Alþýðublaðið - 01.07.1994, Blaðsíða 6
6 ALÞYÐUBLAÐIÐ
Föstudagur 1. júlí 1994
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ
Auglýsing
Laus er til umsóknar staða skólameistara
Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu fyrir
20. júlí nk.
Menntamálaráðuneytið,
29. júní 1994.
Ný safnplata:
Ýktböst
Eftir einn - ei aki neinn!
IUMFERÐAR
RÁÐ
SKRIFSTOFUR REYKJAVIKURBORGAR
- BYGGINGARFULLTRÚI
Skrifstofustjóri
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík óskar eftir að
ráða skrifstofustjóra.
Umsækjendur skulu helst hafa íokið lögfræði-
prófi, en önnur háskólamenntun kemur einnig
til greina. Þeir skulu og hafa reynslu af skrif-
stofustörfum og tölvum.
Umsóknir með greinargóðum upplýsingum
um menntun og fyrri störf, berist fyrir 20. júlí nk.
til starfsmannastjóra borgarverkfræðings
Skúlatúni 2, þriðju hæð sem ásamt byggingar-
fulltrúa gefur upplýsingar um starfið.
Ykt böst er ný safnplata
með 18 lögum af ýmsu
tagi. Tólf laganna eru af
íslenskum toga með hljómsveit-
um sem eru sumar hverjar að
stíga sín fyrstu skref en önnur
lög eru í flutningi þekktra
hljómsveita. Sex laganna em
flutt af ensku listafólki og þar á
meðal er nýjasta smáskífulag
hljómsveitarinnar Saint Eti-
enne sem kom fram á frábærum
tónleikum á Listahátíð í
Reykjavík fyrir skömmu.
1 hópi íslensku hljómsveit-
anna ber fyrst að nefna
Blackout sem eru með sitt ann-
að lag til þessa sem kallast
Days, þá er hljómsveitin Alvar-
an með endurgerðir af tveimur
lögum, Hvað er að ske og Leik-
ur að vonum. Stefán Hilmars-
son er hér í félagi við hljóm-
sveitina Fantasíu í laginu Negli
þig nœst úr samnefndri stutt-
mynd.
Fantasía á annað lag á Ýkt
böst, sem nefnist N 1 0 (enn
einn hring). Þá kveða sér hljóðs
hinar bráðefnilegu hljómsveitir
In Bloom og Dead Sea Apple í
fyrsta sinn á plötu. Lagið sem
fyrmefnda sveitin flytur heitir
Pictures og síðamefnda hljóm-
sveitin er með mjög áhugavert
lag sem kallast Mist OfThe Mo-
urning. Hljómsveitin Vitrun
sem vakti mikla athygli fyrir lag
sitt Disappearíng Into The Voicl
sem var að finna á plötunni Al-
gjört kúl, sýnir hvers hún er
megnug í ballöðunni Child. Þá
syngur hin stórgóða Valgerður
Guðnadóttir nýtt lag eftir Þor-
vald Bjarna Þorvaldsson,
Touch Me, en Valgerður vakti
verðskuldaða athygli í hlutverki
Maríu Magdalenu í uppfærslu
Verslunarskóla Islands á Jesus
Chríst Superstar fyrr á árinu.
Lipstick Lovers em með
flunkunýtt lag sitt, On My Way
To Paradise og hljómsveitin Jet
Black Joe flytur nýja útfærslu á
lagi sínu Running Out OfTitne.
Þá má ekki gleyma stórgóðri
ballöðu, Þrá, með hljómsveit
Sigríðar Guðnadóttur og
Bergþórs Morthens, Rask.
Lag þetta mun aðeins vera for-
smekkurinn að nýrri plötu sem
kemur út með Rask fyrir jólin.
Utlendu lögin em ekki af
verri endanum. Fyrst má telja
Like A Motorway, með Saint
Etienne, en hljómsveitin vakti
mikla athygli á Listahátíð í
Reykjavík á einum bestu tón-
leikum sem haldnir hafa verið.
