Alþýðublaðið - 19.05.1994, Blaðsíða 8
8 (a) ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Kjötmeistari 1994:
Páll Hjálmarsson
yanntítílinn
FAGKEPPNI Meistarafélags kjötiðnaðar-
manna „íslenskir kjötdagar“ var haldin í annað
sinn hér á landi á dögunum. Alls tóku 43 einstak-
lingar frá 17 fyrirtækjum þátt í henni og sendu
130 vörur í keppnina. í keppni til kjötmeistara
eru hæst gefin 300 stig. Páli Hjálmarsson frá
Kjötiðnaðarstöð KEA á Akureyri varð stiga-
hæstur með 282 stig og hlýtur því titilinn Kjöt-
meistari 1994.
Páll fékk gullverðlaun fyrir vínarpylsur, Peder-
sen-salami, úrbeinað hangilæri og reyktan lax og
bronsverðlaun fyrir sviðasultu. í dómnefnd störfuðu
fimm kjötiðnaðarmenn og einn matvælafræðingur
og kom yfírdómari keppninnar frá Danmörku. Auk
einfaldrar keppni, þar sem hver vara er dæmd fyrir
sig, er keppt til verðlauna innan sex vöruflokka. Þá
er veitt viðurkenning fyrir athyglisverðustu nýjung-
ina. Loks fær sá sem hlýtur flest stig samanlagt í öll-
um flokkunum titilinn Kjötmeistari 1994.
í flokki hrárra og soðinna kjötvara varð Hrönn
Káradóttir frá Kjötiðju KÞ á Húsavík meistari fyrir
úrbeinaðan hangiframpart. í flokki soðinna matar-
og áleggspylsa sigraði Páll Hjálmarsson fyrir vínar-
pylsur. Jónas F. Hjartarson frá Meistaranum í
Reykjavík fékk gullið fyrir hrápylsur. Hann sigraði
líka í framleiðslu á kæfu og patéum og fyrir hrein-
dýrapaté. Ævar Austfjörð frá Kjötiðnaðarstöð KEA
fékk gull fyrir blóðmör og Amar S verrisson hjá Síld
og fiski í Hafnarfirði vann flokk fyrir sérvörur og
nýjungar með hráskinku.
Katla hf. veitir farandverðlaun fyrir athyglisverð-
ustu nýjungina. Margar vörur komu þar til greina.
Mikill áhugi virðist á framleiðslu á alls konar hrás-
kinku og hráu hangikjöti svo og vörum úr laxi og
silungi. Dómnefndin valdi þó ákveðna gerð af paté
sem athyglisverðust nýjungina. Verðlaunahafinn í
þessum flokki var kjötiðnaðarmeistarinn, veiði-
maðurinn og þingeyingurinn Kristján R. Amarson
frá kjötiðju KÞ á Húsavík fyrir svartfuglapaté með
rósahlaupi.
PÁLL HJÁLMARSSON Kjötmeistari 1994 (frá Kjötiðnaðar-
stöð KEA)tekur við viðurkenningu frá Halldóri Blöndal land-
búnaðarráðherra.
Reykjavíkurlistinn:
Menningarhátíð
haldin í Glæsibæ
í KVÖLD, fimmtudagskvöld, býður Reykja-
víkurlistinn íbúum gömlu austurborgarinnar og
öðrum Reykvíkingum til menningarhátíðar í
hverfamiðstöðinni í Glæsibæ Álfheimum 74.
Hátíðin hefst klukkan 20.30 og er dagskráin á þá
leið að Bjöm Bjömsson bariton syngur við undir-
leik Guðbjargar Sigurjónsdóttur.
Þá mun Kristín Omarsdóttir lesa úr eigin verkum.
Fríður Sigurðardóttir og Halla Jónasdóttir syngja
dúetta við undirleik Kára Gestssonar og Elísabet
Jökulsdóttir les úr eigin verkum. Auk þess mun
Reynir Jónasson þenja nikkuna.
