Alþýðublaðið - 13.07.1994, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 13.07.1994, Blaðsíða 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MPiotmnuiu Miövikudagur 13. júlí 1994 GREENPEACE fagnar sigri í Þýskalandi í stríðinu gegn MAGNÚSIGUÐMUNDSSYNI, kvikinyndagei'ðannanni. Málið stendur aðeins um 23 sekúndna myndskeið í myndinni, segir Magnús: Greenpeace gerir atlögu að Magnúsi - Grænfriðungar segja Magnús í vafasömum félagsskap og að hann láti stjómvöld hvalveiðiþjóða um að kosta starfsemi sína. Grænfriðungar segja einnig að Magnús hafi nýverið fært út kvíamar og sé nú farinn að ganga erinda kjaniorkuiðnaðarins að er alrangt að lögbann hafi verið veitt nema fyrir einu þeirra atriða sem Greenpeace setti fram fyrir þýska dómstólnum. Annað í þessum upplýsingum Green- peace til fjölmiðla er í sama dúr, lygar og skætingur. Þeir ljúga þessu sama í sífellu og ætlast til að fólk trúi að lokum, sagði Magnús Guðmundsson, kvik- myndagerðarmaður í samtali við Alþýðublaðið. Hann sagðist til dæmis nú í fyrsta sinn heyra að hann væri á förum til Reno í Ne- vada í Bandaríkjunum til að sækja leiðtogaráðstefnu Wise Use hreyfingarinnar, en hún er sögð berjast af alefli gegn um- hverfissamtökum. „Eg er ekki að fara eitt né neitt, allra síst á þessa ráðstefnu, enda hef ég ekkert þangað að gera,“ sagði Magnús. Tuttugu og þrjár sekúndur Greenpeace í Bretlandi sendi frá sér fréttatilkynningu þar sem segir að þýskir dómstólar hafi lagt lögbann á Manninn í regn- boganum og stutt allar þijár meginkröfur samtakanna, sem kröfðust banns á sýningar myndarinnar í Norddeutsche Rundfunk - NDR. Eina atriðið, að sögn Magnús- ar, sem lögbann var sett á, var notkun 23 sekúndna í myndinni, sem Greenpeace telur sig eiga og séu notaðar í óleyfi. Magnús Guðmundsson segir að þessir filmubútar hafi verið keyptir af sjónvarpsstöðvum í Evrópu. Sé það rétt að Greenpeace eigi rétt- inn, þá sé það ekki mikið mál að klippa þá út. Asökunum um að vinnubrögð við myndina feli í sér rógburð og óvönduð vinnubrögð, textum sé kippt úr samræmi við raunveru- leika og annað í þeim dúr var vísað frá dómstólnum að sögn Magnúsar. Hann segir að viðtöl í myndinni hafi margoft verið yfirfarin og fréttamenn, meðal annars Ríkisútvarpsins, fengið að ganga úr skugga um að þar er engu hnikað, ekkert klippt úr samhengi. Greenpeace segir þvert á móti hafa sannanir fyrir því að í myndinni séu svör við spumingum sem aldrei voru lagðar fram. Eiðsvarnir fyrir þýskum dómstóli Fyrir dómstólnum í Þýska- landi mættu talsmenn Green- peace, doktor Francisco Pal- acio og David McTaggart og sögðu eiðsvamir rangar þær að- dróttanir sem fram koma í myndinni, segja Greenpeace samtökin. Segir ennfremur að myndin hafi verið grannskoðuð innan NDR- sjónvarpsins, og að þar hafi menn komist að ósiðlegri fréttamennsku sem hefði verið beitt, meðal annars með klipp- ingum og misnotkun á viðtals- bútum. Vegna þessarar óná- kvæmni myndarinnar hefði NDR boðið Greenpeace að koma fram með viðbrögð sín og hefði það verið ætlunin að þekkjast það boð. NDR hafi fengið að sjá fmmgögnin að við- tölunum og samþykkt að endan- leg gerð myndarinnar væri blekking og ósönn saga. Danski framleiðandinn hefði hinsvegar neitað að afhenda þessar filmur til notkunar í umræðum að lok- inni sýningu í sjónvarpi. Þarmeð hefði verið ákveðið að krefjast lögbanns á sýningu myndarinn- ar. Dómurinn uppreisn æru, segir Greenpeace „Greenpeace álítur að það hafi fengið fullkomna uppreisn æm gagnvart kvikmyndinni Mann- inum í regnboganum. Sú mynd er ekki og var aldrei ætlað að vera málefnaleg rannsóknavinna blaðamanns, heldur miklu frem- ur pólitískt útreiknuð tilraun sem mnnin er undan rifjum öfgamanna til hægri, en