Alþýðublaðið - 10.03.1994, Qupperneq 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
Fimmtudagur 10. mars 1994
TÍÐIMDI
f iánas jóður Vestur-Norðurlanda:
Flest útlán til Islands
FERÐAMENN. Lánasjóður Vestur-Norðurlanda hefur gert þónokkuð af því að lána til þróunar- og nýsköpun-
arverkefna íferðamannaiðnaðinum sem er vaxandi atvinnugrein í löndunum.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
LÁNASJÓÐUR Vestur-
Norðurlanda, sem eru Island,
Grænland og Færeyjar, var
komið á laggirnar af Norður-
landaráði. I skýrslu Sighvats
Björgvinssonar samstarfsráð-
herra Norðurlanda um störf
norrænu ráðherranefndarinn-
ar 1993-1994 er fjallað um
lánasjóðinn. Þar kcmur fram
að langllest útlán hafa verið
veitt til íslands en fæst til Fær-
eyja.
Mat starfsmanna sjóðsins á
lánshæfni umsóknarverkefna er
þrískipt. Öll þrjú matsatriði verða
að vera jákvæð með tilliti til
hæfni verkefnanna til fjármögn-
unar úr sjóðnunt.
I fyrsta lagi verður verkefnið
að vera gott þróunarverkefni í
skilningi samþykkta sjóðsins og
stjómar hans. Er þá sérstaklega
átt við þróun í útflutningi, spam-
að á innflutningi, hagræðingu á
þjónustu eða nýsköpun atvinnu-
vega. Þetta matsatriði byggist
mikið á reynslu og oft er leitað til
opinberra stofnana eða ráðuneyta
ef vafi leikur á. ,
í öðm lagi fer fram greining á
rekstrarefnahag og markaðs-
möguleikum verkefnisins hjá
sjóðnum í nánu samstarfi við um-
sækjendur. Þessi greining er oft-
ast nær nokkuð tímafrek enda fer
hún ofan í kjölinn á forsendum og
áætlunum allt að tíu ár fram í tím-
ann. Henni lýkur með áætlun fyr-
ir rekstur og jöfnuð sem umsækj-
andi og sjóðurinn samþykkja.
Þótt ótrúlegt kunni að virðast
koma oft veikleikar fram við
slíka greiningu, jafnvel hjá
reyndum fyrirtækjum. Litið er á
Ijármögnunina í heild ef fleiri
lánastofnanir em inni í dæminu.
I þriðja lagi verður að vera
nægileg trygging fyrir endur-
greiðslu láns ef illa skyldi fara og
verkefnið verða gjaldþrota. Fjall-
að er nánar um veð og áhættu hér
að neðan.
Áhættumat
verkefna og veða
Þegar á öðm starfsári, 1989,
hóf sjóðurinn að beita áhættumati
bæði á verkefnunum og þeim
veðum eða' ábyrgðum sem veittar
vom til tryggingar á endur-
greiðslu lánsfjár.
Áhættumat verkefna er í eðli
sínu huglægt og háð reynslu
starfsmanna sjóðsins eða ráðgjafa
þeirra og beinist að athafnasviði,
stjómendum og aðstæðum verk-
efnanna.
Áhættumat veðanna byggist í
fyrsta lagi á óháðu markaðsmati
reyndra fagmánna utan sjóðsins
(á Islandi er yfirleitt miðað við
sölu innan eins árs) og í öðm lagi
á huglægu reynslumati starfs-
manna sjóðsins á mögulegri
verðrýrnun veðsins ef eigendur
skyldu verða gjaldþrota enda að-
stæður við sölu veðs allt aðrar hjá
gjaldþrota fyrirtæki. Beinist mat
starfsmanna sjóðsins að staðsetn-
ingu, ástandi og hinni sérhæfðu
notkun veðsins.
Matsgerðir þessar koma loks-
ins saman í eina tölu sem lýsa
áhættumati sjóðsins á útlánum til
einstakra verkefna og einnig á út-
lánum í heild. Þær em að vem-
legu leyti háðar mati starfsmanna
og því eðlilegt að gæði og nota-
gildi þeirra aukist vemlega með
tímanum og með aukningu á
fjölda útlána. Reynslan af mats-
aðferöum sjóðsins hefur verið
góð til þessa. Þær þykja ekki
tímafrekar og auðvelda saman-
burð á verkefnum.
