Alþýðublaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
POLITIK
Föstudagur 27. maí 1994
MÞBUBLM9
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgetandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Siguröur Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Alprent hf.
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140
Er alþýðuflokksfólk
leiguliðar íhaldsins?
Reykvíkingar ganga til kosninga á morgun. Þeir kjósa um
hverjir eigi höfuðborgina: Fjármagnið eða fólkið. Undan-
fama daga og vikur hafa borgarbúar fylgst með angistar-
fullum viðbrögðum sjálfstæðismanna að halda borginni
áfram í einræðislegri greip sinni. Sterkustu fjölmiðlar þjóð-
arinnar hafa verið á þeirra bandi. Eignarhald fjölmiðla og
hvemig þeim er beitt í stjómmálabaráttu er vemlegt um-
hugsunaratriði fyrir alla þá sem láta sér lýðræðið varða. Er
lýðræðið falt fyrir fé? var spurt í leiðara Alþýðublaðsins
fyrr í vikunni. Eru allir sterkustu fjölmiðlar þjóðarinnar í
eigu og undir stjóm sama stjómmálaaflsins? Er það í raun
fjármagnið og fjölmiðlamir sem ráða Islandi?
Sjálfstæðismenn virðast óhikað vera þeirrar skoðunar. Þeir
hika ekki við að ausa meiri íjármunum í kosningabaráttu
sína í höfuðborginni en menn eiga að venjast. Og sjóðirnir
virðast ótæmandi. Sjálfstæðismenn em greinilega þeirrar
skoðunar að skoðanir séu söluvara; að skoðanir annarra sé
hægt að kaupa. Stjómmálaleg sannfæring er orðin mark-
aðsvara, kjósendur ganga kaupum og sölum.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík keyptu heilsíðu auglýsingu í
Alþýðublaðinu í gær. í auglýsingunni sem beint er til al-
þýðuflokksfólks, er því haldið fram, að um helmingur
flokksmanna Alþýðuflokksins í alþingiskosningum kjósi
D- listann í borgarstjómarkosningum í Reykjavík. Þeirri
áskomn er sem sagt beint til alþýðuflokksfólks frá sjálf-
stæðismönnum að kjósa D-listann. Það er sýnilegt af aug-
lýsingu sjálfstæðismanna að þeir telja sig „eiga“ stóran
hluta af kjósendum Alþýðuflokksins, allt að því helming.
Umrædd auglýsing var einnig birt sama dag í Morgunblað-
inu. Það kostar mikla peninga að gera og birta slíka auglýs-
ingu. Auglýsingin er enn eitt dæmið um fjáraustur sjálf-
stæðismanna í kosningabaráttunni. Og hugsunin er ein:
Með fjármagni skal alþýðuflokksfólki snúið til fylgis við
Sjálfstæðisflokkinn. í beinum orðum þýðir þetta að hægt sé
að kaupa skoðanir alþýðuflokksfólks. Hvað segir alþýðu-
flokksfólk við slíkri ögrun sem umrædd auglýsing er? Em
kratar leiguliðar íhaldsins? Falir fyrir fé sjálfstæðismanna?
Þessum spumingum getur sérhver alþýðuflokksmaður
svarað í kjörklefanum á ntorgun. Setji hann X við D-listann
hefur hann svarað já. Setji hann X við Reykjavíkurlistann
svarar hann sömu spumingum neitandi.
Alþýðuflokkurinn ákvað að taka þátt í sameiginlegu fram-
boði í höfuðborginni gegn einsflokkskerfi Sjálfstæðis-
flokksins. Jafnaðarmenn héldu prófkjör og að því loknu
lögðu þeir Reykjavíkurlistanum til tvo glæsilega frambjóð-
endur, Pétur Jónsson viðskiptafræðing og Gunnar Gissur-
arson tæknifræðing. Það er skoðun Alþýðuflokksins að
borgarbúar eigi að hafa lýðræðislega kosti í borgarmálum.
Alþýðuflokkurinn hefur áður lagt til fólk á sameiginlegum
listum eins og 1990 þegar Nýr Vettvangur varð til.
