Alþýðublaðið - 27.05.1994, Blaðsíða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
VATIÐINDI
Föstudagur 27. maf 1994
RÖKSTÓLAR II.
Steinþór Bergs, stjórnarformaður byggingafyrirtækisins Fjármagnsfells hf:
íhugar hlutabréfakaup í Alþýðublaðinu
íhugar hlutabréfakaup í
Alþýðublaðinu
Steinþór Bergs, stjómarfor-
maður og aðaleigandi bygg-
ingafyrirtækisins Fjármagns-
fells hf. hafði samband við
Rökstóla og sagðist vilja
koma sjónarmiðum sínum til
skila varðandi borgarstjómar-
kosninganna. Þar sem Rök-
stólar em óháðir, opnir og
móttækilegir var Steinþóri
veitt áheym.
Alþýðublaðið staðið
sig afleitlega
- Það fyrsta sem ég vil
segja, er að mér fínnst
Alþýðublaðið hafa staðið sig
afleitlega í kosningabarátt-
unni, sagði Steinþór með
þunga.
Tíðindamaður Rökstóla
sagðist ekki geta tekið ábyrgð
á Alþýðublaðinu þar sem
Rökstólar væm óháður og
frjáls dálkur í blaðinu.
- Það er alveg sama, þmm-
aði Steinþór. Við sjálfstæðis-
menn vitum að helmingur
krata kýs D-listann í borgar-
stjómarkosningum og því er
það krafa okkar að blaðið
styðji D-listans þótt ekki væri
nema til hálfs.
- Þú meinar að Alþýðu-
blaðið ætti að styðja D-listann
hálfshugar? spurði U'ðinda-
maður.
- Nei, af fullurn krafti, til
hálfs, svaraði Steinþór.
Steinþór Bergs segir að það
sé lygi að byggingafyrirtækið
Fjármagnsfell hf. sem byggt
hefur meirihluta allra húsa á
vegum borgarinnar, styðji D-
listann með fjárframlögum.
- Þetta er bara tómt mgl,
segir Steinþór. Við höfum að
vísu hjálpað okkar mönnum
með smáframlögum enda
ekki nema von eftir allt sem
þetta ágæta fólk hefur gert
fyrir okkur. En það em engar
svimandi upphæðir eins og
Alþýðublaðið hefur verið að
tala um. Við höfum vikið
smásummum að okkar flokki,
svona 30 milljónum eða slfkri
skiptimynt.
Steinþór harðneitar að það
sé hagsmunatengsl milli nú-
verandi meirihluta borgar-
stjómar og Fjármagnsfells hf.
- Þetta er eintómt kjaftæði,
segir Steinþór. Er þetta ekki
fijálst land? Þótt við kjósum
að víkja smotteríi að flokkn-
um og flokkurinn taki alltaf
okkar tilboðum í bygginga-
framkvæmdir - hvað hefur
það að gera með hagsmuna-
tengsl!? Eg bara spyr? Þarf
maður virkilega að kaupa
hlutabréf í Alþýðublaðinu svo
þið fáið réttar skoðanir og far-
ið að ilytja réttar fréttir?
Gott að fjárfesta í okkar
skoðunum
Fjármagnsfell hf. á stærst-
an eignahlut f flestum fjöl-
miðlum landsins. Aðspurður
hvers vegna Fjármagnsfell hf.
fjárfesti svona grimmt í fjöl-
miðlum, svarar Steinþór:
- Þetta er góð fjárfesting,
peningamir skila sér fljótlega
og margfalt til baka.
- En nú hafa flestir fjöl-
miðlar ykkar verið reknir með
stórfelldu tapi á undanfömum
ámm?
- Tapið hefur ekkert að
gera með þetta. Með fjárfest-
ingu okkar í fjölmiðlum hefur
okkur tekist að snúa við
óheillaþróun í íslenskri blaða-
mennsku. Fjölmiðlamir em
ekki lengur undir stjómmála-
flokkum heldur í eigu frjáls-
lyndra og víðsýnna manna.
