Alþýðublaðið - 01.07.1994, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 01.07.1994, Blaðsíða 1
Verð í lausasölu kr. 140 m/vsk Korfafyrirtækin í hár samán vegna augiýanga á ddbdkortum: -segirVISAÍSLAND Nýtt stríð er hafið vegna debetkortanna svoköll- uðu. Stríð milli korta- fyrirtækjanna VISA og EURO- CARD. í stærsta íjölmiðli landsins, fréttabréfi Visa Island - sem berst í stærra upplagi en Mogginn til korthafa þessa dag- ana - er aðalfyrirsögnin: Vill- andi auglýsingar fr á„Maestro“. Þar segir frá því að birst hafi í fjölmiðlum að undanfömu „mjög sérkennilegar auglýsing- ar, sem beint er sérstaklega til korthafa VISA og þeir hvattir til að fá sér Maestro debetkort. Þar eð auglýsanda er að engu getið hafa sumir korthafar okkar mis- skilið málið og haldið að þessar auglýsingar væm frá VISA ÍS- LANDI, en aðrir jafnvel látið sér detta í hug að vera kynni að Kristján Jóhannsson, stórten- ór, væri farinn að auglýsa beint enda ekkert fyrirtæki með þessu nafni ti) á skrá“, segir í frétta- blaði VISA. Segir að þegar nánar sé að gáð, sé þama um að ræða Euro- card í dulargervi. Þeir kjósi að villa á sér heimildir og villa um fyrir landsmönnum með amer- ískum brellum, ef vera kynni að með því móti mætti plata ein- hverja korthafa VISA til að kaupa „kortið" í sekknum. Þá segir að það bæti ekki úr skák að Kreditkort hf leyfi sér að slá fram villandi og alröng- um staðhæfingum til að gera sinn fífil fegri. Því sé haldið fram að fólk „tvöfaldi mögu- leika sína“ með því að hafa kreditkort frá einu fyrirtæki, en debetkort frá öðm, og að kort- hafar VISA geti fengið aðgang að helmingi fleiri hraðbönkum með því að fá sér Maestro- de- betkort. Bent er á að debetkort kom einfaldlega ekki í stað kredit- korts eða öfugt, og allra síst hjá þeim sem ekki eiga peninga á lausu. I fréttabréfmu segir að Visa Electron sé til muna útbreidd- ara en Maestro, ekki aðeins hér á landi heldur einnig í öðmm löndum, ekki síst í Evrópu. Þar geti fólk „gereytt möguleikum sínum með notkun debetkorts í stað þess að auka þá“, segir í fréttabréfinu. Segir að í Dan- mörku til dæmis séu 4 þúsund afgreiðslustaðir sem taka Visa Electron, - enginn taki Maestro. í Belgíu sé Maestro alveg óþekkt, og séu höfuðstöðvar Eurocards þó þar í landi. Gunnar Bæringsson hjá Kretítkortum: Rœburður Því miður er því oft svo farið með stóra aðila á markaðnum að þegar keppinauturinn fer að sækja í sig veðrið, þá er öllum tiltæk- um ráðum beitt og jafnvel gripið til rógburðar, þegar önnur ráð duga ekki. Þetta er mjög miður“, sagði Gunnar Bæringsson, framkvæmda- stjóri Kreditkorta hf. í samtali við Alþýðublaðið í gær. Hann segir flest rangt og skrifað af miklu ergelsi í Visa-blaðinu. Þannig væri hreint ekki auglýst undir dul- argervi, Maestro væri vöru- merki fyrir debetkort, alveg eins og Eurocard væri vöm- merki fyrir kreditkort. Það sé fyllilega eðlilegt að auglýsa vömmerkið, nafn kortsins, sem bankar og sparisjóðir selja en Kreditkort hf. ekki. „Það em auðvitað hin raka- lausustu ósannindi að Kredit- kort hf. sé að plata fólk til að kaupa „kortið í sekknum", eins og keppinauturinn orðar það svo smekklega. Við stöndum líka fyllilega við það að með Maestro debetkorti tvöfaldar korthafi möguleika sína og tryggir aðgang að fleiri hraðbönkum en hann hefur aðgang að með debet- kortinu. Þetta vita vanir ferða- menn, það er betra að hafa að- gang að báðum kerfunum í stað þess að láta vísa sér á dyr“, Sagði Gunnar Bærings- son. Gunnar sagði það fjarstæðu eina að segja að enginn aðili tæki Maestro í Danmörku og í Belgíu. I báðum löndum taki fjölmargir við kortunum og fari stómm fjölgandi á þessu ári. Þá sé því ranglega haldið fram að fleiri verslanir taki Visa-Electron en Maestro hér á landi. „Ég varpa því fram hvort það sé trúleg saga að banki eins og National Westminst- er Bank í Bretlandi kjósi að láta breyta öllum sínum bankakortum, 5,6 milljónum talsins, yfir í