Reykjavíkurlistinn er annað og aflmeira framboð en Nýr
vettvangur. Skoðanakannanir hafa sýnt og sannað að
Reykjavíkurlistinn hefur raunhæfa möguleika að steypa
einsflokkskerti sjálfstæðismanna af stalli. Þetta vekur auð-
vitað skelfingu og hroll meðal sjálfstæðismanna. Og þeir
beita öllu sem þeir eiga til að verja einræðisvöld sín í borg-
inni. Þeir ráða yfir fjölmiðlunum. Þeir ráða yfir fjármagn-
inu. Sameinist fólkið gegn þessu ofurvaldi er sigurinn
Reykjavíkurlistans. Þess vegna mun alþýðuflokksfólk
styðja frambjóðendur sína og kjósa samkvæmt sinni sam-
visku. Alþýðuflokksfólk er ekki falt fyrir fé, þótt sjálfstæð-
ismenn í Reykjavík telji svo í auglýsingu sinni.
RÖKSTÓLAR
. j muniniK
jafnadarmanns
Hann var aldrei langt frá
honurn Vimma í þá góðu
gömlu daga, þegar siðvæð-
ingarbylgjan reis sem hæst
1977-78. Hann hafði jú
stúderað í Svíþjóð - fyrir-
myndarríki jafnaðarstefn-
unnar. En menn voru ekki
gamaldags sossar, sei, sei,
nei; menn voru ný-jafnað-
armenn. En umfram allt var
þetta siðvæðingarhreyfing:
„Moral Re-armament“ ef
einhver skyldi muna eftir
því.
Hann var reyndar á Iaun-
um hjá sænska krata-
flokknum sem fræðslufull-
trúi á Islandi. Það voru sett
sérstök lög á Alþingi til að
koma í veg fyrir það. Svo
tók hann við fjármálastjóm
Alþýðublaðsins - Helgar-
póstsins. Þar fór í verra.
Þegar búið var að gera upp
óreiðuna varöllum forystu-
mönnum Alþýðuflokksins
safnað á skuldabréf til 15
ára - og mega gera svo vel
og greiða þau fósturgjöldin
til ársins 1999.
Svo var reynt fyrir sér í
bleyjubransanum með
borgarstjóm að bakhjarli.
En bleyjumar fóru á sömu
lund og hitt - í vaskinn.
Með góðra manna hjálp var
hann svo ráðinn sem stað-
arhaldari á hinu fomfræga
höfuðbóli, Reykhólum. Þar
er staðarlegt heim að líta,
útsýni ægifagurt yfir
Breiðaíjörð - og gott næði
til að hugsa.
Hann fór að birtast aftur
á flokksstjómarfundum af
og til. Lagði jafnvel fram
tillögur, örfá orð á blaði, án
frekari rökstuðnings: ís-
land ætti að ganga í Evr-
ópusambandið. Landið ætti
að vera eitt kjördæmi.
Vextir ættu að Iækka.
Venjulega var þessum til-
lögum kastað fram þegar
önnur stórmál voru á dag-
skrá, enda unnið að við-
komandi málum í málefna-
nefndum. Það var aldrei
neinn andvígur þessum til-
lögum - enda ástæðulaust.
Þær lýslu ýmist yfirlýstri
stefnu flokksins (landið eitt
kjördæmi) eða hnigu í
sömu átt og að var unnið
(lækkun vaxta, Evrópu-
sambands-aðild).
Smám saman fór að
heyrast stríðari tónn. Sveit-
arstjórinn var óánægður
með Jón Baldvin. Jón
Baldvin væri of hægri sinn-
aður. Of mikill markaðs-
hyggjumaður. Of hallur
undir íhaldið. Jóhanna væri
hinn eini sanni jafnaðar-
maður. Og loks var
óánægjan svo sár að hann
ákvað að stofna Jafnaðar-
mannafélag íslands, þar
sem samhljóma sálir gætu
fundið frið og grið til að
ræða hugsjónir jafnaðar-
stefnunnar, óáreitt af mark-
aðshyggjustaglinu í Jóni
Baldvini, Sighvati og co.