Borgarstjóraefni Reykjavíkurlistans, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir flytur stutt ávarp.
Hverfamiðsöðin í Glæsibæ er opin á virkum dög-
um frá klukkan 16 til 22 og frá klukkan 13 til 20 um
helgar. Sími 886262.
MMUMÐ
Fimmtudagur 19. maí 1994
Heildarútlán banka og sparisjóða á síðasta ári 184 milljarðar:
Afskriftirnar 5,2 milljarðar
Hlutfallslega mestar afskriftir vegna fiskeldis
AFSKRIFTIR við-
skiptabanka og spari-
sjóða á árinu 1993
námu rúmlega 5.2 millj-
örðum króna. Heildar-
útlánin af frádregnum
lánum til ríkis og sveit-
arfélaga námu á sama
tíma 184 milljörðum
króna. Hlutfallslega
þurfti að afskrifa mest á
síðasta ári vegna fisk-
eldis. Næstefst á lista
glataðra útlána er bygg-
ingastarfsemi, síðan iðn-
aður,verslun og þjón-
usta. Minnstu afskrift-
irnar í atvinnugreinum
urðu í sjávarútvegi.
Hlutfallslega eru lang-
minnst útlánatöp vegna
lána til einstaklinga.
Þessar tölur eru unnar
upp úr gögnum frá Lands-
banka íslands, Búnaðar-
banka íslands, íslands-
banka, Samband ís-
lenskra sparisjóða og
Hagdeild Seðlabanka Is-
lands fyrir Samtök fisk-
vinnslustöðva. Af tölum
lánastofnanna kemur
fram, að á síðastliðnum
þremur árum hafa bankar
og sparisjóðir afskrifað
tæplega 10,5 milljarða
króna.
Afskriftir viðskipta-
banka og sparisjóða árið
1993 á lánum til fyrir-
tækja og einstaklinga í
hlutfalli við skuldastöðu
þeirra í árslok 1993 er
sem hér segir: Fiskeldi og
landbúnaður: 10,9%,
byggingastarfsemi 7,1%,
iðnaður 4,6%, verslun og
þjónusta 2,7%, sjávarút-
vegur 2,5% og einstak-
lingar 1%. Tekið skal
fram að útlánastofnanir
flokka ftskeldi og land-
búnað undir eitt en ljóst er
að afskriftir vegna land-
búnaðs eins og sér eru
hverfandi litlar.
Samkvæmt saman-
burðartölum frá útlána-
stofnunum hefur verið
mest lánað á árinu 1993
til verslunar og þjónustu
(29,5%), þá sjávarútvegs
(útgerð og fiskvinnsla)
(20,5%), fiskeldis
(16,9%), iðnaðar
(15,5%), einstaklinga
(10,7%), byggingaverk-
taka (6,1%) og landbún-
aðar (0,8%).
Markaðssókn í Rússlandí
- verðí efld tíl miina og Hafnarsamband sveitarfélaga gefi
út rit á rússnesku. Þetta er meðal tillagna neftidar
um aukin viðskipti Islands og Rússlands
MARGRÉT S. BJÖRNSDÓTTIR, formaður nefndar sem iðnaðar- og
viðskiptaráðlierra skipaði leita leiða til að auka viðskipti Islands og
Rússlands. Nefndin leggur meðal annars til að markaðssókn i Rúss-
landi verði aukin og áhersla lögð á tœkjabúnað fyrir fiskvinnslu og
veiðar, orkumál og byggingariðnað.
NEFND SEM Sighvat-
ur Björgvinsson iðnaðar-
og viðskiptaráðherra
skipaði til að leita leiða til
að auka viðskipti Islands
og Rússlands hefur skil-
að tillögum sínum. Meðal
þess sem nefndin leggur
til er að iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytið leiti eft-
ir samstarfi við Hafnar-
samband sveitarfélaga
um útgáfu rits á rúss-
nesku fyrir skip og út-
gerðir þeirra.
