Alþýðublaðið - 28.06.1994, Page 7
Þriðjudagur 28. júní 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
Wayne’s World 2
Kvikmyndin Wayne’s
World 2 var frumsýnd
síðastliðinn föstudag í
Háskólabíói og Borgarbíói á
Akureyri. í aðalhlutverkum
Waynes Campell og Garths
Algar eru sem fyrr félagamir
Mike Myers og Dana Carvey.
í öðrum hlutverkum eru söng-
konan Tia Carrera sem, Cass-
andra, ástkona Waynes, Christ-
opher Walken leikur þrjótinn
sem reynir að Cassöndru frá
Wayne og loks er það gyðjan
Kim Basinger sem fer með
hlutverk Honey Homee er tál-
dregur Garth sem loksins hefur
náð kynþroska. Bostonguðirnir
hmkkóttu (en vöðvuðu) í Aero-
smith koma einnig talsvert við
sögu því þeir stíga til jarðar og
koma fram í myndinni - og taka
þar við hlutverki þungarokkar-
ans Alice Cooper sem gerði
slíkt hið sama í fyrstu myndinni.
Víst er að Aerosmith hetjumar,
goð allra handknattleikslands-
liðsmarkvarða, koma engum á
óvart með stórkostlegum skap-
gerðarleik..., ömgglega!
En hvað er annars títt af
Wayne Campell og Garth Alg-
ar? Jú, einsog komið hefur fram
í milljónum fréttatilkynninga
em þeir búnir að láta klippa sig,
skrá sig í menntaskóla og vinna
á fullu með skólanum..., ömgg-
lega! Félagamir em þó ennþá í
stanslausum gleðskap og halda
áfram að senda út sjónvarps-
þáttinn margrómaða, Wayne’s
World. En hvað geymir fram-
tíðin í skauti sér? Wayne vill
víst ná einhverjum árangri í líf-
inu en ekkert virðist ætla að ger-
ast þar til eldingu lýstur niður í
hans fagurhærða höfuð og
kveikir eld. Upp frá því rís hug-
mynd að maraþonrokktónleik-
um aldarinnar: Waynestock.
Laga- og hljómsveitalisti
myndarinnar er æði fjölbreyttur.
Village People - „YMCA“, Ro-
bert Plant - „Louie“, Aero-
smith - „Dude Looks Like A
Lady“ og „Shut Up And
Dance“, Gin Blossoms - „Idiot
Summer“, Superfan (Chrissie
Hynde og Urge Overkill -
„Superstar“, Joan Jett & The
Blackhearts - „I Love Rock’n
Roll“, Dynosaur jr. - „Out
There“, Norman Greenbaum -
„Spirit In The Sky“, 4 Non
Blondes - „Mary’s House“,
Golden Earring - „Radar Lo-
ve“, Bad Company - „Can’t
Get Enough" og Edgar Winter
- „Frankensteirí?
En snúum okkur aftur að
Wayne og Garth sem reka sig á
ýmsar hindranir við að koma
Waynestock tónleikunum af
stokkunum. Líf þeirra verður
síðan enn óreiðukenndara (var
það hægt?) þegar Wayne upp-
götvar að samband hans og
Cassöndm kann að vera í hættu
og Garth lendir í naglalökkuð-
um klóm skuggakvendisins
Honey Homee. Og til að bæta
gráu ofan á svart er ekki víst að
nokkur lifandi sála mæti á
Waynestock tónleikana - ekki
einu sinni AiTowsmith sem vom
búnir að lofa að mæta. En svona
er þetta víst í rokkinu og rokk-
inu og rokkinu og rokkinu og
rokkinu (skratssjj)..., búið.
Hús Jón Sigurðssonar í Kaupmannahöih:
Níu fengu inní í
fræðimannsíbúð
Uthlutunamefnd fræði-
mannsíbúðar sam-
kvæmt reglum um Hús
Jóns Sigurðssonar í Kaup-
mannahöfn hefur úthlutað
íbúðinni frá september á þessu
ári til sama tíma á næsta ári.
Alls bámst 39 umsóknir til
nefndarinnar en níu fræðimenn
hlutu úthlutun.
Sú venja hefur verið að um-
sækjendur ættu kost á íbúðinni í
þrjá mánuði, en vegna þess hve
margar umsóknir bárust var
ákveðið að úthluta íbúðinni til
skemmri tíma í senn að þessu
sinni.
