Alþýðublaðið - 22.03.1994, Page 7
Þriðjudagur 22. mars 1994
TIÐINDI
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
/
Hagnaður VIS nam 115 milljónum
REKSTUR Vátrygginga-
félags íslands hf. gekk vel á
síðasta ári. Hagnaður ársins
nam 114,8 milljónum króna
eftir skatta. Samkvæmt
þeim upplvsingum sem
fram koma í ársskýrslu fé-
lagsins var hagnaður af öllu
tryggingaþáttum nema af
slysa- og sjúkratryggingum
þar sem var liðlega 250
milljón krón tap.
Aðalfundir Vátryggingafé-
lags íslands hf. og Líftrygg-
ingafélags íslands hf. voru
haldnir 18. mars. Hagnaður
VÍS hefur aukist verulega frá
árinu 1992 en þá var hann 73
milljónir. Hagnaður Líftrygg-
ingafélagsins var 15,5 millj-
ónir sem er svipað og árið áð-
ur.
Iðgjöld VÍS í fyrra námu
4.450 króna á móti 4.460
milljónum krón á fyrra ári og
hafa því lækkað um 0,2%.
Tjón ársins námu 3.962 millj-
ónum króna á móti 3.618
milljónum á fyrra ári og hafa
því hækkað um 9,5%. Vaxta-
tekjur og verðbætur námu 788
milljónum króna. Laun og
launatengd gjöld nántu 471
ntilljón króna. Fjöldi starfs-
manna félagsins var 197 að
meðaltali á árinu. Umboðs-
menn voru 45 í árslok og
svæðaskrifstofur 19.
Tryggingasjóður VÍS nam
við árslok 7.730,5 milljónum
króna. Nafnverð hlutafjár fé-
lagsins er nú 441 milljón og
bókfært eigið fé 844 milljónir.
Stjómarformaður VÍS er
Ingi R. Helgason og forstjóri
er Axel Gíslason.
Frá mannréttindasamtökunum
Amnesty International:
Stf.fna Kólumbískra
Stjórnvalda Vefengd
- afhjúpa verður raunveruleg
mannréttindabrot í Kólumbíu:
„I Kólumbíu standa herinn
og þjálfaðar dauðasveitir und-
ir handarjaðri hans að pólit-
ískum morðum og „manns-
hvörfum" í stórum stfl, segir
Amnesty Intemational, og
hver ríkisstjóm á fætur ann-
arra hefur reynt að fela sig
bakvið reykský almanna-
tengsla í stað þess að gera
raunhæfar ráðstafanir til að
fást við vandann.
Amnesty hleypir í dag af
stokkunum alþjóðlegri her-
ferð í Bogota sem hefur að
markmiði að afhjúpa raun-
vemlegar staðreyndir tengdar
pólitískum morðum og
„mannshvörfum“ í Kólumbíu
og þrýsta á næstu stjórn í
landinu að láta til skarar
skríða og taka fyrir mannrétt-
indabrot í framtíðinni.
„A kreiki em margháttaðar
goðsagnir varðandi pólitískt
ofbeldi í Kólumbfu," sagði
Amnesty Intemational, „goð-
sagnir sem stjómvöld hagnýta
sér til að dylja eigin ábyrg á
ástandinu. Ein goðsögnin er
sú, að eiturlyíjasala sé undir-
rót olbeldis, en sannleikurinn
er sá að til hennar verður ein-
ungis rakinn örlítill hluti þess.
Önnur er sú, að ofbeldisseg-
girnir séu öfgamenn til hægri
og vinstri sem eigi í látlausri
innbyrðis baráttu. Blákaldur
vemleikinn er hins vegar sá,
að yfirgnæfandi meirihluti
pólitískra morða er framinn af
stjómarhemum og þjálfuðum
dauðasveitum á vegum hans.
Kannski er mesta goðsögnin
sú, að stjómvöld geri allt sem
í þeirra valdi stendur til að
binda enda á manndrápin.