Nú heyrast loksins okkar
skoðanir.
- Er það hlutleysi? spurði
tíðindamaður sakleysislega.
- Fréttamenn okkar em
fijálsir og hlutlausir að fara
með þær staðreyndir sem við
viljum, sagði Steinþór Bergs.
Við höfum frelsi gagnvart
þeim og þeir gagnvart okkur.
Sundlaugin kostaði sama
og tíu orrustuvélar
Það hefur vakið athygli í
kosningabaráttunni að Fjár-
magnsfell hf. hefur ítrekað
birt heilsíðuauglýsingar af
þeim byggingaframkvæmd-
um sem fyrirtækið hefur reist
fyrir borgina.
- Já, er eitthvað athugavert
við það? spyr Steinþór. Má
ekkert lengur? Við emm bara
að óska borgarbúum til ham-
ingju með ný hús sem við
höfum byggt fyrir þá.
- En flest þeirra hafa farið
rosalega framúr áætlunum.
Eins og sundlaugin til dæmis
sem kostaði álíka og tíu
bandarískar omstuþotur.
- Það vérður ekkert dýrara
ofan í, svaraði Steinþór.
Sundlaugagestir verða ekki
látnir gjalda þess.
- En borgarbúar?
- Flokkurinn hækkar
kannski útsvarið pínulítið um
tíma. En vilja menn ekki al-
mennilega sundlaug? Viltu
ganga um skítugur frá morgni
til kvölds eins og þetta
ósnyrta lið i Reykjavíkurlist-
anum? Ha?
Tíu metra hátt
líkneski af
borgarstjóra
Fjármagnsfell hf. hefur ný-
lega látið reisa tíu metra hátt
lfkneski af fyrrverandi borg-
arstjóra á lóð sinni að Himna-
gmnd.
- Já, segir Steinþór Bergs
stjómarformaður, okkur þótd
rétt að heiðra þann mann sem
hefur ötulast hefur staðið að
því að gera fyrirtæki okkar að
því sem það er. Það var á
valdatíma þessa mikla braut-
ryðjenda að hugsunin „Borg
fyrir byggingar" varð til. Að-
ur fyrr höfðu vinstri menn og
öfgafólk staðið í þeirri mein-
ingu að borgin væri fyrir fólk.
Það átti að gera allt fyrir eitt-
hvað pakk. Raunsæir menn
vita að borg er ekkert annað
en umferðaræðar fyrir bfla og
stórbyggingar fyrir íbúðir og
skrifstofubyggingar. Ekkert
grænt kjaftæði. Utivistar-
svæði og annað mgl. Ef menn
langar í útivistarsvæði geta
þeir bara keyrt út úr borginni.
Það er nóg af útivistarsvæð-
um fyrir utan borgina. Upp á
Rauðhólum til dæmis. „Borg
íyrr byggingar“ var upphafið
að valdatíma okkar. Og við
höfum látið greypa í stall
styttunnar : „Hann skildi að
borgin er fyrir byggingar."
Einn flokkur,
einn foringi og
margir penmgar
Steinþór segir að lokum, að
úrslitin ráðist í borgarstjómar-
kosningunum á þvf hvort
menn skilji nauðsyn þess að
einn samhentur ilokkur
stjómi eða hvort fjölflokka-
óráðsían fái að taka völdin.
- Sko, segir Steinþór
Bergs, einn flokkur, einn for-
ingi, eitt land, ein borg, einn
borgarbúi. Það er málið.
Margar byggingar, margir
embættismenn, margir pen-
ingar og mörg atkvæði til D-
listans. Það er sko málið.
Orðum sínum til áréttingar
segir Steinþór enn og aftur að
lokum:
- Við viljunt ekki marga
flokka, margar skoðanir,
margt fólk eða mörg útboð.
Mikið af mörgu gerir eitt
margt. Eitt og sér gerir hins
vegar eitt stórt.
