Alþýðublaðið - 22.06.1994, Blaðsíða 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ
MOLAR
Miðvikudagur 22. júní 1994
Bröste verðlaunar Helgu Ingólfsdóttur
Helga Ingólfsdóttir semballeikari hefur verið
útnefnd til Bjartsýnisverðlaum Bröste þetta árið.
Hún mun veita verðlaunum viðtöku við hátíðlega
athöí'n í Kaupmannahöfn á sunnudaginn þar sem
forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, verður
meðal gesta.
Það er danski athafnamaðurinn Bröste sem hef-
urárlega frá 1981 veitteinum íslendingi verðlaun
fyrir bjartsýni og dugnað. Verðlaunin í ár nema 35
þúsund dönskum krónum eða sem svarar um 350
þúsund krónum íslenskum.
Helga Ingólfsdóttir hefur haldið íjölda tónleika
og hefur verið aðaldriffjöðurin í hinni árlegu Skál-
holtshátíð.
Fundur um mátefni Barentsráðsins
Ráðuneytisstjórar utanrfkisráðuneytisins, Róbert Trausti Árnason, og um-
hverfisráðuneytisins, Magnús Jóhannesson, áttu í gær fund með aðstoðarutan-
ríkisráðherra Noregs, Tore Gundersen, um málefni Barentsráðsins.
Noregur gegnir fonnennsku í Barentsráðinu og gerði aðstoðaioitanríkisráðherr-
ann grein fyrir stöðu mála og verkefnum í nánustu framtíð.
Af íslands hálfu var lögð áhersla á mikilvægi samstarfs innan Barentsráðsins til
að koma í veg íyrir frekari mengun í norðurhöfum vegna notkunar kjamorku og
losuriar geislavirks úrgangs. Einnig lögðu íslensku fulltrúamir áherslu á að staif
ýmissa samtaka, sem vinna að umhverfismálum á norðurslóðum, verði samræmt
eins og kostur er til að nýta sem best mannafla og ijármagn í umhverfismálum.
Ráðheirafundur Barentsráðsins verður haldinn í Tromsö 14. og 15. september
næstkomandi þar sem ráðherramir munu marka stefnu næsta árs, en Finnland tek-
ur þá við formennsku í ráðinu af Noregi.
Fyrsta ískndskvöldið í Norrœna húsinu
Annað kvöld, fimmtudags-
kvöld, klukkan 20 verður
íyrsta íslandskvöldið í Nor-
rœna húsinu á þessu sumri.
Ari Trausti Guðmundsson
jarðeðlisfræðingur flytur fyrir-
lestur á norsku um landafræði
íslands.
Á íslandskvöldum em
haldnir fyrirlestrar um land og
þjóð og er dagskráin einkum
ætluð Norðurlandabúum. Fyr-
irlestrarnir em því fluttir á einhveiju Norðurlandamálanna. Fyrirlesaramir em all-
ir sérfræðingar á sínu sviði og efnið fjölbreytt eftir því. Jarðfræði, bókmenntir,
handritin, umhverfismál, íslenskir fuglar, kvikmyndir og rímur. Að loknum fyrir-
lesU'i og kaffihléi er sýnd kvikmynd frá íslandi.
íslandskvöld verður á hveiju fimmtudagskvöldi til 18. ágúst. Fimmtudaginn 30.
júní mun Dagný Kristjánsdóttir bókmenntafræðingur fjalla um íslenskar bók-
menntir.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. AiþýðuUaðsmynd/Einaróiason
Kennslubók í knattspymu eftir Uneker
Mál og menning hefur sent frá sér
bókina „Knattspyma - fyrstu spor-
irí‘, kennslubók í knattspymu fyrir
byrjendur eftir enska knatLspyrnu-
manninn Gary Lineker.
Lineker er atvinnumaður í knatt-
spyrnu, hann hefur verið fyrirliði
enska landsliðsins og leikið tvívegis
í úrslitakeppni heimsmeistaramóts-
ins. í bókinni nýtir höfundur reynslu
sína til að kenna byrjendum öll
helstu tækniatriðin. Hann fræðir
unga knattspymumenn um leikregl-
ur, knattmeðferð og nokkrar leik-
flétlur. Bókina prýðir tjöldi ljós-
mynda sem skýra málið lið fyrir lið.
Bókinni fylgir veggspjald um
heimsmeistarakeppnina í knatt-
spyrnu sem nú stendur yfir f Banda-
ríkjunum, auk límmiða af búning-
um þeirra þjóða sem taka þátt í úr-
slitakeppninni.
G A R Y L 1 \ K K !í K
KNATTSPYRNA
-FYRSTU SPORIN-
Sighvatur á
ferð og flugi
Sighvatur Björgvinsson,
iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, hefur á undanföm-
um mánuðum ferðast uin land-
ið, kynnt sér starfsemi atvinnu-
fyrirtækja, efnt til almennra
funda um atvinnu- og iðnaðar-
mál og átt viðræður við sveitar-
stjómarmenn.
í júnímánuði heimsækir Sig-
hvatur ýmsa forsvarsmenn í
matvælaiðnaði í Reykjavík og
Hafnarfirði, kynnir sér starf-
semi fyrirtækja, skiptist á skoð-
unum við starfsfólk og ræðir
ástand og horfur í iðnaðinum.
Samtök iðnaðarins skipu-
leggja fundi og heimsóknimar
að þessu sinni, en hér er einkum
um að ræða fyrirtæki innan vé-
banda samtakanna í drykkjar-
vömiðnaði, sælgætisgerð, smör-
líkis- og lýsisframleiðslu,
brauða- og kökugerð, kexgerð
og kjötiðnaði. Framangreindar
iðngreinar skipta í heild gífur-
lega miklu máli fyrir atvinnust-
igið í landinu og leggja drjúgan
skerf til þjóðarframleiðslunnar.
I för með ráðherra, auk emb-
ættismanna, em Haraldur
Sumarliðason, formaður Sam-
taka iðnaðarins, Sveinn Hann-
esson, framkvæmdastjóri sam-
takanna, og Ragnheiður Héð-
insdóttir fulltrúi hjá samtökun-
um.
í fyrradag sótti Sighvatur
heim Kexverksmiðjuna Frón
og Mylluna og ljósmyndari Al-
þýðublaðsins tók við það tæki-
færi myndimar tvær.
KEXVERKSMIÐJAN FRÓN (frá vinstri til hœgri): Kjeld Jokumsen framleiðslustjóri, Björn R.
Bjarnason framkvœmdastjóri, Magnús Ingimundarson forstjóri, Sighvatur Björgvinsson iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, Haraldur Sumarliðason formaður Samtaka iðnaðarins, Asa Guðný Asgeirsdóttir
og Sigrún Benediktsdóttir, báðar starfsmenn hjá Frón.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
:
.
MYLLAN (frá vinstri til hœgri): Haraldur Sumarliðason, Elísabet Anna Vignir starfsmaður Myll-
unnar, Kolbeinn Kristjánsson framkvœmdastjóri, Sighvatur Björgvinsson, Jón Albert Kristinsson
stjórnarformaður og framleiðslustjóri og Agnes Astvaldsdóttir starfsmaður Myllunnar.
Alþýðublaðsmynd / Einar Óiason