Alþýðublaðið - 31.05.1994, Blaðsíða 1
Sögulegur viðburður! Þessarþijár konur munu fara með viðamestu embœtti Reykjavíkurborgar nœstu þrjú árin. Án
efa erþað einsdœmi að konur hafi valist á þennan hátt til œðstu embœtta í höfuðborg. Hér eru þœr Sigrtín Magnúsdóttir, sem mun
gegna embcetti formanns 18 manna borgarstjómatflokks Reykjavíkuriistans, einskonar verkstjóri og stjómandi listans; Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri og forseti borgarráðs; og Guðrún Ágústsdóttir, forseti borgarstjómar. Mytidin var tekin í rigningunni
ígcerdag við Ráðhús Reykjavíkur. Mþýöublaðsmyná/Bnar óiasw
Borgin frelsuð úr
grapum ílialdsins
Afgerandi sigur Reykjavíktirlistans blasti við strax og fyrstu tölur voru lesnar upp í sjónvarpi.
Mikill fögnuður braust út í höfiiðborginni þegar úrslitin voru Ijós. BorgarfuIItrúar
nýs meirihluta óttast að þeir séu að taka við verra búi en reiknað var með
INGIBJORG Sólrún
Gísladóttir er nýr borgar-
stjóri í Reykjavík eftir
borgarstjórnarkosningarn-
ar á laugardag. Reykja-
víkurlistinn fékk afgerandi
stuðning borgarbúa, fékk
53% atkvæðanna, 34.418
atkvæði, D-listi Sjálfstæðis-
flokksins fékk 47% og
30.504 atkvæði. Reykjavík-
urborg verður næstu fjögur
árin undir stjórn kvenna,
sem fara munu með veiga-
mestu embætti borgarinn-
ar. Það út af fyrir sig er ekki
lítil frétt. Mikill fögnuður
braust víða út í höfuðborg-
inni, þegar ljóst var hvert
stefndi.
-Sjánánarleiðara
og Riiksttíla á
blaðsíðu 2.
„Stórsigur
borgarbúa’4 á
blaðsíðu 3 og
„Borgin frelsuð úr
helgreipum flialdsias"
á blaðsfðu 8.
í samtali við Alþýðublaðið
í gær sagði hinn nýi borgar-
stjóri að Reykvíkingar þyrftu
engu að kvíða, þrátt fyrir að
bæði henni og öðrum fulltrúar
Reykjavíkurlistans hefði ver-
ið lýst sem einskonar borgar-
skelmum og að víðfrægur
fréttamaður Moggans hefði
talað um sigur Reykjavíkur-
listans sem „valdarán" á
kosninganóttina.
„Ég held að Reykvíkingar
séu sammála unt að þeir hafi
ekki haft neinu að tapa. Við
munum standa þétt saman um
að stjóma borginni vel“, sagði
Ingibjörg Sólrún í gær.
Borgarmálaflokkur Reykja-
víkurlistans hóf þegar að
starfa og mun verða í önnum
næstu daga og vikur að skipu-
leggja starf sitt í meirihluta
borgarstjómar Reykjavíkur.
Pétur Jónsson, fjórði maður á
Reykjavíkurlistanum, fulltrúi
Alþýðuflokksins, sagði í sam-
tali við Alþýðublaðið í gær:
„Samheldnin milli fram-
bjóðenda og stuðningsmanna
Reykjavíkurlistans hefur ver-
ið með eindæmum góð allt frá
upphafi.
Og þannig verður það
áfram“, sagði Pétur, en hann
verður varaforseti borgar-
stjómar Reykjavíkur. Pétur
kvaðst óttast að nýr meirihluti
kæmi að lakara búi en látið
hefur verið í veðri vaka.
Reikningar borgarinnar verða
birtir síðar í vikunni.
