Alþýðublaðið - 20.07.1994, Side 1
Verð í lausasölu kr. 140 m/vsk
Áhersluatriði á formennskuári íslancls í NORÐURLANDARÁÐI:
Serstök úttekt fari fram á
húsnæðiskerfum landanna
- í ljósi þeirra breytinga sem fylgja í kjölfar aukins Evrópusamstarfs
/
slenska ríkisstjómin leggur
áherslu á það varðandi
stefnumótandi þætti hús-
næðismála á Norðurlöndum, að
fram fari sérstök úttekt á hús-
næðiskerfum Norðurlandanna í
ljósi þeirra breytinga sem fylgja
í kjölfar aukins Evrópusam-
starfs. Frelsi til að vinna og setj-
ast að getur haft áhrif á húsnæð-
ismálin og til lengri tíma einnig
á fyrirkomulag húsnæðismála.
Þetta kemur meðal annars
fram í bæklingnum Norrœnt
samstarf (starfsárið 1994 til
1995) sem Sighvatur Björg-
vinsson samstarfsráðherra
Norðurlanda átti frumkvæði að.
f bæklingnum em upplýsingar
um þau mál sem ríkisstjómin
leggur sérstaka áherslu á, á for-
mennskuári fslands í norrænu
samstarfi.
Norrænt samstarf á sviði hús-
næðis- og byggingamála byggir
á samstarfsáætlun sem tekur til
tímabilsins 1992 til 1996. Á
næsta ári verður sérstök áhersla
lögð á að efla samstarfið en á
liðnu ári einkenndist það nokk-
uð af óvissu í kjölfar breytinga
sem vom þá til umræðu. ísland
hefur á margan hátt notið góðs
af samvinnu á þessum vettvangi
bæði með beinum og óbeinum
hætti.
Fyrsta verkefnið við úttektina
á húsnæðiskerfum Norðurland-
anna er að taka saman yfirlit um
fyrirkomulag húsnæðismála á
Norðurlöndunum. Það er einnig
hugsað sem gagn í mikilvægri
aðstoð við baltnesku löndin
vegna uppbyggingar á skipulagi
og ljármögnun íbúðamála í
löndunum.
Samstarf ráðuneytanna og
stofnana á sviði húsnæðismála
mun beinast að sérstöku verk-
efni sem ætlað er að miðla upp-
lýsingum um greiðsluvanda
íbúðarkaupenda og rannsaka
ástæður vandans sem hefur gert
vart við sig í öllum löndunum í
mismiklum mæli þó. Miðlun
upplýsinga um árangur aðgerða
til að leysa úr vandanum og fyr-
irbyggja greiðsluerfiðleika og
útlánatöp verður snar þáttur í
samstarfinu.
Á sviði félagsmála verður
lögð sérstök áhersla á samstarf
vegna atvinnuleysis og áhrifa
þess á ungt fólk. Um það bil
helmingur þess íjár sem varið
verður á árinu 1994 til vinnu-
vemdarsamstarfs fer til verkefna
sem Qalla um atvinnuleysi ungs
fólks.
Lögð verður sérstök áhersla á
virka vinnumiðlun milli Norður-
landanna. Jafnframt verður sam-
starf aukið við vinnumiðlanir í
Evrópu í gegnum EURES
vinnumiðlunarkerfið. Lokið
verði við samanburð á vinnurétti
á Norðurlöndunum annars vegar
og vinnurétti ESB hins vegar.
Stefnt skal að því að Norður-
lönd hafi samráð og samvinnu
um það að hafa áhrif á vinnu
Evrópusambandsins að undir-
búningi tilskipana og áætlana á
sviði vinnuvemdar. Hér er um
afar mikilvægan þátt að ræða í
starfi ESB að félagsmálum og
ljóst að efni tilskipananna hefur
mikil áhrif á öryggi, aðbúnað og
hollustuhætti á vinnustöðum
hérlendis.
Islenska ríkisstjórnin leggur áherslu á
það varðandi stefnumótandi þœtti hús-
nœðismála á Norðurlöndum, að fram
fari sérstök úttekt á húsnœðiskerfum
Norðurlandanna í Ijósi þeirra breyt-
ittga sem fytgja í kjölfar aukins Evr-
ópusamstarfs.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
STÉTT
HELLUSTEYPA
Elsta starfandi hellusteypa landsins.
Hyrjarhöfða 8-112 Reykjavík - Sími: 87 62 11 - Fax: 87 32 40.
Opið virka daga frá kl. 8.00 til 18.00 og laugardaga frá kl. 10.00 til 14.00