins. Leikritið sömdu þær Ingibjiirg Hjartardóttir og Sig-
rún Óskarsdóttir, en Árni Hjartarson samdi sönglögin fyrir leikfélagið Hugleik.
Leikritið verður sýnt á Flúðum í kvöld, þriðjudagskvöld.
Leikendw i lngunni á IðavöUum, - jislittum skopleik úr sunitlenskri(?) sveit upp úr alda■
mótum.