Eftirtalin hlutu úthlutun:
Doktor Bjarni Einarsson
handritafræðingur, til að vinna
að útgáfu Egilssögu; doktor
Clarence E. Glad guðfræðing-
ur, til að vinna að rannsókn á rit-
um danskra og þýskra guðfræð-
- 39 umsóknir bárust
inga og áhrifum þeirra hér á
Jandi; doktor Erling Ólafsson
skordýrafræðingur, til að yfir-
fara og skrá íslensk skordýr á
Dýrafræðisafninu í Kaup-
mannahöfn; Ketill Sigurjóns-
sonlögfræðingur, til að kanna
réttarheimildir á sviði hafréttar,
einkum með hliðsjón af Roc-
kall-klettinum; Magnús Ósk-
arsson lögfræðingur, til að
rannsaka höfundarrétt með sér-
stöku tilliti til réttarstöðu arki-
tekta og húseigenda; Margrét
Jónasdóttir B.A., til að afla
heimilda um íslenska stúdenta í
Kaupmannahöfn og rita um
sögu félags þeirra (1893 til
1993); María E. Kjeld skóla-
stjóri, til að safna efni um full-
orðinsfræðslu fatlaðra í Dan-
mörku; doktor María K. Jóns-
dóttir taugasálfræðingur, til að
kynna sér endurhæfingu heila-
skaðaðra í Center for Hjer-
neskade í Kaupmannahöfn og
undirbúa rannsókn á því hvem-
ig þeim famast eftir sjúkravist
og endurhæfíngu hérlendis; Ól-
afur Guðmundsson skóla-
stjóri, til að vinna í samvinnu
við danska fræðimenn að úr-
vinnslu kannana á samstarfi
heimila og skóla.
Fræðimannsíbúðin í Kaup-
mannahöfn, sem tengd er nafni
Jóns Sigurðssonar, er skammt
frá Jónshúsi þar sem fræðimað-
ur hefur skrifstofuaðstöðu.
I úthlutunamefndinni eiga
sæti Salome Þorkelsdóttir for-
seti Alþingis, doktor Þórir Kr.
Þórðarson prófessor, tilnefndur
af rektor Háskóla íslands og Ól-
afur Egilsson sendiherra ís-
lands í Kaupmannahöfn og for-
maður stjómar Húss Jóns Sig-
urðssonar.
FOTBOLTINN - Nýtt tánarit um knattspymu:
Skemmtilegt blað
5
„I>að er verst fyrir Bólivíumenn að geta ekki tekið heimavöll
sinn í La Paz með á HM því þessi völlur er í 3500 metra
hæð og er eina ástæðan fyrir því að þeir eru þarna.
- Suður-Kóreumenn fara lieim 28. júní og horfa
á úrslitin í Samsung-tækjunum heima“
CpP'Sv
30
Ut er
komið
fyrsta
tölublað Fót-
boltans. nýs
tímarits um
knattspyrnu.
Ritstjóri er Sig-
urður Már
Jónsson. fyrr-
um ritstjómar-
fulltrúi á Press-
unni og útgef-
andi er Friðrik
Friðriksson,
eigandi Press-
unnar, Almenna
bókalélagsins og
fleiri útgáfufyrir-
tækja.
Fótboltinn er
einsog nafnið
gel'urtil aðkynna
sérrit um knatt-
spymu og rnun
ætlunin vera að
tímaritið kotni út
8 til 10 sinnum á
ári. í blaðinu er
skrifað um knatt-
spymu frá öllum
sjónarhornum, í senn fræðandi
og dl skemmtunar. í blaðinu er
bæði alvarleg og létt utnræða
og þannig reynt að höfða til
allra sem á annað borð hafa
áhuga á knattspymu. Víða er-
lendis em slík rit gefin út og að
sögn útgefenda er ekkert
leyndttrmál að Fótboltinn
sækir fyrirmyndir og hliðstæð-
ur ul vandaðra tímaiita einsog
World Soccer í Englandi,
Ouze í Frakklandi og Sport
Bild í Þýskalandi, svo láein
séu nefnd.
Fótboltinn mun fyrst og
l'remst fjalla urn íslenska knatt-
spymu. Gróflega tná segja að
milli sextíu og sjötíu prósent al’
efninu verði íslenskt en af-
gangurinn erlent.
í þessu fyrsta tölublaði Fót-
boltans er nteðal annars að
linna umíjöllun urn efnilegasta
knattspymumann íslands í dag
og ítarlega úttekt á þjálfunar-
málum á íslandi með viðtölum
við alla þjálfara í fyrstu deild-
inni. í blaðinu er auk þessa 16
síðna blaðauki utn heims-
meistarkeppnina í knattspyrnu
sem nú fer fram í Bandaríkjun-
um. Þess niá geta að ítarleg út-
tekt er einnig á gervigrasvöll-
um landsins í blaðinu auk þess
sem tíu mattna dómnefnd gef-
ur þeim öllum einkunn. í þeirri
umfjöllun kemur ýmislegt á
óvart.
