Alþýðublaðið - 01.03.1994, Page 8
ÍS A i T I líl
UM AÐSKILWAD RlKlS OG KIRKJU
upplýsingar og skráning stofnenda
^Björgvin s: 95-22710 Ikl. 17-19) J
'saíTTí
UM ADSKILNAÐ RÍKIS OG KIRKJU
upplýsingar og skráning stofnenda
^Björgvin s: 95-22710 (kl. 17-191J
33. TÖLUBLAÐ - 75. ÁRGANGUR
7TT
Betra að vinna und-
ir stjórn konu
Á sama tíma og Bandaríkjamenn telja að
betra sé að hafa karlmann sem yfirmann,
- segir Gallup á Islandi allt aðra sögu
eftir könnun sína. Fleiri íslendingar vildu
nefnilega konu sem yfirmann en karl.
Tæplega 20% aðspurðra vildu konu sem
yfirmann, en aðeins 14% karlmann.
Flestum, eða rúmlega 66% fannst það
ekki skipta máli hvors kyns yfinnaðurinn
væri, segir í Stjómun, tímariti Stjórnun-
arfélags íslands. I Bandaríkjunum vildu
39% karl sem stjómanda, en 22% konu.
---------------------------►
KONUR stjóma á Borgarspítala, Kristín
Gunnarsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri,
Margrét Björnsdóttir, hjúkrunarfram-
kvœmdastjóri og Sigríður Snœbjömsdóttir,
hjúkrunarforstjðri.
Kirkjuvika í Bústaðakirkju
Um helgina hófst Kirkjuvika í Bústaðakirkju og stendur hún út vikuna. Auk hefð-
bundins kirkjustarfs verður sitt hvað við að vera í kirkjunni á næstu dögum, tónleik-
ar, erindi, hjónakvöld, unglingakvöld og fleira. í gærkvöldi var mættur til viðræðna
við unga fólkið sjálfur Evrópumeistarinn í þolfimi, Magnús Scheving, sem ræddi
um Heiibrigða sál í hraustum líkama. f kvöld ræðir séra Sigurbjörn Einarsson
biskup um Bœnina. Annað kvöld eru Kirkjutónleikar klukkan 20.30, Karlakór
Reykjavíkur ásamt tónlistarfólki úr sókninni. Einsöngvari er Elín Huld Árnadótt-
ir, organisti Guðni Guðmundsson, óbóleikari Guðrún Másdóttir og víóluleikari
Vigdís Másdóttir. Á fimmtudagskvöld fjallar séra Birgir Ásgeirsson um Samskipti
karls og konu á heimilum klukkan 20.30 og á föstudag verður AA-fundur í kirkjunni.
Lýkur Kirkjuvikunni á sunnudag á Æskulýðsdaginn. Hemmi Gunn mætir þá í
bamamessu og spjallar við bömin.
Minnispeningar -
Forsetamynt
f dag hefst sala á Forsetamyntinni
sem svo er kölluð, minnispeningum,
sem Seðlabanki Islands gefur út í til-
efni af 50 ára afmæh lýðveldisins. Á
peningunum, sem em þrír, era mynd-
ir af fyrrverandi forsetum íslands á
annarri hlið, en á hinni hliðinni er
skjaldarmerki Islands. Upplag er tak-
markað við 9 þúsund af hverjum MINNISPENINGARNIRemívönduðumöskj-
peningi, þar af em allt að 3 þúsund í um. Áþeim em myndirafSyeini Björnssyni, As-
sémnninni gljásláttu með mattri geiri Asgeirssyni og Kristjáni Eldjám.
mynd og allt að 6 þúsund í venjulegri
sláttu. Verðið er 7.800 krónur fyrir gljáslegnu peningana, en 5.200 fyrir hina venju-
legu. Einnig er hægt að kaupa staka peninga á 2.900 og 1.900 krónur. Ágóði rennur
í Þjóðhátíðarsjóð.
Hugleiðsludagar - ókeypis námskeið
Boðið er upp á ókeypis námskeið í hugleiðslu á Hugleiðsludögum, dagana 2. til 6.
mars. Hugleiðsla á að vera leið til að efla einstaklinginn sem og að stuðla að sjálfs-
þroska, auk þess sem hún virðist geta komið að gagni í meðferð sjúkdóma. Frekari
upplýsingar í símum 39282 og 626634.
Leikhúsin í góðum málum
Leikhúsin í Reykjavík og á Akureyri þurfa ekki að kvarta yfir aðsókn. ÖIl hafa þau
valið þann kostinn að velja til sýninga verk sem almenningur vill skoða, ef til vill
nokkuð á kostnað „listræns metnaðar" sem svo er kallaður. Á Akureyri er Barpar
sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar við miklar vinsældir í Þorpinu, og Góðverkin kalla
hafa fengið fína aðsókn, en verða senn að víkja fyrir stórsýningunni Óperudraugn-
um. Ijeikfélag Reykjavíkur sýnir Evu Lunu stöðugt fyrir fullu húsi, og Elín Helena
gerði heldur en ekki vel á litla sviðinu. Þjóðleikhúsið gerir það Iika gott, ekki síst
með Gauragangi, þar er uppselt út þennan mánuð.
TÍMARIT STJÓRNUNARFÉLAGS ÍSLANDS
GAURAGANGUR íÞjóðleikhúsinu. Uppselt útþennan mánuð!
1993 - Mesta rækjuveiði frá upphafi:
s
U tflutnings ver ðmæti
rækj Uafurða nam 9,6
milljörðum á síðasta ári
Verðmæti rækjuafurða hefur aukist um 25 % frá árinu 1992.