Og stutt hana Jóhönnu í
góðum félagsskap með
Ólínu (sem reyndar felldi
hann í borgarstjóminni
með þessum Nýja vett-
vangi - svona er nú þetta
félagshyggjufólk) og Jóni
Baldri Lorange.
Og svo fer að birta til.
Félagshyggjuöflin hafa náð
saman um Reykjavíkurlist-
ann. Alþýðuflokkurinn á á
brattan að sækja sums stað-
ar í sveitarstjómarkosning-
unum. Og sannir jafnaðar-
menn ætla að bjóða Jó-
hönnu fram gegn formann-
inum á næsta flokksþingi.
Það er með öðram orðum
að birta til yfir sönnum
jafnaðarmönnum og sveit-
arstjóram.
En einmitt þá - þegar
Fróni reið allra mest á -
datt botninn úr baráttunni:
Leiðtogaefnið læddist á
braut. Næst spurðist til
hans á síðum Morgun-
blaðsins og Pressunnar.
Hvað hafði komið fyrir?
Jú, Ami Sigfússon hefur
sýnt það með auglýsingum
í sjónvarpinu, að þar er
kominn hinn eini sanni
Jafnaðarmaður (meiri en
heilög Jóhanna, mildari en
Ólína og staðfastari en Jón
Baldur Lorange eða hvað?)
Og Bjarni vitnar um veginn
að drottins náð og segisl
ætla að „vinna að fram-
gangi sjálfstæðisstefnunn-
ar.“
„Ertu hættur að vera
jafnaðarmaður?" - spyr
Pressan. „Þetta er langerf-
iðasta spumingin...“ segir
hann hugsi. En konan er
ánægð, og tengdapabbi -
og mamma var sú fyrsta til
að óska manni til ham-
ingju. Mamma var reyndar
alltaf (hel)blátt íhald. Mað-
ur hefði kannski heldur átt
að hlusta á hana héma í
gamla daga, fremur en að
láta ’ann Vimma véla sig
með öllu þessu tali um jafn-
aðarstefhuna.
Alla vega Jóhanna og
Ólína verða bara sjálfar að
sjá um sig. Maður hélt þetta
bara ekki lengur út - og er
farinn heim til mömmu. Og
er ekki eitthvað til í því að
Ami (sem er úr Vest-
mannaeyjum og spilar á
gítar) sé miklu mýkri rnað-
ur en hún Jóhanna?
Var ég að reyna að koma
höggi á félaga mína, á ör-
lagastundu? Nei - hvemig
dettur þér í hug að spyija
svona? Maður er bara
svoldið seinþroska - eða
sagði ekki Nóbelsskáldið
eitthvað á þá leið svona
tuttugu og fimm árunt el'tir
dúk og disk? Það er ekki
leiðum að líkjast.
P/F SKIPAFELAG FÆREYJA,
FÆREYJALEIDIN, hefur hafiö
vikulegar siglingar milli
Þorlákshafnar, Vestmannaeyja
og hafna í Vesfur-Evrópu.
Fjölhæfniskipin M/S Saga og
M/S Viking annast þessar
siglingar.
>au eru bretta- og gámaskip
(RORO) með almennri vörúlest,
frysti- og kælilestum, auk þess
sem sérstakt bílskýli er unlir
yfirbyÍjgingu.
Á mánudðgum: ÞorlákShöfn,
Vestmannaeyjar og Vlissingen í
Hollandi.
Á miðvikudögum og fímmtudögum:
Færeyjahafnir.
laugardögum: Hírtshals i Danmörku
Á tveggja vikna fresti er síglt til Grimsby á
Englandi, Scalloway á Shetlandséyjum
og Stavanger, Florö og Álasunds í
Noregi.
nging, með umskípun í Færeyjum, er við
■ysekil í Svíþjóð og dönsku hafnirnar
Kaupmannahöfn, Á
Látið Fermi um farminn
FERMI HF.
Umboð fyrir p/f Föroyaleiðin
Laugavegi 3,101 Reykjavík, sími 91-16799, fax 91-16798