Alþýðublaðið - 10.03.1994, Síða 1
RANNVEIG GUÐMUNDSDOTTIR
formaður Sambands iafnaðaririannaflokka
á Norðurlöndum - Ahrif Islands í
Norðurlandasamstarfi aldrei meiri:
SÁMinnsti
Ræður Ferðinni
Frá Magnúsi Árna Magnússyni
á 44. þingi Norðurlandaráðs,
Stokkhólmi í gær:
RANNVEIG GUÐ-
MUNDSDÓTTIR var í dag,
miðvikudag, kjörin formað-
ur Sambands jafnaðar-
mannaflokka á Norður-
löndum og stýrir hún fund-
um jafnaðarmanna á 44.
þingi Norðurlandaráðs hér í
Stokkhólmi. Eru það nokk-
ur tíðindi að tveir íslending-
ar hafa nú valist til forystu í
hópum skoðanasystkina
sinna á Norðurlöndum.
Halldór Asgrímsson gegnir
nú embætti formanns Sam-
bands miðflokka á Norður-
löndum.
Rannveig Guðmundsdóttir
verður einnig að öllum líkind-
um áfram fonnaður umhverf-
ismálanefndar Norðurlanda-
ráðs, og auk þess eiga íslend-
ingar þrjá fulltrúa í forsætis-
nefnd Norðurlandaráðs.
Ahrif Islendinga í Norður-
landaráði, sem margir óttuð-
ust að liðaðist í sundur vegna
Evrópusamruna hinna Norð-
urlandanna, hafa trúlega
aldrei verið meiri. Sætir það
nokkrum tíðindum í-því uin-
róti sem orðið hefur á síðustu
dögunt. Það er mál manna hér
í Stokkhólmi að sú breyting
sem nú verði á Norðurlanda-
ráði sé helst sú að það verði
pólitískara en nokkru sinni.
„A komandi árum mun
stjórnin verða í höndum hins
sinæsta meðal þjóðanna
fimm. Það sýnir Ijóslega lýð-
ræðið í samfélögum okkar,
þar sem sá smæsti er jafn
gagnvart hinum stærsta - lýð-
ræði sem er mikilvægur þáttur
í arfleifð okkar. Ég tel að sú
arfleifð sé byggð á því fjöl-
marga sem skapar rætur okk-
RANNVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR: ,Jl komandi ár-
um mun stjómin verða í höndum hins smœsta meðal
þjóðannafimm. Það sýnir tjóslega lýðrœðið í samfélög-
um okkar, þar sem sá smcesá er jafit gagnvart hinum
stœrsta - lýðrœði sem er tnikUvœgur þáttur í arfleifð
okkar... Mikilvœgir þœttir hennar eru umburðarlyndi,
skilningur og virðing“‘ Alþýðublaðsmynd /Einar Ólason
NORÐURLANDASAMSTARFIÐ. Norðurlandaráð og
staða Norðuriandanna í Evrópusamstarfinu séð með
augum skopmyndateiknara. Mynd þessi prýddi forsíðu
eins þingplaggsins.
ar, og nokkrir mikilvægir
þættir hennar eru umburðar-
lyndi, skilningur og virðing“,
sagði Rannveig Guðmunds-
dóttir, þegar hún ávarpaði
þing Norðurlandaráðs í al-
menhum umræðum þingsins í
gær.
Rannveig sagði að hún væri
sammála Davíö Oddssyni um
að þrátt fyrir samninga Norð-
urlandanna um Evrópska
efnahagssvæðið og Evrópu-
sambandsaðild muni reyndin
verða sú að Norðurlandasam-
starf styrkist.
I ræðu sinni sagðist Rann-
veig vonast til að árangur
næðist meðal þjóðanna í bar-
áttunni gegn fjandskap gegn
útlendingum og eiturlyfja-
vandamálinu, mál sem væru
farin að varpa skugga á sam-
félög Norðurlanda.
Baráttan gegn
atvinnuleysinu
Rannveig vék í ræðu sinni
að atvinnuleysinu á Norður-
löndum og lagði áherslu á að
takmark allra landanna, nteð-
al annars með evrópskri efna-
hagssamvinnu, væri að auka
atvinnu í löndunum.
„Einnig á Islandi upplifum
við meira atvinnuleysi en
nokkru sinni fyrr, og við ótt-
umst röskun á þjóðfélags-
byggingunni, verði ekki
breytingar á“, sagði Rannveig
Guðmundsdóttir.
Hér í Stokkhólmi hafa ráð-
herrar Norðurlandanna deilt
hart unt THORP-endurvinnsl-
una og aðgerðir í þeim mál-
unt. Svíar hamla gegn beinum
aðgerðum í málinu. Sagt er að
þeir séu raunar með buxumar
á hælunum og hina verstu
samvisku vegna kjamorku-
vera sinna.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
AUGLÝSINGAR UVIFLOKKSSTARF ERU Á BLADSIÐU 6!
Þú hefur aldrei verið nær því
að hljóta 54 milljóna króna vinning.