Alþýðublaðið - 05.05.1994, Page 1
TiDaga minnihlutans í borgarstjóm:
Stofiiað verði
hlutafélag
umrekstur
hafnarinnar
Fram fari ítarlega könnun á því
hvemig megi efla Reykjavfkurhöfn sem
atvinnusvæði. Komið verði á fríverslun-
arsvæði og umskipunarstarfsemi
BORGARFULLTRÚAR
minnihlutaflokkanna leggja
fram tillögu á fundi borgar-
stjórnar í dag um að ítarleg
könnun fari fram á því
hvernig efla megi Reykja-
víkurhöfn sem umsvifamik-
ið atvinnusvæði, fjölga
skipakomum og stuðla að
aukinni samkeppni í sjó-
flutningum og þar með
lækkun vöruverðs. Metið
verði hvaða fyrirkomulag
er ákjósanlegt tii að koma á
fríverslunarsvæði og efla
umskipunarstarfsemi. Sér-
staklega verði skoðaðir
möguleikar á að stofna
sjálfstætt hlutafélag með
meirihlutaeign Reykjavík-
urborgar sem eigi þá að-
stöðu sem til þarf við höfn-
ina.
Tillagan gerir ráð fyrir að
verði af stofnun hlutafélags
þá eigi það þá aðstöðu sem
þarf til þess að reka góða upp-
og útskipunarþjónustu fyrir
allan fraktflutning um
Reykjavíkurhöfn (stevedore-
fyriitæki). Einnig verði sér-
staklega skoðað að stofna
sambærilegt fyrirtæki sem
ræki þjónustu við Vogabakka
og framtíðarhöfn í Eiðsvík.
Metið verði síðan hvor þess-
ara kosta eða jafnvel sá þriðji
þyki heppilegastur til þess að
ná þeim markmiðum sem til-
greind éru í tillögunni.
I tillögunni er gert ráð fyrir
að auglýsa eftir rekstrarsér-
fræðingi til þess að stjórna
könnuninni. Hann leiti síðan
upplýsinga og kanni viðhorf
meðal annars hjá innlendum
hagsmunaaðilum, svo sem
skipafélögum, inn- og útflutn-
ingsaðilum og verkamannafé-
laginu Dagsbrún.
Skortur á samkeppni
í greinargerð með tillög-
unni segir að í nýbirtri skýrslu
enska ráðgjafafyrirtækisins
Drewry sé því haldið fram að
verð á sjóflutningum til og frá
íslandi sé mun hærra en tíðk-
ast annars staðar í heiminum.
Síðan segir í greinargerðinni:
„Skortur á samkeppni er
talin ein ástæðan fyrir þessu
og því haldið fram að því
valdi meðal annars aðgangs-
hindranir að markaði. I því
sambandi er bent á að eignar-
hald skipafélaga á hafnarað-
stöðu og skort á sjálfstæðri
upp- og útskipunarstarfsemi
eins og algengast er í hafnar-
borgum.
I skýrslunni er jafnframt
vakin athygli á því að við nú-
verandi aðstæður geti þriðju-
landaverslun og hugmyndir
um frísvæði sem byggja á sjó-
flutningum átt erfitt uppdrátt-
ar.
í Reykjavíkurhöfn háttar
nú þannig til í vöruflutningum
að tvö skipafélög leigja land
af höfninni en eiga sjálf að
mestu aðstöðuna sem þarf,
svo sem krana, tæki og hús-
næði (Reykjavíkurhöfn á
undirstöðu fyrir gámakrana
og ekjubúnað á svæði Eim-
skips). Svæði Eimskipafé-
lagsins er 210.000 fermetrar,
en Samskip ráða 70 þúsund
fermetrum. Auk þess hefur
Reykjavíkurhöfn yfirráð yfir
um það bil 60 þúsund fer-
metra svæði við Vogabakka,
sem ekki er fest einstökum
aðila. Þar vantai' tæki,
skemmur og aðra aðstöðu íyr-
ir flutningastarfsemina. I
Eiðsvík við Geldinganes hef-
ur hafnarsvæði verið tryggt í
aðalskipulagi fyrir framtfð-
ina.“
Tímabær breyting
I greinargerð með tillögu
borgarfulltrúa minnihluta-
flokkanna segir síðan:
„Erlendis er hafnaraðstaða
víða leigð til einkanota skipa-
félaga, en þá er um mun meiri
samkeppni að ræða en hér rík-
ir og gjarnan starfandi sam-
hliða upp- og útskipunarfyrir-
tæki (stevedore) sem þjóna þá
skipum margra skipafélaga.
I höfnum til dæmis í Sví-
þjóð, Kaupmannahöfn og Ar-
ósum eru sjálfstæð stevedore-
fyrirtæki sem annast þjónustu
við öll skip sem koma f við-
komandi hafnir. Ymist eru
þau alveg í eigu viðkomandi
hafnarborgar, rekin sem
hlutafélög margra aðila eða
sjálfseignarfélög.
Flutningsmenn tillögunnar
telja tímabært að kanna til
hlítar möguleika og hag-
kvæmni þess að breyta því
fyrirkomulagi sem ríkir nú
við Reykjavíkurhöfn. Mark-
mið hugsanlegra breytinga er
að efla Reykjavíkurhöfn sem
umsvifamikið atvinnusvæði,
fjölga hér skipakomum og
stuðla að lækkun flutnings-
gjalda og þar með vömverð
fyrir íslenska neytendur með
aukinni samkeppni á þessu
sviði.“........
Alþýðublaðinu í dag fylgir
málgagn jafnaðarmanna á Akureyri.
Blaðinu er af þessu tilefni dreift inn
á hvert heimili á Akureyri.
