Alþýðublaðið - 20.07.1994, Page 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
STORVIRKI
Miðvikudagur 20. júlí 1994
MÞMBLMD
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Setning og umbrot: Alprent hf.
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Sími: 625566 - Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 140
Fjöreggið og
Evrópusambandið
Umræðan um hugsanlega aðild íslands að Evrópusambandinu
er rétt að mjakast af stað á íslandi. Á sama tíma hafa þjóðþing
hinna Norðurlandanna þegar gert upp hug sinn og nú er beðið
eftir þjóðaratkvæðagreiðslu síðar á árinu. Ástæðurnar fyrir deyfð
íslenskra stjómmálamanna gagnvart umræðu um hugsanlega að-
ild landsins að Evrópusambandinu eru einkum þijár: í fyrsta lagi
tiltölulega nýgerður samningur um Evrópska efnahagssvæðið
sem talinn er tryggja íslendingum flest það ætlast var til; í öðm
lagi er um að ræða almennt viðnám allra flokka - nema Alþýðu-
flokksins - gegn alþjóðlegum samningum sem hugsanlega geta
rift innflutningshöftum og öðmm úreltum nauðungarlögum í
þágu sérhagsmuna; þriðja og stærsta ástæðan fyrir áhugaleysi
stjómvalda er svo ótti íslendinga við að glata forræði yfxr eigin
auðlindum, það er fyrst og fremst óttinn vegna lögsögu landsins.
Lítum á þessa þætti aðeins nánar.
Samanlagt hafa ofangreindar staðreyndir orðið flestum þing-
mönnum ástæða til að loka á alla almenna umræðu um hugsan-
lega aðildammsókn íslands að Evrópusambandinu. Almenning-
ur í landinu er hins vegar ósammála þessu ef marka má skoðana-
kannanir. Þar kemur greinilega fram sá vilji yfirgnæfandi meiri-
hluta þjóðarinnar, að Island eigi ekki aðeins að ræða hugsanlega
aðild að Evrópusambandinu heldur hreinlega, að ísland gangi í
sambandið. Almenningur virðist því gera sér grein fyrir því, að
hinar þrjár meginástæður stjómvalda og þingmanna fyrir því, að
ræða ekki hugsanlega Evrópusambandsaðild em í raun tíma-
skekkja. í fyrsta lagi ríkir óvissa um samninginn um Evrópska
efnahagssvæðið þegar ljóst er að EFTA er að leysast upp og flest
aðildaríöndin að gerast Evrópusambandsþjóðir. Það er því
spuming hve lengi samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið
gagnast okkur. í öðm lagi er almenningur á allt annarri skoðun
en flestir þingmenn gagnvart aukinni opnun landsins, írjálsræði
og óhindmðum viðskiptum og verslun. Meðan mestallt þingið
stendur vörð um sérhagsmuni fárra, skilur almenningur, að brott-
nám haft og vemdunarstefnu og aukin samkeppni þýðir lægra
vömverð og betri kjör.
Þar sem um 80% af þjóðartekjum íslands koma frá sjávarút-
vegi, er öllum ljóst að lögsaga Islendinga er hin heilaga kýr lýð-
veldisins. Lögsagan er íjöregg þjóðarinnar. Ef fjöreggið brotnar
er sjálfstætt líf íslendinga í bráðri hættu. Meginverkefni komandi
ára og áratuga er einmitt að breikka lífsgmnn okkar, renna stoð-
um undir aðra atvinnuþætti og dreifa þannig áhættunni. I þessu
skyni má spyxja: Hvað myndi aðild landsins að Evrópusamband-
inu færa okkur varðandi breiðari lífsgmnn, ný atvinnutækifæri,
aukið ijármagn, stærri hlutdeild fyrir afurðir okkar á erlendum
mörkuðum? Þá mætti einnig spyija: Hvemig höfum við íslend-
ingar farið með fjöreggið okkar, lögsöguna? Höfum við ekki
stundað rányrkju á miðunum, gengið svo hastarlega í skrokk á
þorskstofninum að við höfum þurft að grípa til neyðaraðgerða til
að vemda hann? Og í kjölfarið hafa verið búin til óréttlát kerfi
líkt og kvótakerfið þar sem auðlind þjóðarinnar hefur verið tek-
in úr höndum fólksins í landinu og afhent nokkmm kvótakóng-
um og sægreifum. í raun hafa íslenskir stjómmálamenn gefið
fjöreggið nokkmm útgerðaijöfmm. Það er hinn kaldi sannleikur
málsins á þessari stundu þegar ekki má ræða hugsanlega um-
sóknaraðild landsins að Evrópusambandinu af ótta við að Islend-
ingar glati forræði sínu yfir íslenskri fískveiðilögsögu.