Þá er þama að finna nýtt lag
með hljómsveitinni Primal
Scream sem eignast hefur fjöl-
marga aðdáendur hér á landi
fyrir lag sitt Rocks.
Breski dúettinn Erasure hef-
ur átt dyggan aðdáendahóp í
gegnum árin og hér er nýtt lag
ineð þeim Vince Clark og
Andy Bell, Always. Breska
söngkonan Misty Oldland flyt-
ur lagið A Fair Ajfair sem mik-
ið hefur heyrst á öldum ljósvak-
ans og margir hafa beðið eftir að
komi út á plötu.
Síðast en ekki síst eru hér tvö
lög með tveimur frískum rokk-
hljómsveitum, Inspiral Carpets
með lagið Uniform og Oasis
með lagið Supersonic. Bæði
þessi lög hafa notið mikillar
hylli á óháða listanum og munu
væntanlega ná eyrum fjöldans á
næstunni.
Það er ljóst á fyrrgreindu að
Ýkt böst er sneisafull af úrvals-
tónlist - þetta er geisladiskur
sem ber ferskan andblæ sumars
með sér.
Það er Spor hf sem gefur
geislaplötuna út og eintakið
kostar 1999 krónur. Guðmund-
ur Jón Guðjónsson hannaði
umbúðir, Sony DADC fram-
leiddi. Spor hf. annast dreifíng-
una.
Fyririestrar
um
hamingjuna
- í Mennttiskólanuin á
Laugirvatni
V
Amorgun, laugttr-
dag, munu heim-
spekingamir Páll
Skúlason og Vilhjálniur
Árnason halda fyrirlestra
um hamingjuna. Fyrirlestr-
arnir verða haldnir í
Menntaskókmum á Laug-
arvatni og standa frá
klukkan 17 til 19.
Þeir Páll og Vilhjálmur
inunu segja frá kenningum
heimspekinga, ljalla um
viðhorf Islendinga og
greina frá eigin niðurstöð-
um um eðli hamingjunnar
og á hvaða forsendum
menn geti lalist hamingju-
samir.
Páll Skúlason er löngu
landsþekktur fyrir greinar
og bækur sem hann hefur
sent frá sér undanfarna tvo
áratugi. Má þar nefna Pœ-
lingar, sem er greinasafn,
og Siðfrœði sem er nýjasta
bók hans.
Vilhjálmur Ámason
sendi í vetur leið frá sér
bókina Siðfrceði lífs og
dauða þar sem hann fjallar
um ýmis siðfræðileg álita-
mál í starfi heilbrigðis-
stétta. Bókin sú var til-
nefnd til íslensku bók-
menntaverðlaunanna.
Þess má geta að fyrir-
lestramir verða endurtekn-
ir á sama stað og sama tíma
þann 6. ágúst.
Fjölniennuni í suinarferð um Suðuriand!
Alþýðuflokkurinn -
Jafnaðarmannaflokkur Islands
Sumarferð 2. júlí
Sumarferð Alþýðuflokksins -
Jafnaðarmannaflokks Islands -
verðurfarin laugardaginn 2. júlí.
Farið verðurfrá Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík
á laugardagsmorgni klukkan 09 og ekið
sem leið liggur í Skálholt.
Þar verður áð um stund og síðanfarið að
Gullfossi um Brúarhlöð.
Frá Gullfossi verður svo farið að Geysi og þaðan að
Laugarvatni og loks um Þingvelli að Nesjavöllum
þar sem verður grillað.
Komið verður til Reykjavíkur um Nesjavallaveg
um klukkan 22.
Reykjavík - Skálholt - Brúarhlöð - Geysir
Laugarvatn - Þingvellir - Nesjavellir -
Nesjavallavegur - Reykjavík.
Takið með ykkur sundföt!
r