Alþýðublaðið - 05.05.1994, Qupperneq 7
MENNING
Sínfómuhljómsveit íslands:
Fegurö í fyrirrúmi á
tónkikunum í kviSd
Fimmtudagur 5. maf 1994
Á EFNISSKRÁ tónleika
Sinfóníuhljómsveitarinnar í
kvöld eru aðeins tvö verk,
það er 40. sinfónía Mozarts
og önnur sinfónía Brahms.
Þær eru taldar tvær af feg-
urstu sinfóníum tónbók-
mentanna. Til stóð að þess-
um tónleikum stjórnaði hinn
þekkti rússneski hljómsveit-
arstjóri Evgeny Svetlanov
en hann forfallaðist vegna
veikinda. f hans stað kemur
Valery Polyansky sem einn-
ig er Rússi og í fremstu röð
rússneskra hljómsveitar-
stjóra.
Polyansky stundaði nám í
Tónlistarháskólanum í Moskvu,
meðal annars undir handleiðslu
Rozhdestvensky. Að loknu
námi gerðist hann hljómsveitar-
stjóri við Bolshoi leikhúsið auk
þess að stjóma helstu hljóm-
sveitum Rússlands og kenna við
Tónlistarháskólann í Moskvu.
Hin síðari ár hafa kraftar hans
aðallega tengst „The Russian
State Symphonic Capella“ þar
sem hann er nú aðalstjómandi.
Þar sameina krafta sína 60
manna Kammerkór rússneska
iikisins og 90 manna Sinfóníu-
hljómsveit menningarmálaráðu-
neytis Rússlands, en þennan
hóp stofnaði kennari og fyrir-
rennari Polyanskys í starfi,
Gennady Rozhdestvensky, árið
1991.
Fegurstu
sinfoníurnar
Fáar sinfóníur hafa náð eins
miklum vinsældum og 40. sin-
fónía Mozarts en hann skrifaði
þijár síðustu sinfóníur sínar
sumarið 1788. Talið er að Moz-
art hafi þetta sumar átt í miklum
fjárhagserfiðleikum og hafi
hann hugsað sér að efna til tón-
leika í ábataskyni þar sem þess-
ar þrjár sinfóníur væru fluttar á
einum tónleikum, en þær em
mjög ólíkar að gerð. Sú fertug-
asta er tilfinningarík og allt að
því rómantísk.
Það tók Brahms 15 ár að
semja fyrstu sinfóníu sína en við
þær góðu undirtektir sem sú sin-
VALERY l’OLYANSKY: Hljóm-
sveitarstjóri Sinfómuhljómsveitar ís-
lands í kvöld.
fónía hlaut efldist honum sjálfs-
traust. Það liðu ekki nema 13
mánuðir frá því að sú fyrsta var
fmmflutt þar til önnur sinfónía
hans leit dagsins ljós en hún var
frumflutt í árslok 1877. Sinfón-
ían var samin á fögmm suinar-
leyfisstað við Wörthersee í Ölp-
unum og það lýsingarorð sem
hæftr henni kanski best er „sól-
rík“.
Fyrir aðdáendur klassískrar
tónlistar er efnisskrá þessara
tónleika hreinasta eymakonfekt.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 (a)
Drögum úr hrada <Zo>- -ökum af skynsemi! mIumfhrðar Uráð
Starfsmannafélagið
Sókn
Lokað
Skrifstofa og heilsurækt Sóknar verða
lokaðar frá kl. 12, föstudaginn 6. maí nk.
vegna minningarathafnar um, Aðalheiði
Bjarnfreðsdóttur, fyrrverandi formanns
Sóknar.
Stjórn Starfsmannafélagsins Sóknar.
Þjóðleikhúsið:
Kæra Jelena
snýraftur
ÞJOÐLEIKHUSIÐ hef-
ur ákveðið að taka aftur til
sýningar leikritið Kæru
Jelenu eftir Ljudmilu Raz-
umovskaju. Þessi sýning
sló öll sýningarmet á Litla
sviðinu leikárið 1991 til
1992 en nú verða aðeins
örfáar sýningar.
Kæra Jelena þótti með
bestu leiklistarviðburðum
þess leikárs og var það alls
sýnt 161 sinnum, að leikferð-
um meðtöldum. Leikritið var
fyrst sýnt á Litla sviðinu en
leikárið 1992-93 vaiþaðeinn-
ig tekið til sýningar á Stóra
sviðinu. Þrátt fyrir það kom-
ust færri að en vildu og hefur
því verið ákveðið að sýna
verkið á nýjan leik.
Leikarar í kæm Jelenu
em:Anna Kristín Arngríms-
dóttir, Ingvar E. Sigurðs-
son, Baltasar Kormákur,
Hilmar Jónsson og Hall-
dóra Björnsdóttir. Leikstjóri
er Þórhallur Sigurðsson.