Hitt ber að benda á, að auðvitað vitum við ekki hvemig samn-
ingi við náum við Evrópusambandið hvað varðar sjávarútvegs-
mál fyrr en við látum á reyna með aðildarviðræðum. Noregur
féll mjög hagstæðan samning og ef trúa má orðum Uffe Elle-
man-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur, í ís-
lenskum fjölmiðlum undanfama daga, þá fá íslendingar ekki
lakari samning en Norðmenn. Samningurinn um Evrópska efna-
hagssvæðið bendir ennfremur til þess, að Evrópusambandsþjóð-
imar em tilbúnar til að virða mikilvægi fiskveiða fyrir íslendinga
og aðra sérstöðu okkar. Ef okkur hugnast ekki tillögur Evrópu-
sambandsins, getum við einfaldlega þakkað fyrir okkur og neit-
að aðild að sambandinu.
Lokaspumingin hlýtur því að vera: Hverju höfum við íslend-
ingar að tapa með því að heíja aðildarviðræður við Evrópusam-
bandið? Svarið er einfalt: Engu. Þvert á móti höfum við allt að
vinna.
SIJMARLEIKHÚSIÐ við Hlcnim - Stórvirki
ANTHONY BURGESS sett upp af kraftmiklu
skólalólki sem fékk til þess styrk frá Borgarráði:
- eða ,A Clockwork Orange“ frumsýnt á fíistudaginn
í þýðingu VETURLIÐA GUÐNASONAR og
leikstjóm ÞÓRS TUI.IMUS
Sumarleikhúsið við
Hlemm ræðast ekki á
garðinn þar sem hann er
lægstur í verkefnavali. Næst-
komandi fösmdag, 22. júlí,
frumsýna þau stórvirki Ant-
hony Burgess, A Clockwork
Orange, sem í þýðingu Vetur-
Iiða Guðnasonar nefnist Vél-
gengt glóaldin. Leikstjóri er Þór
Tulinius. Félagamir Bono og
The Edge úr írsku hljómsveit-
inni U2 hafa samið tónlist við
verkið og verður hluti hennar
notaður í uppfærslunni. Aðal-
hlutverkin eru í höndum Gott-
skálks Dags Sigurðssonar og
Þorláks Lúðvíkssonar. Leik-
mynd sjá Ólafur Árni Ólafsson
og Auður Jónsdóttir. Ljósa-
hönnuður er Sigurður Guð-
mundsson og búningahönnuður
er Linda Björg Árnadóttir.
Saga Sumarleikhússins
Forsaga Sumarleikhússins er
sú, að þeir Sigurður Guðmunds-
son og Gottskálk Dagur Sig-
urðsson sóttu um styrk til Borg-
arráðs úl leiklistarstarfs fyrir
ungt og atvinnulaust skólafólk í
Reykjavík. Borgarráð tók vel í
hugmyndina og gerði hana
mögulega með fjárframlögum.
Sumarleikhúsið stóð fyrir
skrúðgöngu í borginni á 50 ára
lýðveldisafmælinu sem vakti
mikla og verðskuldaða athygli.
Þema göngunnar var landnámið
í öllum sínum myndum.
Nú eru starfandi um 30 manns
á vegum leikhússins. Nánari
upplýsingar em gefnar í símum
626392 og 624320.
Óvægin þjóðfélagsádeila
Vélgengt glóaldin (sem marg-
ir kannast við í kvikmyndagerð
snillingsins Stanley Kubrick)
gerist í ótilgreindri framtíð og
fjallar í stuttu máli um bemsku-
brek, barsmíðar og Beethoven
að sögn aðstandenda Sumarleik-
hússins. Leikritið segir frá Alex,
fímmtán ára unglingi sem hlust-
ar á Beethoven og talar nadsat
(rússneskuskotið slangur) á milli
þess sem hann nauðgar og mis-
þyrmir samborgumm sínum. Al-
ex lendir í fangelsi eftir að hafa
verið svikinn af vinum sínum.
Þar undirgengst hann meðferð
sem gerir honum ókleyft að
beita nokkra lifandi sálu ofbeldi.
I þessu verki sínu varpar höf-
undurinn, Anthony Burgess,
fram áleitnum hugleiðingum um
eðli mannsins og hvort það sé
ekki einmitt ófullkomleikinn
sem geri manninn að skyni bor-
inni vem. Burgess spyr spum-
inga um frelsi mannsins og rétt
hans til að velja. Áhorf-
endum er látið eftir að
hugsa upp svörin.
Leikritið drepur á
mörgum málefnum sem
brenna á fólki, svo sem
ofbeldi, atvinnuleysi og
auknum hraða tækniald-
arinnar sem hefur getið af
sér rótleysi í þjóðfélaginu.