Áhættumat útlána er notað til
þess að meta öryggi þeirra á láns-
tímabilinu og vísa þeim lánsmál-
um frá sem af einhverjum ástæð-
um geta ekki uppfyllt skilyrði
sjóðsins til veða. Einnig em þau
notuð til þess að ákveða stærð af-
skriftareiknings útlána á ári
hverju.
Lánskjör sjóðsins
Öll lán frá sjóðnum em lán
með viðmiðun við erlenda gjald-
miðla, og eru þar algengastir
danskar krónur (DKK), þýsk
mörk (DEM) og Bandaríkjadalir
(USD). Viðmiðun við danskar
krónur hefur lengi verið algeng-
ust en viðmiðun við þýsk mörk
hefur orðið æ algengari síðustu
árin.
Vextir miðast við markaðsþró-
un millibankavaxta og stöðug-
leika jreirra á mörkuðum erlendis.
Dæmigerður vaxtamunur hefur
verið um 1,0-1,5% ársvextir til
þessa hjá sjóðnum, en hann er tal-
inn nægilegur við venjuleg
rekstrarskilyrði.
Ekki hefur vöxtum verið beitt
þannig að mismunur sé gerður á
verkefnum samkvæmt einhverju
gæðamati hjá sjóðnum enda er
það ekki talið hlutverk vaxtanna
hjá sjóðnum. Slík mismunun gæti
hæglega bitnað á góðum þróunar-
verkefnum sem síst mega við því.
Lengd lána fer að miklu leyti
eftir þörfinni eins og hún kemur
fram í greiningu sjóðsins á rekstr-
arefnahag umsóknarverkefna.
Einnig er tekið tillit til væntan-
legs aldurs verkefnisins á mark-
aði og kemur þá til dæmis oft í
Ijós að hátækniverkefni eiga sér
stuttan aldur.
Öll lán frá sjóðnum eru undan-
þegin stimpil- og þinglýsingar-
gjöldum samkvæmt Iögum.
Fjölgun á útlánum
Umsóknum hefur ijölgað
verulega 1993 og hafa þrettán lán
verið greidd út til íslenskra verk-
efna og fjögur til grænlenskra
verkefna. Engin lán hafa verið af-
greidd til Færeyja á árinu og fáar
raunhæfar umsóknir eru á leið-
inni, enda efnahagur þar í jámum
og halda athafnamenn eðlilega að
sér höndum þangað til úr rætist.
Engin ný samstarfsverkefni
Tanda á milli í útnorðri hafa séð
dagsins Ijós og má segja að sá
þáttur í tilgangi sjóðsins hafi
valdið vonbrigðum fram að
þessu. Hins vegar má halda því
fram að fenginni reynslu að slík
verkefni séu eðlilega sjaldgæf en
ekki að öllu leyti ólíkleg og má
þar nefna ferðamál sem líklegan
vettvang samstarfsverkefna.
Utlán sjóðsins eiu. að miklu
leyti í skilum, en þó eru vanskil
meiri nú en á fyrri árum, ekki síst
á útlánum til íslenskra fyrirtækja.
Aðeins þrjú vanskilamál eru talin
mjög alvarleg og líkleg til vand-
ræða. Er eitl þeirra íslenskt en hin
tvö færeysk og grænlensk.
Sjóðurinn hefur komist hjá tapi
á útlánum fram til þessa þótt
nokkur verkefni hafi farið illa og
endað með gjaldþroti. Einhvem
tímann kemur þó að því að af-
skriftareikningur útlána verði
notaður, enda mat á öryggi útlána
byggt á líkum eins og greint er frá
að framan.
Hátt á þriðja hundrað umsókna
hafa borist til sjóðsins frá upp-
hafi, en tæplega helmingur þeirra
hefur verið með þeim formlega
hætti og nægilegunt upplýsingum
sem nauðsynlega þarf til umfjöll-
unar og greiningar. Alls hafa
starfsmenn sjóðsins fjallað um og
greint rúmlega hundrað umsókn-
ir. Tæplega sextíu þessara um-
sókna hafa verið lagðar fyrir
stjóm sjóðsins og hefur einni um-
sókn verið hafnað en hinar allar
samþykktar.