Af erlendu efni má nefna að
ljallað er um tvo af athyglis-
verðustu knattspymumenn
heims og auk jacss sagt frá
tveimur landsliðsferðum ís
Allt um Baggio og Biggs
Landsleiksgagnrýni Lárusar
fá etnliWBo 10 -
Hver þeirra fékk falleinkunn':
Hveúb verSa meö og hvað geta þeir ’
Sérfrædingamir sfiá og
ftMlliríkiadóniari skrífar J | j | | [J
«m nýju leíkreglurnac
lands í máli og myndum.
Fyrsta tölublað Fótboltans er
48 blaðsíður og kostar aðeins
399 krónur. Tímaritið er prent-
að hjá Prentbx.
Fróðleg og
skemmtileg og
umfjöllun
Það er ljóst efrir lestur þessa
tyrsta tölublaðs Fótboltans að
ef blöðin sem fylgja í kjölfarið
verða jafngóð þá hefur þetta
ágæla tímarit alla burði ril
langhfis. Rit af þessu tagi hefur
lengi (lengi, lengi, lengi, lengi,
lengi) vantað í íslenska útgáfu-
flóru. Blaðið er á kjamgóðu og
skýru máli, skemmtilegt og
læsilegt - jafnvel fyrir óinn-
vígða - og lengi hægt að opna
það og finn eitthvað nýtt. Rit-
stjórinn Sigurður Már er aug-
ljóslega hér á heimavelli með
fullskipað lið, 1-0 fyrir Fót-
boltann. Lítum á léttar glefsur
úr HM-kynningunni: „Aðrir
minni spámenrí’.
Kamerún: „Flestir eru á því
að Kamerúnmenn verði ekki
sú uppspretta óvæntra úrslita
sem jreir voru síðast. Ekki það
að hæfileikaminni leikmenn
séu í liðinu og kappinn Roger
Milla mætir ltka alitur, orðinn
42 ára, eða svo segir afríska
hagstofan. Það er hinsvegar
ljóst að elnahagur knattspymu-
sambandsins hrundi og undir-
búningur þeirra er því í skötu-
ltki.“
Spánn: „Það er ein af gátum
knattspyrnusög- .
unnar af hverju
Spánverjar eru
ekki bctri en raun:
ber vitni með alla
stna peninga og
áhuga. Gárung-
arnir segja að það
séafþvíaðþaðsé
svo mikið af
Spánverjum í
spænska lands-
liðinu!“
Búlgaría :
„Búlgarar etu
ekki með neitt
sérstakt lið en
hafa þó snilling-
inn Stoichkov
innanborðs. Það
erhinsvegarein-
manalegt á HM
með aðeins eitl
spil á hendi og
líklegt er að
Búlgarar eyði
ekki miklum
gjaldeyri f
Bandaríkjun-
um.“
Sviss: „Menn hafa verið að
reyna að telja knattspymu-
heiminum trú um að þeir geti
eitthvað og nú fá þeir tækifæri
ril að sýna það.“
Grikkland: „Hver leikmað-
ur fær 10 milljónir króna fyrir
að komast 12. umferð sem gæti
ýtt vel á eftir. Flestir em hins-
vegar á því að Grikkir horfi á
16 liða úrslitin heiman íirá sér.“
Marokkó: „Það er ekki nóg
að vera Afríkuþjóð lil að geta
teflt fram hæfileikamönnum.
Þeir em hinsvegar heppnir
með dráttinn og llinkir á miðj-
unni.“
Bandaríkin: „Bamlaríkja-
menn hafa enga virka deilda-
keppni og leikmenn liðsins
hafa lítið gert undanfarin ár
nema að vera landsliðsmenn.
Þeir eiga eftir að verða fyrir
vonbrigðum."
Bólivía: „Það er verst fyrir
Bólivíumenn að geta ekki tek-
ið heimavöll sinn í La Pttz með
á HM því þessi völlur er í 3500
metra hæð og er eina ástæðan
lytir því að þeir em þama."
Suður-Kórea: „Suður-Kór-
eumenn hafa aldrei unnið leik í
úrslitakeppni HM og hala þó
mætt þar þrisvar. Það er ólík-
legt að á því verði breyting.
Þeir fara heim 28. júní og horfa
á úrslitin í Samsung-tækjunum
heima.”
Saudi-Arabía: „Hvemig í
ósköpunum getur nokkur mað-
ur búist við því að þetta lið nái
einu einasta stigi? var spuit í
erlendu knaítspymuttmariti
nýlega. Hægt er að taka undir
þau orð.“