Alþýðublaðið - 22.06.1994, Side 5
Miðvikudagur 22. júní 1994
HAFRO
ALÞYÐUBLAÐIÐ 5
Jákvæðar niðurstöður vorleiðangurs Hafrannsóknastofhunar:
/ /
og Tslanrissíldin er komin og farin að veiðast eftir 26 ara fjarveru af Islandsmiðuni!
Arlegum vorleiðangri
Hafrannsóknastofn-
unar á rannsóknaskip-
inu Bjarna Sœmundssyni lauk
9. júní. Leiðangursstjóri var
Svend-Aage Malmberg og
skipstjóri Ingi S. Lárusson.
Að vanda voru gerðar ítarleg-
ar athuganir á almennu ástandi
sjávar, gróðri og átu á íslensk-
um hafsvæðum. Athuganir voru
gerðar á 139 stöðum allt í kring-
um landið, bæði á landgrunninu
sjálfu og utan þess.
Auk hefðbundinna rannsókna
voru gerðar athuganir á koltví-
sýringi í sjó djúpt út af Norður-
landi og á ferskvatnsmagni í sjó
í Axarfirði og Skjálfandaflóa og
fylgst með hvölum á miðunum.
Einnig var í ferðinni unnið að
verkefnum fyrir Veðurstofu Is-
lands og Háskóla íslands
(bakteríurannsóknir. Þrír er-
lendir vísindamenn voru í för
með leiðangrinum og unnu að
sérverkefni.
Og Íslandssíldin
er komin!
í vorleiðangri að þessu sinni
var svo farið austar í hafið fyrir
Norðaustur- og Austurlandi en
venjulega, til könnunar á lífríki
sjávar á þeim slóðum þar sem
vænta mátti norsk-íslenskrar
síldar með vaxandi stofni. Og
hvað kom ekki í ljós austnorð-
austur af Langanesi dagana 29.
maí til 1. júní, þar var hin
heimsfræga Íslandssíld komin!
Þessi norsk-íslenska vorgots-
síld hafði fram að þessum tíma
ekki gengið á íslandsmið í 26
ár.
í framhaldi af þessum stór-
merkilega fundi var haft sam-
band við Hafrannsóknastofnun-
ina í Björgvin í Noregi og skýrt
frá niðurstöðum leiðangursins
um síldargöngur við austurjaðar
kalda sjávarins í vestanverðu
Noregshafi. Umsvifalaust var
ákveðið að gera út sameiginleg-
an leiðangur tveggja skipa til
nánari könnunar á magni og út-
breiðslu síldargangna í Noregs-
hafi og Austur- og Norðaustur-
djúpi.
Þrjú íslensk veiðiskip komu
síðan á svæðið þann 9. júní í
kjölfar leiðangursins. Skipin
fengu fullfermi á sólarhringnum
þar á eftir og veiði var sæmileg
næstu daga. Bræla á Austur-
djúpi hefur þó nokkuð hamlað
veiðum að undanförnu.
Nýjustu upplýsingar sem
herma að í kringum 8 þúsund
tonnum af Íslandssíldinni hafi
verið landað í gærdag.
Á næstu dögum er fyrirhugað
að kanna sfldargöngurnar nánar
og er áætlað að í júlí liggi fyrir
sameiginleg skýrsla Norð-
manna og Islendinga um málið.
Hvað er vitað um
íslandssfldina?
Fróðleiksmoli: „Þegar sfld-
veiðar hófust í stórum stfl hér
við land um síðustu aldamót,
fyrst á Austijörðum og síðan
við Norðurland, vissu menn
ekki hvaðan sfldin kom á sumr-
in, né hvert hún fór á haustin.
Oft var hún kölluð Norður-
landssfld eða einfaldlega ís-
landssfld.
f ljós kom að þetta var aðal-
lega norsk vorgotssfld sem
hrygnir meðfram öllum Noregi
og vex síðan upp þar sem smá-
sfld. Hún greinist í tvo stofn-
hluta, suðlægu vorgotssfldina,
mest á Harðangri og Mæri,
hraðvaxta í hlýjum sjó, og norð-
lægu vorgotssfldina við Lófót,
hægvaxta í kaldari sjó.