Styrkir og
skilyrt lán
Fyrir rúmu ári ákvað stjóm
sjóðsins að veita eingöngu styrki
í undantekningartilfelium í sam-
bandi við útlán, enda hafa aðeins
tveir styrkir verið veittir til þessa
og þeir báðir til íslenskra verk-
efna. Stærð styrkja þótti vera
eðlilega allt að fintm milljónir ís-
lenskra króna.
Þess ber að geta að samkvæmt
samþykktum getur sjóðurinn að-
eins veitt styrki eða lán sem í felst
vemleg áhætta úr uppsöfnuðum
arði. Þessi regla setur að sjálf-
sögðu takmörk fyrir Ijármögnun
úr sjóðnum með svonefndu
áhættufé.
1 stað styrkja var ákveðið að
reyna um tíma aðra útlánategund,
sem nefnist skilyrt lán, til for-
könnunar á sérstökum þróunar-
verkefnum. Þessi skilyrtu lán em
yfirleitt lítil (allt að fimm milljón-
um íslenskra króna) og em veitt í
sambandi við stærri lánamál eins
og styrkimir. Skilyrtu lánin þarf
ekki að endurgreiða ef verkefnið
mistekst þótt vel og skilmerkilega
hafi verið að því staðið. Þrjú slík
lán hafa verið greidd út til ís-
lenskra fyrirtækja á síðustu
tveimur ámm.
Meðferð skilyrtra lána er mjög
vandasöm, en of snemmt er að
meta endanlega hæfni slíkra lána
til verkefna í útnorðri og einnig
fyrir starfshætti sjóðsins.
Rekstur sjóðsins
Rekstur sjóðsins er sjálfstæður
að mestu leyti. Hann leigir skrif-
stofuhúsnæði á hentugum stað
(nú hjá Byggðastofnun í Reykja-
vík) og kaupir sérlfæðingaþjón-
ustu af ýmsu tagi (lögfræðingar,
matsmenn veða, skjalaþýðendur
og svo framvegis) þegar nauðsyn
krefur. Þrátt fyrir smæð sjóðsins
er þetta nokkuð hentugur rekstr-
armáti.
Sjóðurinn hcfur fram að þessu
þurft að Ijárfesta í ríkisskulda-
bréfum (dönskum) til þess að ná
bestu ávöxtun á eignum sínum,
bæði til langs og skamms tíma. I
sambandi við þessa starfsemi
hefur hann fengið og notið ráða
ýmissa erlendra banka,
Öll starfsemi sjóðsins hefur
aukist verulega á sfðustu árum og
eru starfsmenn nú Ijórir en alls
eru stöðugildin þrjú að forstjóran-
um meðtöldum. Tveir starfsmenn
vinna aðeins hálfan daginn í sam-
bandi við bókhald og ritarastörf.
Einn nýr starfsmaður var ráðinn á
árinu og starfar hann aðallega við
greiningu rekstrarefnahags um-
sóknarverkefna.
Tveir stjómarfundir eru haldn-
ir á ári hveiju. Einn í Kaup-
mannahöfn á vetrum og annar til
skiptis í Færeyjum, á Grænlandi
og á íslandi á suntrum. Langflest
lánamál eru afgreidd skriflega í
Ijarskiptum og Ijalla stjómar-
fundir því mikið um stefnu- og
efnahagsmál.
Rekstur sjóðsins og ástand út-
lána heftir fram að þessu verið
þannig að hagnaður hefur verið af
starfseminni á hverju starfsári.
Svo mun einnig verða fyrir árið
1993 þótt endanlegar tölur séu
ekki kunnar, enda sýndi uppgjör
á miðju ári eðlilegan hagnað,
rúmlega 1,4 milljónir danskra
króna eða tæpar 15 milljónir ís-
lenskra króna.
Sjóðurinn er ekki á Ijárlögum
aðildarlanda nema hvað greiðslu
stofnfjár varðar. Greiðslur þessar
vom ákveðnar við stofnun sjóðs-
insárið 1986 og þeim lýkur 1995.