Alþýðuflokksmenn fagna! Þeir félagar Pétur Jóttsson og
Gunnar Levy Gissurarson (Lh.)jögnuðu ákaft á kosninga[sigur]hátíð Reykj-
avíkurlistans sem lialdin var á Hótel íslandi síðastliðið laugardagskvöld. Pét-
ur skipar jjórða sceti listans og Gunnar Levy það níunda. „Samheldnin milli
frambjóðenda og stuðningsmanna Reykjavíkuriistans hefur verið með ein-
dcemum góð alltfrá upphafL Og þannig verður það áfram“, sagði Pétur, en
hann verður varaforseti borgarstjómar Reykjavíkur. Alþýðublaðsmynd/Enaróiason
Kosnmgaárangur
jafiiaðarmanna vítt
og breitt um landið:
Vonbrigði
ogánægja
íbland
VIÐA UM Iand urðu sveitarstjórnarkosn-
ingarnar Alþýðuflokknum hvort tveggja,
gleðiefni sem og nokkur vonbrigði í sumum
bæjanna. Það þarf vart að minnast á sigurinn
í höfuðborginni, en þar var Alþýðuflokkurinn
meðal sigurvegaranna og á sinn stóra þátt í
sameiginlegu framboði Reykjavíkurlistans.
I viðtölum blaðamanna Alþýðublaðsins við
oddvita A-lista víða um land var rýmandi fylgi
skýrt á ýmsa vegu eins og gengur. Vonbrigði Al-
þýðuflokksfólks úti á landi voru hvað mest á
Akranesi þar sem tveir bæjarfulltrúar töpuðust.
Mest var gleði krata á Eskifirði þar sem Alþýðu-
flokkurinn var ótvíræður sigurvegari kosning-
anna, náði manni inn og vantaði aðeins 17 at-
kvæði upp á annan manninn, - sem á að nást
næst. A Akureyri myndar Alþýðuflokkurinn
meirihluta með Framsóknarflokknum. í Borgar-
nesi gekk ffemur vel.
I nágrannabæjum höfuðborgarinnar gekk
sumsstaðar ffemur illa. I Kópavogi missti Al-
þýðuflokkurinn fylgi yfir til Kvennalistans og
tapaði flokkurinn góðri baráttukonu úr bæjar-
stjóm, sem vissulega vom mikil vonbrigði.
Flokkurinn þar er þó til umræðu í myndun meiri-
hluta. í Hafnarfirði missti flokkurinn meirihluta
sinn, en talið næsta víst að hann gangi til meiri-
hlutasamstarfs að nýju við Alþýðubandalagið. í
Garðabæ bætti Alþýðuflokkurinn við sig fylgi og
hélt sínum eina bæjarfulltrúa. í Mosfellsbæ átti
A-listinn stóran þátt í að fella áratuga gamlan
meirihluta íhaldsins og vantaði sáralítið uppá að
ná inn manni.
í Suðumesjabæ hinum nýja fékk Aiþýðuflokk-
urinn 3 bæjarfulltrúa og verður í minnihluta. f
Sandgerði vann K- listi óháðra og alþýðuflokks-
fólks hreinan meirihluta. í Grindavík fékk A-list-
inn tvo menn kjöma sem fyrr, meira en spár gáfu
til kynna, vamarsigur eins og víða gerðist hjá al-
þýðuflokksfólki. ,—
Vel gekk starfið á Skagaströnd þar sem fylgið
jókst til muna og flokkurinn fékk einn mann í
sveitarstjóm en situr í minnihluta. Á Sigluftrði
fékk flokkurinn svipað fylgi og 1990 og tvo
menn kjöma og myndar áfram meirihluta. Sama
er að segja um Sauðárkrók, þar heldur Alþýðu-
flokkurinn áfram í meirihlutasamstarfi. Á Húsa-
vík reyndist fylgi A-listans nánast óbreytt frá síð-
ustu kosningum og þess ekki að vænta að flokk-
urinn komist í meirihlutasamstarf.
I hinu nýja sveitarfélagi Snæfellsbæ varð upp-
skera A-listans bjartari en nokkur þorði að vona
og fékk hann tvo bæjarfulltrúa. Möguleikar em
þar á aðild að meirihlutasamstarfi. Á ísafirði
héldu Alþýðuflokksmenn tveimur fulltrúum sín-
um, en em ekki taldir í myndinni varðandi meiri-
hlutaviðræður. Vestmannaeyjalistinn sem Al-
þýðuflokkurinn tók þátt í fékk tvo fulltrúa, en
Siálfstæðisflokkurinn fékk þar hreinan meiri-
hluta.
-Sjá „KosningaumfjölIun“
á blaðsíðum 4 og 5.