Sannleikurinn er sá, að hver
ríkisstjómin á fætur annarri
hefur falið sig bakvið snotur-
lega hannaða opinbera ímynd
á sama tíma og skrifstofu-
báknið, sem ætlað er að
tryggja mannréttindi, gerir lít-
ið sem ekkert til að vemda
einn eða neinn.“
Meðan málum er þannig
háttað halda manndrápin
áfram - 20.000 manns hafa
látið lífið fyrir pólitískar sakir
síðan 1986. Þegar verjendur
mannréttinda reyna að grípa
til aðgerða, verða þeir sjálfir
fómarlömb ofbeldisins.
Fólk sem vinnur að því að
veija mannréttindi verður fyr-
ir stöðugri áreitni og hótun-
um, og sívaxandi íjöldi þess
hefur l'allið í valinn eða „horf-
ið“. Á árinu 1992 einu vom
þrír starfsmenn CREDHOS,
sem em óháð mannréttinda-
samtök, skotnir til bana, og
aðrir urðu fyrir hótunum.
Lögmenn hafa líka verið
drepnir eða þeim hótað lífláti.
Þegar dr. Rafael Mendevil tók
að sér mál tuttugu Paez-ind-
jána, sem vom strádrepnir af
lögreglu og dauðasveitum
hersins í desember 1991, var
hann þriðji lögfræðingurinn
sem gekk í málið. Tveir fyrri
lögmenn höfðu verið skotnir
til bana. Honum var líka ógn-
að og sá ekki annan kost
vænni en flýja land. „Við
reynunt að halda áfram,“
sagði hann, „með því að hafa
sífellt í huga alla þá sem þeg-
ar hafa fallið í valinn og fóm-
að lffinu fyrir betri framtfð.
Það er skuldbinding sem ekki
er hægt að hörfa ífá. Við
verðum að halda fram á við.“
Samkvæmt Amnesty Inter-
national er ein helsta orsökin
fyrir áframhaldandi ofbeldi sú
háskalega kennd refsileysis
sem gagnsýrir öryggissveitir
ríkisins. Sú kennd hefúr færst
í aukana vegna þess að hver
ríkisstjómin á fætur annarri
hefur látið undir höfuð leggj-
ast að fá heraflann til að
beygja sig undir landslög.
Þrátt fyrir yfirþyrmandi sann-
anir fyrir ábyrgð hers og lög-
reglu á víðtækum mannrétt-
indabrotum hafa þeir sem
ábyrgðina bera sjaldan verið
dregnir fyrir dóm.
I stað þess fara ofbeldisseg-
gimir frjálsir allra sinna ferða
- frjálsir til að drepa á nýjan
leik. í október 1992 áttu sér
stað ljöldamorð í E1 Bosque,
þorpi í Cauca-héraði í sunn-
anverðri Kólumbíu. Um það
bil tuttugu og fimm menn,
klæddir her- eða lögreglubún-
ingum, komu til þorpsins árla
morguns - um hádegisbil
höfðu þrettán manns verið
dregnir frá heimilum sínum,
pyntaðir og drepnir. Fimm
konum, þeirra á meðan
nunnu, hafði verið nauðgað
og þær síðan drepnar. Tvö
komaböm og nokkur eldri
börn urðu munaðarleysingjar.
Enginn hefur verið ákærð-
ur fyrir beina aðild að fjölda-
morðunum, en undirofursti í
hernum var leystur frá störf-
um eftir að upp komst um hlut
hans í ódæðinu. Hann var
þegar alræmdur fyrir þátt sinn
í öðmm ljöldamorðum árið
1988, þegar tuttugu og einn
verkamaður á bananaekm var
drepinn af grímuklæddum
mönnum. Borgaralegur dóm-
ari fyrirskipaði handtöku liðs-
foringjans vegna þess að hann
hafði stjómað morðunum -
en herinn svaraði með því að
hækka hann í tign, fékk hon-
um í öndverðu í hendur yftr-
stjóm blaðaútgáfu og al-
mannatengsla hersins. Hefði
hann verið dreginn fyrir rétt,
má vera að fjöldamorðin í E1
Bosque hefðu aldrei átt sér
stað.