Maestro. Enginn mun trúa því að slíkur banki dreifi svikinni vöru“, sagði Gunnar Bæringsson að lok- um. Jtolkkbt&wtkký kem&lé W Beatrix Wilhelmina Armgaard Hollandsdrottning og eiginmaður hennar, Claus prins von Armsberg, komu til íslands í opinbera heimsókn í gærmorgun. Þeim var fagnað á Reykjavíkurflugvelli af ráðamönnum, þegar einkaflugvél þeirra hjóna lenti þar upp úr klukkan 11. Haldið var að Hótel Sögu eftir móttökuathöfnina, en þar munu drottningin og prinsinn dvelja meðan á heimsókninni stendur, en henni lýkur í kvöld með móttöku og tónleikum í boði hollensku þjóðhöfðingjanna í Borgarleik- húsinu. Að lokinni opinberu heimsókninni munu þau hjónin halda norður og austur á land og dvelja þar um helgina. A stærri myndinni má sjá hina brosmildu drottning Hollendinga, Beatrix, á Reykjavíkurflugvelli í gærmorgun, ásamt eiginmanni sín- um, lengst til vinstri á myndinni, og Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands. Á inn- felldu myndinni heilsar drottning uppá Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra. Á myndinni auk þeirra eru Davíð Oddsson, forsætisráðherra, Ástríður kona hans Og Bryndís Schram. Alþýðublaðsmyndir/EinarÓlason Vinmiiniðluri Reykjavíkurborgar: Itérbætt þjóraista með nýju húsnæði Vinnumiðlun Reykjavík- urborgar og Vinnu- skólinn hefja formlega starfsemi á nýjum stað í dag, að Engjateigi 11. Á atvinnuleysis- skrá í Reykjavík eru nú 2.440 einstaklingar en voru 2.357 á sama tíma í fyrra. í nýja húsinu verður hægt að bjóða betri þjón- ustu og má nefna númerakerfi í afgreiðslu og að tveir atvinnu- ráðgjafar hefja störf í byijun ág- úst. Borgarsjóður keypti í febrúar hluta hússins að Engja- teigi 11 og var húsnæðið, sem er á tveimur hæðum, tilbúið undir tréverk. Kaupverð var 45 milljónir króna og kostnaðar- áætlun vegna ffamkvæmda við að gera húsnæðið tilbú- ið til notkunar var upp á 30 milljónir króna. Vinnu- miðlun Reykjavíkurborgar, áður Ráðningarstofa Reykjavíkurborgar, er 60 ára um þessar mundir. Við flutning Vinnumiðlunar Reykjavíkurborgar að Engjateigi 11 voru endan- lega lögð af handfærð spjöld við atvinnuleysis- skráningu og tölvum og prenturum fjölgað. Skrán- ing fer nú alfarið fram í tölvukerfi og réttar tölur urn atvinnuleysi liggja fyrir í lok hvers vinnudags. Eftir örfá- ar vikur verður sett upp núm- erakerfi í afgreiðslu og munu þá ekki myndast biðraðir við af- greiðslubása. Umsækjendur geta notað tímann til að fara í upplýsingahorn þar sem hanga uppi auglýsingar um laus störf og námskeið í boði. Starfs- menn Vinnumiðlunarinnar eru nú 20 en í byrjun ágúst taka tveir atvinnuráðgjafar til starfa. Hver einstaklingur sem er að koma í fyrsta sinn til skráningar mun þá fá einkaviðtal við ráð- gjafa þar sem farið er yfir um- sókn hans, upplýst um réttindi og skyldur og gefin ráð varð- andi störf og nám. Einnig verða langtímaatvinnulausir reglu- bundið kallaðir til viðtals við ráðgjafa. A þessu vori hafa ver- ið ráðnir tæplega 700 einstak- lingar af atvinnuleysisskrá í átaksverkefni á vegum borgar- innar. Þá er lokið við að ráða alla atvinnulausa skólanema á aldrinum 16 til 25 ára, alls rúm- lega 3.100 manns, í störf hjá borginni. Hjá Vinnuskóla borg- arinnar starfa í sumar um 2.500 unglingar. Framkvæmdastjóri Vinnumiðlunar Reykjavíkur- borgar er Oddrún Kristjáns- dóttir og skrifstofustjóri er Erla Hrönn Sveinsdóttir. Vinn ngsfölur miðvikudaginn: 29. júní1994 m VINNINGAR 6 af 6 5 af 6 l+bönus a 5 af 6 E1 4 af 6 a 3 af 6 |+bónus FJÖLDI VINNINGA 580 2.098 UPPHÆÐ Á HVERN VINNING 58.111.400 3.207.920 114.944 1.891 224 Aðaltölur: ®@<§> (30) (40) (44) BÓNUSTÖLUR @@@ Heildarupphæð þessa viku 179.798.516 á Isl.: 5.464.316 immm — ------------- - —- UJl/inningur fdétlU Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar UPPLVSINGAR, SÍMSVARIB1- 68 15 11 LUKKULlNA 98 10 00 - TEXTAVARP 451 BIRT MEÐ FVRIRVARA UM PRENTVILLUR

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.