Alþýðublaðið - 08.06.1994, Qupperneq 5
Miðvikudagur 8. júní 1994
FLOKKSÞING
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5
Gísli S. Einarsson er annar
ábyrgðarmanna málefnahóps
um landbúnaðar- og
neytendamál:
„Það hefur oft verið litið á
okkur í Alþýðuflokknum sem
óvini bændastéttarinnar. Það
er auðvitað hinn mesti mis-
skilningur. Við höfum gagn-
rýnt, einkum milliliðakerfið,
en óvinir bænda erum við
hreint ekki“, segir Gísli S.
Einarsson alþingismaður
sem stýrt hefur málefnahópi
flokksins sem fjallað hefur
urn landbúnaðar- og neyt-
endamál, sem samið hefur
drög að ályktun um þau mál sem lögð verða fyrir flokks-
þingið. Ásamt Gísla hefur Bolli Runólfur Valgarðsson,
formaður Félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík, stýrt
hópnum.
Gísli segir að á flokksþinginu verði margt lagt fram sem
er til bóta fyrir íslenskan landbúnað, þegar horft er til
framtíðar.
f drögunum segir Gísli að einmitt sé lögð áhersla á að á
íslandi fái að dafna öflugur og sjálfstæður landbúnaður
dugmikilla bænda. Þeir eigi að geta lifað sómasamlegu lífi
af búrekstri sínum án þeirrar miklu ríkisforsjár sem hafi
sligað þá undanfama áratugi.
„Við leggjum á það áherslu að bændur og neytendur
eiga sameiginlega hagsmuni, sem hljóta að byggjast á
frjálsu markaðskerfi. Við fögnum hagræðingu í landbún-
aði sem hefur orðið til að lækka vöruverð til neytenda,
enda þótt enn sé það of hátt. Við teljum að með takmörk-
uðum innflutningi og samkeppni afurðastöðva skapist að-
stæður til að lækka verð til neytenda enn frekar. Jafnaðar-
menn telja það brýnt að sátt ríki milli neytenda annars veg-
ar og bænda hinsvegar“, sagði Gísli.
GATT-samningnum er fagnað í drögum málefnahópsins.
Sá samningur auki frelsi og eðlilega samkeppni í alþjóð-
legum viðskiptum með landbúnaðarafurðir. En Gísli segir
að jafnaðarmenn séu ekki boðberar hugmynda um óheftan
innflutning erlendra, niðurgreiddra landbúnaðarvara, en
leggi áherslu á eðlilegan umþóttunartíma. íslenskum
bændum sé fyllilega treystandi til að standast samkeppni á
jafnréttisgrundvelli við innfluttar búvörur, enda standi þeir
sig frábærlega í framleiðslunni þegar miðað er við bændur
sem búa við svipuð skilyrði á norðurslóðum.
Þá sagði Gísli S. Einarsson að Alþýðuflokkurinn vilji
aðstoða þá sauðfjárbændur sem vilja bregða búi með því
að tryggja þeim viðunandi lífsafkomu næstu árin á eftir.
Þannig er rætt um að ríkið kaupi jarðir eða ákveðinn hluta
jarða til afnota fyrir þéttbýlisbúa fyrir skógrækt, sumarbú-
staði og útivist. „I þessu endurspeglast stefna okkar jafnað-
armanna um að landið er sameign þjóðarinnar", sagði
Gísli S. Einarsson.
Umhverfísmál eru
peningamál, segir Njáll
Harðarson, annar
ábyrgðarmanna málefnahóps
um umhverfismál:
Landgræðsla
og skógrækt í
umhvcrfls-
ráðuneytíð
semverði
styridogeflt
áallalund
„í málefnavinnu okkar fyrir
flokksþing Alþýðuflokksins
höfum við lagt áherslu á það
meðal annars að Islendingar
verða að gera sér grein fyrir
því að markviss umhverfis-
vemd er afar mikilvæg og
skiptir hvem einasta íslend-
ing stóm fjárhagslegu máli. í
raun er hún lykillinn að vel-
ferð okkar í þessu landi. Þær
náttúruauðlindir sem við eig-
um em enn ómengaðar og
gjöfular, og þeirra viljum við njóta til frambúðar og verð-
um þá að beijast harðri baráttu fyrir því að svo verði
áfram. Það er ekki víst að svo verði, ef við sofum á verðin-
um“, sagði Njáll Harðarson, sem ásamt Össuri Skarp-
héðinssyni er ábyrgðarmaður málefnahópsins, sem fjallað
hefur um umhverfismál og leggur ffam drög að ályktunum
fyrir 47. flokksþingið í Suðumesjabæ um helgina.
