Alþýðublaðið - 21.04.1994, Síða 9

Alþýðublaðið - 21.04.1994, Síða 9
Fimmtudagur21. apríl 1994 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9 Krabbameinsfélag Reykjavíkur: Yill láta ljúka framkvæmdum við K-byggingu Landspítala Styður frumvarp heilbrigðis- ráðherra til tóbaksvarnarlaga Aðalfundur Krabbameinsfélags Reykjavíkur telur að nýtt frumvarp heilbrigðisráðherra um tóbaksvarnar- lög innihaldi afdráttarlausari reglur en nú eru í lög- um um rétt fólks til reyklauss andrúmslofts og um tak- markanir á sölu tóbaks. Fundurinn telur að þessar reglur og frumvarpið í heild séu mikilvœgt skref til þess að bœgja frá œsku landsins - og þjóðinni allri - hœttulegum sjúkdómavaldi og ávanaefni. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason AÐALFUNDUR Krabbameinsfélags Reykjavíkur hvetur stjórnvöld til að ljúka sem fyrst framkvæmdum við K-byggingu Landspítal- ans svo unnt sé að halda áfram uppbyggingu krabbameinslækninga hér á Iandi eins og fyrirhugað hefur verið. Fundurinn lýsir fullum stuðningi við frumvarp til tóbaksvarn- arlaga sem heilbrigðisráð- herra mun leggja fram á Alþingi innan skamms. I ályktun fundarins er bent á að meðal ákvæða frumvarpsins eru afdráttar- lausari reglur en nú eru í lögum urn rétt fólks til reyk- lauss andrúmslofts og um takmarkanir á sölu tóbaks. Fundurinn telur að þessar reglur og frumvarpið í heild séu mikilvægt skref til þess að bægja frá æsku landsins - og þjóðinni allri - hættuleg- um sjúkdómavaldi og ávanaefni. Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur í sívax- andi mæli veitt ráðgjöf og aðra þjónustu því til undir- búnings að gera vinnustaði reyklausa. Haldnir hafa ver- ið fjölmargir vinnustaða- fundir að undanfömu og sjö af tíu reykbindindisnám- skeiðum félagsins á síðasta starfsári þess voru gagngert haldin fyrireinstök fyrirtæki og stofnanir. Starf Krabbameinsfé- lagsins hefur verið bæði fjölþætt og viðamikið. Um- fangsmest er tóbaksvamar- starfið í grunnskólum lands- ins, sem einkum felst í ár- legum fræðsluheimsóknum til nemenda, ellefu ára og eldri á öllu höfuðborgar- svæðinu og víðar um land. Einnig hefur nokkmm hóp- um nemenda verið veitt að- stoð við að hætta að reykja. Þá veitir félagið árlega í samvinnu við Tóbaksvam- amefnd öllum reyklausum 8.-10. bekkjum gmnnskóla viðurkenningu og verðlaun- ar nokkra þeirra í hverjum aldursflokki. Hafin er útgáfa á félags- bréfi undir nafninu Takmark en svo hél blaðið sem félag- ið gaf út um skeið og var helgað tóbaksvömum í grunnskólum. Hið nýjaTak- mark á að færa félagsmönn- um og fleirum fréttir af starfsemi, félagsins og aðrar upplýsingar er varða mál- efni þess og markmið. Námstefna gegn reykingum í janúar var haldin nám- stefna með starfsfólki frá átta heilsugæslustöðvum og fleirum um aðstoð við fólk sem vill hætta að reykja, bæði einstaklinga og hópa. Fleiri slíkar námstefnur með heilsugæslufólki eru ráð- gerðar. Félagið veitti að venju nokkra ferðastyrki vegna funda og ráðstefna erlendis um krabbamein og krabba- meinsvamir, og styrkti nokkra aðstandendur krabbameinssjúklinga utan af landi til dvalar í Reykja- vík meðan á rannsókn eða meðferð stóð. Félagið rekur Happdrætti Krabbameinsfélagsins og fær frá því stærsta hlutann af rekstrarfé sínu en hefur jafn- framt fengið árlegan styrk frá Reykjavíkurborg. Happ- drættið kostar einnig að vemlegu leyti þá skóla- fræðslu sem önnur krabba- meinsfélög standa lyrir, auk þess sem hluti rekstraraf- gangs rennur til Krabba- meinsfélags íslands. Á fundinum minntist Sigríður K. Lister, for- maður félagsins, látins heiðursfélaga, Gísla Sig- urbjömssonar forstjóra. Gísli var einn af frum- kvöðlum að stofnun fé- lagsins árið 1949 og var kjörinn heiðursfélagi árið 1974. Stjóm félagsins er óbreytt ffá fyrra ári en hana skipa auk formanns- ins, Sigríðar K.Lister, þau Erla Einarsdóttir gjald- keri, Katrín Fjeldsted læknir, María S. Héðins- dóttir skólastjóri, sem jafnframt er formaður fræðslunefndar félagsins, Ólafur Haraldsson aðstoð- arsparisjóðsstjóri, Sveinn Magnússon héraðslæknir og Þórarinn Sveinsson yfirlæknir. Varamenn em Guðjón Vilbergsson læknir, Gyða Baldursdótt- ir hjúkmnarfræðingur og Jóhannes Tómasson blaðamaður. Fram- kvæmdastjóri félagsins er Þorvarður Ömólfsson. Góðkunningi Alþýðublaðsins úr Kópavogi kom í heimsókn á ritstjórnina fyrir stuttu og sýndi okkur hróðugur rilgerð tekið fram að foreldrar hennar eru ekki flokksbundnir í Alþýðuflokknum. Við birtum hér ritgerðina með góðfus> >egu leyfi - nákvæmlega einsog stólkan skrifaði hana - til að sýna í raun hversu vel hið íslenska æskufólk fylgist með stjómmálum. Jóf\ baldvin. VinaMr tó birjaoí &,0leikús 0$ jshbdÁvln. VaT A& ftjjho Vi/ifrx (M'\kvnr'ikfini>,'rS(fírlþM rr\il btfi víw ih bjóipA <é mm Má óyírkpi, rfjíí Vtit tltí oídéM faeoiiý httfo eruLchfri, ecW k&nsj) ó&ýth teLótvhA.rn. vií kþlAtf, áfnun v/iAH ÝdtcK- ttiúl y£q baf'tf' véfc tfckl friéiéb- 1M1 þétfa. c5c)on^k.<T\áL- het'ftm trfer bzttn <úi VV ýlok\li,vT. urn téttcA., Gagnkvæm tillitssemi allra vcgfarenda

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.