Alþýðublaðið - 31.05.1994, Side 5

Alþýðublaðið - 31.05.1994, Side 5
Þriðjudagur 31. maí 1994 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 A-listi Jafiiaðarmanna íKópavogi: Möguleikará meirihluta- samstarfi „ÉG HEF aldrei farið dult með það að við vilj- um gjarnan starfa í meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs“, sagði Guðmundur Oddsson, fyrsti maður á Iista Jafnaðarmanna í Kópavogi, þegar Alþýðublaðið ræddi við hann í gær. Hann vísaði á bug fréttum sem birtar voru í gær um viðræð- ur við Sjálfstæðisflokkinn. Engar slíkar viðræð- ur hefðu farið fram. „Við erum að sjálfsögðu svekktir yfir því mikla fylgi sem við misstum í kosningunum. Það er ljóst að við töpuðum ekki fylgi til meirihlutaflokkanna tveggja, heldur til Kvennalista. Það er bókstaf- lega útilokað að átta sig á hvernig þessi samgang- ur jgat átt sér stað“, sagði Guðmundur. I Kópavogi fékk A-listi Jafnaðarmanna 1.580 atkvæði og tvo menn kjörna - töpuðu einum bæj- arfulltrúa yfir til Kvennalistans, og 5,8% af at- kvæðum frá því í kosningunum 1990, sem er ná- kvæmlega sama hundraðshlutfall og Kvennalisti bætti við sig nú. Helga E. Jónsdóttir bæjarfull- trúi féll því út úr bæjarstjórn. Sjálfstæðismenn sem gældu við hreinan meirihluta, misstu nokk- urt fylgi, en héldu sínum 5 bæjarfulltrúum. Framsókn fékk 1 mann kjörinn og Alþýðu- bandalag 2 sem fyrr. Staðan sýnist því óbreytt frá því á síðasta kjör- tímabili, meirihlutaflokkarnir eru með sömu styrkleikahlutföll. En áframhaldandi samvinna flokkanna er þó hreint ekki tryggð. Sjálfstæðis- menn tilkynntu Gunnar Birgisson sem bæjar- stjóraefni sitt fyrir kosningar, svo fremi að að- stæður sköpuðust til þess. Sigurður Geirdal er sagður vilja embættið áfram, auk þess sem sagt er að Framsóknarflokkurinn vilji meiri völd en á fyrra kjörtímabili. Sjálfstæðisflokkur er sagður tregur til að láta bæjarstjórastólinn af hendi öðru sinni og býður Sigurði að verða formaður bæjar- ráðs. Sjálfstæðismenn og Framsókn hafa fundað um málin, síðast í gær, og áframhald viðræðna fyrirhugað. Svo kann að fara að sjálfstæðismenn leiti til annarra flokka um meirihlutasamstarf næstu fjögur árin og í umræðunni mun vera að auglýsa bæjarstjóraembættið laust til umsóknar. Ekki er talið að sjálfstæðismenn leiti til Helgu Sigurjóns- dóttir, kvennalistakonu, - fremur til Guðmundar Oddssonar eða Valþórs Hlöðverssonar, efsta manns Alþýðubandalagsins. Á Kópavogsgötum í gær var einkum rætt um Sjálfstæðisflokk og AI- þýðubandalag sem samstarfsaðila næsta kjör- tímabil og hafa þeir flokkar ræðst við. A-listi Alþýðuflokksins íMosfelIsbæ: íhaldið fallið A-listi ALþýðuflokksins í Mosfellsbæ náði ekki inn manni í þetta skiptið en naumt var það. Sjálf- stæðisflokkurinn beið afhroð, fékk þrjá menn kjörna og missti áratuga gamlan meirihluta, Framsóknarflokkur og Alþýðubandalag fengu bæði tvo menn kjörna. Við ræddum við efsta mann á A-listanum, Bjarnþór Aðalsteinsson: , Ja, ég er nú ekki mjög ánægður með minn hlut þar sem við náðum ekki manni inn. Það vantaði 2,4 prósent uppá. En það voru mikil og óvænt tíðindi hér í Mosfellsbæ að íhaldið féll í þessum kosningum. Við jafnaðarmenn fórum seint af stað í baráttuna og vorum í gífurlega miklu tímahraki. Ástandið hér var nú þannig að félagsstarf jafnaðarmanna hafði legið niðri meira og minna í sex ár þannig að það var við erfiðar aðstæður að etja. En aðalmálið hjá okkur nú er að vera tilbúin í