Refsileysið, sem öryggis-
sveitir landsins njóta þegar
þær ffemja pólitísk morð, hef-
ur smitað út frá sér í þjóðfé-
laginu. Nú útiýma dauða-
sveitir í borgum hundmðum
borgara sem þær telja „óæski-
lega“, þeirra á meðal heimilis-
lausum bömum, hommum og
eiturlyljasjúklingum.
Pólitískt ofbeldi er ekki
bundið við herinn og dauða-
sveitir hans. Allir helstu
skæruliðahópar hafa gert sig
seka um meðvituð geðþótta-
manndráp, mannrán og gísla-
tökur. í maí 1993 vartil dæm-
is 63 ára gamall spænskur
sóknarprestur, Javier Cimj-
ano Arjona, myrtur. I fréttatil-
kynningu til útvarpsstöðvar
kunngerði Frelsisher alþýð-
unnar (EPL) að hann hefði
tekið prestinn af lífi vegna
þess að hann hefði „átt sam-
starf við dauðasveitirnar".
Með hliðsjón af ógnvæn-
legu umfangi pólitískra
manndrápa í Kólumbíu og
með því væntanlegar forseta-
kosningar gefa kost á róttækri
stefnubreytingu, telur Am-
nesty Intemational að tíma-
bært sé að gera al varlegar ráð-
stafanir til að binda enda á
ódæðin. Samtökin hafa samið
verkefnaskrá fyrir bæði
stjómvöld og skæmliðahópa
sem miða að því að taka fyrir
blóðúthellingamar, og er þar
meðal annars skorað á stjóm-
völd að leysa upp dauðasveit-
ir hersins og koma á fót
óháðri rannsóknamefnd til að
tryggja, að þeir sem staðið
hafa að pólitískum manndráp-
um verði látnir sæta ábyrgð.
Boðskapur Amnesty Inter-
national er meðal annars
þessi: „Stjómvöld í Kólumbíu
segjast vera að fást við mann-
réttindabrot. Við segjum að
það geri þau ekki - og þangað
til við sjáum þá menn dregna
fyrir rétt, sem hagnýta sér
vald ríkisins til að drepa með
köldu blóði, er lítil von til að
ofbeldinu linni. Meðan það er
látið viðgangast halda stjóm-
völd uppteknum hætti og
mgla saman almannatengsl-
um og raunhæfum aðgerðum.
Boðskapur okkar er einfaldur;
það er hægt að gera meira og
verður að gera meira. Það
sem nú þarf er pólitískur vilji
til að hefjast handa.“„
- Amnesty IntemationaL
Alþýðuflokkurinn í Hafnarfírði
FULLTRÚARÁÐ FUNDAR
UM FRAMBOÐSLISTANN
Fundur verður í fulltrúaráði Al-
þýðuflokksfélaganna í Hafiiarfirði
fímmtudaginn 24. mars í Alþýðu-
húsinu við Strandgötu klukkan 21.
Fundarefni:
Afgreiðsla framboðslista fyrir bæj-
arstjórnarkosningarnar í vor.
- Stjórn Fulltrúaráðsins.
PALLBORÐIÐ: Stefán Gunnarsson
Brettum
Upp Ermari
Nú hækkar sól á lofti, og -
hér við Skagafjörð líður
senn að því að Jón Drang-
eyjaijarl fari að undirbúa
árlega eggjatöku í eynni
frægu, þar sem Grettir leit-
aði forðum skjóls. Það þarf
að treysta vaðinn, og kanna
hvort búnaðurinn sé ekki í
fullkomnu lagi. Traustir
sigmenn vita, að einungis
með því að hefja undirbún-
ing t' tíma er líklegt að
eggjatakan skili tilætluðum
árangri.
Það vill svo til, að eggja-
takan ber upp á svipuðum
tíma og kosningar til sveit-
arstjórna, svolítið fyrr að
vísu, og þá þurfa aljtýðu-
flokksmenn lika að vera
búnir að undirbúa sig vel.
