Alþýðublaðið - 31.05.1994, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 31.05.1994, Blaðsíða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Þriðjudagur 31. maí 1994 MENNTUN FYRSTU menntuðu slátrarar landsins út- skrifuðust frá Iðnskól- anum í Reykjavík síð- astliðinn fóstudag, og fór athöfnin fram í Hallgrímskirkju. Það voru 15 slátraranemar sem útskrifuðust eftir að hafa notið bóklegrar og verklegrar kennslu. Haustið 1991 skipaði Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra nefnd til þess að taka saman tillögur um nám fyrir starfsfólk sem vinn- ur við slátrun búljár. Nefndin var skipuð á þeim forsendum að brýna nauðsyn bæri til að auka og bæta menntun þeirra sem vinna þessi störf, því að aukin menntun og verkhæfni ykju ekki aðeins gæði vörunnar, sem þeir hand- íjatla, heldur einnig verð- mæti hennar. Formaður nefndarinnar var Stefán Ólafur Jónsson deildar- stjóri. Nefndin lagði til að sett yrði á stofn námsbraut í slátrun við Iðnskólann í Reykjavík. Námið yrði tvö og hálft ár og skiptist í bóklegt og verklegt nám sem skyldi fara fram eftir námssamningi, sem nemi í slátrun gerði við vinnu- stað. Að námi loknu fengi hann starfsheitið slátrari. Fyrsta hluta námsins var hmndið í fram- kvæmd á skólaárinu 1993 til 1994 á vegum Iðnskólans í Reykjavík. Fimmtán nemendur með mikla starfsreynslu við slátrun sóttu þijú tveggja vikna námskeið, bæði bókleg og veikleg. Nám- skeiðin vom haldin við Iðnskólann í Reykjavík, í sláturhúsinu á Hvamms- tanga og Slátraraskólan- um í Hróarskeldu í Dan- mörku. Kennarar vom firá íslandi, Englandi og Danmörku. Starfs- menntasjóður félags- málaráðuneytisins og Framleiðnisjóður land- búnaðarins styrktu nám- skeiðin myndarlega. Störfuðuð þér hjá Reykjavíkurbæ 1944? Eigið þér ef til vill í fórum yðar myndir eða önnur gögn tengd starfinu á þeim tíma? Vinsamlegast hafið þér þá samband við Borgarskjalasafn Reykjavíkur (sími 632370) eða Ljósmyndasafn Reykjavík- urborgar (sími 632530). Frá Háskóla íslands: Skrásetning nýrra stúdenta Skrásetning nýrra stúdenta til náms í Háskóla íslands há- skólaárið 1994-1995 fer fram í Nemendaskrá í aðalbygg- ingu Háskólans, dagana 1.-15. júní 1994. Umsóknareyðu- blöð fást í Nemendaskrá sem opin er kl. 10-15 hvern virk- an dag á skráningartímabilinu. Við nýskrásetningu skrá stúdentar sig jafnframt í nám- skeið á komandi haust- og vormisseri. Umsóknum um skrásetningu skal fylgja: 1) Ljósrit eða staðfest eftirrit af stúdentsprófsskírteini. (Ath! Öllu skírteininu.) 2) Skrásetningargjald: kr. 22.975,-. Ljósmyndun vegna stúdentaskírteina fer fram í skólanum í september 1994. Ekki er tekið á móti beiðnum um nýskrásetningu eftir að auglýstu skrásetningartímabili lýkur 15. júní nk. Athugið einnig að skrásetningargjaldið er ekki endurkræft eftir 20. ágúst 1994. Mætið tímanlega til að forðast örtröð. RAÐAUGLÝSINGAR MENNTAMÁLARAÐUNEYTIÐ Auglýsing Laus er til umsóknar staða skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum. Staðan veitist frá 1. ágúst 1994. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 23. júní nk. Menntamálaráðuneytið. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Útboð F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í viðgerðir á gangstéttum. Verkið nefnist: Gangstéttaviðgerðir II, 1994. Helstu magntölur eru: Steyptar stéttir u.þ.b. 3.000 m2 Hellulagðar stéttir u.þ.b. 1.000 m2 Síðasti skiladagur er 1. október 1994. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með þriðjudegin- um 31. maí, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 8. júní 1994, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ Félagsmálaráðuneytið auglýsir til umsóknar eftirtaldar stöður á sviði barna- og unglinga- mála á vegum ráðuneytisins: Stöðu yfirmanns skrifstofu ráðuneytisins í barna- og ung- lingamálum. Skrifstofan annast yfirstjórn og heildarskipu- lagningu barnaverndarmála á grundvelli laga um vernd barna og ungmenna. Umsækjendur skulu hafa háskóla- menntun auk reynslu og/eða þekkingu á sviði barna- verndar, stjórnunar og rekstrar. Stöðu yfirmanns við Móttöku- og meðferðarstöð fyrir ung- linga (áður Unglingaheimili ríkisins). Stofnunin sinnir bráðavistun/neyðarvistun auk skammtíma- og eftirmeð- ferðar fyrir unglinga. Umsækjendur skulu hafa háskóla- menntun auk reynslu og/eða þekkingar á sviði meðferðar bama- og unglinga. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf berist félagsmálaráðuneytinu fyrir 30. júní nk. Félagsmálaráðuneytið, 26. maí 1994. Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar óskar eftir góð- um og traustum sveitaheimilum fyrir 6-12 ára börn til sumardvalar. Nauðsynlegt er að viðkom- andi hafi reynslu af barnauppeldi. Upplýsingar gefa Harpa Ágústsdóttir og Ingelise Allentoft, uppeldis- og félagsráðgjafar í síma 53444 milli kl. 15.00 og 16.00 alla virka daga. Félagsmátastjórinn í Hafnarfirði. Leikskólar Reykjavíkurborgar Lausar eru til umsóknar stöður leikskólakennara í eftir- talda leikskóla: Álftaborg v/Safamýri, s. 812488. Fálkaborg v/Fálkabakka, s. 78230. Heiðarborg v/Selásbraut, s. 77350. Þá vantar leikskólakennara og matreiðslufólk í neðan- greinda nýja leikskóla: Funaborg v/Funafold, s. 879160. Lindarborg v/Lindargötu, s. 15390. Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277. Leikskólar Reykjavíkurborgar Leikskólastjóri Staða leikskólastjóra við leikskólann Laufásborg við Laufásveg er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 10. júní nk. Leikskólakennaramenntun áskilin. Nánari upplýsingar gefa Bergur Felixson framkvæmda- stjóri og Margrét Vallý Jóhannsdóttir deildarstjóri í síma 27277. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.