Alþingiskosningarnar og leggja okkar skerf þar af mörkum. Annars má nefna það að bæði framsóknar- menn og alþýðubandalagsmenn viðurkenna að án okkar atbeina hefði meirihlutinn ekki fallið í Mosfellsbæ. Þannig að við getum sjálfsagt nokk- uð vel við unað. Við náum inn manni næst, það er engin spurning. Kjarninn í þessu máli er að við hefðum þurft að hafa betri tíma og meira næði til að byggja upp starflð og KOSNINGAUMFJOLLUN kynna okkur. En það kemur næst. Fyrir utan hin sögulegu úrslit hér í bæ þá ber sigur Reykjavíkurlistans og fall sjálfstæðis- manna í Reykjavík hæst. Það fer síðan nokkuð eftir forystumönnum flokkanna hvernig unnið er úr þessu R-listadæmi. Ef Reykjavíkurlistinn nær sér á strik þá er þetta sennilega upphaflð að tveggja flokka kerfi. Þetta eru náttúrulega dálítið ólík öfl á Reykjavíkurlistanum og talsvert ber í milli en þannig er það nú líka í Sjálfstæðisflokkn- um. Þetta kemur í ljós með tímanum,“ sagði Bjarnþór Aðalsteinsson. K-listi óháðra og alþýðuflokksmanna í Sandgerði: Hreinn meirihluti f SANDGERÐI náði K-listi óháðra og alþýðu- flokksmanna hreinum meirihluta, fjórum mönn- um. Sjálfstæðisflokkurinn fékk tvo menn kjörna og Framsóknarflokkurinn einn. Við náðum tali af Pétri Brynjarssyni á K-listanum: „Við á K-listanum unnum gífurlega vel. Kosn- ingabaráttan var góð hjá okkur - reyndar lang- best - og við uppskárum eftir því. Við unnum einfaldlega langbest. Við græddum sjálfsagt mest á því að hafa boðið upp á reynslumikið fólk og konur sem áttu raunhæfan möguleika á sæti í bæjarstjórn. Það skiiaði okkur miklu. Við ætlum að funda í kvöld, mánudagskvöld, og líta á stöðuna í rólegheitum. Ég á ekki von á miklum breytingum á starfi okkar. K-listinn hér í Sandgerði á sér áratuga langa sögu og fólk þekkir vel til okkar. Kosningabaráttan var prúð- mannleg og fór vel fram. Sé litið yfir úrslitin á landsvísu þá finnst mér hreint ótrúlegt að Sjálfstæðisflokkurinn skuli ekki tapa meiru. Alþýðuflokkurinn virðist hafa tekið á sig slæmu hlutina frá ríkisstjórninni. Al- þýðuflokkurinn var einnig minna í sviðsljósinu en oft áður vegna þátttöku í sameiginlegum framboðum einsog Reykjavíkurlistanum og það hafði náttúrulega sitt að segja. Einnig held ég að óheppilegar stöðuveitingar sem Alþýðuflokkur- inn átti hlut í hafi komið okkur illa og séu ein af ástæðunum fyrir ekki nógu góðu gengi flokks- ins,“ sagði Pétur Brynjarsson. A-listí Alþýðuflokksins á Sauðárkróki: / Aframí meirihluta Á SAUÐÁRKRÓKI var bæjarfulltrúum fækkað úr níu í sjö. ÖHum að óvörum hélt meiri- hlutinn samt velli og hefur þegar verið gengið frá áframhaldandi samstarfi Alþýðuflokks með einn mann, K-Iista með einn og D-Iista með tvo full- trúa. Framsókn fékk tvo menn og Alþýðubanda- lag einn. „Við óttuðumst að með því að fækka bæjar- fulltrúum um tvo eða úr níu í sjö kæmi það harð- ast niður á fylgi ríkisstjórnarflokkanna. Urslitin urðu hins vegar þau að D- listinn tapaði ekki miklu og Alþýðuflokkurinn bætti heldur við sig. K-Iisti óháðra hélt sínu fylgi en þessir listar mynduðu meirihlutann. Það er þegar búið að ganga frá áframhaldi á þessum meirihluta,“ sagði Björn Sigurbjörnsson bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins á Sauðárkróki. Björn verður áfram formaður bæjarráðs. Af þeim tveimur fulltrúum sem fækkað var um fór annar frá D- lista en hinn frá B-lista. Al- þýðubandalagið bætti við sig fylgi en ekki nóg til að bæta við manni. A-listínn á