SUMARLEIKHÚSIÐ
við Hlemm frumsýnir
„Vélgengt glóaldin“ eftir
ANTHONY BURGESS
nœstkomandi fóstudag,
22.júlí. Leikstjóri erÞÓR
TULINIUS og þýðing-
una sá VETURLIÐI
GUÐNASON um. Á
myndinni eru nokkrír
leikendanna (frá vinstrí:
SOFFÍA BJARNA-
DÓTTIR, GOTTSKÁLK
DAGUR SIGURÐSSON,
SIGURÐUR GUÐ-
MUNDSSON og GUÐ-
MUNDUR ANDRÉS
ERLINGSSON. í gœr-
dag stóð yfir í leikhúsinu
við Hlemm lokafrágang-
ur á leikmynd. Stúlkan á
minni myndinni mun
heita ÞÓREY.
Alþýðublaðsmyndir
Athugasemd
frá Pósti &
síma
Vegna greinar í Alþýðu-
blaðinu fimmtudaginn 14. júlí
síðastliðinn vill Póstur & sími
taka fram að ýmislegt hefur
verið gert til að bæta loftið í
póst- og símstöðinni í Kringl-
unni. Loftræstistokkurinn hef-
ur verið hreinsaður og skipt er
um síur á nokkurra vikna
fresti, eða mun oftar en gert er
við venjulegar aðstæður.
Vinnustaðurinn er nú orðinn
reyklaus og þannig hafa
starfsmenn lagt sitt af mörk-
um til að bæta loftið. Best
hefði verið ef setja hefði mátt
opnanleg fög á glugga hús-
næðisins og fá þannig beina
loftræstingu en fyrir því
fékkst ekki leyfi hjá arkitekt
hússins. Ofsagt var í greininni
að liðið hefði yfír starfsfólk
vegna hita og kannast enginn
við að það hafí gerst.
Sú loftræsting sem upphaf-
lega var hönnuð og tekin í
notkun í Kringlunni blæs lofti
úr miðrými hússins inn í
verslanir og afgreiðslustaði.
Er því eins hagað í húsnæði
því sem Póstur & sfmi hefur
yfir að ráða. Fer það eftir
ástandi loftsins í miðrými
hvers konar loft berst inn í
póst- og símstöðina. Eftir því
sem loft er heitara og óhreinna
f miðrými, því verra verður
loftið á pósthúsinu. Þetta
vandamál er vel þekkt hjá öðr-
um fyrirtækjum í Kringlunni.
Nokkur þeirra hafa nýlega
keypt sérstakan loftkælingar-
búnað en hann mun ekki bæta
eða hreinsa ioftið heldur ein-
ungis kæla það.
Póstur & sími hefur á und-
anfömum árurn lagt sig fram
við að skapa starfsmönnum
sínum heilsusamlegt og ör-
uggt starfsumhverfi og fengið
lof fyrir. Því kom umfjöllun
Alþýðublaðsins og það hvem-
ig tekið var á málum forráða-
mönnum Pósts & síma í opna
skjöldu. Áfram verður unnið
að því að koma á viðunandi
loftræstingu í afgreiðslunni í
Kringlunni.
nnnwUutja- os Wta f úííIhíí hrtrtuWJns iKRINGTANM.
aAtUTiRÍl.K ogMDSKirrAVTNIR Uvarta -JiJÖn^Ttííuíhvrtaii-
Itrauö. I Jltur úitianir i ttujjrtu. í cr |m'i «1
Wjaipi kifHavfingu. Sérfrtöítoem' I>eua l«i«minarpfla.
VHKfnjKl kriii(ý»usirsejírJmtt nri »kV(jfJoanÍfj5muj>íuj3>mtt:
Kringjanerónýt!
- fogdí wmi toirtsuiarati Piírts A ama «14 ALÞVDtdlLABID i pn.
Á’-CuMÍé) l«i trr «n tnmtukid aú noLkrir itartuuenn
uTu mM mriVminH." "«RÍ8 :inair
Athugasemd
ritstjómar
Atitugasemd fasteigna-
deildar viðfrétt Alþýðublaðs-
ins um ástand loftrœstingar-
mála í útibúi Pósts Æ síma
Kringiunni bœtir engu við
umfjöUun blaðsins. Eitt skal
þó tekiðfram varðandi yfiriið
statfsfólks vegna slœmrar
loftrœstingar: Alþýðublaðið
hefurfleiri en einn heintildar-
mann innan Pósts & sima fyr-
irþessum upplýsingum og tel-
urþær heimildir traustar. Al-
þýðuhlaðið stendur þar af
leiðandi 100% við frétt slna.
Fasteignadeild Pósts & síma. RUstjórn Atþýðublaðsins.