í þessu riti á að kom
fram helstu upplýsingar
um þá þjónustu sem í boði
er í íslenskum höfnum,
reglur sem gilda um við-
skipti með fisk, sóttvamar-
og heilbrigðisreglur svo og
reglur um aðra vöru og
þjónustu er snerta þessi
skip eða áhafnir þeirra.
Nefndin telur að það
þurfi að greiða fyrir og
gera hagkvæmari hvers
kyns viðskipti í gegnum
hafnir landsins, þannig að
viðskipti séu sem einföld-
ust og við séum þar á öll-
um sviðum samkeppnis-
fær við aðrar þjóðir í verði
jafnt sem þjónustu. Stuðla
þarf að auknum viðskipt-
um með fisk með breyting-
um á reglum og samning-
um á milli þjóðanna á sjáv-
arútvegssviðinu. Þá þarf
að styðja markaðsaðgerðir
í Rússlandi og auðvelda
viðskipti við þarlenda að-
ila með útflutningslánum,
tryggingum eða annarri
þjónustu ljármálafyrir-
tækja.
Nefndin fundaði meðal
annars með Jouri A. Rec-
hetov sendiherra Rúss-
lands sem sagði að ekki
einungis hinar formlegu
reglur skiptu máli, heldur
allt eins framkvæmd þeirra
og það viðmót sem Rússar
mættu hér á landi. Nefnd-
armenn segja fullljóst að
viðskipti við Rússland,
einkum á sjávarútvegs-
sviði, munu búa við ýmsar
ytri takmarkanir nema að
pólitísk lausn fáist í deilu
landanna um veiðar í Bar-
entshafi, það er Smugu-
deilan.
Lækkun
gjalda
í tillögum nefndarinnar
segir að í því skyni að auka
möguleika hafna til að
keppa um viðskipti við-
komuskipa sé því beint til
samgönguráðuneytisins að
það endurskoði núgildandi
reglugerð er geri hafnar-
stjórum mögulegt að nýta
sér heimildir laga til að
draga úr gjaldtöku í höfn-
um, án þess að slíkt hefði í
för með sér skerðingu á
framlagi hins opinbera.
Ennfremur að hafnar-
stjórnir haldi gjaldtöku í
lágmarki og íjármálaráðu-
neyti hlutist til um að toll-
skoðunargjald verði fellt
niður.
Þeim tilmælum er beint
til landbúnaðarráðuneytis-
ins að það breyti reglugerð
þannig að auðveldara verði
að reka tollfrjálsar forða-
geymslur með erlendar
landbúnaðarafurðir fyrir
viðkomuskip. Meðal þess
sem nefndin leggur til er
að umhverfisráðuneytið
hafi forgöngu um að settar
verði samræmdar reglu-
gerðir um eftirlit með inn-
flutningi á fiski og að það
hlutist til um að fram-
kvæmd þeirra verði eins á
öllu landinu. Þar verði
komið í veg fyrir óeðlileg-
ar viðskiptahindranir, en
tekið tillit til eðlilegs
áhættumats, eins og dval-
artíma í höfn, hvort um
upp- eða útskipun er að
ræða, umfangi umskipunar
og reynslu af fyrri heim-
sóknum. Tilmælum er
beint til utanríkisráðuneyt-
isins um að það ráði við-
skiptafulltrúa við sendiráð-
ið í Moskvu og tilnefni
ræðismann í Murmansk.
Einnig leggur nefndin til
að markaðssókn í Rúss-
landi verði aukin og
áhersla lögð á tækjabúnað
íýrir fiskvinnslu og veiðar,
orkumál og byggingariðn-
að. Formaður nefndarinnar
var Margrét S. Bjömsdótt-
ir frá iðnaðar- og við-
skiptaráðuneyti.