Starfsemi sjóðsins fer að öllu
leyti fram við almenn markaðs-
skilyrði samhliða öðmm lána-
stofnunum og verður sjóðurinn
að standa sjálfur fyrir rekstri sín-
unt og efnahag.
Starfsemi á tímamótum
Segja ntá að starfsemi sjóðsins
sé nú á límamótum. Hún hefur
byrjað hægt eins og við mátti bú-
ast hjá fjárfestingarsjóði á at-
hafnasvæði í kreppu. Utlán hafa
þó aukist vemlega, sérstaklega
1993. Aukningin er að vemlegu
leyti á útlánum til Islands.
Nýting stofnljár - miðað við
þá reglu samþykkta að útistand-
andi lán megi verða alls að upp-
hæð tvöföld stærð stofnfjár - er
að nálgast 50% sem aftur á móti
þýðir að sjóðurinn verður að út-
vega sér hagstæð innlán á næst-
unni til þess að geta haldið áfram
starfseminni. Fram til þessa hefur
sjóðurinn eingöngu aflað sér inn-
lána til þess að ná jöfnuði f teg-
undum gjaldeyris og þar af leið-
andi minni áhættu.
Langflest útlána hafa verið
veitt til íslands en fæst til Færeyja
(aðeins tvö), enda er efnahags-
ástand þar óvenju slæmt eins og
allir vita.
Sjóðurinn hefur frá upphafi
veitt lán til þróunarverkefna í
flestöllum atvinnugreinum og í
mjög breiðum skilningi af ásettu
ráði - en þó í samrænti við sam-
þykktir sjóðsins. Þetta hefur verið
gert til þess að ná fótfestu og
reynslu á athafnasvæðinu.
Nú þegar þessu takmarki hefur
verið náð að verulegu leyti er tími
lil kominn, að mali stjómar-
manna, að ákveða nánar beina
starfsemi sjóðsins betur inn á svið
þróunarverkefna með vemlega
nýsköpunarmöguleika eins og
frekast er unnt án þess að glata
hinni sterku fjárhagsstöðu sem
sjóðurinn hefur nú. Þetta áform
mun að sjálfsögðu takmarkast
eitthvað af samþykktum sjóðsins
eins og þær em nú.
1 stjórn Lánasjóðs Vestur-
Norðurlanda sitja sjö ntenn, einn
frá hveiju aðildarlandi, og hefur
hver þeina vaiamann. Fyrir Is-
lands hönd situr Sturlaugur Þor-
steinsson bæjarstjóri á Höfn í
Homafirði í stjóm sjóðsins og er
hann jafnframt formaður sjómar
næstu tvö árin. Varamaður Stur-
laugs er Guðmundur Ámason
deildarstjóri í forsætisráðuneyt-
inu.
RISAVINNINGUR ef heppnín er með
í kvöld dregur Happdrœtti Háskólans út stærsta vinning sem í boði hefur verið í
happdrætti hér á landi. Möguieiki er á að því að heppinn miðaeigandi hreppi 54 millj-
ónir króna, en því aðcins að hann eigi alla miðárununa. Trúlegast er að vinningurinn
góði skiptist á marga aðila. þó er það ekki víst, Happdrættið scgir að sá scm mest lái
hljóti ekki minna en 30 milljónir. Hér er unt að ræða afmælisútdrátt í tilefni 60 ára af-
mælis Happdrættisins. og fer hann fram í Háskólabíói, sal 2, klukkan 21 í kvöld og
gamla tromlan notuð við dráttinn. Eingöngu er dregið úr seldum miðum. Aðrir vinn-
ingar en sá stóri vcrða dregnir á hefðbundinn hátt á skrifstofu Happdrættisins í Tjarn-
argötu 4 klukkan 18.