Kosningar em nefnilega
eins og bjargsig; jiær em
áhættusamar og afrakstur-
inn engan veginn tryggur
nenta vel sé til þcirra vand-
að.
Tímanlegur
undirbúningur
Alþýðuflokkurinn hefur
áu undir högg að sækja í
erfiðu stjómarsamstarfi, en
staðreyndin er samt sú, að
hann hefur náð ótmlega
miklu fram, jtess þurfa
flokksmenn að sameinast
um að koma dyggilega til
skila, - allir sem einn. Og
jieir þurfa að vera eins og
Jón Eyjajarl að því leyti, að
byrja undirbúninginn
snemma.
Það er að vísu svo, að Al-
þýðuflokkurinn er að
mörgu leyti betur búinn
undir sveitarstjómarkosn-
ingamar í maí en oft áður.
Fjárhagsstaða flokksins er
traustari en áður, og flokks-
skrifstofan miklu betur
skipulögð en í mörg ár. Þeir
Sigurðar tveir, sem sjá um
undirbúning kosningabar-
áttunnar, Amórsson og
Björgvinsson, hafa liðsinnt
flokksfélögunum út um
landið með góðurn árangri
við undirbúning kosninga-
baráttunnar, sem vafalaust
á eftir að skila sér vel.
Alþýðublaðið stendur
líka betur að vigi en við st'ð-
ustu kosningar, og getur, ef
rétt er á málum haldið, orð-
ið ómetanlegt t' stuðningi
við félög flokksins.
Það er hins vegar ekki
nóg að hafa fjármagn og vel
skipulagða skrilstofu.
Kosningabarátta skilar
aldrei árangri, nema jrað sé
hægt að virkja fótgöngulið-
ana til að beijast á öllum
vígstöðvum. Þeirra hlut-
verk er að konia því til
skila, sem flokkurinn hefur
vel gert í landsstjóminni, og
nota vinnu okkar manna í
ríkisstjóminni sem stökk-
pali til árangurs í kosning-
unum ti) sveitarstjóma í
vor. Og það cr okkar hlut-
verk, hinna almennu
flokksmanna. Stríðin vinn-
ast aldrei, nenta herimir séu
reiðubúnir til orrnstu.
Við þurfum að halda
fram málstað Alþýðu-
flokksins hvar sem er og
hvenær sem er, og aldrei að
hika við að tíunda þá ávínn-
inga sem fyrir okkar tilstilli
hafa náðst Fjölmargt af þvi'
sem Alþýðuflokkurinn hef-
ur átt þátt í innan núverandi
stjómarsamstarfs getur
hægiega nýst okkur inn I
baránuna í vor.
STEFÁN
GUNNARSSON:
„Nú hækkar sól á
lofti, og hér við
Skagafjörð líður
senn að því að
Jón Drangeyjar-
jarl fari að
undirbúa árlega
eggjatöku í eynni
frægu, þar sem
Grettir leitaði
forðum skjóls.
Það þarf að
treysta vaðinn,
og kanna hvort
búnaðurinn sé
ekki í fullkomnu
lagi. Traustir
sigmenn vita, að
einungis með því
að hefja
undirbúning í
tíma er líklegt að
eggjatakan skili
tilætluðum
árangri.“
Árangur
Alþýðuflokksins
- Vaxtaiækkun, sem rík-
isstjómin knúði frant, er
ómetanleg fyrir íslenskt at-
vinnulíf. Það er jafnvel útlit
fyrir, að vextir lækki enn
meira. Fmmkvöðull að
henni var Sighvatur
Björgvinsson, ráðherra Al-
þýðuflokksins.
- Veiðamar í Smugunni
em nú taldar hafa bjargað
atkomu fjölmargra útgerð-
arfyrirtækja, ekki síst á
Norðurlandi. Þjóðhags-
stofnun rckur betri aikomu
landsmanna en spáð var á
síðasta ári, einmitt til
þorsksins úr Smugunni. En
eins og menn rnuna ætlaði
sjávarútvegsráðherra að
banna þær í upphafi. Það
var Jón Iialdvin Hanni-
balsson. fomtaður Alþýðu-
flokksins, sem tyrst og
fremst kom f veg fyrir
bannið.