Healey heilsar ,J3amiibalsson“
DENIS HEALEY, jyrrum þingmaður og ráðherra breska Verkamannaflokksins, er staddur á Islandi þessa dag-
ana ífyrirlestraferð. í gœr heilsaði hann upp á íslenskan skoðanabróður sinn, JÓN BALDVIN HANNIBALS-
SON, utanríkisráðherra ogformann Alþýðuflokksins. Denis Healey var varnarmá/aráðherra Bretlands 1964 til
1970 og fjármálaráðherra 1974 til 1979. Healey var ennfremur varaformaður breska Verkamannaflokksins á
árunum 1980 til 1983. Hann hefur skrifað fj'ólda bóka um stjórnmál, einkum öryggismál og málefni jafnaðar-
stefnunnar. Sjálfsœvisaga Healeys kom út árið 1989 og bar heitið The Time of My Life sem verður að teljast
óþýðanlegur titill með tilliti til orðaleiksins (Lífstími minn/Besta skemmtun œvi minnar).
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
Yfirgangur og ruddamennska drukkinna ferðalanga
orðið viðvarandi vandamál í Þórsmörk, Landmanna-
laugum, LaugafeDi og SnæfeDsskála:
Ofurölvi ökumenn þeysa
um á vélsleðum og jeppum
Þórsmörk, Landmanna-
laugar, Laugafell, Snæfells-
skáli og aðrar náttúruperl-
ur Islands eru að breytast
svínastíur og slysagildrur
eftir heimsóknir drukkinna
ökumanna jeppa og vél-
sleða. Stórir hópar manna
og kvenna sækjast í fjalla-
ferðir til þess að neyta
áfengi í hömluleysi og kom-
ast undan almennum lögum
og reglum eins og um ölv-
unarakstur og þeysa ofur-
ölvi um á jeppum og vélsleð-
um. Afleiðingarnar eru
stóraukin tíðni slysa á há-
lcndinu. Fyllerísferðirnar
eru á góðri leið að breyta
helstu náttúruperlum ís-
lands í svínastíur og sukk-
stöðvar sem fæla innlcnda
jafnt sem erlenda ferða-
menn frá og hafa valdið for-
ráðamönnum íslenskra fyr-
irtækja í ferðaiðnaði þung-
um áhyggjum.
Þessar upplýsingar ásamt
kræfum lýsingum á villi-
mennskulegri hegðan drukk-
inna jeppa- og vélsleðamanna
á hálendi Islands er að finna í
grein í nýju tölublaði Mann-
lífs. í greininni er að finna
ófagrar lýsingar af hegðan og
umgangi svonefndra „villi-
manna“. Meðal annars segir
frá dauðadrukknum vélsleða-
manni sem fór allsnakinn úr
heitu baði í Laugum og settist
á Adamsklæðum upp á vél-
sleðann sinn með handklæði á
herðunum í hörkufrosti. Mað-
urinn fannst síðar allsnakinn í
16 stiga frosti þar eð hand-
klæðið hafði fest í loftinntaki
sleðans og var kappinn orðinn
blár og dofinn og lagstur á
fjórar fætur.
Þá segir einnig í Mannlífi
frá alvarlegu ástandi sem
skapaðist í Landmannalaug-
um tvær helgar í janúar á
þessu ári er 60 manns voru á
svæðinu á jeppum og vélsleð-
um og gífurleg ölvun og gá-
leysishegðun setti svip sinn á
samkvæmið. Einn fótbromaði
í stiganum í skálanum og ann-
ar lærbrotnaði á þeysireið á
vélsleða. Var talið mildi að
ekki hlaust banaslys af. Fleiri
álíka sögur er að finna f grein-
inni í Mannlífi af svallveisl-
um og ntanndrápsferðum
dauðadrukkinna manna á
jeppum og vélsleðum. Sveinn
Helgi Sverrisson skálavörður
í Landmannalaugum segir að
þeir sem skipuleggja ferðir
með útlendinga forðast staði
eins og Landmannalaugai',
Þórsmörk og Hveravelli um
helgai' hvort sem er urn sumar
eða vetur vegna ónæðis af út-
úrdrukknum Islendingum.
Umgengnin er í takt við
drykkjulætin. Leiðsögumaður
segir ífá því að aðkoman að
skálanum við Alftavatn á
Landmannaafrétti snemma
vors hafi verið skelfileg.
Breiður af álpappír. tómar
bjórdollur, notuð dömubindi
og matarleifar í samfelldum
flekk á hjaminu í kringum
skálann sem var sem svínastía
að innan eftir jeppahóp. Eng-
inn hafði nennt að grafa kam-
arinn upp en taðhrúgur eftir
gestina var að finna á víð og
dreif um svæðið.
Ein meginástæða þess að
menn sleppa fram af sér beisl-
inu í sæluhúsum og skálum á
hálendinu er sú, að löggjafinn
er fjarri góðu gamni. Erfitt er
að hringja til byggða og biðja
um löggæslu þegar allt er
komið úr böndunum.
Drukknir ökumenn jeppa og
vélsleða þeysa því óheftir í
kappaakstri um víðáttumai',
oftast í mikilli lífshættu.
Gæsla í skálum dragi hins
vegar úr heimsóknum villi-
manna hálendisins sem kjósa
aðra gististaða sem eru án
gæslu. Samkvæmt Mannlífi
er hins vegar lítil gæsla al-
mennt á þessum slóðum og
yfirgangur og mddamennska
dmkkinna ferðalanga er orðið
viðvarandi vandamál í Þórs-
mörk, Landmannalaugum,
Laugafelli, Snæfellsskála og
víðar á hálendinu. Skaftafell
er eini staðurinn að sögn u'ma-
ritsins þar dmkknum óeirðas-
eggjum er markvisst vísað frá
enda skálinn í byggð og
heimatökin hægari.