Mjatlast upp í KVÓTANN
Loðnusjómenn kcppast við að ná irtn sem mestu af loðnukvótanum. í gær voru eflir
263 þúsund tonn, eftir að tekið halði vcrið á móti nærri 12 þúsund lestum á undan-
fömum sólarhring. Þá höfðu meldað sig skip með 9 þúsund tonn til viðbótar, ckki
slæmt það. En loönan er senn að ganga sjómönnum úr greipum. Þrátt fyrir bjartsýni
suinra, cni aðrir svartsýnir, og segja að mcnn verði að skilja éftir um 200 þúsund tonn
í sjónurn, þcgar veiðunum lýkur.
ÁSGRÍMSSÝNING í Listasafni
Vatnslitamyndir Ásgríms Jónssonar, sem nú eni sýndar í Listasafni íslands hafa
vakið verðskuidaða athygli og aðsókn að sýningunni góð. Framundan er síðasta sýn-
ingarhelgi og vissara að drífa sig á þessa góðu sýningu, sem segja má að veiti mönn-
um visst „forskot á sumarið", svo hlýjar og bjartar sem þær em. í Listasafhi íslands
er ennfremur sýning á Nýjttm aðföngum til safnsins, sem sýna ýmsa þá strauma og
stefnur sem uppi cru í nútímalistum. Þcirri sýningu lýkur einnig um hclgina. Á laug-
ardagiiut opnar í safninu yfirlitssýning á verkum Jóns Gunnars Ániasonar þcss
mikilhæfa inyndlistarmanns.
Myndir ÁSGRÍMS JÓNSSONAR frá Húsafclli þykja einstök listaverk. Hér sjást Stnítttr og
Eiríksjökull, - en því ntiður vantar litina iþcssa rnynd okkar.
FRIÐRIK talar fyrir bílaskattinn
Félagi tslenskra bifreiðaeigenda
finnst nóg um skattlagningu á farar-
skjótum landsmanna. Miðað við for-
sendur fjárlaga hækka skatttekjur rík-
issjóðs af hvcrri bifreið í landinu um
10% á þessu verðbólgulausa ári borið
saman við sfðasta ár. Segja taismenn
félagsins ttð bifreiðaeigendur þurli að
borga hátt í 18 milljarða króna á
þessu ári, bara vegna þess að jicir eiga
bil. Benda þeir á að um 70% af út-
söluverði bensíns séu skattar t' ríkis-
sjóð og njóti bflaeigendur hér á landi f
engu mikilla verðlækkana erlendis.
Þá tekur ríkið að meðaltali í bifreiða-
gjtild um 14 þúsund krónur á hvem
bfl, og bifrciðagjaldið hækkaði á
þessu ári um nímlcga 30% frá árinu
áður. Nú hefur félagið boðað til um-
ræðufundar, sem haldinn verður í
kviild í Holiday Inn klukkan 20.30.
Fjánnálaráðhena, Friðrik Sophus-
son raætir og réttlæúr skattlagningar
jtessar á sinn sannfærandi hátt!
Þúsundir nýrra
félaga í SÁÁ
Þúsundir nýiTa félaga hafa gcngið f SÁÁ - Samtök
áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, undan-
fama mánuði, segir Þórarinn Tyrfingsson formaður
SÁÁ og yfirlæknir á Vogi. Hann býður nýja félaga vel-
komna í blaði samtakanna og bcndir á að samtökin styrk-
ist og eflist til nýmt átaka meö fleiri félögum.
Gæði í LEIKSKÓLASTARFI
Gæði? - nema hvað!
ÞÓRARINN, - nýir félag-
arsópastað SÁA.
í dag hefst ráðstcfna Fóstrufélags íslands og fjallar hún um gæði t lcikskólastarflnu. Ráð-
stefnan heitir Gœði? - ncnut Itvað!. Gestur ráðstefnunnar kernur frá Svíþjóð, Guniila l)a-
hlberg, dósent við Kennaraháskólann íStokkhóbni. Fjallar hún annars vegar unt kjam-
ann í gæðurn lcikskólastarfs, það cr starfið rneð baminu; og hinsvegar um mikilvægi og
tilgang skráningar í lcikskólastarfi. Fóstrur vcrða með fyriricstra um atliuganir á bömum,
samskipú bama og fullorðinna og fleira tengt starfinu, auk ijölmargra fyrirlestra annarra.
Ráðstefnan hefst á HátelSögu klukkan 14 í dag og erölluni þpin.