Þegar hún var fullvaxta lagði
hún út á hafið og dreifði sér um
allt svæðið milli Jan Mayen og
Islands í ætisleit. Þegar leið á
sumar þjappaði hún sér í torfur
og nálgaðist ísland. Um vetur-
inn safnaðist hún ætislaus aust-
ur af íslandi og Færeyjum til að
koma næsta vor á hrygningar-
stöðvamar við Noreg. Þannig
fór hún hringinn andsælis.“ (Ur
bókinni „íslenskir fiskar" eftir
Gunnar Jónsson.)
Helstu niðurstöður um
ástand sjávar og svifs
En aftur að vorleiðangrinum.
Helstu niðurstöður urn ástand
sjávar og svifs voru þessar:
Selturflci hlýsjórinn vestur af
landinu var í meðallagi heitur
(5-7°C) og fyrir Norðurlandi
gætti hans allt austur fyrir Mel-
rakkasléttu (3-5 °C), og kaldi
sjórinn var þar langt undan
landi.
Á landgrunninu fyrir Austur-
landi var sjávarhiti yfir 2°C en
dýpra í Austur íslandsstraumi
1-2°C sem er heldur undir með-
allagi.
f hlýja sjónum fyrir Suður-
landi var hitastig svo vel í með-
allagi (7-8°C).
Djúpt út af Norðausturlandi
handan við Jan Mayen hrygg
(6°V) var fyrst komið í skilin
milli hins kalda Austur Islands-
straums og hlýsjávar austur í
Noregshafi á 68°N eða við 200
sjómílna mörkin. Þar fannst
norsk-íslenska sfldin innan ís-
lensku efnahagslögsögunnar í
dreifðum torfum á 40-60 metra
dýpi í 2-3°C heitum sjó, og
áfram suður með skilunum að
suðurmörkum kalda sjávarins á
64°30-65°00 N, en þar stóð
ÍSLANDSSILDIN: í vorleiðangri Hafrannsóknastofnunar að þessu sinni var farið austar í hafið fyrir Norðaustur- og Austurlandi en
venjulega, til könnunar á lífríki sjávar á þeim slóðum þar sem vcenta mátti norsk-íslenskrar síldar með vaxandi stofni. Og hvað kom
ekki í Ijós 29. maí til I.júníaustnorðaustur af Langanesi, þar var hin heimsfrœga Islandssíld komin eftir 26 ára jjarveru af Islandsmið-
um!
sfldin dýpra en norðar eða á
200-300 metra dýpi, einnig í
2-3°C heitum sjó undir hlýrri
sjó að austan.
Einsog þrjú undanfarin ár
gætti þannig hlýsjávar fyrir
Norðurlandi 1994 og í heild
sýna niðurstöður vorleiðangurs-
ins gott ástand sjávar og lífríkis
á íslandsmiðum.
Vorhámark gróðurs var að
venju víðast um garð gengið
næst landi þar sem ferskvatns-
áhrifa gætti.
Á úthafinu í hlýja sjónum
vestan- og norðvestanlands
hafði lagskipting myndast
snemma sökum hægviðris í
maímánuði og þar var því gróð-
urkoman með fyrra móti. Á
djúpslóð austan og sunnan
landsins hafði verið talsverður
vöxtur svitþörunga fyrr um vor-
ið en beit átu á þessu svæði
hafði haldið þörungunum niðri.
Sýnilega er gott jafnvægi milli
vaxtar þömnga og beitar.
Yfirleitt mældist meira magn
dýrasvifs á athugunarsvæðinu
en síðastliðna þrjá áratugi.
Minnst rnagn var á gmnnslóð
norðaustanlands en mikið á öll-
um öðmm svæðum.
Mest var átan í Austur ís-
landsstraumi djúpt norðaustur
og austur af landinu allt austur á
sfldarslóð.
Leiðangursmenn og
rannsóknasvið þeirra
Fyrir utan Svend-Aage og
Inga S. vom leiðangursmenn í
vorleiðangri Hafrannsókna-
stofnunar (rannsóknasvið em í
sviga á eftir nöfnunum): Krist-
inn Guðmundsson og Kristín
Valsdóttir (þörungar); Guð-
mundur S. Jónsson og Anna
Ingvarsdóttir (áta); Héðinn
Valdimarsson (ástand sjávar);
Magnús Danielsen og Sólveig
Ólafsdóttir (efnafræði); Gísli
Víkingsson, Sigurbjörn Árna-
son og Sverrir Halldórsson
(hvalir); Þorsteinn Sigurðsson
(sfld); Guðni Alfreðsson (bakt-
eríur); og auk þeirra vom um
borð þrír erlendir gestir (svif).