Siglufirði: Meirihlutinn heidur ALÞÝÐUFLOKKURINN fékk álíka fylgi í kosningunum á Siglufirði og hann hafði áður og tvo menn kjörna. Flokkurinn myndar áfram meirihluta í bæjarstjórn ásamt Öháðum sem unnu mann af Framsóknarflokki og fengu fjóra fulltrúa. „Ég hefði viljað fá 35 til 40 atkvæði í viðbót til að halda sama fylgi og áður. Það var mikil breyt- ing á kjörskrá frá því við síðustu kosningar og við fengum talsvert af nýjum kjósendum. en það vantaði svolítið upp á að við héldum óbreyttu fylgi. Hins vegar eru þessi úrslit svo sem ekki slæm þegar á heildina er litið,“ sagði Kristján Lúðvík Möller sem er bæjarfulltrúi Alþýðu- flokksins á Siglufirði ásamt Ölöfu Kristjánsdótt- ur sem skipaði annað sæti flokksins. Kristján sagði að hið mikla fylgi Óháðra, F- lista, hefði komið nokkuð á óvart. Hins vegar hcfðu Óháðir lagt mikla áherslu á það fyrir kosn- ingar að halda óbrevttum meirihluta og það hefði tekist auk þess sem Björn Valdimarsson bæjar- stjóri væri vinsæll maður. Sjálfstæðisflokkurinn fékk tvo fulltrúa og Framsóknarflokkurinn einn. A-listí Alþýðuflokksins á Skagaströnd: Bættí mikið við sig Á SKAGASTRÖND voru þrír listar í kjöri. A- listi Alþýðuflokks fékk einn mann en S-listi Skagastrandarflokksins fékk fjóra menn kjörna. G-listi Alþýðubandalags fékk engan mann. „Við bættum verulega við okkur fylgi og feng- um nú 92 atkvæði eða 22,5% atkvæða en höfðum áður 56 atkvæði. Ég reiknaði ekki með að við næðum svo góðum árangri því það var lagt hart að okkur að bjóða fram með S-Iistanum. Urslitin sýna að Alþýðuflokkurinn á hér orðið harðan kjarna sem vinnur mjög vel og skipulega,“ sagði Steindór Haraldsson efsti maður á lista Alþýðu- flokksins á Skagaströnd. Við kosningarnar 1990 voru fimm listar í kjöri. Þá fékk A- listi 14,3 prósent atkvæða og einn mann, B-listi 19 prósent og einn mann, D-Iisti 27,5 prósent og tvo menn, G-listi 13,5 prósent og engan mann og H-listi 25,7 prósent og einn mann. Nú komu hins vegar aðeins fram þrír listar sem fyrr segir. Steindór sagði að Skagastrandarflokkurinn hefði ætlað sér alla fimm fulltrúana en það hefði ekki tekist. Steindór sagði Alþýðuflokksmenn hafa unnið vel fyrir kosningarnar og það hefði svo sannarlega skilað sér á kjördag. A-listi jafnaðarmanna og óháðra í Snæfellsbæ: Uppskeran framar vonum I HINU nýstofnaða sveitarfélagi Snæfellsbæ fékk A-listi jafnaðarmanna og óháðra tvo menn kjörna, þá Svein Þór Elinbergsson og Gunnar Már Kristófersson og alls 21,6% atkvæða. Sjálf- stæðisflokkurinn fékk 4 fulltrúa, Framsóknar- flokkurinn tvo og Alþýðubandalagið einn. Við spjölluðum stuttlega við Svein Þór, efsta mann á A-lista jafnaðarmanna og óháðra: „Við erum afar ánægð. Vorum nokkuð viss um að einn maður næðist inn, en okkar björtustu vonir gengu út á tvo fulltrúa. Það gekk eftir þannig að við hljótum að vera afar sátt. Kosn- ingabaráttan var skemmtileg og málflutningur okkar jafnaðarmanna, sem grundvallaður var á vandaðri málefnaskrá, hefur gengið vel í fólk. Listinn var borinn fram af nýstofnuðu Jafnaðar- mannafélagi Snæfellsbæjar í samvinnu við óháða borgara. Mikil endurnýjun var í starfinu og kraftmikið fólk kom inn. Við byrjuðum formlegan undirbúning kjör- tímabilsins strax daginn eftir kosningar með stofnun bæjarmálaráðs og göngum óbundin til viðræðna um meirihlutamyndun. Þar koma nokkrir möguleikar til greina. Þreifingar eru enn ekki hafnar en boltinn er hjá Sjálfstæðisflokkn- um. Það sem mest