Fyrsta sýningin á Kæm Je-
lenu í þetta skipti er þriðju-
daginn 17. maí og verður sýnt
flest kvöld í þeirri viku. Auk
þess verða fáeinar sýningar í
júní.
ANNA KRISTÍN ARNGRÍMSDÓTTIR og HILMAR JÓNSSON í
hlutverkium sínum í Kæru Jelenu.
Veöurathugunar-
menn á Hveravöllum
Veðurstofa fslands óskar að ráða tvo ein-
staklinga, hjón eða einhleypinga, til veðurat-
hugana á Hveravöllum á Kili.
Starfsmennirnir verða ráðnir til ársdvalar,
sem væntanlega hefst seint í júlímánuði
1994. Umsækjendur þurfa að vera heilsu-
hraustir og reglusamir, og nauðsynlegt er,
að a.m.k. annar þeirra kunni nokkur skil á
meðferð véla. Tekið skal fram, að starfið
krefst góðrar athyglisgáfu, nákvæmni og
samviskusemi. ,Laun eru samkvæmt launa-
kerfi ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
heilsufar, menntun, fyrri störf og meðmæl-
um, ef fyrir hendi eru, skulu hafa borist
Veðurstofunni fyrir 20. maí nk.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á Veður-
stofu íslands, Tækni- og athuganasviði,
Bústaðavegi 9, 150 Reykjavík, sími (91)-
600600.
Borgarnes
^annsóknastofa mjólkuriðnaðarins mun flytj-
ast til Borgarness (í húsnæði Mjólkursamlags
Borgfirðinga) íjúlí-ágúst. Nokkrir starfsmenn
óskast til starfa við stofuna í Borgarnesi:
A. Starfsmaður með þekkingu/menntun á
Örverusviðinu og/eða rannsóknastofumennt-
un. Starfsreynsla nauðsynleg. Starfið felst í
móttöku og meðferð mjólkursýna, gerlarækt-
un, prófunum, framleiðslu gerlaætis o.a. efna,
vörutiltekt, afgreiðslu pantana o.fl.
B. Starfsmaður til hliðstæðra starfa. Reynsla
af störfum á rannsóknastofu æskileg.
C. Aðstoðarmaður við gæslu sjálfvirkra
mælingartækja, töivuskráningu gagna, pökk-
un og frágang sendinga o.fl. Sérmenntunar
ekki krafist.
Hlutastarf kemur til greina í öllum tilfellum.
Ath.: Starfsmaður skv. lið A þarf að geta
hafið störf sem fyrst í Reykjavík, þar sem
starfsemin er nú.
Skriflegar umsóknir með sem fyllstum upp-
lýsingum þurfa að berast framkvæmdastjóra
fyrir 15. maí nk. Athugið að tilgreina hvaða
starf er sótt um.
Rannsóknastofa mjólkuríðnaðarins,
pósthólf5166,
125 Reykjavík.
Útboð
Póstur og sími óskar eftir tilboðum í land-
póstþjónustu frá póst- og símstöðinni á
Sauðárkróki, um Rípurhrepp, Viðvíkurhrepp,
Hólahrepp og Akrahrepp.
Dreifing mun fara fram þrisvar sinnum í viku
frá póst- og símstöðinni á Sauðárkróki.
Afhending útboðsgagna fer fram hjá stöðvar-
stjóra, póst- og símstöðinni á Sauðárkróki,
frá og með 3. maí 1994, gegn 2.000 kr. skila-
tryggingu.
Tilboðum skal skilað á sama stað eigi síðar
en 2. júní 1994 kl. 10.00. Tilboð verða opnuð
sama dag kl. 10.30 á póst- og símstöðinni
á Sauðárkróki, að viðstöddum þeim bjóðend-
um, sem þess óska.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
PÓSTUR OG SÍMI
Póstmálasvið - 150 Reykjavík.
Útboð
Póstur og sími óskar eftir tilboðum í land-
póstþjónustu frá póst- og símstöðinni á
Sauðárkróki, um Staðarhrepp, Seyluhrepp
og Lýtingsstaðahrepp.
Dreifing mun fara fram þrisvar sinnum í viku
frá póst- og símstöðinni á Sauðárkróki.
Afhending útboðsgagna ferfram hjá stöðvar-
stjóra, póst- og símstöðinni á Sauðárkróki,
frá og með 3. maí 1994, gegn 2.000 kr. skila-
tryggingu.
Tilboðum skal skilað á sama stað eigi síðar
en 2. júní 1994 kl. 10.00. Tilboð verða opnuð
sama dag kl. 10.30 á póst- og símstöðinni
á Sauðárkróki, að viðstöddum þeim bjóðend-
um, sem þess óska.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
PÓSTUR OG SÍMI
Póstmálasvið - 150 Reykjavík