Njáll sagði að umhverfismál og sjálfbær þróun væri for-
senda allrar búsetu hér á landi, þar sem matvælafram-
leiðsla skipti svo miklu máli í afkomu landsmanna. Þá
mætti benda á að aukin ferðalög útlendinga til landsins
væm tengd hreinleika landsins og væri forsenda þess að
byggja mætti upp öfluga ferðamannagrein.
„I því skyni að taka megi umhverfismálin fastari tökum
leggjum við til að umhverfisráðuneytið verið styrkt og eflt
á alla lund. Teljum við að forsenda fyrir því sé sú að sem
flestar stofnanir sem fjalla um þau málefni er varða vemd-
un lands, lofts og lagar, ásamt landgræðslu og skógrækt
heyri undir umhverfisráðuneytið", sagði Njáll.
Þröstur Ólafsson, annar
ábyrgðarmanna málefnahóps
um Velferðarmál og
ríkisfjármál:
Almennum
skatta-
hækkunum
hafiiaðen
Qármagns-
og hátekju-
skattí fagnað
„Við leggjum þunga
áherslu á ábyrgð íslenskra
jafnaðarmanna á velferðar-
kerfinu. Það kerfi er forsenda
jöfnuðar og félagslegs rétt-
lætis í samfélaginu og um
velferðarkerfið er brýn nauð-
syn að standa vörð“, sagði
Þröstur Ólafsson, aðstoðar-
maður utanríkisráðherra og
annar ábyrgðarmanna mál-
efnahóps, sem gert hefur
drög að ályktunum 47.
flokksjrings Alþýðuflokksins um velferðarmál og ríkisfjár-
mál. Ásamt Þresti hefur Sigbjörn Gunnarsson alþingis-
maður stýrt hópnum.
Þröstur Olafsson segir að jafnframt verði bent á að á
vissum sviðum hafi velferðarkerfi okkar vaxið úr sér.
Nauðsynlegt og eðlilegt sé að endurmeta sjálfvirkni þess
og framtíðarþróun.
„Við bendum ennfremur á þá staðreynd að enn stendur
yfir efnahagslegur samdráttur, sem ekki er séð fyrir end-
ann á. Þótt náðst hafi mikill og góður árangur á ýmsum
sviðum efnahagsmála þá eru atvinnuleysið og ríkissjóðs-
hallinn helstu vandamálin sem vinna þarf bug á og það hið
fyrsta“, sagði Þröstur.
í drögunum er lagt til að samþykkt verði rammafjárlög
til lengri tíma. Alþýðuflokkurinn muni ekki skorast undan
ábyrgð til að ná fram spamaði í ríkisútgjöldum. Skulda-
staða þjóðarinnar er komin að hættumörkum, segir í álykt-
unardrögum hópsins, snúa verður við af þeirri braut og
efla spamað og aðhald í ríkisrekstri.
Þá sagði Þröstur að í drögunum væri gert ráð fyrir að
flokksþingið samþykkti að Alþýðuflokkurinn hafnaði al-
mennum skattahækkunum en jafnframt væri ítrekaður
stuðningur við fjármagnstekjuskatt og framlengingu há-
tekjuskattsins.
Þá em gerðar tillögur í nokkmm liðum um aðgerðir til
lausnar á atvinnuleysi og tillögur til endurbóta og aðhalds í
heilbrigðismálum. Bent er á að lífeyriskerfið sé veikburða
og veiti mismunandi réttindi. Þar sé enn of margt eldra
fólk sem búi við skort og líði örbirgð.
Þá sagði Þröstur að bent væri á árangur sem náðst hefur í
málefnum fatlaðra og bama.
Jafnaðar-
mennengir
óvinir bænda