Alþýðublaðið - 08.06.1994, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FLOKKSÞING
Miðvikudagur 8. júní 1994
Rannveig Guðmundsdóttir
er annar ábyrgðarmanna
málefnahóps um efnahags-
og atvinnumál:
Starfs-
menntun er
forgangs-
verkefni
„Þegar við í málefnahópn-
um fórum að ræða atvinnu-
málin fannst okkur skipta
mestu máli að fjalla um lyk-
ilatriði í stefhu flokksins á
næstu misserum enda eru
langtímamarkmiðin skýr. Á
þessum atvinnuleysistímum
er mikilvægast að atvinnu-
leysið verði ekki varanlegt
og álykmnin mótast af því,“
sagði Rannveig Guð-
mundsdóttir alþingismaður
sem er ábyrgðarmaður málefnahóps um efnahags- og at-
vinnumál ásamt Braga Guðbrandssyni aðstoðarmanni
félagsmálaráðherra.
, Jafnaðarmannaflokkar í Evrópu hafa lagt mikla áherslu
á uppbyggingu í atvinnulífinu og sendu meðal annars út
sameiginlegt ávarp 1. maí. Megininntak þess var að hvetja
til fjárfestinga í atvinnulífinu og fjárfestinga í menntun og
þá ekki síst starfsmenntun. Þessi sjónarmið endurspeglast
meðal annars í okkar ályktun. Starfsmenntun og þá eink-
um atvinnulausra þarf að vera forgangsverkefni. Atvinnu-
átak á að vera samstarfsverkefni ríkis, sveitarfélaga, fyrir-
tækja og aðila vinnumarkaðarins. Nýsköpun í atvinnulíf-
inu þarf ekki síst að miðast við atvinnuþáttöku kvenna,
ungs fólks, fatlaðra og þeirra sem hafa búið við langvar-
andi atvinnuleysi,“ sagði Rannveig Guðmundsdóttir.
Hörður Zóphaníasson, annar
ábyrgðarmanna málefnahóps
um menntamál, segir að
kjarni ályktunar hópsins sé:
Menntun til
Birgir Hermannsson er annar
ábyrgðarmanna málefnahóps
um kjördæma- og
kosningamál:
Aherslaá
nýsköpunar
„Ályktun um menntamál
verður allítarleg þar sem er
tekið á mörgum atriðum og
horft ffam til breyttra tíma.
Það má segja að kjami stefn-
unnar sé menntun til nýsköp-
unar,“ sagði Hörður Zóphan-
íasson skólastjóri sem er
ábyrgðarmaður málefnahóps
um menntamál ásamt Margr-
éti Björnsdóttur aðstoðar-
manni iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra.
„Menntun til nýsköpunar er ætlað að svara kalli kom-
andi tfma. Við horfum til nánari tengsla við atvinnulífið og
gjörbreytt atvinnulíf í heimi nýjustu tækni svo sem ljós-
leiðara. Atvinnuvegir eru kanski að færast meira úr stórum
húsum og inn á heimili fólks þar sem það situr við tölvuna
og vinnur. Við viljum líka færa stjómunina nær skólunum,
sem næst vettvangi, þannig að skólinn eigi auðveldara
með að aðlaga sig að kringumstæðunum. Þá leggjum við
áherslu á rammastjómun sem skólinn útfærir síðan sjálf-
ur,“ sagði Hörður Zóphaníasson.
Hann sagði að ályktunin væri yfirgripsmikil og þar væri
tekið á mörgum atriðum. Óhætt væri að segja að þama
kæmi fram róttækt stefna í menntamálum.
jöfnun
kosninga-
réttar
„í ályktun málefnahópsins er lögð áhersla á jöfnun kosn-
ingaréttar allra landsmanna. Besta leiðin til að ná því
markmiði er að landið verði allt gert að einu kjördæmi.
Enda hefur það verið baráttumál Alþýðuflokksins allar
götur síðan fyrir 1930,“ sagði Birgir Hermannsson að-
stoðarmaður umhverfisráðherra, en hann er ábyrgðarmað-
ur málefnahóps um kjör-
dæma- og kosningamál ásamt
Vilhjálmi Þorsteinssyni
kerfisfræðingi.
„Með því að gera landið að
einu kjördæmi má ná fram
fjómm markmiðum í einu. í
fyrsta lagi verður kosninga-
réttur allra landsmanna jafn, í
öðm lagi jafnast þingstyrkur
og kjörfylgi flokka og í þriðja
lagi aðlagast slíkt kerfi sjálf-
krafa breytingum í atvinnu-
háttum og búsetu. í fjórða lagi kemur þetta fyrirkomulag í
veg fyrir hrepparíg og óeðlilega hagsmunagæslu. Við för-
um ekki út í nánari útfærslu á þessum breytingum heldur
setjum fram ákveðna valmöguleika. En jafn atkvæðisréttur
er gmndvallarmannréttindi og það verður að einfalda
kosningalögin og auka valfrelsi kjósenda um einstak-
linga,“ sagði Birgir Hermannsson.
Magnús Arni Magnússon
er annar ábyrgðarmanna málefnahóps um Evrópumál:
Evrópumálin munu vigta þungt í
störfum þingsins
„Málefnahópur um Evr-
ópumál hefur komið nokk-
uð oft saman og lagt gífur-
lega mikla vinnu í sín verk.
Við komum til með að skila
afar ítarlegum tillögum um
framtíðarstefnu Jafnaðar-
mannaflokks íslands í Evr-
ópumálum. Menn hafa lagt
mikið undir til að móta
þessar tillögur og fórnfúst
starf verið innt af hendi.
Bara það að þessi hópur
skuli hafa verið settur á laggimar sýnir að vissulega er
þetta mál á dagskrá þingsins og kemur til með að vigta
þungt í störfum þess. Hvað sem hver segir eru Evrópu-
málin mál málanna um þessar rnundir," segir Magnús
Ámi Magnússon sem ásamt Jóni Baldvini Hannibais-
syni utanríkisráðherra hefur stýrt Evrópumálahópnum.
„Ég verð náttúrulega að segja það sem formaður Sam-
bands ungra jafnaðarmanna að tillögur málefnahóps Al-
þýðuflokksins um Evrópumál ganga ef til vill ekki eins
langt og við ungir jafnaðarmenn hefðum viljað. Við SUJ-
arar komum engu að síður sterkir til þingsins með tillög-
ur SUJ í farteskinu. Þær grundvallast á þeirri fjögurra ára
gömlu stefnu Sambands ungra jafnaðarmanna að Island
eigi tafarlaust að sækja um aðild að Evrópusambandinu.
Það að ég sem formaður SUJ - samtaka með þessa
ákveðnu stefnu - hafi verið valinn sem annar ábyrgðar-
manna Evrópumálahópsins sýnir glögglega að borin er
virðing fyrir Evrópustefnu SUJ innan flokksins. Ég tel
þess sjá stað í tillögum málefnahópsins.
Það er ungra jafnaðarmanna von og trú að þessa 47.
flokksþings Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks ís-
lands - verði ekki minnst á spjöldum sögunnar sem
átakaþings sem snérist fyrst og fremst um formanns-
kosningar heldur sem þings sem tók afdrifaríkar ákvarð-
anir um framtíðarstefnu íslenskra jafnaðarmanna;
ákvarðanir sem reyndust upphafið að breiðfylkingu jafn-
aðarmanna til framtíðar. Þar skipta Evrópumálin afar
miklu,“ segir Magnús Ámi.