- Rússaþorskur úr Bar-
entshafi hefur haldið uppi
atvinnu á erfiðum ti'mum í
Ijölda byggðarlaga unt allt
land. Landsmenn hafa líka
haft stórauknar tekjur af
hvers konar þjónustu við
jtessi skip. Lagabreytingar
sem gerðu þetta mögulegt
vom að undirlagi Alþýðu-
flokksins, ekki sLst fyrir til-
stilli Össurar Skarphéð-
inssonar og Gunnlaugs
Stefánssonar.
- Skipasmíðaiðnaður í
iandinu hefúr síðasta áratug
hægt og sfgandi komist á
heljarþröm. Nú er búið að
koma á niðurgrciðslum
sem samsvara niðurgreiðsl-
um Norðmanna, og undir-
boðstollar em í bígerð.
Samltliða á að knýja Fisk-
veiðasjóð til að hætta að
lána til skipasmíða erlendis.
Þetta stuðlar að því að spara
gjaldeyri, og halda atvinnu
í landinu. Frumkvöðlar að
þessu vom þingmenn Al-
þýðuflokksins.
- Það tókst að vinda ofan
af innflutningstakmörkun-
unt Frakka á fisk héðan frá
íslandi. Það hefði nú verið
illgerlegt nema vegna þess
þrýslings sem hægt var að
beiia í krafti samningsins
um EES.
- í gegnum evrópska
elnahagssvæðið er búið að
opna nýja og öfluga niark-
aði í Evrópu fyrir unnur og
ferskar fiskafurðir frá ís-
landi. Víða um land ern
vinnslufyrirtæki komin
með nýja og verðmætari
framleiðslu á þessa mark-
aði, sem einungis er hægt
að selja vegna afnáms tolla
sem fylgdu aðildinni að
EES. Það vom jafnaðar-
mcnn scm mddu brautina
fyrir EES, fyrst og frcmst
Jón Baldvin Hannibals-
son.
- Húsaleigubætur fyrir
láglaunafólk í hópi leigj-
enda em komnar í gegnum
ríkisstjómina, og verða
væntanlega samþykktar á
þessu þingi. Þetta er sögu-
legur áfangi fyrir jafnaðar-
menn, sem hafa lengi berist
fyrir húsaleigubi'itum. Það
var Jóhanna Sigurðar-
dóftir, ráðhen-a Alþýðu-
flokksins, sem á heiðurinn
af þeim.
- Niðurgreiðslur á hús-
hitun með rafmagni. hafa
lækkað hitunarkostnað á
köldu svæðunum umtals-
ven. Það vom þingmenn
Alþýðuflokksins sem
beittu sér fyrir því.
Baráttan hafín!
Ég gæti tfnt miklu fleira
tii af verkum okkar manna í
ríkisstjóm, sern hægt er að
nota með góðum árangri í
kosningunum í vor. En
þetta ætti að nægja til að
sýna svart á hvítu. að Al-
þýðuflokkurinn hefúr náð
árangri í ríkisstjóm, sem
við getum notað ílokknum
til framdráttar í kosningun-
um í vor.
Við í Norðurlandi vestra
ætlum að beita okkur fyrir
því, að forysta flokksins
sendi öllum flokksmiinn-
um lista yfir þau mál, sem
hugsanlega væri hægt að
nýta I sveitarstjómarkosn-
ingunum. En þá skiptir
máli, að flokksmenn kynni
sér þær upplýsingar af kost-
gæfni, og notfæri sér öll
tækifæri til að koma þeim á
framfæri.
Kosningar vinnast aidrei
á lórystunni. Þær vinnast á
elju og úthaldi hinna al-
mennu flokksmanna. Og nú
þurfa alþýðuflokksmenn að
brelta upp ermamar, og
ekki seinna en I gær!
Það má enginn láta sitt
eftír liggja!
Höfundur er formöur
kjördæmisréðs
Alþýðufíokksins i Norðurhmdi
vestm, ham er búsettur
iHafsósi.