Alþýðublaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 11
Föstudagur 27. maí 1994
ALÞYÐUFLOKKURINN
ALÞYÐUBLAÐIÐ 11
SIGURÐUR TQMAS BJÖRGUINSSON:
Undirbúningur 47. flokksþings Alþýðuflokksins
JAFNADARSTEFIUA
FRAMTÍÐARINNAR
Alþýðuflokkurinn - Jafn-
aðarmannaflokkur Islands -
er flokkur athafna og atorku.
Stjómmálaflokkamir hafa
verið uppteknir við undirbún-
ing sveitarstjórnarkosninga
undanfamar vikur, en sam-
fara þeirri miklu vinnu hefur
Alþýðuflokkurinn undirbúið
47. flokksþing sitt, sem haldið
verður í Suðumesjabæ 10. til
12. júní. A slíkum tímamót-
um koma jafnaðarmenn sam-
an, skiptast á skoðunum og
móta stefnu framtíðarinnar.
Flokksþing em, ásamt undir-
búningi kosninga, hápunktur
flokksstarfsins og menn fyll-
ast pólitískum eldmóði.
Flokksþing Alþýðuflokksins
hafa einkennst af pólitískri
nýsköpun og margt bendir til
þess að komandi þing gæti
orðið flokksþing hinna stóm
ákvarðanna.
Blómlegt starf
Kröftugar kosningavélar
jafnaðamianna em nú í gangi
um allt land, en samt hafa
flokksfélögin náð að undirbúa
málefnastarf og kjör fulltrúa á
flokksþingið. A morgun og
sunnudag, 28. til 29. maí,
verða fulltrúar kjömir hjá Al-
þýðuflokksfélagi Reykjavík-
ur. Hér er um að ræða lang
stærsta jafnaðarmannafélag
landsins og því vill undirrit-
aður nota tækifærið og hvetja
félagsntenn til þess að fjöl-
menna í Alþýðuhúsið um
helgina og taka þátt í kjöri
sinna fulltrúa á flokksþingið.
Þetta á að sjálfsögðu einnig
við um þau fjölmörgu flokks-
félög sem starfandi em um
land allt. Góð þátttaka ber
vitni um blómlegt flokksstarf.
Róttækar umbætur
Það fer sjálfsagt ekki frarn-
hjá neinum að Alþýðuflokk-
urinn - Jafnaðarmannaflokk-
ur Islands - hefur verið ger-
andinn í íslenskum stjómmál-
um. Undir traustri forystu
framsýnna leiðtoga hefur
flokknum tekist að knýja
fram róttækar umbætur á
ýmsum sviðum, oft við mikla
andstöðu afturhaldsflokk-
anna.
Nægir þar að nefna lækkun
verðbólgu og stöðugleika í
efnahagslífinu, uppbyggingu
húsnæðiskerfisins, endur-
skoðun velferðarkerfisins,
lækkun vaxta, samkeppnis-
löggjöf og neytendavemd,
sameiningu sveitarfélaga,
nýjar áherslur í stjómun fisk-
veiða, átak í málefnum fatl-
aðra og Evrópska efnahags-
svæðið.
Sumir hafa nefnt það að
jafnaðarmenn séu stundum á
undan sinni samtíð - og
kannski er eitthvað til í því.
Því miður hefur hræðsluáróð-
ur íhalds og afturhalds hlotið
hljómgmnn, og jafnvel náð
inn í okkar raðir. Að auki hef-
ur komið til ábyrgðarleysi og
„vinsældaveiðar" stjómar-
andstöðunnar þegar teknar
hafa verið erfiðar ákvarðanir
á þeim samdráttartímum sem
nú ern. Frambjóðendur jafn-
aðarmanna um land allt hafa
því ekki farið varhluta af árás-
um og gagnrýni á flokksfor-
ystuna fyrir sín framsýnu
verk. En ef við lítum til baka
og rifjum upp fyrri árásir þá
SIGURÐUR TOMAS
BJÖRGVINSSON.
sjáum við að við vomm að
gera rétt. Engum dettur nú í
hug að vera á móti húsbréfum
eða EES! Við geturn því
borðið höfúðið hátl og skul-
um spyija að leikslokum.