hópur þeirra átti þátt í gerð þessarar myndar", fullyrða Greenpeace- menn og em hróðugir yfir sigri yfir TV2 í Danmörku, - og Magnúsi Guðmundssyni. Samtökin segja að tilgangnum sé best lýst af Ron Arnold, sem í myndinni sé lýst sem hlutlaus- um rannsóknamanni, en sé í raun stofnandi Wise Use hreyf- ingarinnar, sem beijist gegn um- hverfissamtökum. Hann hafi verið skráður útsendari Americ- an Freedom Coalition í Banda- ríkjunum, hins pólitíska arms Sameiningarkirkju séra Sun Myung Moons, sem alræmdur er. Amold hafi sagt: „Markmið okkar er að eyðileggja, - að kremja umhverfíshreyfingam- ar“. Vitnað í viðtal Aiþýðublaðsins Þá segir að myndin Maðurinn í Regnboganum hafi að stómm hluta verið komið á legg fyrir til- stuðlan tímaritsins 21st Century Science and Technology og myndinni dreift til fulltrúa Al- þjóða hvalveiðiráðsins af Magnúsi Guðmundssyni, einum af ráðgjöfum myndarinnar. Greenpeace vitnar í viðtal Al- þýðublaðsins 6. janúar síðastlið- inn þar sem Magnús segist vera framleiðandi myndarinnar ásamt TV2 í Danmörku. Segir Greenpeace að TV2 hafni því að Magnús hafi haft annað hlutverk við myndina en ráðgjöf. Full- yrða Greenpeacemenn að Magnús sé á förum til Reno í næstu viku á fund Wise Use- hreyfingarinnar. Þetta segir Magnús hins vegar hið mesta bull, aldrei hafi komið til álita að fara þá ferð. Tugthúslimur með ógeðfellda lífssýn Tímarit þetta segir Green- peace að spegli skoðanir eins þekktasta hægri öfgamanns Bandaríkjanna, Lyndon Larouche. Lyndon þessi sé ný- sloppinn úr fangelsi eftir að hafa setið inni fyrir stórfelld fjársvik og ásakaður um samblástur gagnvart stjómvöldum. Larouc- he sé fyrirgangssamur gyðinga- hatari og hafi hann varið tveim áratugum ævi sinnar í að koma sér upp hópi skoðanasystkina öfgafólks á hægri væng, sem óski þess heitast að koma á fas- istastjóm í landi sínu. í Vestur- Evrópu eigi Larouche sér mál- svara í svokallaðri Schiller Ins- titute í Þýskalandi, - með skrif- stofur í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi - og leggur „stofn- un“ þessi aðaláherslu á yfirburði germanska kynstofnsins. Magnús fjármagnaður af Wise Use? Því er haldið fram fullum fet- um af Greenpeace að tímaritið 21st Century Science and Technology hafi staðið fyrir og kostað sýningu á fyrri mynd Magnúsar Guðmundssonar í blaðamannaklúbbnum í Wash- ington 9. júní 1989. Þá segir í fréttinni frá Green- peace, sem samtökin sendu Al- þýðublaðinu í fyrradag: „Guðmundsson hefur í nokk- ur ár haft lífsviðurværi af því að ráðast að Greenpeace með kvik- myndum og staðhæfingum sem sannanlega hafa reynst æm- meiðandi. Arið 1989 úrskurðaði norskur dómstóll hluta af fyrstu mynd hans, heimildarmynd sem var meðmælt hvalveiðum, „Lífsbjörg í Norðurhöfum", æmmeiðandi fyrir Greenpeace og krafðist þess að þeir hlutar myndarinnar yrðu fjarlægðir. Guðmundsson var dæmdur til að greiða Greenpeace 30.000 norskar krónur, sem hann hefur enn ekki greitt“. Ennfremur segir: „Kynningarferðir Guðmunds- sons hafa verið íjármagnaðar af Ron Amold, sem og hagsmuna- aðilum í fiskveiði- og hvalveiði- iðnaði á Islandi, Noregi, Nýja Sjálandi og Japan. Nýlega færði hann út starfsemi sína yfir í kynningu á kjarnorkuiðnaði.