Þess vegna er einræði mis-
skilið hugtak. Einræði er vald
hins eina og flýtir öllum
ákvörðunum. Lýðræði eða
fjölflokkaræði þýðir hins veg-
ar vald margra og tefur fram-
kvæmdir. Það er málið, segir
Steinþór Bergs, stjómarfor-
maður Fjármagnsfells hf. að
endanlegum lokum við Al-
þýðublaðið og lét þessa
kveðju fylgja:
- Ef við töpum borginni
mun ég flytja til Haití þar sem
ómældar byggingafram-
kvæmdir bíða eftir duglegu
fólki.
UPPLYSIMGABA
ÚTBOÐI er íslenskur upplýsingabanki um útboð. Hann er til
húsa hjá Skýrr. Þjónustumarkmið ÚTBOÐA ertvíþætt:
1. Að auðvelda kaupendum að kynna útboð með ódýrum og
2. Að auðvelda bjóðendum yfirsýn yfirþau útboð sem eru á
markaðinum.
Varlega áætlað fara a.m.k. 700 útboð fram á íslandi á ári
hverju, og veltir þessi kaupvangur 7-10 milljörðum króna.
Viðskiptavinir
Auglýsendur-kaupendur
• Ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki
• Sveitarfélög og fyrirtæki þeirra
• Einkarekstur og einkaaðilar
• Bankar og fjármálafyrirtæki
Tilboðsgjafar
• Aðilar í verslun og innflutningi
• Aðilar í öðrum þjónustugreinum
• Framleiðslu- og iðnfyrirtæki
Helstu kostin UTBOflA
■ Fyrirtæki geta lækkað auglýsingakostnað sinn.
■ Bjóðendur, hvar sem er á landinu, eiga samtímis kost á
upplýsingum um tiltekin útboð.
■ Hagsmunaaðilar hafa gleggri yfirsýn yfir þau útboð sem eru á
markaðinum á hverjum tíma.
■ Bjóðendur þurfa ekki að hafa áhyggjur af að missa af
auglýstum útboðum - þeir gá í bankann þegar þeim hentar.
■ Enginn pappírs- eða skjalavörslukostnaður er samfara notkun
(pappírslausar upplýsingar).
■ Upplýsingar um eidri útboð og niðurstöður þeirra eru
■ aðgengilegar á einum stað.
Pappírslaust aðgengi að helstu lögum og leikreglum um útboð.
Kostnafiur
í kynningarskyni verða afnotaí ÚTBOÐA ókeypis íjúní 1994,
fyrirþá sem skrá sig til þátttöku fyrir miðjan mánuðinn.
Að þessum kynningartíma loknum verður verðskrá þannig:*
Auglýsendur greiða 5.000 kr. fyrir hverja auglýsingu sem þeir
skrá sjálfir inn í ÚTBOÐA frá útstöð. Er þá allur kostnaður af
varðveislu gagna innifalinn. Þeir auglýsendur sem senda
handrit að auglýsingu til Skýrr greiða 6.500 kr.
Skoðendur í ÚTBOÐA (bjóðendur eða aðrir leitendur) greiða
2.500 kr. í mánaðargjald fyrir aðgang að auglýsingum og
upplýsingum í bankanum. Þeir sem ekki hafa beintengingu við
bankann geta fengið daglega yfirlitsskrá um auglýsingar með
símbréfi gegn 1.200 kr. gjaldi á mánuði.
Afnot af beintengingu við TED-bankann í Lúxemborg kosta nú
4.000 kr. á mánuði.
IVánari upplýsingar um UTBOÐA
Allar frekari upplýsingar um tengingar, tækniatriði eða önnur
þau mál sem þig kann að varða um, veitir starfsfólk Skýrr í
síma 69 51 00. Hafðu samband - við svörum spurningum
þínum fúslega.
* Verðlag í maí 1994.
u
ÚTBOÐI
UPPLÝSINGAR UM ÚTBOÐ
Háaleitisbraut 9, 108 Reykjavfk.
Sími; (91) 69 51 00. Bréfaslmi (91) 69 52 51.