Ferskar hugmyndir
En um hvað mun 47.
flokksþing Alþýðuflokksins
snúast? Eitt er víst að á árinu
1994 þá mun flokksþing AI-
þýðuflokksins ekki snúast um
lagningu vegarspotta til bónd-
ans á Leiðarenda - þegar
þjóðin þarf að taka ákvörðun
um varanlega brúarsmíði við
Evrópu og umheiminn. Þá er
það einnig ljóst að flokksþing
Alþýðuflokksins mun ekki
snúast um byggingu Iúxus-
Ijárhúss í Borgarfirði - þegar
leita þarf leiða til þess að
lækka verð á nauðsynjavöm.
Nei, á flokksþingi Alþýðu-
flokksins verður tekist á um
mál sem snerta alla Islend-
inga, en ekki um sérhags-
muni. A 50 ára lýðveldisaf-
mæli þjóðarinnar ntun flokks-
þing Alþýðuflokksins leitast
við að treysta lýðræðið og
efnahagslegt sjálfstæði lands-
ins.
Undanfamar vikur hafa
verið starfandi opnir málefna-
hópar sem hafa lagt gmnninn
að jafnaðarstefnu framtíðar-
innar. Fleiri munu koma að
þessari stefnumótun eftir
kosningamar og síðan verður
lokahöndin lögð á smíðina á
sjálfu flokksþinginu. Mál-
efnasviðin sem em til um-
íjöllunar em efitirfarandi:
efnahags- og atvinnumál, vel-
ferðar- og ríkisfjármál, evr-
ópumál, kjördæmamál, um-
hverfismál, menntamál, neyt-
enda- og landbúnaðarmál.
Stefna framtíðar
Af þessari upptalningu má
Ijóst vera að þetta getur orðið
þing hinna stóm ákvarðanna.
Það er því mikilvægt að við
jafnaðarmenn tökum saman
höndum svo niðurstaðan
verði vönduð og jákvæð. Við
þurfum í sameiningu að
ákveða tengsl íslands við Evr-
ópu framtíðarinnar. Við þurf-
um einnig að endurskoða
menntastefnuna. fara nýjar
leiðir í atvinnumálum og út-
rýma atvinnuleysi - svo
helstu mál séu nefnd.
Ef þetta á að takast þá verð-
um við að treysta á samtaka-
mátt jafnaðarmanna. Aðeins
þannig tekst okkur að halda
áfram á braut framfara. Við
skulum fjölmenna á flokks-
þing og marka jafnaðarstefnu
framtíðarinnar.
Höfundur er
framkvæmdastjóri
Alþýðuflokksins
- Jafnaðarmannaflokks íslands.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur:
Kjör fulltrúa Alþýöuflokksfélags Reykjavíkur á 47. flokksþing Alþýðuflokksins
— Jafnaðarmannatlokks íslands - fer fram á skrifstofum Alþýðuflokksins
laugardaginn 28. maí og sunnudaginn 29. maí, klukkan 15 til 18 báða dagana.
Félagsfólk í Alþýðuflokksfélagi Reykjavíkur er eindregið hvatt til þess að kjósa
og hafa þannig áhrif á það hverjir verða fulltrúar félagsins á flokksþinginu
sem fer fram í Suðurnesjabæ dagana 10. til 12. júní 1994.
Uppstillingarnefnd.
Nissau Sunny SLX ES beinskiptar
NISSAIM
í stöðugri sókn
Það er
kraftur
í Nissan,
ekki 1300,
heldur
1600 vél og
kostar aðeins
kr. 1.322.000.-
Nissan Sunny SLX ES
■ 1.6 lítra vél
■ Samlæsing hurða
■ Upphitanleg framsæti
■ Tölvustýrð fjölinnsprautun
■ Útihitamælir
■ Rafmagnsrúðuvindur
■ Frítt þjónustueftirlit í eitt ár
"T\
ISsIlsfcKi
8
NJ
la?
Aðeins örfáir
NISSAN SUNNY SLX ES
fáanlegir með öllum
þessum aukahlutum
og kosta aðeins
kr. 1.322,000.-
Vindskeið m/ hemlaljósi
'V
i J.Wmí
Útvarp m/kasettutæki
Nissan gólfmottur
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
slml 91-674000