kom á óvart í kosningunum hérna var uppgangur íhaldsins og góð útkoma okkar jafnaðarmanna," sagði Sveinn Þór Elin- bergsson. A-listí Alþýðuflokksins í Suðumesjabæ: Meirihlut- anum veitt öflugtað- hald KOSNINGAÚRSLITIN í Suðurnesjabæ komu mörgum á óvart. Hið nýja sveitarfélag varð til við sameiningu Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafnarhrepps. Kosið var um 11 bæjarfulltrúa og urðu úrslit þau að Sjálfstæðisflokkurinn fékk fjóra, Alþýðuflokkurinn þrjá, Framsóknarflokk- urinn tvo og Alþýðubandalagið tvo. „Þetta eru ekki þau úrslit sem við vildum sjá og fylgi Alþýðuflokksins náði ekki því sem við áttum von á. Þó höfum við greinilega sótt á mið- að við skoðanakannanir þar sem okkur var spáð tveimur fulltrúum. En við munum veita harða og öfluga stjórnarandstöðu,“ sagði Anna Margrét Guðmundsdóttir oddviti Alþýðuflokksins í Suð- urnesjabæ. Auk hennar náðu kjöri af A- lista þeir Ragnar Halldórsson og Kristján Guð- mundsson. „Það var margt sem kom á óvart í þessum kosningum. G-listinn náði tveimur fulltrúum öll- um að óvörum og sennilega hafa þeir sjálfir orð- ið mest hissa því þeir hafa ekki átt fulltrúa hér í átta ár. En þeir hömruðu stöðugt á því fyrir kosningar að við blasti alræði D-listans og sá áróður virðist hafa dugað þeim vel,“ sagði Anna Margrét ennfremur. Hún sagði að Alþýðuflokk- urinn hefði átt á brattann að sækja og þar hefðu landsmálin spilað inn í ásamt fleiru. Éramsókn og Sjálfstæðisflokkur hefðu flýtt sér að mynda meirihluta. Þessir flokkar hefðu áður setið saman í meirihluta í bæjarstjórn Keflavíkur í 16 ár þar til Alþýðuflokkurinn velti þeim úr sessi við kosn- ingarnar 1986. „Ég sé eftirá að við höfum ekki gætt þess nóg að kynna störf okkar í bæjarstjórn út á meðal kjósenda. Við vorum á kafi í að vinna að góðum málefnum en vanræktum kynninguna. En ég vil þakka öllum þeim sem studdu okkur og lögðu fram vinnu við kosningabaráttuna. Við munum vinna af alefli að framgangi góðar mála enda studdi fjórði hver kjósandi Alþýðuflokkinn,“ sagði Anna Margrét Guðmundsdóttir. Vestmannaeyjalistírai í Vestmannaeyjum: Arásir íhaldsins í VESTMANNAEYJUM fékk Vestmanna- eyjalistinn, sem Alþýðuflokkurinn tók þátt í, tvo menn kjörna, Sjálfstæðisflokkurinn fékk í jóra menn og Il-Iisti óháðra einn. Við hringdum í Guðmund Þ.B. Ólafsson, sem skipaði efsta sæti V-listans: „Það var hreint út sagt hroðaiegt að vakna upp við þetta. Það tókst ekki það sem við ætluðum okkur. Meirihluti bæjarbúa hefur valið og við því er svo sem ekkert að segja. Við þurfum nú að skoða okkar mál og meta stöðuna. Það er greini- legt að stór hópur bæjarbúa var óánægður með Vestmannaeyjalistann. En það sem mér er efst í huga er þakklæti til þeirra sem studdu okkur og unnu með okkur að þessu framboði. En þetta var reynt og við þurfum að líta á hvort þetta ber að gera aftur. Kosningabaráttan hér var gífurlega persónu- leg af hálfu Sjálfstæðisflokksins og miklar sví- virðingar þeirra í garð einstaklinga voru áber- andi. Það er í raun grátlegt að þeir skuli ekki hafa uppskorið einsog þeir áttu skilið. Þetta voru mik- il átök þar sem við hinir rembdumst við að vera málefnalegir en máttum okkar lítils. Annars eru stærstu og merkilegustu úrslitin yfir landið í Reykjavík og Mosfellsbæ þar sem íhaldinu var veittur reisupassinn af kjósendum. Það voru sannarlega söguleg úrslit,“ sagði Guð- mundur Þ.B. Ólafsson.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.