Alþýðublaðið - 28.06.1994, Qupperneq 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
SKILABOÐ
Þriðjudagur 28. júní 1994
Veðurstofa íslands
Reykjavík
Á veðurþjónustusvið -Veðurstofu íslands
vantar starfsmann, sem m.a. á að sinna
veðurathugunum og tölvuvinnslu. Krafist er
stúdentsprófs eða hliðstæðrar menntunar
auk nokkurrar þekkingar á tölvur og tölvu-
vinnslu.
Um er að ræða vaktavinnu.
Umsóknir skulu sendar Veðurstofu íslands,
Bústaðavegi 9, 150 Reykjavík, fyrir 15. júlí.
Veðurstofa íslands
Keflavíkurflugvelli
Átækni- og athuganasvið Veðurstofu íslands
vantar veðurathugunarmann til starfa á
Keflavíkurflugvelli. Góð almenn menntun
áskilin og reynsla af tölvum æskileg.
Um er að ræða vaktavinnú.
Umsóknir skulu sendar Veðurstofu íslands,
Bústaðavegi 9, 150 Reykjavík, fyrir 15. júlí.
Leikskólar
Reykjavíkurborgar
Óskum eftir að ráða leikskólakennara eða annað upp-
eldismenntað starfsfólk í neðangreinda leikskóla:
Fífuborg v/Fífurima, s. 874515
Hlíðarenda v/Laugarásveg, s. 37911
Einnig vantar leikskólakennara eða þroskaþjálfa í stuðn-
ingsstarf í leikskólann Brekkuborg v/Hlíðarhús,
s.679380.
Þá vantar í starf frá 1. ágúst á skóladagheimilið Hagakot
v/Fornhaga, s. 29270.
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskóiastjórar og
forstöðumaður skóladagheimilisins.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
Aðalfundur
Alþýðubrauðgerðarinnar hf.
Aðalfundur Alþýðubrauðgerðarinnar hf. verður
haldinn mánudaginn 25. júlí næstkomandi, klukk-
an 16:00.
Dagskrá:
1. Lagabreytingar.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Húsnæðisnefnd
Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær leitar eftir kaupum á íbúð-
um til nota sem félagslegar íbúðir.
íbúðirnar skulu vera í samræmi við viðmiðun-
arreglur Húsnæðisstofnunar ríkisins og inn-
an eftirfarandi stærðarmarka:
1 herb. - brúttóstærð 60 mz
2 herb. - brúttóstærð 70 m2
3 herb. - brúttóstærð 90 m2
4 herb. - brúttóstærð 105 m2
5 herb. - brýttóstærð 120 m2
6 herb. - brúttóstærð 130 m2
Sé um þegar byggðar íbúðir eru heimil frá-
vik frá hámarksstærðum fbúða.
Tilboð, ertilgreina heildarverð, sem skal inni-
fela allan kostnað, þ.mit. virðisaukaskatt,
sendist húsnæðisnefnd Hafnarfjarðar fyrir
15. júlí nk.
Tilgreina skal herbergjafjölda, húsgerð, stað-
setningu í húsi, aldur hússins og fylgja skal
almenn lýsing á frágangi íbúða. Jafnframt
skulu fylgja teikningar og áætlaður afhend-
ingartími.
Húsnæðisnefnd áskilur sér rétt til að taka
hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður hús-
næðisnefndar.
Húsnæðisnefnd Hafnarfjarðar,
Strandgötu 11, sími 651300.
I§j V innumiðlun
Reykjavíkurborgar
Atvinnuráðgjafar
Vinnumiðlun Reykjavíkurborgar óskar eftir að
ráða tvo atvinnuráðgjafa frá og með 1. ágúst nk.
Störfin felast í margvíslegri aðstoð og ráðgjöf við
fólk í atvinnuleit m.t.t. náms og starfa, ásamt upp-
lýsingagjöf varðandi atvinnuleit, vinnumiðlun og
atvinnuleysistryggingar.
Umsækjendur skulu hafa reynslu af störfum við
starfsmannahald, atvinnuráðgjöf, námsráðgjöf
eða aðra hliðstæða starfsreynslu og æskilegt er
að þeir hafi lokið burtfararprófi frá viðurkenndum
háskóla í einhverri grein félagsvísinda eða lög-
fræði.
Umsóknir, með greinargóðum upplýsingum um
menntun og fyrri störf, berist fyrir 12. júlí nk. til
framkvæmdastjóra Vinnumiðlunar Reykjavíkur-
borgar, sem einnig gefur upplýsingar um störfin
Engjateigur / / * Sími (91) 882580 * Fax ( 91) 882587
LANDSPÍTALINN
/þágu mannáðar og vísinda
Sérfræððngar í nýrnalækningum
Á lyflækningadeild . Landspítalans er laus
staða sérfræðings í nýrnalækningum. Staðan
veitist frá 1. október 1994 eða síðar.
Umsóknarfrestur er til 31. júlí 1994.
Umsóknum fylgi upplýsingar um námsferil
og störf til þessa.
Nánari upplýsingar veita Þórður Harðarson,
prófessor og Páll Ásmundsson, lyflækninga-
deild Landspítalans.
Alþýðuflokkurinn -
Jafnaðarmannaflokkur
Islands
Sumarferð 2. júlí
Sumarferð Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands -
verður farin laugardaginn 2. júlí.
Farið er frá Alþýðuhúsinu við Hverfísgötu í Reykjavík á
laugardagsmorgni klukkan 09 og ekið sem leið liggur í Skálholt.
Þar verður áð um stund og síðan farið að Gullfossi um Brúarhlöð.
Frá Gullfossi verður svo farið að Geysi og þaðan að Laugarvatni
og loks um Þingvelli að Nesjavöllum þar sem verður grillað.
Komið erður til Reykjavíkur um Nesjavallaveg um klukkan 22.
Reykjavík - Skálholt - Brúarhlöð - Geysir - Laugarvatn - Þingvellir
- Nesjavelli - Nesjavallavegur - Reykjavík.
Nánar auglýst síðar.
§^1^^01100^101111111
íHafiiarfírði:
Fundur bæjarmálaráðs
Bæjarmálaráð Alþýðuflokksins í
Hafnarfírði heldur fund miðvikudaginn
29. júní klukkan 20:30 í Gafl-Inn.
Fundarefni:
1. Urslit kosninga.
2. Nýr meirihluti.
3. Starfið framundan.
4. Onnur mál.
Brýnt er að jafnaðarmenn fjölmenni á
fundinn og sérstaklega að þeir sem gegna
störfum í ráðum, nefndum og stjórnum
fyrir Alþýðuflokkinn láti sjá sig.