Rækjuafurðir að niðursoðinni rækju meðtalinni eru nú
um það bil 12,4% af heildarverðmæti sjávarafurða
VERÐMÆTI útflutningsfram-
leiðslu rækjuafurða á síðasta ári nam
9,6 milljörðum króna fyrir liðlega
23.700 tonn. Verðmæti rækjuafurða
hefur aukist um 25% frá árinu 1992.
Rækjuafurðir að niðursoðinni rækju
meðtalinni eru nú um það bil 12,4% af
heildarverðmæti sjávarafurða og hef-
ur það hlutfall líklega aldrei verið
hærra. Samkvæmt bráðabirgatölum
Fiskifélags íslands var rækjuafli á síð-
asta ári 51.526 tonn og er þetta mesti
rækjuafli íslandssögunnar.
Afli úthafsrækju ífá upphafi þessa kvóta-
árs til 16. febrúar síðast hðinn var 16.100
tonn samkvæmt upplýsingum Fiskistofu.
Aflaheimildir úthafsrækju ársins eru um 49
þúsund tonn svo ónýttar heimildir ársins
eru um 32.900 tonn.
Þessu til viðbótar má ætla að um það bil
þrjú þúsund tonna veiði verði utan kvóta
þannig að heildarveiðiheimildir gætu num-
ið nálega 36 þúsund tonnum.
Viðunandi
kvótastaða
Ætla má að afli úthafs-
rækju á tfmabilinu frá miðj-
um febrúar út kvótaárið á
síðasta ári hafí numið um það
bil 30 þúsund tonnum. Því
má ætla að kvótastaða það
sem eftir lifir kvótaársins sé
vel viðunandi, segir í Frétta-
bréfi Félags rækju- og hörpu-
diskframleiðenda.
I Fréttabréfinu segir að
verðþróun skelflettrar rækju
undanfarin misseri hafi verið
skelfileg. Talið er að ein af
ástæðum verðlækkunarinnar
sé vaxandi eldi rækju einkum
í Asíu og Suður-Ameríku.
Því sé áríðandi að skapa
kaldsjávarrækju þá ímynd að
neytandinn sé reiðubúinn til
þess að greiða hærra verð fyrir
isrækju. I undirbúningi er
RÆKJA. Rœkjuafurðir að niðursoðinni
rœkju meðtalinni eru nú um það bil 12,4%
af heildarverðmœti sjávurafurða.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
markaðsátak í þessa veru.
hana en eld- Framkvæmdastjóri Félags rækju- og
samnorrænt hörpudiskframleiðenda er Pétur Bjamason.
Debetkortin,- þrælörugg en óvíða tekin.
Falsaðar ávísanir valda miklum skaða:
60 þúsund í FÖLSUÐUM
TÉKKUM HJÁ KJÖTIOG FISKI
„Viðskiptin með debetkortin [eru] stöðugt að aukast. Peningarnir
yfirfærast af reikningi viðskiptamanns yfir á okkar reikning strax.
Þetta er auðvitað þrælöruggt, eitthvað annað en viðskipti
með ávísanir,“ segir Björn Sveinsson kaupmaður
„í SÍÐUSTU viku varð ég fyrir því að
tapa 60 þúsund krónum í viðskiptum,
þegar ég fékk falsaða tékka í einum sjö
afgreiðslum. Þetta er mér tapað fé“,
sagði Björn Sveinsson, kaupmaður í
Kjöt og flski í Mjóddinni. Hann segir að
faísaðir tékkar komi í skorpum eins og
núna hefur gerst.
Bjöm segir að það færist mjög í vöxt að
falsaðir tékkar komi í kassann, en síðasta
vika hafi ef til vill verið óvenju slæm. „Þetta
fólk stendur framan við nefið á afgreiðslu-
fólkinu á kössunum með persónuskiiríki og
tékkhefti, skilríkin stolin og fölsuð, og tékk-
heftið stolið“, sagði Bjöm.
Kjöt og fiskur er þó ein þeirra verslana
sem tekið hefur upp staðgreiðsluviðskipti
með kreditkortum. Björn sagði að það færi
ekki á milli mála að sú tækni muni koma sér
vel, þegar hún verður útbreiddari.
„Mín reynsla er hreint út sagt frábær og
viðskiptin með debetkortin stöðugt að auk-
ast. Peningamir yfirfærast af reikningi við-
skiptamanns yfir á okkar reikning strax.
Þetta er auðvitað þrælömggt, eitthvað ann-
að en viðskipti með ávísanir. Eg tel það al-
gjört kjaftæði að setja lyrir sig einhvem lít-
ilsháttar kostnað af kortunum og tel að þau
eigi mikla framtíð fyrir sér“, sagði Bjöm.
Samkvæmt upplýsingum Visa Islands
bjóða þrjár matvömverslanir í Reykjavík
upp á viðskipti með debetkort, Hagabúðin,
Kjöt óg fiskur og 10-11 búðimar, en auk
þess verslunin Kjarabót á Selfossi. Auk
þess em allar búðir á Eskifirði með móttöku
debetkorta, nema bensínstöðvamar, - og
helmingur verslana í Mosfellsbæ.
Um lOþúsund viðskiptavinirhafafengið
sér debetkort á tveim mánuðum.
Vinningstölur
26. febr. 1994
| VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
d 5 af 5 0 2.198.312
|0| +4af5 2 190.915
|04af5 97 6.790
H 3 af 5 3.091 497
Aðaltölur:
3^(4
8 28 37
BONUSTALA:1
(38;
Heildarupphæð þessa viku:
kr.4.774.999
UPPLÝSINGAR. SÍMSVARI 91- 68 15 11
LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451