“ Enn er grafið á Ingólfctorgi! Vegfarendur um hið ágæta Ingólfstorg í miðborg Reykjavíkur rekur í rogastans. Enn á ný er farið að grafa, löngu eftir að torgið átti að vera tilbúið. Er ekki að undra þótt það sé orð- ið einn helsti höfuðverkur gatna- málastjórans í Reykjavík og borgarskipulagsins. Enn eitt vandamál hefur kom- ið upp, - ekkert var hugsað um almenningssalemi við torgið og leitar borgin því á náðir ná- grannanna, meðal annars til eig- anda veitingahúss sem senn opnar í Alafosshúsi, til að fá úr- lausn þeirra mála. Hjá borgarverkfræðingi var Alþýðublaðinu tjáð í gærdag að nýjasti uppgröfturinn á torginu, stafi af því að verið sé að laga fláa sem var á götunni. Þama var flái úr timbri og var hann til bráðabirgða. Nú á að ganga end- anlega frá götunni. En miklar hafa hremmingamar verið og lýsa miklu óskipulagi í fram- kvæmdum borgarinnar, - sem vonandi heyra senn liðinni tíð til með nýjum stjómendum borgar- innar. ENDALAUSAR FRAMKVÆMDIR: Tveir kornungir starfsmenn Reykjavík- urborgar við nýjasla uppgröftinn á Ing- ólfstorgi, verið erað laga akstursbraut- ina suðaustanvert við torgið. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason BÍLASKOÐUN fær faggildingu „Þetta er allt samkvæmt Evrópubylgjunni, við fengum vottun og faggildingu, sem á að vera til þess falin að tryggja fagleg vinnubrögð og hlutleysi, gagnvart opinberum aðilum og al- menningi“, sagði Karl Ragnars, Ifamkvæmdastjóri Bifreiða- skoðunar íslands í samtali við Alþýðublaðið. í sænska blað- inu SWEDAC magazinet birtist þessi mynd. Þar kemur fram að sænska faggildingarstofnunin hefur aðstoðað hina ís- lensku við mat og viðurkenningu á gæðaregluin Bifreiða- skoðunar íslands. Á myndinni má sjá Gæðaráð Bifreiðaskoð- unar íslands. Sitjandi á myndinni em þeir Ársæll Þorsteins- son, verkfræðingur og forstöðumaður faggildingarstofu Lög- gildingarstofunnar, og Karl Ragnars, framkvæmdastjóri Bif- reiðaskoðunar... REYNIR efstur í Motorcross Reynir Jónsson er efstur í íslandsmeistaramótinu í Motorc- ross, torfæmkeppni í mótorhjólaakstri. Hann er með 75 stig að afloknum tveim umferðum, en sú þriðja og úrslitasennan er 24. julí. I öðm sæti kemur Guðmundur Sigurðsson með 68 stig og Jón K. Jacobsen þriðji með 65 stig... HJÓLREIÐAKEPPNI í Hafnarfirði Æskulýðs- og tómstundaráð Hafnarfjarðar gengst fyrir hjól- reiðakeppni á morgun, fimmtudag, á Víðistaðatúni. Þátttak- endur mæti klukkan 13. Keppnin er fyrir krakka á aldrinum 8 til 14 ára og felst í að hjóla ákveðna vegalengd á sem skemmstum tíma. Keppt um góð verðlaun. Geir Bjamason í félagsmiðstöðinni Vitanum veitir nánari upplýsingar í síma 50404... LOÐNAN gerir mikið Fyrstu dagar loðnuvertíðar lofa góðu unt framtíðina. Komin em á land nærri 60 þúsund tonn. Það má nærri geta að smá- fiskurinn gerir rnikið fyrir sjávarplássin eystra. Dagana 7. júlí til II. júlí bámst á land um 19 þúsund tonn og 2.600 lonn vom á leiðinni til lands... SVÍNIÐ sækir á í sölu Framleiðsla á kjöti var meiri í maí í ár en í fyrra, þegar á heild- ina er litið. Bændasamtökin segja að þegar litið er til 12 mán- aða tímabils sé framleiðslan hinsvegar ekki meiri. Salan á kjöti í maí í ár er hinsvegar minni en í fyrra, en hefur aukist lítillega á síðustu 12 mánuðum. Framleiðsla og sala á svína- kjöti hefur aukist töluvert meira í maí en á sama tíma í fyrra og það sarna hefur mátt sjá á yfirlitum síðustu rnánaða. Þá hefur framleiðsla hrossakjöts aukist töluvert frá í rnaí 1993, eða um 58%, en salan aftur á móti 33% minni en í sama mán- uði í fyrra og hefur heidur dregið úr henni á síðustu 12 mán- uðum, eða sem nemur 6,8%. Enn hefur orðið samdráttur á sölu kindakjöts, en nokkur aukning í sölu nautakjöts... SJÚKRALIÐAR og HJÚKRUN- ARFRÆÐINGAR Landlæknir hefur sent bréf „af gefnu tilefni". Þar segir að á síðustu mánuðum hafi sjúkraliðar og hjúkrunarfræðingar skipst á skoðunum um ýmis mál er snerta þessa tvo starfs- hópa. Landlæknir hefur rætt við ýmsa aðila um nokkur efnis- atriði og umtjöllunina um þau. „Það skal hins vegar tekið fram að enginn, hvorki hjúkrunarfræðingur né sjúkraliði, hafa fengið áminningu frá landlækni í tengslum við það“, segir í þessu stuttabréfi...

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.