Alþýðublaðið - 08.06.1994, Síða 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Tillögur
laganefndar
umlaga-
breytíngar á
47. flokksþingi
Lög Alþýðuflokksins -
Jainaðarmannaflokks
Islands - XV. Kafli:
„Tillögur um breytingar á
lögum þessum skal senda til
flokksskrifstofu ekki síðar en
mánuði fyrir flokksþing og skal
framkvæmdastjómin þá senda
allar tillögur til lagabreytinga til
flokksfélaganna fyrir flokks-
þing. Á flokksþinginu skulu
hafðar tvær umræður um laga-
breytingar. Til lagabreytinga
þarf tvo þriðju greiddra at-
kvæða.
Lög þessi eru samkvæmt
samþykkt 40. flokksþings Al-
þýðuflokksins, og með breyt-
ingum, sem gerðar voru á 41.,
42., 43., 44., 45. og 46. þingi
flokksins."
Tillaga frá laganefnd:
„Laganefnd leggur til við 47.
flokksþing Alþýðuflokksins -
Jafnaðarmannaflokks íslands -
að skipuð verði 5 manna nefnd
er vinni að heildarendurskoðun
laga flokksins, og skili tillögum
fyrir næsta flokksþing.
Ljóst er að ýmis atriði núver-
andi laga þarf að lagfæra, skerpa
á áhersluatriðum og skilgreina
frekar en gert er, skyldur og fyr-
irkomulag starfa þeirra sem
kjörnir eru til trúnaðarstarfa á
vegum flokksins.
Hér er á ferðinni yfírgrips-
mikið og tímafrekt verk, en
mjög tímabært.
Laganefnd leggur til að tillög-
unni verði vísað til fram-
kvæmdastjómar sem tilnefni 5
manns í nefndina strax að loknu
þessu 47. flokksþingi.“
Tillaga sem vísað var til
Iaganefndar á síðasta
flokksþingi:
„Á síðasta flokksþingi var
samþykkt að laganefnd mótaði
tillögur fyrir 47. flokksþing sem
nú fer í hönd, vegna tillögu um
að „sveitarstjómarmenn Al-
þýðuflokksins hafi full réttindi
til jafns við aðra kjöma fulltrúa í
flokksstjóm“.
I lögum flokksins 36. gr. seg-
ir:
„í flokksstjóm eiga sæti:
1. Framkvæmdastjóm flokks-
ins sbr. 34. gr.
2. 31 maður kosinn af kjör-
dæmisráðum Alþýðuflokksins
sbr. 20. gr.
3. Þrjátíu menn kosnir á
flokksþingi samkvæmt c lið 34.
gr-
4. Alþingismenn Alþýðu-
flokksins.
5. Formenn kjördæmisráða.
6. Formenn félaga.
7. Sveitarstjómarmenn Al-
þýðuflokksins með málfrelsi og
tillögurétt.
Laganefnd leggur til að
flokksþingið samþykki breyt-
ingu laganna þannig að í 36. gr -
7. lið segi:
„Sveitarstjómarmenn Al-
þýðuflokksins.“
Með þessari breytingu njóta
sveitarstjómarmenn Alþýðu-
flokksins réttinda til jafns við
aðra flokksstjómarmenn."
Tillaga frá Sambandi
Alþýðuflokkskvenna:
Varðandi 15. gr (sem gildir á
milli flokksþinga) - Kosning og
fulltrúar, hefur borist eftirfar-
andi tillaga frá Sambandi Al-
þýðuflokkskvenna:
„Samband Alþýðuflokks-
kvenna leggur til að 15. gr. laga
Alþýðuflokksins - Jafnaðar-
mannaflokks fslands gildi áfram
óbreytt.
Greinin hljóðar svo:
Við kjör í allar stofnanir
flokksins, þar sem kjósa skal 2
eða fleiri fulltrúa í einu, skal
hvort kyn eiga rétt til a.m.k.
40% fulltrúa, svo framarlega
sem nægilega margir em í fram-
boði.
Gildir þetta m.a. um kjör í
flokksstjórn skv. 21. gr. laga
þessara, kjör í framkvæmda-
stjóm og flokksstjóm skv. b og c
lið 34. gr., kjör í fræðsluráð skv.
38. gr., kjör í fjármálaráð skv.
39. gr„ kjör í verkalýðsmála-
nefnd skv. 40. gr. og kjör starfs-
hópa skv. 46. grein.
Þessi regla gildir fram að
næsta flokksþingi."
Island
SAMCÖNCUíABUNEmÐ llvll V !■
MmuBimiD
Miðvikudagur 8. júní 1994
Glefsur úr skýrslu Sigurðar Eðvarðs Amórssonar,
gjaldkera Alþýðuflokksins - Jafliaðarmannaflokks íslands:
Höfiini forgöngu um opnun
bókhalds stjómmáMokka
„Ég tel afar mikilvægt að
bókhald flokksins sé í sem
allra besta lagi og aðgengilegt
á hverjum tíma. Við höfum
ekkert að fela og eigum að
undirbúa okkur sent allra best
undir að hugsanlega verði
gerðar breytingar á lögum
varðandi bókhald stjómmála-
flokka, og jafnvel að hafa for-
göngu um slíkar breytingar,"
segir Sigurður Eðvarð Arn-
órsson meðal annars í skýrslu
sinni sem gjaldkeri Alþýðu-
flokksins - Jafnaðarmanna-
flokks Islands.
