Alþýðublaðið - 13.07.1994, Síða 5
Miðvikudagur 13. júlí 1994
LANDSMÓT
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5
y
Dagskrá Landsmótsins að Laugarvatni:
Fyrsta atriði íþróttakeppninnar
á 21. Landsmóti UMFÍ að
Laugarvatni er knattspymu-
keppni í karla- og kvennaflokki sem
hefst á morgun klukkan 16. Síðan er
lýðveldishlaup, blak og skák á dag-
skrá morgundagsins.
A föstudag hefst keppni klukkan
níu um morguninn með blaki, drátt-
arvélaakstri og lýðveldishlaupi.
Fram að hádegi er auk þess undan-
rásir í sundi, bridds, skák, hand-
knattleikur og knattspyma karla og
kvenna og karate.
Eftir hádegi á föstudag verður
línubeiting klukkan 13 en klukkan
13.30 fer fram vígsla aðalleikvangs-
ins. Síðan eru ftjálsar íþróttir, körfu-
knattleikur, júdó, úrslit í sundi,
jurtagreining, boccia fatlaðra, æsku-
hlaup, lýðveldishlaup, og land-
græðsla. Klukkan 20 er setningarat-
höfn á aðalleikvangi. Tjaldball hefst
klukkan 22 fyrir íjölskyldur, kepp-
endur og aðra og sveitaball klukkan
23 að Borg.
Dagskrá Iaugardags
Á laugardagsmorgun verður byrj-
að klukkan átta á borðtennis og
hálfri stundu síðar er það körfu-
knattleikur. Fram til hádegis er svo á
dagskrá bridds, morgunleikfimi fyr-
ir alla undir stjóm Magnúsar Sche-
ving, lýðveldishlaup, frjálsar íþrótl-
ir, knattspyma karla, undanrásir í
sundi, skák, hestadómar, söguferð
og úrslit í handknattleik.
Klukkan 12 er knattspyma
kvenna, úrslit, 5.-6. sæti og 3.-4.
sæti. Knattspyma karla er á dagskrá
á sama tíma, landgræðsla og nátt-
úruskoðun. Síðan er glíma, skóg-
rækt og stafsetningarkeppni.
Keppni f pönnukökubakstri hefst
klukkan 15 í samkomutjaldinu og
þ;u' verður eflaust margt um mann-
inn. Klukkustund síðar eða klukkan
16 er margt á dagskrá. Þá er knatt-
spyma karla, úrslit í knattspymu
kvenna og fjölskylduskemmtun
með þrautakóng og ratleik. Þvf næst
er lýðveldishlaup og ’65-boðhlaup.
Heimsmeistarakeppnin í knatt-
spymu mun að sjálfsögðu fanga at-
hygli margra klukkan 19.30 þegar
keppni fer fram um 3.-4. sætið.
Leikurinn verður sýndur á risaskjá
og í fjölda sjónvarpstækja, en
kvöldvaka hefst klukkan 20, tjald-
ball klukkan 22 með Hljómum og
sveitaball einni klukkustund síðar.
Lokadagskrá á sunnudag
Á sunnudag fara fram úrslit í öll-
um greinum. Keppni hefst með fím-
leikum klukkan átta. Síðan tekur við
bridds, skák og morgunleikfimi. Að
því loknu er helgistund, lýðveldis-
hlaup og frjálsar íþróttir. Klukkan
10 er keppt í að leggja á borð, und-
anrásir í sundi, söguferð og 10.30 er
Bláskógaskokk sem er 16,1 kfló-
metrar og 5,5 kílómetrar. Klukkan
11 er knattspyrna karla, úrslit í 3. til
6. sæti sem og skógrækt. Klukkan
12 em hestaíþróttir, úrslit í körfu-
knattleik og náttúmskoðun.
Þá er á dagskrá ’65-boðsund,
axlatök, stafsetningarkeppni og
landgræðsla. Urslit í sundi em
klukkan 15 og á sama tíma úrslit í
knattspyrnu karla, starfshlaup og
Ijölskylduskemmtun. Mótsslit
verða í Nýja íþróttahúsinu klukkan
17. En það er ekki þar með sagt að
allir ætli að drífa sig af staðnum
strax í kjölfarið. Klukkan 19.30
verður úrslitaleikurinn á HM í knatt-
spymu og verður hann sýndur á
skjám bæði í Menntaskólanum og í
Gamla íþróttahúsinu. Lokaball hefst
klukkan 21 í samkomutjaldinu.
Formaður UMFÍ er Þórir Jóns-
son, formaður Landsmótsnefndar er
Þórir Haraldsson og frant-
kvæmdastjóri mótsins er Olafur
Örn Haraldsson.
Tjaldmífiítóð
L a u g a r v »t n s (j«11
21. Landsmót UMFÍ
Tj«ldrt«8i
Ræktun týðs
og lands
Usknir
t'Oiiii' í»g iimi
Versiumr, H»$ei
Berwtrr og otfuf
&afreitur
$um*rbústaðir
8ll»stai6í
Gr*6r»sv0ð
Grund
l.nam
Biiasneö.
íþrOvtöh:
SftMMeftt - TjatdstæSi
Upptýstngaf/SljómstöS
«8«“ c
Matarvöltuo
Sjoppa
Aðaileikviingur
irOttl miðstOÖ'
Optð sv*Si
Tjaldst*6t
Laugarvatn