„Geysileg vinna hefur farið
í endurskipulagningu á með-
ferð' fjármuna í flokknum.
Mikið vantaði á að nægilegt
aðhald væri á málum og því
hefur gjaldkerinn oft þurft
að taka óvinsælar ákvarð-
anir og því fer fjarri að all-
ir hafi verið sammála um
niðurskurð og nirfilsskap,“
segir Sigurður Eðvarð.
„Á flokksþinginu verð-
ur gerð grein fyrir fjár-
hagslegri stöðu flokksins
samkvæmt bráðabirgða-
uppgjöri pr. 31 maí 1994.
Þar sem uppgjörstímabil
flokksins er frá 1. septem-
ber til 31. ágúst ár hvert
verður endanlegt uppgjör
að bíða þangað til eftir þau
tímamörk. Ég mun leggja
fullnaðaruppgjör fyrir
flokksstjómarfúnd eins og
lög kveða á um á haust-
dögum.
Á undanfömum tveimur
ámm má segja að öll fjár-
málaleg umsýsla flokksins
hafi verið brotin upp og
endurskipulögð. Það á
bæði við um tekju- og
gjaldaliði og einnig öll
vinnubrögð.
Frá síðasta flokksþingi
hefur bókhald flokksins
verið unnið i' nýtísku
tölvuforriti og þær kröfur
gerðar til vinnubragða að
þau standist allar þær kröf-
ur sem lög kveða á um og
löggiltir endurskoðendur
starfa eftir. Ég mun því í
haust skila af mér uppgjöri
með fullri áritun slíks lög-
gilts endurskoðenda.
I mfnum huga er málið
afar einfalt. Sá sem ekkert
á, hefur engu að eyða og sá
sem ekkert vill eignast get-
ur aldrei reiknað með að
verða nokkurs megnugur
fjárhagslega. Stjómmála-
flokkur eins og Alþýðu-
flokkurinn sem ekki teng-
ist neinum hagsmunasam-
tökum verður að vera fjár-
hagslega sjálfstæður og
hafa metnað til að efla sína
eiginfjárstöðu. Nú undir
það síðasta hefur orðið
mikil hugarfarsbreyting
innan flokksins og menn
gera sér æ betur grein fyrir
mikilvægi aðhalds og
metnaðarfullra vinnu-
bragða í meðferð fjár-
muna, þannig að kerfis-
bundin vinna í þessum
málaflokki er farin að skila
sér.
Tekjur em meiri en áð-
ur, rekstrarkostnaður er
minni en áður, skuldir hafa
minnkað vemlega, hlutfall
skulda er orðið viðunandi,
flokkurinn er allsstaðar í
skilum og hefur samt
getað tekið meiri
þátt í uppbyggingu
félagsstarfsins um
SIGURÐUR EÐVARÐ: „Stjórnmálaflokkur eins og Alþýðuflokkurinn sem ekki tengist
neinum liagsmunasamtökum verður að vera fjáriutgslega sjálfstœður og hafa metnað til
að efla sína eiginfjárstöðu.“
land allt, en áður hefur tíðkast.
Með tilkomu Ferðajöfnunar-
sjóðsins er brotið blað í félagslegri
stöðu þeirra sem kosnir em til að
taka þátt í flokksstarfmu og vænti
ég mikils af því, en hlutverk hans er
að styrkja þá sem kosnir em til trún-
aðarstarfá til að sækja fundi um
langan veg. Visst hlutfall árlegra
tekna flokksins er eymamerkt til
þessa verks og ekki má snerta höf-
uðstólinn nema með samþykki
flokksþings.
Ég vil þakka samstarfsfólki mínu
á aðalskrifstofu flokksins í Reykja-
vík fyrir ánægjulegt samstarf og
síðast en ekki síst þeim fjölmörgu
flokksmönnum sem hafa tekið mér
af mikilli velvild á ferðum mínum
um landið fyrir flokkinn, nú undan-
farið.“
Símaskráin '94
tvíefld og tilbúin
til afhendingar
Símaskráin 1994 kemur
nú út í tveimur bindum
Nafnaskráin geymir alla símnotendur, jafnt einstaklinga
sem fyrirtæki, skráða með síma- og faxnúmer.
í Atvinnuskránni eru símanúmer allra fyrirtækja, Gulu
síðurnar og svo Bláar síður með símanúmerum stjórnsýslu,
ríkis og sveitarfélaga.
Símaskráin er afhent á næsta afgreiðslustað Pósts ocfsíma
gegn framvísun afhendingarmiða. Símaskráin fæst
innbundin fyrir 185 kr.
Símaskráin tekur gildi 11.júní.
PÓSTUR OG SÍMI